Morgunblaðið - 14.04.1987, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
Þjóðhagsstofun
er flutt að Kalkofnsvegi 1, Seðlabanka-
húsinu. Sími 699500.
Lokað vegna flutninga í dag, þriðjudag.
Karlmannafot kr. 5.500,-
Terylenebuxur kr. 995.-, 1.395.-,
1.595.- og ull/teryl./stretch 1.895.-
Gallabuxur kr. 795.- og 850.-
Plauelsbuxur kr. 745.-og 865.-
Sumarbolir nýkomnir frá kr. 235.-
Skyrtur, nærfot o.ffl. ódýrt.
Andrés,
Skólavörðustíg22, sími 18250.
BJÓRSAMLAGIÐ
starfar með breyttu lagi,
og bjórinn er aldrei betri.
ÁMAN ÁRMÚLA 2 1
Kvenskór
úr hanskaleðri
Litir: Hvítt, rautt
Teg: 5125
Stærð: 35-42
Verð kr. 2.390.-
Litir: Rautt, svart, hvítt
Teg: 3081
Stærð: 35-42
Verð kr. 1.990.-
ATH: einnig margar aðrar fallegar gerðir
af kvenskóm úr hanskaleðri í ýmsum litum
5% stað
greiðsluafsláttur
Póstsendum
toepM
^skörinn
VELTUSUNDI 1
21212
Hvalamálið - skjala-
fals, smygl og laga-
brot í Hamborg?
eftirErlend
Haraldsson
Fyrir nokkru skýrðu fjölmiðlar
frá því að gámar með hvalafurðum
hefðu verið kyrrsettir í Hamborg.
Þetta munu vera sjö gámar, sam-
tals 179 tonn. Fréttirnar sögðu um
að kenna ósvífni hvalavemdunar-
manna og siðlítils græningjalýðs.
Islenskir fjölmiðlar, a.m.k. þeir sem
ég las og sá, þögðu hins vegar
þunnu hljóði um tvær meginstað-
reyndir málsins. Annars vegar að
með þessum flutningum var verið
að bijóta alþjóðalög sem Evrópu-
bandalagið ásamt yfirgnæfandi
meirihluta Sameinuðu þjóðanna (91
ríki) hafa samþykkt um sölu og
flutning á afurðum dýra sem eru
friðuð eða i útrýmingarhættu. Öll
Norðurlöndin nema ísland hafa
undirritað þennan sáttmála (Con-
vention on Intemational Trade in
Endangered Species).
Hins vegar komst upp um skjala-
fals eða villandi upplýsingar á
skjölum um innihald þessara gáma.
Ástæða er til að ætla að þetta kunni
að hafa verið gert með vitund og
samþykki íslenskra yfirvalda því
þau veittu útflutningsleyfi.
Við eigum mikið undir ákvörðun-
um og samningum við Efnahags-
bandalagið, sérstaklega um
innflutning ýmissa (löglegra) sjáv-
arafurða. Vart verður það okkur til
framdráttar ef það kemst í hámæli
að við brjótum ofannefnd lög til að
geta komið til sölu hvalafurðum
sem aflað hefur verið með veiðum
sem em brot á annarri alþjóðlegri
samþykkt sem bæði ríki Efnahags-
bandalagsins og við emm aðilar að.
Hér hefur eitt lagabrot leitt af
öðm, íslenskum stjómvöldum til
vansæmdar. Svo hneykslast menn
eins og baldnir strákar yfir því að
Dr. Erlendur Haraldsson
„Hér hefur eitt laga-
brot leitt af öðru,
íslenskum stjórnvöld-
um til vansæmdar. Svo
hneykslast menn eins
og baldnir strákar yf ir
því að einhverjir skulu
hafa kjaftað frá og
komið upp um þessi
afbrot í Hamborg, rétt
eins og þeirra sé sökin
en ekki vor.“
einhverjir skulu hafa kjaftað frá og
komið upp um þessi afbrot í Ham-
borg, rétt eins og þeirra sé sökin
en ekki vor.
Fréttir fjölmiðla af gámamálinu
í Hamborg em dæmigerðar um þá
blindu sem hefur einkennt umræðu
okkar og stefnu í hvalamálinu. í
reynd er þessi stefna meiri háttar
utanríkispólitískt glappaskot og
hneyksli, hvað svo sem allri hvala-
vemd líður.
Við níðum niður samþykkt al-
þjóðlegra samtaka sem við emm
aðilar að undir hlálegu yfirskyni
„vísindaveiða", sem ekki nokkur
maður innanlands né utan trúir í
hjarta sínu á að séu gerðar í þágu
vísindanna. Við stæmm okkur með
merkilegheitum af því að hafa stað-
ið framarlega við gerð alþjóðlegra
samninga um hafið og auðlindir
þess, en vart er blek þeirra samn-
inga þornað fyrr en við höfum
forgöngu um að fótumtroða aðra
alþjóðlega samþykkt sem snertir
lífíð í hafinu. Við getum sent sið-
gæðið lönd og Ieið í innanlandsmál-
um en slíkur tvískinnungur er
óhæfa í milliríkjasamskiptum, ef við
ætlum að telja okkur í hópi þróaðra
ríkja.
Með stefnunni í hvalamálinu er-
um við að leiða okkur inn í hat-
rammar deilur, sem ekki verður séð
fyrir endann á, og það fyrir hags-
muni sem skipta okkur þjóðhags-
lega engu máli, auk þess sem þessi
stefna er andstæð samþykkt Al-
þingis. Vilji yfírvöld halda þessari
óheillastefnu til streitu, væri þá
ekki hreinlegra að segja sig úr al-
þjóðahvalveiðiráðinu svo við getum
veitt þá fáu hvali sem eftir eru án
þess að verða brennimerktir fyrir
gegnsæja undirferli og fyrir að
standa ekki við alþjóðlegar sam-
þykktir sem við höfum skrifað
hátíðlega undir?
Það sýnist fyllsta ástæða fyrir
komandi ríkisstjórn að sýna raun-
sæi og taka hvalveiðistefnuna til
gagngerrar endurskoðunar.
Höfundur er dósent og starfar við
félagsvísindadeild Háskóla ís-
lands.
Starfsmenn Kristniboðssam-
bandsins á ferð um Snæfellsnes
Stykkishólmi.
STARFSMENN Kristniboðssam-
bandsins, þeir Ragnar Gunnars-
son kristniboði og Benedikt
Arnkelsson guðfræðingur, voru
í Stykkishólmi helgina 4.-6.
april sl. til þess að kynna kristni-
boð íslendinga í Kenýa og
Eþíópiu og héldu samkomu í
kirkjunni 3 kvöld i röð og sýndu
litmyndir af starfinu. Skýrði
Ragnar frá því hvernig starfið
hófst fyrir 8 árum og hefir geng-
ið mjög vel.
Alls er stundað á átta stöðum
margvíslegt boðunar- og þróunar-
starf. Söfnuðir hafa verið stofnaðir
á fjórum stöðum og eru safnaðar-
menn nú um 400 talsins. Kristni-
boðið sér um fímm skóla. Sá stærsti
er á kristniboðsstöðinni og neménd-
ur þar rúmlega 400.
Yfírvöld landsins eru mjög velvilj-
uð starfinu og hvetja til ennþá
Morgunblaðið/Ámi
Ragnar Gunnarsson og Benedikt Arnkelsson fyrir framan Stykkis-
hólmskirkju.
Nýtt-Nýtt
Vorvörurnar eru komnar
Glugginn
Laugavegi 40
ýtt—Nýtt I
nnar. Glæsilegt úrval. I
iginn, I
Kúnsthúsinu.
frekari starfa. Sjá og skilja þann
árangur sem þegar er kominn. Á
sunnudaginn prédikaði Benedikt í
Stykkishólmskirkju þar sem séra
Gísli H. Kolbeins, sóknarprestur,
þjónaði fyrir altari. Þá heimsóttu
þeir félagar"nemendur grunnskól-
ans og einnig fóru þeir í heimsókn
á sjúkrahúsið.
Héðan lá svo leiðin út á Snæfells-
nes og var ákveðið að heimsækja
bæði Grundarfjörð, Ólafsvík og
Hellissand og kynna þar einnig
starfið.
Starf kristniboðsins er borið uppi
af áhugasömum kristniboðsvinum.
Kristniboðsþing eru svo haldin þar
sem stjórn sambandsins skilar af
sér, Ieggur fram reikninga og gerir
áætlanir um framtíðina. Fórnfysin
er mikil og undravert hve mikið
verður úr ekki meiri fjárhæðum, en
sambandið hefír hveiju sinni yfír
að ráða. Þeim fjármunum er vissu-
lega vel varið og rétt er að benda
á þetta starf.
— Arni