Morgunblaðið - 14.04.1987, Side 39

Morgunblaðið - 14.04.1987, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987 39 Vini svarað eftir Albert Guðmundsson Einar J. Gíslason sendir frá sér sunnudagsboðskap í Morgunblað- inu þann 12. apríl undir fyrirsögn- inni: „Að veikja Sjálfstæðisflokkinn væri slys.“ Þar erum við vinimir sammála, en ég verð þó að harma að greinar- höfundur skuli ekki fylgjast betur með atburðum líðandi stundar, því „slysið" er skeð. Sjálfstæðisflokkur- inn, sem við báðir töldum okkur tilheyra, hefur orðið fyrir slæmu slysi, sem felst í yfírtöku ný-frjáls- hyggjumanna á flokknum. Þess vegna hefur nýr flokkur séð dagsins ljós, sem heftir stefnuskrá mannúðar og mildi að leiðarljósi, og líkist meira stefnu Sjálfstæðis- flokksins eins og hún var, fyrir innreið ný-ftjálshyggjunnar í „flokk allra stétta". Borgaraflokkurinn hefur mjög fastmótaða stefnu í vamarmálum. Borgaraflokkurinn styður aðild íslands að NATO, vamarbanda- lagi vestrænna þjóða. Borgaraflokkurinn vill styrkja það bandalag. Borgaraflokkurinn vill auka öryggi fólksins í landinu í góðu samstarfí við vamarliðið. Borgaraflokkurinn á enga sam- leið með Alþýðubandalaginu í vamarmálum. Innan raða frambjóðenda Borg- araflokksins eru menn sem em forvígismenn Varins lands. Borgaraflokkurinn hefur dreift yfír 25 þúsund eintökum af sér- prentaðri stefnuskrá sinni um land allt og nýlega er lokið við prentun á 20 þúsund eintökum til viðbótar, sem eru í dreifíngu, og mun ég sjá til þess að Einar J. Gíslason fái ein- tak, svo hann geti sjálfur dæmt stefnuskrá Borgaraflokksins, því svo vel er sá maður af skaparanum gerður, að á engan vill hann bera ósannindi. Hafa skal það fyrir satt, sem sannara reynist. Útdráttur úr stefnuskrá Borg- araflokksins: Borgaraflokkurinn er sprottinn úr jarðvegi íslenskra borgara. Borgaraflokkurinn mun leggja áherslu á samstarf fjöldans til átaka í velferðarmálum islensku þjóðarinnar og gæta reisnar hennar í samskiptum við aðrar þjóðir. Borgaraflokkurinn er flokkur fólksins. Albert Guðmundsson „Sjálfstæðisflokkurinn, sem við báðir töldum okkur tilheyra, hefur orðið fyrir slæmu slysi, sem felst í yfirtöku ný- frjálshyggjumanna á flokknum. Þess vegria hefur nýr flokkur séð dagsins ljós, sem hefur stefnuskrá mannúðar og mildi að leiðarljósi, og líkist meira stefnu Sjálf stæðisf lokksins eins og hún var, fyrir innreið ný-frjálshyggj- unnar í „flokk allra stétta“.“ Borgaraflokkurinn setur ein- staklinginn í öndvegi og virðir frelsi hans til skoðana og at- hafna. Borgaraflokkurinn mun vinna af tillitsemi að mannúðarmálum og virða mannlegar tilfinningar. Borgaraflokkurinn mun reynast sverð og skjöldur hinna sjúku, öldruðu og annarra þeirra sem í vanda eru staddir. Borgaraflokkurinn býður fram til þjónustu við landsmenn alla. Höfundur skipar efsta sæti á framboðslista Borgaraflokksins í Reykjavík. Eigendur íslenska verslunarfélagsins ásamt sölumanni, frá vinstri: Andreas Lúðvíksson, Lúðvík Andreasson og Kristmann Hjálmarsson. íslenska ver slunar f élagið hf.: Nýr sýningarsalur opnaður ÍSLENSKA verslunarfélagið hf. hefur opnað nýjan sýningarsal í Bíldshöfða 16 í Reykjavík. Þar eru m.a. til sýnis nýjungar í loft- klæðningum frá bandaríska fyrirtækinu Donn og danska fyr- irtækinu Rockfon. Islenska verslunarfélagið var stofnað 1942 en á síðustu árum hafa breytingar átt sér stað hjá félaginu. Nýir eigendur tóku við 1983 og hafa þeir lagt áherslu á að auka þjónustu við viðskiptavini og er sýningarsalurinn þáttur í því. Sýnishornum af loftklæðningum er fyrirkomið í 150 fm lofti sýning- arsalarins. Einnig eru sýnishorn af loftplötum sem henta til hljóðein- angrunar. Auk loftklæðninganna hefur fyr- irtækið aðrar vörur á boðstólum. Austurland: Rafmagnsverkstæöi Leifs Haraldssonar, Seyöisfiröi | Vestmannaeyjar: Geisli, Vestmannaeyjum | Suðurnes: Rafiön, Keflavík ' Vestfirðir: Póllinn, ísafiröi | Norðvesturland: Rafmagnsverkstæöi Kf. — Sauðárkróki •J^RÖNNING SUNDABORG 15/104 REYKJAVÍK/SÍMI (91)84000 1. Hemlar, mikilvœgt öryggistœki Vissirþú að hemlareru mikilvægasta öryggistæki bílsins?Það erþví hreinasta tillitsleysi gagnvart öðru fólki í umferðinni efekki erhugsað um að hemlabúnaðurinn sé ávallt í fullkomnu lagi. 2.Léleg hemlun stóraukin slysahœtta Börn að ieik, ungirog aldnir vegfarendureða fjölskyldan á ferða-lagi í bílnum. Allt hugs- anleg fórnarlömb umferðar- slysa. Auðvitað vill enginn verða valduraðslysi. Ábyrgðin erþín. Velyfirfarið hemlakerfi ásamt árverkni bílstjórans erein besta tryg- gingin gegn óhöppum í um- ferðinni. i-bcx 3.Hemlakerfi eru mismunandi og hemlavarahlutir eru misgóðir Diskahemlar, skálahemlar eða aflhemlar, það ermis- munandi hvað hentarhverri bílategund, og þeireru mis- góðir varahlutirnirsem bíl- eigendum bjóðast. Verðið segir ekki allt um gæðin. Við hjá Stillingu ábyrgjumstað hverbíltegundfáiþá varahluti sem henta best. Við seljum original hemlahluti sem bifreiða- framleiðendur mæla með. Sérverslun með hemlahluti OlStilling Skeifunni 11 Símar 31340 og 82740 4.Áralöng reynsla kemur til góða Með aukinni tækni hefur hemlabúnaður bifreiða og annarra ökutækja orðið flókn- ari enjafnframt öruggari. En það kemur ekki í veg fyrir reglulegteftirlit. ViðhjáStillinguerumsér- fræðingarí öllum gerðum hemlabúnaðarog eigum hemlavarahluti í allargerðir bifreiða. Við aðstoðum bíl- eigendur við kaup og eftirlit með hemlakerfi bílsins eins og við höfum gert síðastliðin 25 ár. Þúgeturtreystá reynslu okkar. 5. Merkið tryggir gœðin Þú færð hemlavarahluti í versluninni eða á verkstæð- inu hjá okkurí Skeifunni 11, en einnig á yfir300stöðum um alltlandsem versla með varahluti eða veita verkstæð- isþjónustu fyrir bifreiðar. Það segir nokkuð um gæði þeirra hemlavarahluta sem við hjá Stillingu bjóðum þér. Við merkjum varahluti okkarsér- staklega, tilaðtryggjaþér ákveðin vörugæði. Vertu viss um að varahluturinn sem þú biðurum sé með gæðastimpli Stillingar, þá ertu með góðan hlutí höndunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.