Morgunblaðið - 14.04.1987, Page 28

Morgunblaðið - 14.04.1987, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987 íslenskan í fortíð, nútíð og framtíð eftir Margrétí Þorvaldsdóttur Nú er mikið rætt um að „íslensk- an“ sem tungumál sé í meiri hættu en áður vegna erlendra áhrifa. Sú hætta er án efa fyrir hendi en vandamálið er margþættara. Ég velti stundun fyrir mér neikvæðum áhrifum málhreinsunarmanna. Lé- legt og illa skrifað námsefni, sem böm hafa orðið að læra í gegnum árin, hefur ekki beinlínis verið til að auka tilfinningu fyrir góðu lif- andi máli. Þá örvar ekki málþroska uppvaxandi kynslóðar hið bama- lega og oft lélega mál sem bömum er boðið að hlýða á í bamaþáttum íslensku sjónvarpsstöðvanna. Þessir þættir og fleiri hafa mótandi áhrif á máltilfinninguna. í málhreinsun eru „málvendir" okkar miklir eldhugar. Þeir ganga ötullega fram í því að segja okkur „hinum dauðlegu" hvað sé rétt og hvað rangt í íslensku máli. Það virð- ist þó sjaldan hvarfla að þeim að þeir gætu stundum haft rangt fyrir sér. íslenskan er mjög litríkt mál þeg- ar hún fær að njóta sín. Það kemur sérstaklega fram í samræðum við eldra fólk. Þetta fólk sem ekki hef- ur notið nútíma skólagöngu talar málið eins og það var talað á þeirra æskustöðvum, með því orðkyngi sem ríkjandi var í hverju héraði. Litríki málsins kemur m.a. fram í orðtökum, í orðaröð og skemmtileg- um orðaforða — orðum sem ekki er alltaf að fínna í Orðabók Menn- ingarsjóðs en eru íslensk samt. Orðaröð innan setninga hefur ekki verið sú saman í öllum héruðum landsins, enda voru víða til mállýsk- ur og hafa þær fremur auðgað málið en vanhelgað það. Þessum sérkennum er nær búið að útrýma úr ritmálinu. Það hefur verið gert á kerfísbundinn hátt, t.d. af prófarkalesurum tímarita og dagblaða. Þeir færa samviskusam- lega til „betra máls“ öll áhrif frá mállýskum, en um leið hafa þeir afmáð mörg sérkenni málsins. Það hefur reynst erfitt að „hreinsa" talmálið. Þrátt fyrir harða baráttu „eldhuga", vill það mál, sem lært er í æsku, lengi loða við. Málhreinsunarbaráttan, eins og henni hefur verið framfylgt, hefur oft verið mjög óvægin og ósann- gjöm. Enda er nú svo komið að hinn almenni borgari vogar sér ekki lengur að standa upp á mannamót- um til að tala, nema vel undirbúinn, af ótta við háð og lítilsvirðandi gagnrýni. En þó að margir „málvendir" telji háðið sterkasta vopnið í barátt- unni gegn „slæmu rnáli", hefur háðið ekki byggt upp málvitund fólksins, háðið hefur brotið niður sjálfsöryggi þess og um leið tilfínn- ingu fyrir eðlilegu lifandi máli. Þar hefur verið höggvið fast að rótum upprunans, kjölfestu einstaklings- ins. Árangurinn hefur einnig orðið sá, að nú veit fólk ekki lengur hvað telst rétt vera og hvað rangt í notk- un móðurmálsins. Komi sú staða upp, að menn telji sig ekki hafa rétt orð á takteinum, er reynt að forðast vandræði með því að grípa til erlendra orðtaka, eða þá að sagt er: „___eða eins og sagt er á slæmri íslensku ..." Eftir þennan fyrirvara þykir ekki þurfa að vanda málfarið. Málhreinsunarmenn gera sig ekki síður seka um þessa höfuð- synd en við hin. Sé það rétt, að unga fólkið hafi ekki lengur fullt vald á móðurmáli sínu, eins og margir halda fram, er það undrunarefni að ekki skuli hafa verið lögð meiri áhersla á að leita orsaka, svo bæta megi ástand- ið. Námsbækur hafa mikil áhrif á máltilfínningu og orðaforða bama. Það er einfaldlega vegna þess að námsefnið verður að lesa oft og Margrét Þorvaldsdóttir læra helst utan að. Þegar í náms- efninu er illa samsettur texti, röng orðanotkun og ambögur hverskon- ar, fer ekki hjá því að slíkt mál festist í vitund þeirra sem verða að læra slíkan texta. Hafi menn ein- lægan áhuga á því að vita hvaða slæmir „málgallar" hafa komið inn í málið ættu þeir að kanna sérstak- lega námsefni íslenska skólakerfis- ins síðustu áratugina. Taka má sem dæmi hinar hefð- bundnu lestrarbækur sem notaðar hafa yerið við kennslu í grunnskól- um. í texta þeirra koma oft fyrir orð sem ekki eru á vörum fólks daglega, en böm þurfa að vita skil á. Skýringar á þessum orðum vant- ar venjulega. Þar af leiðandi eykur lestur þessara lestrarbóka lítið við orðaforða lesenda, eins og væntan- lega er þó tilgangurinn. Víða erlendis, þar sem einhver áhersla er lögð á að nemendur nái góðu valdi á móðurmáli sínu, er lögð áhersla á kerfisbundna upp- byggingu orðaforðans með góðum orðalistum og skýringum í náms- bókum. Hér vantar hann yfírleitt og það vantar einnig leiðbeinandi verk- efnalista með lesefninu, þar sem nemendum er kennt að draga sam- an efnið og þá um leið aðalatriði frá aukaatriðum. Einnig vantar spumingar úr textanum til að örva umræður um efni hans. Nú hefur verið gefin út kennslubók í íslands- sögu (Gunnars Karlssonar) sem gæti orðið til fyrirmyndar í þessum efnum. Nemendur þurfa einnig mun meiri aðstoð og æfingu við að tjá sig á móðurmálinu og að setja mál sitt fram á skipulegan hátt. Slík vinnubrögð eru reyndar engin seinni tíma uppgötvun, því margir höfundar fornrita okkar kunnu þá list vel. Enda segja fróðir menn, að mönnum hafi verið kennd ritlist á miðöldum. Fyrir nokkmm ámm var birt við- tal við bandarískan rithöfund, konu, sem unnið hafði til verðlauna fyrir einstaklega góða framsetingu efnis og fágaðan ritstíl. Hún var spurð hvar hún hefði lært að skrifa á þennan hátt. „Kennari minn,“ svaraði hún, „var mjög hrifinn af íslensku „Edd- unurn". Hann lét okkur lesa þær og læra. „Eddumar" vom okkar kennslubækur og af þeim lærði ég að skrifa.“ Einhvemtíma mun sá dagur koma, að við íslendingar skynjum að besta kennsluefnið í ritlist er að finna í okkar eigin fombókmennt- um. Einn er sá þáttur, sem sljóvgað hefur málvitund íslenskra bama og margir hafa reynt að vekja athygli á, en það er bamaefni útvarps og þó sérstaklega íslensku sjónvarps- stöðvanna. Eins og efni margra sjónvarps- þátta er oft sett upp, er það beinlínis niðurlægjandi fyrir böm. Kemur þá ósjaldan fyrir að ungir áhorfendur bamaþátta sjónvarps ijúka upp frá sjónvarpi reiðir og segja: „Hvað þetta er vitlaust," „Hvað halda þeir í sjónvarpinu að við séum eigin- lega?“ „Halda þeir virkilega að áhorfendur séu allir ómálga böm?“ Þegar málið er kannað verður að viðurkenna að íslenska efnið er alls ekki alltaf nægjanlega vel unn- ið. Málið í bamaþáttunum er oft þannig fram sett, að það er sem talað sé niður til barna á mjög ein- foldu bamamáli. Böm finna það vel og finnst þeim sem verið sé að gera lítið úr þeim. Ljóst dæmi um það er fígúran „Stulli" sem kemur fram í „Stund- inni okkar“. Þar er fullorðinn maður látinn koma fram í gervi bams sem ekki getur tjáð sig eðlilega og ekk- ert skilur, ekkert getur og ekkert veit. Fyrir skömmu var „Stulli“ í heim- sókn í heilsuræktarstöð. Þar hefði verið hægt að sýna börnunum þá virðingu að kynna þeim tæki stöðv- arinnar, heiti þeirra, á hvem hátt þau stuðli að uppbyggingu líkam- ans. Á þann hátt hefði verið hægt að auka þekkingu og orðaforða barna á mjög skemmtilegan og lif- andi hátt. í stað þess var settur á svið leikur trúðs. Annað er gagnrýnivert í þessum bamastundum, en það er þegar leikarar í bamahlutverkum em látnir setja upp gleraugu til að und- irstrika aulahátt. Þar er komið við mjög viðkvæman blett hjá bömum. Mörg þeirra beijast lengi gegn því að nota gleraugu í skóla, jafnvel þó þau þurfi nauðsynlega á þeim að halda við námið. Það er m.a. vegna þessarar innprentuðu „aula- ímyndar" barna með gleraugu, sem virðist svo vinsælt skemmtiefni full- orðinna. Sjónvarpið er mjög öflugt kennslutæki. Það er kjörið til mála- náms, móðurmáls sem erlendra tungumála. Þar sem mynd fylgir tali og atburðarás er hröð, beinist athygli áhorfandans að'því óskipt og mun betur en að efni annarra miðla. Þess vegna getur vel unnið, uppbyggjandi og skemmtilegt sjón- varpsefni verið hið besta kennslu- efni. En sé það aftur á móti illa unnið eða af vankunnáttu getur það verið til mikils skaða. Ef við viljum að böm okkar nái góðu valdi á móðurmáli sínu verður að aðstoða þau við uppbyggingu málsins á meðan þau em að þrosk- ast og máltilfinningin að mótast. Það er hægt að gera með því að fylgjast betur með notkun málsins í þáttum fjölmiðla sem bömum er ætlað að hlusta á. Þeir verða að vera á góðu lipru máli. Það ætti einnig að skylda sjónvarpsstöðvam- ar að hafa allt útsent sjónvarpsefni barnaþátta með íslensku tali. Upp- byggingarstarf felst einnig í því að vinna að útkomu betri námsbóka en áður og annars lesefnis sem bömum er ætlað. Með því að fylgjast með því að vel sé að þessum málum staðið, tryggjum við best framtíð íslenskr- ar tungu. Höfundur sér um þáttinn „Rétt dagsins “ í Morgunbiaðinu. Andi ofbeldislausrar andstöðu úr Biblíunni eftírÁsdísi Erlingsdóttur Útvarpsstöðin Bylgjan hafði þátt í tilefni fæðingardags Martin Luth- er King. Stjómandi þáttarins var Ámi Þórður Jónsson og fékk hann sér til aðstoðar prófessor Ólaf Ragnar Grímsson. Framsögumaður þáttarins skilaði vel til hlustenda aðalatriðum úr lífí og starfí M.L.K. og hans ofbeldislausu frelsis- og jafnréttisbaráttu til handa blökku- mönnum í Bandaríkjunum. Tónleikar í Fríkirkjunni FLUTT verður í Fríkirkjunni á miðvikudagskvöldið nk. kl. 20.30 tónverkið Stabat Mater eftir Per- golesi (1710-1736). Flytjendur em Ágústa Ágústs- dóttir sópransöngkona, Þuríður Baldursdóttir altsöngkona, skóla- kór Garðabæjar undir stjóm Guð- fínnu Dóm Ólafsdóttur, Jakob Hallgrímsson orgelleikari og strengjakvartett undir stjóm Símonar Kuran aðstoðarkonsert- meistara Sinfóníuhljómsveitar íslands. En það sem vakti athygli mína var sú hlutdrægni sem kom fram í málflutningi prófessorsins er hann sagði að M.L.K. hefði háð sína jafn- réttisbaráttu í anda Gandhi, frelsis- hetju Indveija, en nefndi ekki einu orði trúarvitnisburð M.L.K. á Jesúm Krist og fagnaðarboðskap hans. í bókinni „Ég á mér draum“, saga um Martin Luther King í máli og myndum (Almenna bókafé- lagið 1968) em þessi orð höfð eftir M.L.K.: „Anda ofbeldislausrar and- stöðu fékk ég úr Biblíunni og af kenningum Jesú. Starfsaðferðir lærði ég af Gandhi." (bls. 18.) Einn- ig vakti það athygli mína, af því að Ó.R.G. álítur sig talsmann friðar- sinna í heiminum, er hann sagði að fleiri en M.L.K. hefðu látið gott af sér leiða f jafnréttisbaráttu blökkumanna, og nafngreindi hann sem dæmi Malcom X. En á bls. 71 í nefndri bók segir frá virtum blökkumannasamtökum, CORE og SNICK, en SNICK var skipulags- nefnd friðsamra stúdenta. Þessi samtök hurfu frá friðsamlegum uppmna sfnum. 0g vígorð eins og frelsi og mannréttindi hurfu fyrir orðum eins og blökkumannavaldi. Einnig segir: „Á bak við það hugtak (blökkumannavald) stendur þröng- sýn aðskilnaðarstefna samtaka múhameðstrúarmanna og spá- manna þeirra sem heita: Elijah, Muhammad og Malcom X.“ Loks loguðu óeirðir í borgum um þvert og endilangt landið í heitri sumar- veðráttunni og draumur Martin King virtist bíða endiloka sinna í blóði og eldi." Hér ber ekki saman vitnisburði prófessorsins og orðum bókarinnar um Malcom X. (Malcom X var skotinn til bana 1965 af óánægðum samstarfsmanni, bls. 34 f sömu bók.) Guðleysi er hin opinbera afstaða sovéskra stjómvalda í trúmálum, en Alþýðubandalagið er byggt á rústum íslenskra kommúnista og lengi lifir í gömlum glæðum. Andi Ásdís Erlingsdóttir „En það sem vakti at- hygli mína var sú hlutdrægni sem kom fram í málefnaflutningi prófessorsins.“ guðleysis síaðist inn í menntakerfið og sljóleiki sigldi í kjölfarið, m.a. fyrir kristilegu siðgæðisuppeldi. Grunntónn komma-sosíalisma er falskur og andardráttur hyggjunnar er „meðalmennskan". Enginn má skara framúr, allt skal á sama plan. Athafna- og peningafrelsið er bijál- uð fijálshyggja. Útsjónarsemi einstaklinga, áræðni og dugnaður f framkvæmdum fá slagorðin: Auð- valdssinnar og skattsvindlarar. Skattakerfíð skal gert þannig að eigi skal hægt að áskotnast nema með skattsvindli. Þjóðin hefur verið bæði illa upplýst og andlega villt. í því sambandi má nefna þekkingar- leysið, t.d. með kaup á eigin húsnæði þegar vextir hækkuðu en laun ekki. Fólk áttaði sig ekki á því að lánskjaravísitalan hækkaði meira en kaupið. Hefír stefna Alþýðubandalagsins verið til farsældar í uppbyggingu og atvinnumálum í Reykjaneskjör- dæmi? Ef Alþýðubandalagið hefði ráðið væru hvorki ný flughöfn eða höfn á næsta leiti og álverið ekki til. Getur smáiðnaður eða verslun þrifíst ef ekki eru nýtt þau atvinnu- tækifæri sem standa til boða hveiju sinni? Vegna þess að hinn falski grunn- tónn samfélagsskoðana hefír náð slíkum undirtökum hér á landi erum við og höfum verið mesta láglauna- land í Evrópu. En þeir sem hafa lofað m.a. að hlúa að einstaklings- framtaki og að allir sitji við sama borð í anda sjálfsábyrgðar hafa of- an á allt þetta iðkað viðrinispólitík og rekið fyrir vindi með kosninga- loforðin. Ég væri samt ekki heiðarleg í málflutningi ef ég hrósaði ekki Al- þýðubandalagsmanninum Ásmundi Stefánssyni, forseta Alþýðusam- bands íslands, er hann tók þá þjóðhollu og ábyrgðarfullu stefnu að taka þátt í stöðvun verðbólgunn- ar. Það er leitt til þess að vita að svo vel menntaður og atorkusamur maður, sem prófessor Ólafur Ragn- ar Grímsson er, skuli hafa skipt um pólitískan gír og veðjað á rangan hest. Höfundur er húsmóðir í Garðabæ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.