Morgunblaðið - 04.04.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987
Reuter
Gatangaf sig
Þessi stóri vörubíll fékk heldur betur að finna fyrir því, er
g-atan undir honum gaf sig og hann féll niður í gínandi gap.
Atburður þessi gerðist á fimmtudag skammt frá stórmarkaði
einum í París. Til allrar mildi slasaðist bílstjórinn ekki. Bíllinn,
sem er 19 tonn, var að flytja hlass af möl. Eins og gefur að
skilja, varð mörgum vegfarandanum starsýnt á þá furðusjón,
sem við blasti eftir óhappið.
Bretland:
Margaret Thatcher vin-
sæl eftir Moskvuf örina
London, Reuter.
MEIRIHLUTI almennings á
Bretlandi telur að ferð Margaret
Thatcher til Sovétríkjanna hafi
aukið líkur á samkomulagi um
afvopnun, ef marka má niður-
stöður nýrrar skoðanakönnunar.
Harris-fyrirtækið gerði könnun
þessa fyrir Lundúnablaðið Daily
News. Rúmur helmingur þeirra 767
sem spurðir voru kvaðst telja að
líkur á samkomulagi um afvopnun
hefðu aukist í kjölfar ferðar breska
forsætisráðherrans. 46 prósent
sögðust hafa aukið álit á Thatcher
en aðeins 14 prósent töldu hana
hafa sett niður við ferðina.
Skoðanakönnunin hefur tæpast
glatt forustumenn Verkamanna-
fiokksins. Vinsældir Neils Kinnock,
formanns flokksins, hafa dalað
mjög eftir ferð hans til Banda-
ríkjanna i síðustu viku. 35 prósent
aðspurðra kváðust hafa minna álit
á honum en áður en 13 prósent
töldu hann meiri mann en áður.
í frétt Daily News er því spáð
að foringjar Ihaldsflokksins muni
nú þrýsta á Thatcher um að boða
til kosninga í júnímánuði eða jafn-
vel í maí. Ljóst er að staða hennar
er sterk eftir ferðina til Sovétríkj-
anna og það vilja flokksmenn færa
sér í nyt. Kjörtímabili Thatcher lýk-
ur í júní á næsta ári og hafa verið
uppi getgátur um að hún boði til
kosninga í september.
í Sovétríkjunum eru menn einnig
hinir ánægðustu með heimsókn frú-
arinnar. Pravda, málgagn kom-
múnistaflokksins, sagði í gær að
heimsókn hennar hefði verið sérlega
mikilvægur viðburður þrátt fyrir að
ágreiningur hefði komið upp í við-
ræðum Thatcher og Mikhails S.
Gorbachev Sovétleiðtoga einkum
varðandi vígbúnaðarmál. Sagði í
frétt blaðsins að þeir Gorbachev og
Nikolai Ryzhkov forsætisráðherra
hefðu gefið stjórnmálaráði flokksins
skýrslu um viðræður þeirra og
Thatcher. Sögðu þeir að viðræðurn-
ar hefðu verið mikilvægar og að
þeir og Thatcher hefðu verið sam-
mála um mikilvægi þess að leysa
ágreining um meðaldrægar kjarn-
orkuflaugar í Evrópu.
nrn
EIO DEUVERY VAN
SUBARU
3-D00R 4WD SL SUNROOF
JI2 SLU
3-D00R DL
3-D00R SL
4WO TURBO
5-D00R GL
5-D00R 4WD GL
JI2 4WD GLII
Það sem við sýnum á þessum
^ i957-i987síðum, er ekki tæmandi varð-
an(H tegundir, en sýnir vel
gott úrval.
COMMERCIAL VAN