Morgunblaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 14. APRÍL 1987 Breytt útgáfa Alþýðublaðsins FRÁ og með þriðjudeginum 14. april mun Alþýðublaðið koma út í breyttri mynd. Haus blaðs- ins hefur verið hannaður að nýju og er nú fimm dálkar að lengd í stað tveggja áður. Þá hefur útliti og föstum yfirfyrir- sögnum verið breytt. Alþýðublaðið mun koma út sem fyrr 5 daga í viku og verið er að leggja drög að auknum blaðsí- ðufjölda blaðsins en það hefur að öllu jöfnu aðeins verið fjórar síður ' að stærð. Alþýðublaðið hefur langa og merka sögu að baki. Blaðið kom fyrst út þann 29. október 1919 og var gefið út af Alþýðuflokkn- um. Útgáfa blaðsins hefur verið mjög misjöfn gegnum tíðina og hefur blaðið sveiflast á milli þess að vera stórveldi í útgáfu og eitt fásénasta dagblað landsins. Breytt og bætt útgáfa Alþýðu- blaðsins miðar nú að því að gera það fjölbreyttara, festa blaðið í sessi og efla útbreiðslu þess. (Úr fréttatilkynningu.) MÞYBUBUBIB Björgunarmenn leggja af stað til leitar í fyrrinótt, þegar fréttir bárust ofan af Langjökli. Langjökull: Hinn nýi haus Alþýðublaðsins Hljómleikar að Logalandi Borgarnesi. Á HLJÓMLEIKUM sem Tónlist- arfélag Borgarfjarðar efnir til að Logalandi, Reykholtsdal, laugardaginn 18. apríl kl. 15.00 mun óperusöngvarinn Kristinn Sigmundsson syngja „Vetrar- ferðina" eftir Schubert við undirleik Jónasar Ingimundars- sonar. Þessir hljómleikar eru þriðja verkefni félagsins á þessu starfs- ári. Tónlistarfélag Borgarfjarðar hefur starfað síðastliðin 21 ár. TKÞ Skátamir fund- ust heilir á húfi TÍU skátar, sem lentu í erfið- leikum á Langjökli, voru væntanlegir aftur til __* Landhelgisgæslan og SVFI sátt við björgunartillögur BÆÐI Landhelgisgæslan og Slysavarnafélag íslands virðast geta sætt sig við tillögur nefndar þeirrar, sem dómsmálaráðherra skip- aði til að fjalla tun skipan björgunarmála á hafinu, ef marka má fyrstu viðbrögð f orsvarsmanna þeirra. Tillögur nefndarinnar gengu út á að Slysavamafélagið og Land- helgisgæslan verði undirstjóm- stöðvar þar sem SVFÍ sjái um strandlengjuna og svæðið næst » ströndinni, en Landhelgisgæslan sjái um hafíð umhverfís landið. Yfír þessum stjómstöðvum verði aðalstjómstöð, sem hafi aðsetur í stjómstöð almannavama og yfir- stjóm þeirrar stöðvar verði í höndum fulltrúa frá SVFÍ, Land- helgisgæslunni og Póst og síma- málastofnunar. Gert er ráð fyrir að þessi stjóm komi saman í aðal- stjómstöð þegar meiriháttar slys verður á eða við sjó. Haraldur Henrýsson forseti Slysavamarfélags íslands sagði við Morgunblaðið að stjóm félagsins hefði ekki fjallað um tillögumar enn, en í fljótu bragði virðist sem þama væri um að ræða raunhæfar og skynsamlegar tillögur sem unnt væri að byggja á við framtíðarlausn þessara mála. Samkvæmt tillögun- um verði sú reynsla og þekking nýtt sem fyrir hendi er í þessum málum og gert væri ráð fyrir sam- eiginlegri aðalstjómstöð félagsis og Landhelgisgæslunnar eins og SVFI hefði lagt áherslu á í undanfarandi viðræðum. Að vísu væri Pósti og síma bætt inní en það væri fyllilega eðlilegt því strandastöðvar Landsí- mans gegndu mikilvægu hlutverki í þessum málum. Haraldur sagði ennfremur að Slysavamarfélaginu þætti mjög mikilvægt að fyrir stjómvöldum liggi hlutlaus úttekt á þessum mál- um og nefndin hefði greinilega unnið þama mjög gótt og vandað verk. Gunnar Bergsteinsson forstjóri Landhelgisgæslunnar tók það fram við Morgunblaðið að hann hefði ekki skoðað tillögur nefndarinnar nákvæmlega enn, en Landhelgis- gæslan hlyti að fagna því að þessi mál verði leyst. Gunnar sagði síðan að tillögumar væru í aðalatriðum svipaðar því sem Landhelgisgæslan hefði gert sér hugmyndir um og lagt til í viðræðum við Slysavarna- félagið eða að Landhelgisgæslan myndi sjá um það hafið en SVFÍ annaðist björgunarmál við strönd- Reykjavíkur í nótt. Allir voru þeir við góða heilsu, utan einn sem var lítillega meiddur á hné. Um kvöldmatarleytið á föstu- dag lögðu tíu hjálparsveitarmenn frá Reykjavík af stað norður yfir Langjökul á þremur vélsleðum. Um hádegi á laugardag fóru tveir sleðanna fram af snjóhengju skammt frá skálanum við Fjall- kirkju, sem er norðaustan til á jöklinum. Enginn slasaðist við óhappið og sleðamir reyndust vera í lagi, svo fjórir menn urðu eftir til að freista þess að ná sleð- unum upp. Hinir sex fóru í skálann og voru komnir þangað um kl. 16. Stuttu eftir að sexmenning- arnir voru komnir í hús versnaði veður mjög. Þeir héldu sambandi við fjórmenningana um talstöðv- ar og heyrðu skálamenn síðast til félaga sinna um hádegi á sunnudag. Snjóbíll var sendur frá Hjálparsveit skáta í Reykjavík á sunnudag og var hann kominn að skálanum um kl. 23 á sunnu- dagskvöld. Þá var ákveðið að kalla út fleiri snjóbíla, sem áttu að freista þess að komast að mönnunum fjórum frá Kili og þrír bílar voru sendir norður Langjökul. Rétt eftir kl. 9 í gærmorgun náðist aftur talstöðvarsamband við fjórmenningana. Þeir höfðu þá lagt af stað til skálans en farið aftur fram af hengju, svo þeir ákváðu að gera sér snjóhús og bíða aðstoðar þar. Þegar til þeirra heyrðist var ákveðið að snúa þeim bílum við sem skemmst voru komnir, en tveir bílar voru komnir inn á jökul, auk þess sem fyrstur kom á vettvang. I fyrstu var talið að kalla þyrfti á aðstoð þyrlu til að flytja einn Ijórmenninganna til byggða, en síðan kom í ljós að hann var að- eins lítillega meiddur á hné. Mennimir fjórir voru komnir í bílana um hádegi í gær og var haldið aftur til byggða skömmu síðar. Ferðin til byggða gekk ró- lega, því ekki komust allir fyrir inni í bílunum og urðu menn að skiptast á að ganga á skíðum. Mörg félög lögðu sitt af mörk- um vegna leitarinnar að mönnun- um. Auk Hjálparsveita skáta í Reykjavík voru það slysavamar- félögin Ingólfur, Kyndill, Tryggvi og Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík, Hjálparsveitir skáta í Kópavogi og Hafnarfirði og Björgunarhundasveit íslands. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins: Fjármálaráðherra óskar ekkí eftir frekari ráðstöfun lána AÐ undanförnu hafa fjölmiðlar fjallað nokkuð um heimild til handa fjármálaráðherra til ráð- stöfunar á lánum úr Lífeyris- sjóði starfsmanna ríkisins. Ráðuneytið telur nauðsynlegt í framhaldi af þeirri umfjöllun að eftirfarandi upplýsingar séu birtar. 1952 óskaði þáverandi fjár- málaráðherra eftir því við stjóm Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins að lífeyrissjóðurinn ráðstafaði ákveðnum hluta af ráðstöfunarfé sínu til útlána eftir nánari ákvörð- un fjármálaráðherra. Stjórn sjóðsins ákvað að jafngildi 20% af útlánafjárhæð er sjóðurinn lán- aði til fasteignaveðlána félli í hlut ráðherra til ráðstöfunar. Sam- komulag þetta hefur síðan verið í gildi, þó þannig að hlutur ráð- herra af ráðstöfunarfé sjóðsins hefur árabilinu 1952 til og með 1980 verið frá 5% í allt að 20%. Frá árinu 1982 hefur stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins samþykkt heimildir til handa fjár- málaráðherra eins og taflan hér Ár Ráðstöfunarfé Skuldabr.lán fjárh. í þús. kr. lífeyrissj. 1981 146.859 118.499 1982 201.794 178.512 1983 349.878 270.372 1984 401.304 475.086 1985 574.439 306.300 198G 790.069 757.562 að neðan sýnir. Lánveitingar þar sem greint er frá hér að framan hafa á hverjum Skuldabr.lán Hlutfall Fjöldi lána fjármálaráðh. lána ráðh.% miðað við hámarkslán 400 0,3 4 1.500 0,8 10 3.300 1,2 17 9.030 1,9 36 10.000 3,3 31 8.200 1,1 20 !) tíma verið með sömu kjörum, að því er varðar lánstíma, vexti og aðra skilmála, eins og gilt hafa á almennum lánum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins til sjóðfé- laga. Lán þessi hafa bæði gengið til einstaklinga og fyrirtækja. Ráðuneytið mun ekki birta lista yfir einstaka lánveitingar og vísast þar til sömu reglna og gilda hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Núverandi Qármálaráðherra ákvað í lok síðasta árs, að leita ekki eftir frekari heimildum til ráðstöfunar á lánum úr Lífeyris- sjóði starfsmanna ríkisins, en þá þegar höfðu verið ákvörðuð. Þá telur Qármálaráðuneytið rétt að upplýsa, að samtök laun- þega sem eiga aðild að Lífeyris- sjoði starfsmanna ríkisins hafa fengið lán hjá sjóðnum allt frá árinu 1970. (Frétt frá fjármálaráduneytinu) 1) Þar af eitt lán til afgreiðslu í ársbyrjun 1987.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.