Morgunblaðið - 11.03.1987, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1987
61
Úr hinum nýja sal, talið frá vinstri: Sigurbjörn ELdon Logason, sem opnað hefur þar myndlistarsýn-
ingu, Hreggviður Jónsson, Gunnar Þorláksson og Biynjar Valdimarsson, allir úr hússtjóm
Templarahallar.
Nýtt félagsheimili
Templara „Hallarsel“
Guðmundur Kr. Jónsson formaður afhendir Magnúsi ÓLafssyni viður-
kenningu íþróttamanns ársins.
Stofna sjóð tileink-
aðan afreksmönnum
Héraðsþingið var vel sótt.
Frá opnun sýningarinnar um vatns- og frárennslislagnaefni.
By ggingaþj ónustan:
Sérsýning um vatns-
og frárennslislagnaefni
OPNIJÐ hefur verið í Bygginga-
þjónustunni, Hallveigarstíg 1,
sérsýning um efni, tæki og búnað
varðandi vatns- og frárennslis-
lagnir bygginga.
Á sýningunni getur að líta hinar
ýmsu vörur þessu tengdar, svo sem
frárennslisrör, einangruð rör, plast-
lagnir, rör með fittings, pípuein-
angrun ýmiskonar, þéttiefni fýrir
lagnir, blöndunartæki og ýmislegt
fleira.
Á meðan á sýningunni stendur
verða fulltrúar fyrirtækjanna sem
sýna til staðar á fýrirfram auglýst-
um tímum og gefa upplýsingar um
sínar vörur og notkun þeirra.
Sýningin er ætluð jafnt fagmönn-
um á þessu sviði sem almenningi
og verður opin alla virka daga kl.
10.00-18.00 til 3. apríl og auk þess
um helgina 14. mars kl. 10.00-16.
00 og 15. mars kl. 15.00-18.00.
í tengslum við sýninguna verða
haldnir kynningarfundir um vatns-
og fráveitulagnir, dagana 13. og
27. mars, ef næg þátttaka fæst.
Verður þar m.a. fjallað um ÍST
staðla 67 og 68 um fráveitu- og
vatnslagnir, um tæringu í lögnum
og efnisval, hávaða og hávaðavam-
ir í lögnum, útbreiðslu elds meðfram
lögnum og vamir gegn því ofl.
Fyrirlesarar eru Gunnar Guð-
mundsson hjá Brunamálastofnun,
Gunnar Kristinsson hjá Hitaveitu
Reylqavíkur, Pétur Sigurðsson hjá
Verktakaþjónustunni sf., Sigurður
P. Kristinsson hjá Staðalhúsum sf.,;
Steindór Guðmundsson hjá Rann-
sóknarstofnun Byggingariðnaðar-
ins, Þráinn Karlsson, verkfræðing-
ur og Einar B. Pálsson, prófessor.
Að kynningarfundum þessum
standa Endurmenntunamefnd Há-
skóla íslands, Iðntæknistofnun
íslands og Lagnafélag íslands. ,
NÝTT félagsheimili templara
var vigt og tekið i notkun laug-
ardaginn 28. febrúar sl. og
hlaut það nafnið „Hallarsel".
Félagsheimilið er staðsett i
vesturenda 3. hæðar í Þara-
bakka 3 í Mjódd Breiðholts-
hverfis og verður rekið sem
útibú frá Templarahöllinni við
Eiríksgötu.
Hallarsel er 230 fermetrar að
stærð og skiptist húsnæðið í 130
fermetra skiptanlegan sal, auk
eldhúss, skrifstofu og snyrtingu.
Hallarsel er áætlað fyrir allt
að 150 gesti og húsnæðið vistlegt
og vel frá gengið.
í frétt frá templurum segir
„Góðtemplarar binda miklar vonir
við þennan nýja sal sem staðsett-
ur er við rætur fjölmennrar
byggðar Breiðholtshverfa og vona
að tilkoma salaríns bæti úr brýnni
þörf fyrir samkomusal í hverfínu.
Þegar er ráðgert að ungtempl-
arar starfí 2 kvöld í viku og
bamastúkan Kvistur, sem starfað
hefur í Fellahelli, fái þama inni
fyrir sína starfsemi.
Menningarviðburðir verða í
Hallarseli og á laugardaginn opn-
aði Sigurbjöm Eldon Logason
Selfossi.
Héraðssambandið Skarphéðinn hélt héraðsþing sitt á Laugalandi
í Holtum 28. febrúar og 1. mars. Þingið var vel sótt og ungmenna-
félagar lögðu á ráðin um skipulag starfsins næsta starfsár. Á þinginu
var meðal annars stofnaður afreksmannasjóður, skipting hagnaðar
af Lottói ákveðin og Bændaglíma Suðurlands haldin í fyrsta sinn.
Aðalverkefni næsta starfsárs er samþykkt og er HSK með fyrstu
þátttaka í Landsmóti ungmennafé-
laganna sem haldið verður á
Húsavík í sumar. Þangað er fyrir-
hugað að senda eitthvað um 150
þátttakendur.
Skipting hagnaðar af Lottói var
héraðssamböndum sem ákveður þá
skiptingu. 10% tekna af Lottói fara
í afreksmannasjóð HSK, 20% til
stjómar og 70% til skiptingar milli
félaga. 10% skiptist jaftit, 15% eftir
fjölda skattskyldra félaga, 5% eftir
mættum fulltrúum á þingi HSKj
20% eftir kennslustyrkjum UMFI
og ÍSÍ og 50% eftir hlutfalli íbúa á
félagssvæði hvers félags.
Tveimur nýjum félögum var veitt
aðild að HSK, Golfklúbbnum Flúð-
um og íþróttafélagi fatlaðra á
Suðurlandi. Þá var samþykkt að
koma á fót menningar- og lista-
nefíid innan sambandsins.
Á kvöldvöku sem haldin var í
nýju og glæsilegu íþróttahúsi máttu
Rangæingar lúta í lægra haldi fyrir
Árnesingum í bændaglímu. Þar var
og keppt í hinni árlegu sleifar-
keppni öldunga. Sigurvegarinn,
Markús ívarsson, hlaut farandgrip-
inn, gamla sleif, og sæmdarheitið
sleifarhafi HSK. Þar var og Magnús
Ólafsson sundmaður sæmdur heit-
inu íþróttamaður HSK fyrir árið
1986. Ýmis skemmtiatriði voru á
kvöldvökunni sem 250 manns sóttu
en í lokin stjómaði Ámi Johnsen
alþingismaður fjöldasöng og var
kröftuglega tekið undir.
I myndarlegri starfsskýrslu fyrir
liðið ár kemur meðal annars fram
að velta sambandsins er um 3,4
milljónir og hagnaður af rekstri 343
þúsund. í inngangi hvetur formaður
HSK, Guðmundur Kr. Jónsson,
sveitarstjómarmenn til að meta
gildi þess að í sveitarfélaginu sé^
starfandi öflugt ungmennafélag.
Hann bendir einnig á að starfsemi
ungmenna- og æskulýðsfélaga sé
ásamt öflugu fræðslustarfí sterk-
asta vopnið í baráttu gegn fíkniefn-
um.
Stjóm HSK 1987 er þannig skip-
uð: Guðmundur Kr. Jónsson, Sel-
fossi, formaður, Þráinn Þorvalds-
son, V-Landeyjum, gjaldkeri,
Ingibjörg Marmundsdóttir, V-
Landeyjum, ritari, Bjöm Bjamdal. _
Jónsson, Biskupstungum, vara-'
formaður, og Kristín Ólafsdóttir,
Hraungerðishreppi, meðstjómandi.
í varastjórn eru Jon Jónsson, Hellu,
Garðar Vigfússon, Skeiðum, og
Kári Rafn Sigurjónsson, Hvolsvelli.
Sig.Jóns
Sigurbjörn Eldon Logason hengir upp eina af 25 myndum sínum
á sýningunni.
myndlistarsýningu, sem standa
mun til 15. mars.
Það er von templara að starf-
semi þeirra vaxi í starfí að bind-
indismálum með tilkomu
Hallarsels og hvetja alla sem geta
skoðað salinn og kynna sér það
starf sem þar fer fram."