Morgunblaðið - 14.04.1987, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
Skákmótið í Briissel:
Karpov vann bið-
skákina við Meulders
Kasparov og Korchnoi efstir með þriá vinninga
BrUssel. Reuter.
ANATOLY Karpov, fyrrum
heimsmeistarí í skák, vann í dag
biðskák sína við Belgann Richard
Meulders í þriðju umferð alþjóð-
lega skákmótsins, sem nú stend-
ur yfir í Briissel. Meulders gaf
skákina án þess að tefla hana
frekar.
Eina skákin, auk fyrmefndrar
biðskákar, sem tefld var á mótinu
í dag, varð jafntefli. Var hún á
milli Júgóslavans Ljubomir
Ljubojevic og annars fyrrum heims-
meistara í skák, Sovétmannsins
Mikhael Tal. Tal hljóp í skarðið á
mótinu á sunnnudag og tók sæti
Roberts Hiibners, sem varð að
hætta þátttöku vegna veikinda.
Staðan á mótinu er nú þessi:
Garry Kasparov og Viktor Korchnoi
eru efstir með þrjá vinninga. Jan
Timman er í þriðja sæti með tvo
og hálfan vinning. í fjórða og
fimmta sæti eru Bent Larsen og
Ljubomir Ljubojevic með tvo vinn-
inga. Anatoly Karpov er með einn
og hálfan vinning og biðskák. Þá
koma þeir Mikhael Tal (biðskák)
og Eugenio Torre með einn vinning
hvor, Nigel Short og John Van der
Wiel með hálfan vinning og Richard
Meulders og Luc Winants með eng-
an vinning.
Geimtenging
tókst að lokum
Moskvu, Reuter.
SOVÉTMÖNNUM tókst loks að
tengja rannsóknarfarið Kvant
við geimstöðina MIR á sunnu-
dag, en áður höfðu verið gerðar
tvær misheppnaðar tilraunir til
þess.
Geimfaramir Yuri Romanenko
og Alexander Laveikin aðstoðuðu
við tenginguna með því að fara
út fyrir geimfar sitt, sem einnig
er tengt MIR.
Að sögn geimfaranna var það
einhver aðskotahlutur um borð í
rannsóknarfarinu Kvant, sem kom
í veg fyrir að tenging hafði áður
tekizt.
Tenging rannsóknarfarsins er
sögð áfangasigur fyrir Sovétmenn,
sem eru að reisa varanlega mann-
aða vísindastöð í geimnum. MIR
er kjami stöðvarinnar en síðan er
ætlunin að tengja við hana nokkur
könnuðarför og er Kvant eitt
þeirra.
Reuter
Skálað fyrir samningum um Macau
Anibal Cavaco Silva, forsætisráðherra Portúgals
og Deng Xiaoping, hæstráðandi Kína, lyfta glös-
um í Höll alþýðunnar í Peking, eftir að þeir
höfðu gengið frá undirritun samningsins um að
Kínveijar taki við Macau 1999. Cavaco Silva kom
um helgina í opinbera heimsókn til Kína. Hann
verður í Kína þessa viku og þegar heim kemur
mun Mario Soares, forseti Portúgals, væntanlega
hafa gert upp við sig, hvort hann efnir til kosn-
inga, eða felur leiðtogum Sósialistaflokksins eða
Lýðræðislega endurnýjunarflokksins, að mynda
ríkisstjórn. Stjórn Cavaco Silva féll á van-
trauststillögu síðarnefnda flokksins. Silva vill
kosningar, þar sem flokkur hans Sósialdemó-
krataflokkurinn hefur greinilegan byr nú.
Gáðuáhveiju
þú gengur
Gary Hart vill
fara í framboð
Denver, Reuter.
GARY Hart, fyrrum öldungar-
deildarmaður frá Colorado,
tilkynnti í gær að hann mundi
sækjast eftir útnefningu Demó-
krataflokksins við forsetakosn-
ingamar á næsta ári.
Hart sóttist eftir útnefningu
flokksins við kosningarnar 1984 en
beið þá lægri hlut fyrir Walter
Mondale, fyrrum varaforseta
Bandaríkjanna.
Hart sagði í gær að kosningabar-
átta sín mundi snúast um málefni
en ekki pólitík. Stjórnun væri spurn-
ing um hugmyndir og málefni og
um það myndu kosningamar 1988
snúast um.
Kína:
Námsmönnum í
Kanton bannað
að dansa diskó
Hong Kong. Reuter.
YFIRVÖLD menntamála i borg-
inni Kwangchow (Canton) í Kína
hafa lagt blátt bann við diskó-
dansi námsmanna. Að sögn eins
borgarblaðanna er ástæðan
hræmuleg ástundun unga fólksins
og síversnandi námsárangur.
Canton Evening Post segir í
siðasta sunnudagsblaði, að
fræðsluráð borgarinnar hafí tekið
þessa ákvörðun í ljósi þess, hversu
skólastarfi hafí farið aftur á undanf-
ömum árum.
Blaðið segir, að hótel og diskótek
verði sektuð, ef þau veita námsmönn-
um aðgang. Þá hefur hótelum og
veitingastöðum verið fyrirskipað að
hætta að halda síðdegisdansleiki,
svonefnd „teböll", fyrir námsmenn.
Dansæði hefur farið um Suður-
Kína frá því að stjómvöld í Peking
kynntu frjálsræðisstefnu sína 1979.