Morgunblaðið - 14.04.1987, Side 52

Morgunblaðið - 14.04.1987, Side 52
52 MÖRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987 Nýtt fjármálafyrirtæki á Akureyri: Kaupþing Norð- urlands hf. tók til starfa í gær NÝTT fjármálafyrirtæki, Kaup- þlng Norðurlands hf. hóf störf á Akureyri í gær. Fyrirtækið var stofnað á laugardag. Eigendur eru Kaupþing hf. í Reykjavík, sem á 55%, Akureyrarbær og KEA sem eiga 15% hvor aðili og sjö sparisjóðir á svæðinu sem eiga 15% saman. Það eru spari- sjóðirnir á Siglufirði, Arskógs- sandi, í Ólafsfirði, Hrísey, Sparisjóður Svarfdæla á Dalvik og sjóðimir tveir á Akureyri, Sparisjóður Akureyrar og Spari- sjóður Glæsibæjarhrepps sem hér um ræðir. Fyrirtækið hefur þegar fest kaup á húsnæði að Ráðhústorgi 5 og hóf þar starfsemi í gær sem fyrr segir. Andrea Rafnar, viðskiptafræðing- ur, starfsmaður Kaupþings í Reylqavík, mun annast reksturinn fyrst um sinn en fljótlega verður ráðinn viðskiptafræðingur að fyrir- tækinu, svo og ritari. Dr. Pétur H. Blöndal, fram- kvæmdastjóri Kaupþings í Reykjavík, er formaður stjómar Kaupþings Norðurlands. Hann sagði í gær, er fyrirtækið var kynnt blaðamönnum, að í starfi Kaup- þings hefði oft komið sárlega í ljós hve erfitt væri að veita einstakling- um og fyrirtælqum utan Reykjavík- ur góða þjónustu. „Verðbréf með veði í fasteignum á Akureyri hafa til dæmis selst á lægra verði en bréf með veði í Reykjavík þar sem skuldari og veð eru ekki þekkt á verðbréfamarkaði í Reykjavík." Sagði hann sölu einingarbréfa og þó sérstaklega fjármálaráðgjöf í sambandi við hana hafa verið erf- iða, ennfremur að ráðgjöf við fyrirtæki og lánsfjárútboð til þeirra hefðu verið af skomum skammti en á því væri nú ráðin bót með stofnun Kaupþings Norðurlands hf. Fyrirtækið mun stunda ýmiss konar fiármálastarfsemi. Pétur nefndi eftirfarandi: verðbréfamiðl- un, sölu einingabréfa og lífeyris- bréfa, skuldabréfaútboð fyrir fyrirtæki, hönnun og aðstoð við útgáfu skuldabréfa, fjárvörslu fyrir einstaklinga og fýrirtæki, kröfu- kaup, alhliða fjármálaráðgjöf fyrir fyrirtæki og einstaklinga, gjaldmið- ilsráðgjöf fyrir fyrirtæki, rekstrar- og markaðsráðgjöf, fasteignasölu, núvirðingu kaupsamninga, mat á greiðslubyrði og verðmat fasteigna. Hlutafé í hinu nýstofnaða fyrir- tæki em þijár milljónir króna. Stjóm fyrirtækisins skipa: Pétur H. Blöndal, formaður, Bjöm Jónas- son, sparisjóðsstjóri á Siglufirði, varaformaður, Friðrik Friðriksson, sparisjóðsstjóri, Dalvík, ritari, Sig- fús Jónsson, bæjarstjóri á Akureyri, og Magnús Gauti Gautason, flár- málastjóri KEA. Ragnar Björnsson Heldur orgeltónleika á Akureyri og Húsavík RAGNAR Björnsson heldur orgeltónleika í Akureyrar- kirkju á föstudaginn langa kl. 17.00 og leikur hann þar verk eftir Franz Liszt. Ragnar flutti þessa sömu efnisskrá á tónleik- um í Kristskirkju í Reykjavík á sl. ári, fyrir tónlistarfélag kirkjunnar. Einnig heldur hann tónleika í Húsavíkurkirkju á skírdag kl. 17.00. Þar mun hann leika verk eftir J.S. Bach. Aðspurður sagði Ragnar að eftir tónleikana í Reykjavík hefði hann strax ákveðið að flytja þessa sömu efnisskrá á Akureyri strax og tækifæri gæfist, en það kom fyrst nú. „Ein ástæðan fyrir því að ég ákvað að flytja þessa efnis- skrá á Akureyri er að orgelið í Akureyrarkirkju er eirta hljóð- færið utan Reykjavíkur sem skilar þessum verkefnum svo og hljóm- burður kirkjunnar," sagði Ragnar. Hann sagðist hlakka mjög til þess að flytja þessi verk Liszts í kirkj- unni, en þau em „Fantasia og fuga yfir Ad nos salutarem und- an“, „Preludía og fuga ufir Bach“ og „Weinen, Klagen, Sorgen, Zag- en“. Þessi þijú verk em stærstu orgeltónsmíðar Liszts, en Liszt var mikill aðdáandi orgelsins. Á tónleikunum í Húsavíkur- kirlqu leikur Ragnar m.a. tvær Tíosónötur nr. 1 og 6 og Toccötu og fugu í d-moll eftir J.S. Bach. Félagsvísindastofnun fyrir Dag á Akureyri: Sjálfstæðisflokkur tapar manni í báðum Norðurlandskjördæmum „HRUN hjá Sjálfstæðisflokki," segir í fyrirsögn yfir þvera for- síðu Dags á Akureyri í gær. í skoðanakönnun sem Félagsvísinda- deild Háskóla íslands gerði fyrir blaðið kemur fram að Sjálfstæðisflokkurinn tapar manni í báðum Norðurlandskjördæm- um, fær aðeins einn þingmann í hvoru. Fylgi flokksins fer úr 31,3% í kosningunum 1983 í 19,2% nú í Norðurlandi vestra og í Norðurlandi eystra var fylgið í könnuninni 16,3% en í síðustu kosningum hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 27,2% greiddra atkvæða. Norðurland eystra Könnun þessi var gerð á miðviku- dag, fimmtudag, föstudag og laugardag í síðustu viku. Urtakið var 409 manns í Norðurlandi eystra. 350 gáfu upp ákveðinn flokk eða lista, 15 sögðust ekki ætla að kjósa, 9 sögðust skila auðu, 16 neituðu að svara og 19 vora óákveðnir. Það vom því 85,6% sem vom ákveðnir í hvað þeir ætluðu að kjósa. Það er mjög hátt hlutfall og könnunin verður því að teljast marktæk. Spurt var: „Ef alþingiskosningar væm haldnar á morgun, hvaða flokk eða lista heldurðu að þú myndir kjósa?" Ef aðeins em taldir þeir sem vom ákveðnir er fylgi flokkanna sem hér segir: 13,1% kjósenda ætla að greiða Alþýðuflokki atkvæði sitt, 29,7% ætla að kjósa Framsóknar- flokkinn, 16,3% Sjálfstæðisflokk- inn, 15,7% Alþýðubandalagið, 8,6% Kvennalistann, 6,3% Samtök jafn- réttis og féiagshyggju, 5,4% Borgaraflokkinn, 4,3% Þjóðarflokk- innn og 0,6% Flokk mannsins. Þessar tölur þýða að Alþýðu- flokkurinn bætir við sig 2,2% frá kosningunum 1983 og nær manni á Alþingi. Framsóknarflokkur tapar 5% og fær tvo þingmenn, Sjálfstæð- isflokkur tapar 10,9% og fær einn mann kjörinn, Alþýðubandaiagið tapar 1,1% og fær einnig einn mann kjörinn. Kvennalistinn fær sjötta þingmann kjördæmisins en á ný’- loknu þingi hafði listinn ekki þingmann í þessu kjördæmi. Frá síðustu skoðanakönnun Dags, frá 17. mars sl., minnkar fylgi Samtaka um jafnrétti og félagshyggju úr 8,1% í 6,3%, fylgi Þjóðarflokksins eykst úr 3,4% í 4,3% og Borgara- flokkurinn fær 5,4% sem fyrr segir, en var ekki til þann 17. mars. Verði úrslit kosninganna skv. þessari könnun situr Ámi Gunnars- son á þingi næsta kjörtímabil fyrir Alþýðuflokkinn, Guðmundur Bjamason og Valgerður Sverris- dóttir fyrir Framsóknarflokkinn, Halldór Blöndal fyrir Sjálfstæðis- flokkinn, Steingrímur J. Sigfússon fyrir Alþýðubandalag og Málmfríð- ur Sigurðardóttir fyrir Kvennalista. Sjöundi þingmaður kjördæmisins verður uppbótarþingmaður og fer eftir fylgi flokkanna á landsvísu. Norðurland vestra 373 vom spurðir í Norðurlands- kjördæmi vestra. Þar vom 312 búnir að gera upp hug sinn um það hvaða flokk eða lista þeir ætluðu að kjósa, eða 83,7%. 19 sögðust ekki ætla að kjósa, 7 sögðust skila auðu, 13 neituðu að svara og 22 vom óákveðnir. Ef þeir em teknir sem vom ákveðnir er útkoman þessi: 9,9% ætla að kjósa Alþýðu- flokk, 27,9 Framsóknarflokk, 19,2% Sjálfstæðisflokk, 15,1% Al- þýðubandalag, 9,3% Kvennalista, 14,1% Borgaraflokkinn, 4,2% Þjóð- arflokkinn og 0,3% Flokk mannsins. Skv. þessu bætir Alþýðuflokkur- PÁSKASÝNING Myndhópsins á Akureyri verður opnuð í húsi Verkmenntaskólans við Þórunn- arstræti skírdag, 16. apríl, kl. 14.00. Á sýningunni verða til sýnis 50-60 myndverk, unnin í olíu, aciyl, pastel, vatnsliti og tréskúlptúr. Sýnendur em Bryndís Amardótt- ir, Álice Sigurðsson, Dröfn Frið- inn við sig 2,7% frá síðustu kosning- um en nær samt sem áður ekki inn manni, Framsóknarflokkurinn tap- ar 12,5% ef miðað er við samanlagt fylgi hans og BB-listans og fær einn mann kjörinn — tapar einum manni — Sjálfstæðisflokkur tapar 12,1% og fær einn mann; tapar ein- um, Alþýðubandalag tapar 2,9% en fær áfram einn mann og Borgara- flokkurinn fær einn mann kjörinn. Síðan bætist við einn uppbótar- þingmaður. Miðað við könnunina yrðu eftir- taldir á þingi fyrir Norðurlandskjör- dæmi eystra eftir kosningar: Páll Pétursson fyrir Framsóknarflokk, Pálmi Jónsson fyrir Sjálfstæðis- flokk, Ragnar Amalds fyrir Al- þýðubandalag og Andrés Magnússon fyrir Borgaraflokk. fínnsdóttir, Guðrún Leonarsdóttir (Lóa), Rut Hansen, Iðunn Ágústs- dóttir, Aðalsteinn Vestmann, Bemharð Steingrímsson, Gréta Berg, Gunnar Dúi Júlíusson, Laufey Gunnarsdóttir og Hörður Jömnds- son. Sýningin er sölusýning og verður opin daglega alla páskahelgina kl. 14.00-22.00 og lýkur á annan dag páska. Páskasýning Myndhópsins í Verkmenntaskólanum Bikarkeppni KRA að hefjast: Fyrsti leikur- inn verður á fimmtudag' NÚ ER kominn vorhugur í knattspyrnumenn, þeir eru þeg- ar farnir að sjást hlaupandi um völl á eftir knettinum og fyrsta mótið hér fyrir norðan, Bikar- keppni KRA, hefst á fimmtu- dag, skírdag. Allir leikir mótsins fara fram á Sanavellinum. Fyrsta viðureign mótsins er leikur KA og Reynis frá Árskógs- strönd. Hann er á fímmtudag, eins og áður segir, og hefst kl. 16.00. Síðan keppa Þór og Vaskur kl. 14.00 á laugardag, þriðja viður- eignin er svo á annan í páskum kl. 16.00. Þá .mætast KA og Vask- ur. 23. apríl, á fimmtudag í næstu viku, sumardaginn fyrsta, eigast síðan Vaskur og Reynir við. Sá leikur hefst kl. 16.00. Síðasti leik- ur mótsins verður síðan viðureign Akureyrarrisanna Þórs og KA sem hefst kl. 17.00 föstudaginn 1. maí. Sjónvarp Akureyri ÞRIÐJUDAGUR 14. apríl § 18.00 Orð skulu standa (Promises to Keep). Bandarísk kvikmynd. Með aðalhlutverk fara Robert Mitchum, Christop- her Mitchum og Bentley C. Mithcum. 19.35 Frambjóðendur og frétta- menn. Guðmundur Bjarnason, Framsóknarflokki, svarar spumingum fréttamanna. 19.55 Ferðir Gúllivers. Teikni- mynd. §20.25 Húsið okkar. §21.20 Fyrsta ástin (First Affa- ir). Bandarísk sjónvarpsmynd um fyrstu ást 18 ára stúlku. Hún verður ástfangin af giftum manni og hefur það afdrifaríkar afleiðingar. Með aðalhlutverkin fara Melissa Sue Anderson og Loretta Swit. Leikstjóri er Gus Trikonis. §23.00 NBA-körfuboltinn. Um- sjónarmaður er Heimir Karls- son. 00.40 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.