Morgunblaðið - 14.04.1987, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
4
t
Garpar og götustrákar
Chariotte Valandrey, ung og fögur en óreynd leikkona S Rauðum
Kossi.
Rauður koss
Frönsk kvikmyndavika.
Rauður koss (Rouge Baiser)
Leikstjóri: Véra Belmont.
Handrit: Belmont, Guy
Konopnicki, David Milhand.
Tónlist: Jean Marie Sénia. Aðal-
leikendur: Charlotte Valand-
rey, Laurent Terzieff.
I Rauða kossinum rifjar leik-
stjórinn Véra Belmont upp örlaga-
ríka atburði úr æsku sinni á
gamansaman en gagnrýninn og
ljúfsáran hátt.
Sem afkomandi pólskra flótta-
manna af gyðingaættum, tekur
hún þátt í harðlínukenndri Ung-
liðahreyfíngu franskra kommún-
ista. Allt svart sem amerískt er
og Stalín karlinn rétt ófallinn af
stallinum.
Stúlkunni er bjargað úr hönd-
um lögreglunnar í mótmæla-
göngu, af ungum blaðaljósmjmd-
ara sem er algjör andstæða
hennar — frjálslyndur, sannur
lífsnautnamaður af borgarastétt
og opnar nýja og skemmtilegri
veröld og það sem meira er um
vert — í honum uppgötvar stúlkan
ástina.
Hún verður að sætta sig við
að ekki er allt sem sýnist, hvort
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóhöllin, Allt í hvelli - Touch
and go ☆ ☆
Leikstjóri: Robert Mandel.
Handrit: Slan Ormsby, Bob
Sand, Harry Colomby. Mynda-
sem það er skólabókarkommún-
isminn, faðirinn, fortíð móðurinn-
ar...
Rauður koss er lagleg og ljúf,
skemmtilegt uppgjör við tímabil í
ævi stúlku sem er að breytast í
fulltíða konu. Þetta er forvitnileg,
flókin en ákveðin persóna sem er
viss um hvað hún vill en hefur
jafnframt umburðarlyndi að sætta
sig við nýjar aðstæður.
Myndin er einkar skemmtilega
tekin og tónlistin ómissandi í end-
urómnum. Terzieff er sannverð-
ugur í hlutverki blaðaljósmyndar-
ans en hin unga Valandrey á
margt ólært. Belmont tekst ein-
staklega vel að endurskapa blæ
liðinna, athyglisverðra tíma, þeg-
ar franska þjóðin var tvístígandi
og ráðvillt eftir ógnarár seinna
stríðs.
tökustjóri: Richard H. Kline.
Tónlist: Sylvester Levay. Aðal-
leikendur: Michael Keaton,
Maria Conchita Alonso, Ajay
Naidy, John Reilly, Maria
Tucci. Bandarísk, Kings Road
Tri Star Pictures, 1986.
Með Allt í hvelli ætlar Keaton
að losna undan gamanleikara-
stimplinum því þessi nýjasta mynd
hans er nokkru alvarlegri en for-
veramir, þó svo að grunnt sé á
gamninu.
Nú fer Keaton með hlutverk
aðalmannsins í fshokkíliði í
Chicago. Hann verður fyrir því
eitt kvöldið að unglingagengi ætl-
ar að ræna hann, undir forystu
smágutta. Keaton tekst að
stökkva þeim á flótta og hand-
samar snáðann. Hann reynist búa
hjá móður sinni, sem hefur enga
stjóm á kauða. Hefst nú storma-
samt samband þeirra þriggja sem
endar með því að Keaton tekur
mæðginin uppá arma sína.
Þetta er nokkuð snotur mynd
á yfírborðinu og Keaton sýnir
örlítil tilþrif sem töffarinn með
gullhjartað. Öllu slakari er leikur
Conchitu hinnar fögru. Það er
enginn annar en smáguttinn Ajay
Naidu í hlutverki götustráksins,
sem stelur myndinni. En það vant-
Keaton og Maria Conchita Al-
fonso, suður-amerísk fegurðar-
drottning en hæpið leikara-
efni.
ar tilfínningalega alla dýpt í
myndina og persónumar. Þær em
víðsfjarri, einkum þeir fullorðnu.
Efnið, sem á víst að taka alvar-
lega, er alltof ævintýralegt til að
slíkt gangi og í rauninni er það
hinn bráðhressi yngismaður, Na-
idu, sem gerir Allt í hvelli að
sæmilegri afþreyingu.
Tvær bjarnfirskar
konur í framboði
Bjamarfirði.
Framboðsfundur allra flokka
var haldinn á Hólmavík laugar-
daginn 4. apríl og komu þar
meðal annarra fram og héldu
ræður tveir frambjóðendur úr
Bjarnarfirði. Voru þetta tvær
konur er reka bú hér í firðinum,
en verða báðar að vinna utan
heimilis, þar eð búskapurinn einn
er ekki nægur til framfærslu
fjölskyldunnar.
Konur þessar heita Amlín Þ.
Óladóttir, sem er í framboði fyrir
Alþýðubandalagið og Hallfríður F.
Sigurðardóttir fyrir Kvennalista.
Það eru auðvitað fleiri úr Stranda-
sýslu í framboði fyrir hina mörgu
flokka, en úr engri byggð, sem
aðeins telur rúmlega 50 íbúa mun
vera svo hátt hlutfall frambjóðenda,
né heldur aðeins konur í framboði.
Svo segja má að hér slái Bjamar-
fjörður tvöfalt íslandsmet.
Ræður manna á fundi vom eins
og gengur og gerist á framboðs-
fundum. Þó var það eitt málefni er
vemlegu máli skipti fyrir Bjamfírð-
inga, sem rætt var, en það vom
vegamál. Kom fram í fyrirspumum
og svömm frambjóðenda, að ekki
muni varið fé á næstu áætlunum
til að byggja upp veginn um Bjam-
arfjörð, né heldur veginn frá
Hólmavík inn í Staðardal, en þama
er einhver hættulegasti vegarkafli
hér um slóðir. Urðu þar tvö stórslys
á sl. ári og mörg minni óhöpp. Er
það oft rætt, hvort virkilega eigi
að bíða eftir dauðaslysum á þessum
kafla, áður en nokkuð verður að
gert. Hinsvegar mun eiga að byggja
upp veg á Selströnd, sem í daglegu
tali hér um slóðir er kölluð Gull-
strönd, út til Drangsness.
Amlín Óladóttir gerði atvinnu-
ástand í sveitahreppunum að
umræðuefni og það að bændur
þurfa að vera farandverkamenn.
Hins vegar var ekki rætt um að til
hefir staðið að leggja hér niður
skóla og félagsheimili. Það var því
mikill léttir bjamfírskum hjörtum,
þegar Ólafur H. Kristjánsson, fram-
bjóðandi Sjálfstæðisflokksins, sagði
í ræðu sinni á þessum fundi, að það
væri skoðun sín að „skólamál væru
fyrst og fremst byggðamál", er
hann ræddi um byggðavandamál á
Vestfjörðum.
Þá var einmitt á meðan á fram-
boðsfundinum stóð opnuð billiard-
stofa á Hólmavík. Er þetta fyrsta
billiardstofan, sem opnuð hefír ver-
ið hér í sýslu.
- S.H.Þ.
Sesselja Hermannsdóttir og Elísabet Einarsdóttir í nýju versluninni.
Tískuverslunin Hera
opnar á Eiðistorgi
TÍSKUVERSLUNIN Hera heitir
ný kvenfataverslun sem var ný-
lega opnuð undir þakinu í versl-
unarmiðstöðinni við Eiðistorg.
Verslunin hefur á boðstólum
fatnað fyrir konur á öllum aldri og
kappkostar að hafa fatnað í öllum
stærðum. Verslunin verður með
fatnað frá fyrirtækjum í Bretlandi,
Finnlandi og fleiri Evrópulöndum.
Eigendur verslunarinnar eru
Sesselja Hermannsdóttir og Elísa-
bet Einarsdóttir.
Tískuverslunin Hera er opin virka
dagakl. 10.00-19.00 oglaugardaga
kl. 10.00-16.00.
m? fyf KkANPi
o
f (V'
Mætum á vornámskeið Kramhússins
5 vikna námskeið frá 27. apríl til 1. júní.
Jass-„smiðja“
Jass dans —
Afro-carabbiandans
- nútímadans
4NÝR KENNARI
_ _ Oans
^S^ss'60'
Leikir — Dans fyrir börn
KENNARI: Arna Richardsdóttir
Rokk ’n’ Roll
KENNARI: Didda „rokk"
Gestakennari Kramhússins frá
8.-22. maí er Mark Headley
dansari frá Barbados. Hann hef-
ur starfað í Berlín undanfarin 10
ár sem kennari - dansari og
dansahöfundur. - fyrir leikhús,
sjónvarp og listasöfn.
Sérgrein hans er kennsla í Afro-
Caribbeandansi, jass- og
moderndansi og „musicals".
Sumamámskeið Kramhússins
hafa alltaf verið góð — nú í ár verða
þau stórfengleg!
5 erlendir gestakennarar í júní:
Adrienne Hawkins — Maria Lexa —
Anna Haynes — Susi Villaverde —
Nanette Nelms
Innritun hafin!
HÚ5t&
Símar: 15103 — 17860.