Morgunblaðið - 17.02.1987, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
i
fólk í
fréttum
Reuter
Sarah heldur skírteininu hreykin
á lofti svo að hver sem er geti
séð það.
Sarah með
flugprófið
Sarah hertogaynja af Jórvík tók
flugpróf síðasta fimmtudag og
er því fyrsta konan í bresku kon-
ungsfjölskyldunni sem tekur slíkt
próf.
Við tækifærið var hún klædd í
„flugmannsjakka“ úr leðri, líkum
þeim sem flugmenn í fyrri heims-
styijöld klæddist. Til þess að allt
væri nú í stíl var hún að sjálfsögðu
í hnéháum stígvélum og með hvítan
silkitrefil um hálsinn.
COSPER
— Stóri bróðir þarf ekkert að fá, hann var að enda við að
éta litla bróður.
Isabelle Adjani.
Susan George.
Chris Evert-Lloyd.
Warren Beatty. Goldie Hawn.
Er Warren Beatty
haldinn alnæmi?
Sagt var frá því á þessum stað
að franska leikkonan Isabelle
Adjani hefði komið fram í sjónvarpi
og tilkynnt að hún væri hvorki lát-
in né veik af alnæmi. Þessi tilkynn-
ing olli nokkurri undrun sumra, en
nú er hermt að sagan hafi komist
á kreik vegna sambands hennar við
leikarann Warren Beatty, en að
undanfömu hafa þær sögur gengið
íjöllum hærra í Holljrwood að hann
sé halddinn þessum sjúkdómi.
Vegna þessa hafa margar fyrr-
verandi vinkonur Beattys uggað um
eigin velferð, en af fyrrum vinkon-
um á leikarinn nóg. Þetta er fríður
hópur og margar þekktustsu konur
heims þar á meðal. Má nefna Diane
Keaton, Chris Evert-Lloyd, Britt
Ekland, Goldie Hawn, Susan Ge-
orge og Faye Dunaway.
Má nefna að Chris Evert-Lloyd
neitaði að láta taka sér blóðsýni
þegar hún ætlaði að taka þátt í
tennismóti í Washington. Eftir
Goldie Hawn var það haft að nógu
erfitt hefði verið að búa með kapp-
anum á sínum tíma. „...en nú er
aðalvandamálið að hafa yfírleitt
nokkuð haft saman við hann að
sælda."
Mark Thatcher
gengnr í það heilaga
Mark Thatcher, sonur Mar-
grétar Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, kvæntist
síðastliðinn laugardag. Hin
heppna er Diane Burgdorf, 26 ára
gömul dóttir milljónamærings í
Texas. Athöfnin fór fram í lítilli
kapellu í miðborg Lundúnaborg
og voru ekki nema nánustu vinir
og ættmenni viðstödd.
Upphaflega átti brúðkaupið að
fara fram í Texas, en af óviðráð-
anlegum ástæðum var ekki
heimangengt fyrir Margréti, svo
að áætlunum var breytt. Var par-
ið gefið saman í Savoy-kapellunni,
sem er að baki Savoy-hótelinu.
Skrifstofa forsætisráðherra hafði
gefið til kynna að hér yrði um
algert einkamál að ræða og var
sú ósk virt af flestum. Komu að-
eins um sjötíu manns saman við
kapellunna auk §ölda ljósmynd-
ara, en slíkt þykir lítið við atburð
sem þennan.
Brúðurin gisti í Savoy-hóteli
ásamt fjölskyldu sinni, en hún
kom til brúðkaupsins í dökkrauð-
um Rolls-Royce, sem ekið var fyrir
homið frá aðalinngangi hótelsins.
Venju samkvæmt klæddist brúð-
urin hvítu.
Forsætisráðherran kom til at-
hafnarinnar í hýasintu-blárri
dragt og sagði hverjum þeim sem
heyra vildi að þetta væri einn
hamingjusamasti dagur ævi henn-
ar. Hún hefur áður sagt að hún
vildi gjaman eignast bamaböm
hið fyrsta. Hún er nú 61 árs göm-
ul og á tvö böm, Mark og Carol,
en hún er blaðamaður. Mark, sem
starfar á vegum breska bílafyrir-
tækisins Lotus í Texas, var
klæddur í sjakkett og var með
gula Texas-rós í hnappagatinu.
í kapellunni voru um 150 gest-
ir, þar á meðal um 70 frá Texas.
Athöfnin tók um eina klukku-
stund, en á eftir var haldin
móttaka fyrir um 300 gesti á
Savoy-hótelinu.
Hjónakomin munu eyða hveiti-
brauðsdögunum á leynilegum
stað, en að því loknu halda þau
til Texas þar sem þau hyggjast
búa.
Thatcher, sem hefur af sumum
verið nefnd „Jámfrúin", hefur
löngum haft það orð á sér að
vera tilfmningaköld, hvað sem
annars er hæft í því. Telja því
margir að brúðkaup sonarins
muni draga fram í dagsljósið
„manneskjulegra" andlit frúar-
innar og auka enn á vinsældir
hennar, en fari sem horfir verða
kosningar á Bretlandi á árinu.
Brúðkaupsmyndin. Frá vinstri eru: Denis Thatcher, Margrét
Thatcher, Mark og Diane, Theodore Burgdorf og Lois, kona hans.
Mark Thatcher smellir einum á kinnina á sinni heittelskuðu.
Theodore Burgdorf leiðir dóttur sína upp að altarinu. Keuter