Morgunblaðið - 17.02.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987____
Kvennalistinn
35
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mikill fjöldi fólks var viðstaddur vigsluathöfnina eins og sjá má. Fremst á myndinni er frú Sólveig
Asgeirsdóttir, biskupsfrú, og fyrir aftan hana Kristján frá Djúpalæk, sem gerði textann við annan sálm-
anna sem frumfluttir voru.
Tónlistarflutningnr undir stjórn Jóns Hlöðvers Áskelssonar. Faðir
hans, Áskell Jónsson, lék á orgel. Þeir feðgar sömdu lögin við sál-
mana tvo sem frumfluttir voru.
í árslok 1983 var gengið frá
samningi við hönnuði: Svan Eiríks-
son, arkitekt, um grunnplan og
útlit, Verkfræðiskrifstofu Norður-
lands um lagnir og burðarvirki, og
Eirík Rósberg, rafmagnstækni-
fræðing, um raflagnir og hljóm-
flutningskerfi.
Nú eru aðeins liðin rúm tvö og
hálft ár síðan fyrsta skóflustungan
að kirkjunni var tekin. Það gerði
herra Pétur Sigurgeirsson 81. maí
1984. 16. júní það ár hófst vinna
við jarðvegsskipti og eftir að opnuð
höfðu verið tilboð í fyrsta áfanga,
uppsteypu neðri hæðar, var gengið
til samninga við lægstbjóðanda,
Híbýli hf. I apríl 1985 var síðan
gerður samningur við Híbýli hf. um
annan áfanga, uppsteypu efri hæð-
ar og tums. 7. júní 1986 var kirkjan
orðin fokheld.
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína
í Glerárkirkju á sunnudaginn tit að
vera viðstaddur vígsluna. Sóknar-
presturinn, séra Pálmi Matthíasson,
sagði að líklega hefðu verið á átt-
unda hundrað manns viðstaddir.
„Þetta er mikill hamingjudagur —
að geta tekið fyrsta áfangann í
notkun. Hér hefur verið unnið gífur-
legt sjálfboðastarf og sumir hafa
hreinlega búið hér síðan klárað var
að múra kirkjuna um jólin og hægt
var að fara að innrétta," sagði séra
Pálmi í samtali við blm. Morgun-
blaðsins. Hann sagði að með þessu
nýja húsi yrði gjörbylting í allri
starfsemi í sókninni og tók skýrt
fram að allir sem vildu nýta sér
aðstöðuna væm velkomnir, hvort
sem um fundi eða annað væri að
ræða. Sóknarpresti og söfnuði bár-
ust mörg heillaskeyti og blóma-
skreytingar í tilefni dagsins. Séra
Pálmi gat þess að margir, sem ekki
áttu heimangengt, hefðu hugsað til
þeirra — til að mynda hefðu borist
skeyti frá áhöfnum togaranna Ak-
ureyrarinnar og Kaldbaks.
Verksmiðjusljórínn með poka af innfluttu Tess-laxafóðri.
starfsfólki og aðstöðu. Útflutning-
urinn til Færeyja verður grundvöll-
ur verksmiðjunnar í nokkur ár —
þetta gengi ekki annars, því mat-
fiskeldið hér innanlands er enn ekki
orðið nógu mikið til að standa und-
ir svona verksmiðju.
Við höfum verið í innflutningi
og sölu fóðurs og tækja hér og í
Færeyjum frá því fyrirtækið var
stofnað, í geysiharðri samkeppni
við framleiðendur annarra tegunda
þurrfóðurs, sérstaklega Ewos, og
hefur gengið vel. Einnig eigum við
f samkeppni við votfóðrið. Sam-
keppnin verður áreiðanlega mikil
áfram, en við sjáum ekki fram á
neinar þær breytingar á markaðn-
um sem gætu orðið okkur í óhag.
Við leggjum höfuðáhersluna á
gæði framleiðslunnar og ráðgjöf og
þjónustu við kaupendur fóðursins,
viljum selja árangur. Við gerum
okkur grein fyrir því að menn geta
fundið ódýrara fóður en getum stað-
hæft að okkar fóður er ekki dýrt,
þegar litið er á hvað hvert kfló í
vexti fisksins kostar þegar upp er
staðið.
Fiskeldið er viðkvæm atvinnu-
grein. Því er nauðsynlegt fyrir
fiskeldismenn að hafa valmögu-
Ieika. Það veitir framleiðendum
aðhald og þýðir að við verðum að
standa okkur í samkeppninni. Við
höfum visst forskot á aðra með
samstarfinu við T. Skretting. Þeir
eru leiðandi í vöruþróun og erum
við því með tryggingu fyrir þvf að
vera alltaf fyrétir með nýjungar í
framleiðslunni." _
í verksmiðju ístess hf. í Krossa-
nesi verður í upphafí eingöngu
framleitt þanið laxafóður (extruter-
að), sem notað er fyrir 125 g fiska
og stærri. ístess mun geta lækkað
verð þess um 10—15% miðað við
það sem innflutta fóðrið hefur kost-
að. Fyrirtækið mun áfram flytja inn
seiðafóður, þar sem það er ódýrara
en að framleiða það hér, vegna
þess hvað markaðurinn er lítill enn
sem komið er. Orfá ár eru síðan
T. Skretting hóf að framleiða þanda
fóðrið, fyrst allra fiskfóðurframleið-
enda, og er það nú orðið vinsælasta
eldisfóðrið. Það er framleitt með
svipuðum aðferðum og komflögur
og cocoa puffs, svo dæmi séu tekin.
Pétur sagði að þetta fóður væri
orkuríkara en annað fóður auk þess
sem það sykki hægar og fengist
því betri nýting á því.
Guðmundur og Pétur sjá tölu-
verðan markað fyrir framleiðsluvör-
ur verksmiðjunnar fyrir utan
laxafóðrið. Þeir segjast hafa vissa
möguleika á að selja hráefni til
votfóðurframleiðenda. Einnig gera
þeir sér vonir um að geta selt þurr-
fóður til loðdýrabænda. Það gæti
verið hagkvæmt fyrir bændur sem
ættu langt í fóðurstöð að nota þurr-
fóður í loðdýraeldið. Þá sögðust
þeir hafa möguleika á enn frekari
útflutningi fiskfóðurs en til Fær-
eyja, ef á þyrfti að halda.
Verksmiðja fstess hf. er í Krossa-
nesi, í nábýli við Sfldarverksmiðjuna
þar. Þá eru fyrirtækin með sameig-
inlega skrifstofuaðstöðu á Akur-
eyri. Krossanesverksmiðjan
stuðlaði að stofnun ístess í þeim
tilgangi að komast inn á þennan
markað með gæðamjöl, en hún er
stærsti framleiðandi gæðamjöls hér
á landi. Þá var hugmyndin að sam-
nýta tæki og aðstöðu. Guðmundur
Stefánsson sagði að ekki væri jafn
mikill hagur að þessu nábýli og í
fyrstu var ætlað vegna þess að
framleiðslan yrði miklu meiri en
gert var ráð fyrir í fyrstu áætlun-
um. ístess hf. væri sjálfstætt
fyrirtæki og yrði að vera sjálfu sér
nægt með sem flesta hluti. Loðnu-
mjöl og lýsi er uppistaðan í fisk-
fóðrinu og kemur því 76—77% af
hráefni ístess frá Krossanesverk-
smiðjunni. Afgangurinn er innflutt-
ur, til dæmis vítamínblöndur.
Fiskfóðurverksmiðjan kostar um
100 milljónir kr. Bygging hennar
er aðallega fjánnögnuð með hlutafé
(20 milljónir kr.) og lánum hjá
Norræna fjárfestingarbankanum
og Iðnlánasjóði.
- HBj.
Málmfrí ður
í fyrsta sæti
FRAMBOÐSLISTI Kvennalistans í Norðurlandskjördæmi eystra fyr-
ir alþingiskosningarnar í vor hefur nú verið ákveðinn og skipar
Málmfríður Sigurðardóttir í Reykjadal fyrsta sætið eins og við síðustu
kosningar.
Listinn var ákveðinn á fundi á
Akureyri í fyrrakvöld. Hann lítur
þannig út:
1. Málmfríður Sigurðardóttir,
Reykjadal.
2. Jóhanna Þorsteinsdóttir, Akur-
eyri.
3. Jóhanna Rögnvaldsdóttir,
Bárðardal.
4. Edda Hrafnhildur Bjömsdóttir,
Raufarhöfn.
5. Sigurborg Daðadóttir, Akur-
eyri.
6. Ásta Baldvinsdóttir, Húsavík.
7. Hólmfríður Jónsdóttir, Akur-
eyri.
8. Hanna Helgadóttir, Dalvík.
9. Ingibjörg Gísladóttir, Mývatns-
sveit.
10. Bergljót Hallgrímsdóttir, Að-
aldal.
11. Gunnhildur Bragadóttir, Akur-
eyri.
12. Margrét Samsonardóttir,
Húsavík.
13. Bjarney Súsanna Hermundar-
dóttir, Þistilfírði.
14. Elín Antonsdóttir, Akureyri.
Sjónvarp Akureyri
ÞRIÐJUDAGUR
17. febrúar
18.00 Vandræðabörn (North Beach and
Rawhide). Tveir ungir drengir eru
sendir á vinnuhæli eftir að hafa reynt
að stela mótorhjóli. Þar leitast fyrrver-
andi fangi fangi við að beina þeim inn
á rétta braut áður en það er um sein-
an. Aðalhlutverk: William Shatner,
Christoper Penn og Tate Donovan.
19.40 Teiknimynd. Gúmmíbirnir (Gum
Bears).
20.05 Allt er þá þrennt er (3's Comp-
any). Þegar Larry og Jack ákveða að
skipta um íbúð heldur Larry að nú
séu draumar hans loksins að rætast.
20.35 í návigi. Yfirheyrslu- og umræðu-
þáttur í umsjón Páls Magnússonar.
21.20 Hættustund (The Final Jeopardy).
Bandarísk bíómynd með Richard"
Thomas, Mary Crosby og Jeff Corey
i aðalhlutverkum. Ung hjón ætla að
gera sér glaðan dag i stórborginni
Detroit. En dagurinn fer allur úr skorð-
un og endar með skelfingu. Bönnuð
börnum.
22.50 Bandaríski körfuboltinn (NBA).
Umsjónarmaður er Heimir Karlsson.
00.15 Dagskrárlok.
VERTU ÁHYGGJUIAUS
MEÐAN BÖRNIN BAÐA SIG!
Danfoss baöblöndunartækin eru hitastillt. Þú
ákveður hitastigið og skrúfar frá - Danfoss held-
ur hitanum stöðugum. Öryggishnappur kemur í
veg fyrir að börnin stilli á hærri hita en 38°C.
= HEÐINN =
SEUAVEGI 2.SIMI 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-ÞJÓNUSTA
ÁSKRIFENDUR
AÐEINS EITT
SÍMTAL
691140 691141
Með einu simtali er hægt að breyta innheimtuað-
ferðinni. Eftir það verða áskriftargjöldin skuldfærð á
viðkomandi greiðslukortareikning mánaðarlega
fHftfgtmlpIftfrUi LE
i