Morgunblaðið - 14.04.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
55
á slagverk. Þau náðu vel saman og
flautan gaf skemmtilegan blæ.
Mesta athygli vakti þó söngur Hild-
ar sem var einkar góður, enda
stúlkan með mikla og fallega rödd.
Lagið sem þau fluttu, Næturljóð,
var eftir Gísla Már Jóhannsson en
textinn eftir Sverrir Pál.
Næstir á sviðið voru Flensborgar-
ar sem valið höfðu sér samheitið
Gáfnaljósin. Þeir vöktu mikla hrifn-
ingu þegar þeir komu á sviðið, enda
klæddir í viðeigandi búninga, allt
frá jólasveinabúning að einkennis-
búning Lúðrasveitar Hafnarfjarðar.
Því til viðbótar voru þeir allir með
kanínueyru. Gáfnaljósin voru þeir
Örn Amarsson, sem lék á gítar og
söng, Rúnar Óskarsson sem lék á
gítar og söng, S.B. Blöndal (lista-
mannsnafn?) sem lék á bassa, Öm
Hrafnkelsson sem söng og Óttar
Proppé sem lék á draglúður og
söng. Lagið, sem var einkar
skemmtileg blanda, var samið af
Gáfnaljósunum í sameiningu, en
textann, sem ekki var óskemmti-
legri smíði, sömdu þeir Öm og Óttar
í sameiningu. Samsuðan hét Skápa-
söngur.
Það var Kvennaskólinn sem átti
lokaorðið í kepninni. Fyrir hönd
hans kepptu þær stöllur Hjálmfríð-
ur Þöll Friðriksdóttir, sem söng, og
Bryndís Sunna Valdimarsdóttir,
sem söng einnig. Þær höfðu sér til
fulltingis þá Jón Bjama Jónsson,
sem lék á hljómborð, Björgvin Plod-
er, sem lék á trommur, og Bjama
Braga Kjartansson sem lék á bassa.
Lag og texta sömdu þær Hjálm-
fríður og Byndís og kölluðu Texta-
laust lag.
Nú fór dómnefnd, sem skipuð var
þeim Inga Gunnari Jóhannssyni,
Bergþóru Ámadóttur, Guðrúnu
Hólmgeirsdóttur, Kristínu Lilli-
endahl og Gunnari Guttormssyni,
afsíðis til að velja sigurvegara.
Ekki þurftu menn þó að láta sér
leiðast á meðan því á sviðið komu
Gísli Helgason og Vespur, þær
Helga Bryndís og Herdís Hallvarðs-
dóttir, og fóm á kostum á meðan
dómur var upp kveðinn.
Það vom síðan ágætur kynnir
dagsins, Guðrún Gunnarsdóttir, og
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
formaður Vísnavina, sem kynntu
úrslitin. Sigurvegari varð Tindur
Hafsteinsson, fékk tuttugu þúsund
krónur í verðlaun. í öðm sæti urðu
keppendumir frá Akureyri, þau
Gísli Már Jóhannson, Hildur Lofts-
dóttir, Margrét Stefánsdóttir og
Geir Rafnsson, fengu tíu þúsund
krónur. Þriðji varð Tómas Malberg
sem fékk að launum fimm þúsund
krónur.
Þá var komið að aukaverðlaun-
um, sem öll vom plötuúttekt frá
Steinum. Verðlaun fyrir bestu bún-
inga fengu Gáfnaljósin úr Flens-
borg, Kvennaskólakeppendur fengu
verðlaun fyrir galsafengna sviðs-
framkomu, menntskælingar að
austan fengu veðlaun fyrir fágaða
sviðsframkomu og keppandinn úr
MR fékk verðlaun fyrir besta téxt-
ann.
Keppni fór í alla staði vel fram
en þó skyggði nokkuð á hve fáir
mættu til að fylgjast með, en skýr-
ingar á því em margar og þeirra á
meðal að kennaraverkfallið varð til
þess að margir keppendur hættu
við að mæta til leiks og eyddi einn-
ig þeirri stemmningu sem búið var
að ná upp innan skólanna. Vísna-
vinir fara þó brattan og heita því
að næsta ár verði keppnin enn veg-
legri og stæm í sniðum.
Arni Matthíasson
Vor-tískan
/£#*■
IxM,
599
it
J*fc, J
HAGKAUP
Wi
REYKJAVÍK AKUREYRI NJARÐVÍK
Póstverslun: Simi 91-30980