Morgunblaðið - 14.04.1987, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
43
Könnun Dagblaðsins á fylgi stjómmálaflokka:
Fylgistap hjá
Borgaraflokknum
Samtök um kvennalista sækja á
SAMKVÆMT könnun sem Dagblaðið birti í gær og gerð var um síðustu
helgi á fylgi flokkanna yfir allt landið munu 30,9% þeirra sem afstöðu
tóku, kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 17,2% Framsóknarflokkinn, 14,3% Al-
þýðuflokkinn, 12,9% Alþýðubandalagið og 11,7% Borgaraflokkinn.
Samtök um kvennalista fá 9,5% i könnuninni, Þjóðarflokkurinn 1,4%,
Flokkur mannsins 1,1% og Stefán Valgeirsson 0,9%. Af 600 manna úr-
taki í könnuninni voru 34,2% óákveðnir og 7,7% vildu ekki svara.
{ Reykjavík fær Sjálfstæðisflokk-
urinn samkvæmt könnuninni 29,1%
fylgi, Samtök um kvennalista 19,1%,
Borgaraflokkurinn 16,4%, Alþýðu-
flokkurinn 14,5%, Alþýðubandalagið
10%, Framsóknarflokkurinn 9,1% og
Flokkur mannsins 1,8%.
í sambærilegri könnun Dagblaðs-
ins sem gerð var í síðasta mánuði
og náði yfir allt landið sögðust 29,8%
þeirra sem tóku afstöðu mundu kjósa
Sjálfstæðisflokkinn, 17,1% Borgara-
flokkinn, 16,9% Alþýðuflokkinn,
13,6% Framsóknarflokkinn, 12,3%
Alþýðubandalagið, 8,1% Samtök um
kvennalista, 1% Stefán Valgeirsson,
Afstöðuteikning af Keflavík og nágrenni, sem sýnir veginn að hinni nýju flugstöð.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar vígð í dag:
0,8% Flokk mannsins og 0,3% Þjóðar-
flokkinn og Bandalag jafnaðar-
manna. í þeirri könnun skiptist fylgi
flokkanna í Reykjavík þannig að
Sjálfstæðisflokkur fékk 27,3%, Borg-
araflokkur 26,6%, Alþýðuflokkur
18%, Alþýðubandalag 13,3%, Samtök
um kvennalista 7,8%, Framsóknar-
flokkurinn 5,5%, Bandalag jafnaðar-
manna og Flokkur mannsins 0,8%.
Starf smannafélag
Reykjavíkurborgar:
Atkvæða-
greiðslu lýk-
ur í kvöld
Boðsgestir hátt á þriðja þúsund
Stefnt að því að hafa stöðina almenningi til sýnis hátíðisdagana.
VÍGSLA nýju flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli fer fram
í dag að viðstöddum hátt á þriðja þúsund gestum. Forseti ís-
lands, Vigdís Finnbogadóttir, vigir stöðina og afhjúpar
lágmynd af Leifi Eiríkssyni. Biskupinn yfir íslandi, Pétur Sig-
urgeirsson, flytur ritningar- og blessunarorð. Þá flytja ávörp
formaður byggingarnefndar, Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
ennfremur ráðherrarnir Matthías Á. Mathiesen og Matthías
Bjarnason. Afgreiðsla flugvéla og farþega hefst á morgun,
miðvikudag, og fyrsta flugvélin kemur í býtið f fyrramáli en
það er Flugleiðavél á leiðinni frá Chicago til Luxemborgar.
Stefnt er að því að bjóða almenningi að skoða flugstöðina um
páskahátíðina, en það fer eftir aðstæðum í flugi, hvort og
hvenær það verður.
Fjöldi manns vann alla helgpna
við að þrífa flugstöðina. Björgun-
arsveitin Skyggnir í Vogunum tók
að sér að þrífa allt röraverk yfir
biðsal og gler og Lionessur tóku
til höndum við aðra ræstingu. Oll-
um þeim sem starfað hafa við
undirbúning og smíði flugstöðvar-
innar, eða hafa á einhvem hátt
aðstoðað við framkvæmdir, er boð-
ið til vígsluhátíðarinnar í dag
Fimm fiski-
skip seldu
erlendis
FIMM fiskiskip seldu afla
sinn í Bretlandi og Þýzkal-
andi um helgina og á
mánudag. Verð var í flestum
tilvikum hærra en 60 krónur.
Hegranes SK seldi 176 lestir
í Bremerhaven á mánudag.
Heildarverð var 11 milljónir
króna, meðalverð 62,41. Aflinn
var að mestu karfi og ufsi.
Ýmir HF seldi 180 lestir, mest
karfa sama dag í Cuxhaven.
Heildarverð var 10,9 milljónir
króna, meðalverð 60,28. Ólafur
Jónsson GK seldi 201 lest í
Bremerhaven á sunnudag og
mánudag. Aflinn var að mestu
karfi ogseldist alls á 12,4 millj-
ónir króna, meðalverð var
61,80. Viðey RE seldi 283 lest-
ir í Bremerhaven á mánudag.
Heildarverð var 16 milljónir
króna, meðalverð 57,02.
Snæfari RE seldi 44 lestir í
Huil á mánudag. Aflinn var
bæði af honum og Náttfara
RE og fór alls á 2,9 millljónir
króna. Meðalverð var 65,40.
stöðina fyrir almenningi um
páskahelgina, ef aðstæður í flugi
leyfa. Hann sagði að hugmyndin
væri að hafa hana opna einhveija
af hátíðisdögunum og fá þá hljóm-
sveitir og kóra til að skemmta
fólki. Þetta verður auglýst síðar,
eða þegar flugáætlanir liggja ljós-
ar fyrir. Þess má geta að lokum,
að athöfninni verður sjónvarpað
beint í ríkissjónvarpinu, en hún
hefst eins og fyrr segir kl. 18.30.
Atkvæðagreiðslu um nýja kjara-
samninga Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar lýkur í kvöld
klukkan 21.00 og strax að því lo-
knu verður hafist handa um
talningu atkvæða.
Atkvæði eru greidd á skrifstofu
félagsins að Grettisgötu 89. Þetta er
í annað skipti á þessu ári sem at-
kvæði eru greidd um nýja kjarasamn-
inga, en fyrri samningamir voru
felldir í almennri atkvæðagreiðslu
félagsmanna. Félagar í Starfsmanna-
félagi Reykjavíkurborgar eru 2.750.
ásamt mökum. Ennfremur eru all-
ir starfsmenn gömlu flugstöðvar-
innar og makar þeirra boðnir. Þá
verða þar og embættis- og ráða-
menn þjóðarinnar. Reiknað er með
að gestir verði á bilinu 2.500 til
3.000 talsins.
Athöfnin hefst kl. 18.30 með
ávarpi formanns byggingarnefnd-
ar, Sverris Hauks Gunnlaugsson-
ar. Þá flytur Matthías Á.
Mathiesen utanríkisráðherra
ávarp og þar næst Matthías
Bjamason samgönguráðherra. Að
þeim orðum sögðum flytur forseti
Islands, Vigdís Finnbogadóttir
ávarp og vígir síðan stöðina með
því að afhjúpa lágmynd af Leifí
Eiríkssyni heppna, en hún er eftir
Ivar Valgarðsson. Myndin verður
á háum steinstólpa, sem staðsettur
verður fyrir miðjum aðalsal. Hún
blasir þar við komufarþegum, er
þeir ganga inn í stöðina.
Að lokinni vígslunni flytur bisk-
up Islands ritningar- og blessunar-
orð. Þá leikur íslenska hljómsveit-
in þjóðsönginn og Karlakórinn
Fóstbræður syngur undir stjórn
Guðmundar Emilssonar. Að lokum
afhendir utanríkisráðherra, Matt-
hías Á. Mathiesen, Pétri Guð-
mundssyni flugvallarstjóra á
Keflavíkurflugvelli flugstöðina til
rekstrar. Lúðrasveit verkalýðsins
leikur ennfremur fyrir gesti í flug-
stöðinni í dag.
Að sögn Sverris Hauks Gunn-
laugssonar formanns byggingar-
nefndar, er í undirbúningi að opna
INNLENT
ptö eisið þaö s/<ij
Hvernig væri að breyta til um páskana? Sleppa allri matseld og
umstangi og stinga af?
Þá er Hótel Borgarnes rétti staðurinn,
friðsæll staður í fögru umhverfi.
Á hátíðamatseðlinum er fuglakjöt ríkjandi, svo sem kalkún, önd,
gæs, rjúpa, svartfugl og lundi, ásamt annarri villibráð.
Þið eigið sannarlega skilið að láta einu sinni dekra við ykkur og
koma svo hvíld og endurnærð til starfa aftur eftir hátíðar
- OG verðið kemur á óvart.
VERIÐ VELKOMIN
Upplýsingar í símum 93-7119 og 7219
arnes