Morgunblaðið - 14.04.1987, Side 92
92
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
Sanngjarn sigur
Stjörnumanna
ÞAÐ fór víst ekki framhjá neinum
sem var í Laugardalshöllinni á
sunnudaginn að þar fór fram
úrslitaleikurinn í bikarkeppni HSÍ
í handbolta. Fram og Stjarnan
áttust þar viö og leikurinn var
nákvœmlega eins og bikarúrslita-
leikir eiga að vera, geysileg
barátta og mikil spenna. Auðvitað
kom það niður gæðum leiksins
en það kemur ekki að sök f bikar-
úrslitaleik.
Það var sterkur varnarleikur
beggja liða sem einkenndi leikinn.
Ekkert var gefið eftir og baráttan
um hvern einasta bolta var geysi-
leg. Stjarnan hafði frumkvæðið
allan leikinn þó svo þeir kæmust
aldrei mjög langt framúr. Munur-
inn varð mestur fjögur mörk í fyrri
hálfleik og í þeim síðari munaði
mest þremur.
Lokamínúturnar voru æsispenn-
andi. Stjarnan hafði þrjú mörk yfir
en Fram náði að jafna skömmu
fyrir leikslok og því varð að fram-
lengja.
í framlengingunni komu Garð-
’">bæingar sterkari til leiks, leik-
reynslan sagði til sín og sigur
þeirra var aldrei í hættu.
Gylfi Birgisson og Sigmar Þröst-
ur Oskarsson voru bestu menn
Stjörnunnar. Ekki má gleyma þætti
Páls Björgvinssonar sem var pott-
urinn og pannan í sóknarleiknum
Fram - Stjaman
22:26
Laugardalshöll 12. aprfl 1987. Bikarúr-
slitaleikur karla í handknattleik.
0:2, 3:3, 4:4, 4:7, 5:9, 8:9, 8:11, 9:12,
11:12, 11:13, 12:13, 14:15, 14:17,
16:19, 19:19, 19:22, 20:22, 20:23,
20:24, 21:26, 22:26.
Mörk Fram: Birgir Sigurðsson 6, Jú-
líus Gunnarsson 4, Hermann Bjömsson
4, Agnar Sigurðsson 3, Per Skaarup
3/2, Ragnar Hilmarsson 2.
Mörk Stjömunnar: Gylfi Birgisson 9,
Siguijón Guðmundsson 5, Hannes
Leifsson 5/4, Skúli Gunnsteinsson 2,
Einar Einarsson 2, Páil Björgvinsson
2/1, Hafsteinn Bragason 1.
þar sem Hannes Leifsson var tek-
inn úr umferð frá fyrstu mínútu.
Sigurjón Guðmundsson lék einnig
vel í horninu.
Hjá Fram barðist Birgir Sigurðs-
son eins og honum er einum lagið.
Björn Eiríksson var góður í vöm-
inni og Hermann lunkinn í horninu.
Per Skaarup þjálfari Fram
kvaddi íslenskan handknattleik
eins og sönnum íþróttamanni
sæmir. Eftir að leiktíminn var úti
fengu Framarar vítakast. Hann
beið meðan verið var að reka
áhorfendur af leikvelli, gerði sig
líklegan til að þruma að marki en
lagði síðan knöttinn á vítalínuna,
gekk að Sigmari Þresti og óskaði
honum til hamingju með sigurinn.
Sannur íþróttamaður!
Gunnlaugur Hjálmarsson og Óli
Ólsen dæmdu erfiðan leik ágæt-
lega.
-sus
• Bikurum hampaðl Hannes Leifsson fyrirliði Stjörnunnar með verð-
launin fyrir sinn fyrsta titil. Arna Steinsen hefur hins vegar unnið þá
marga en þetta er samt alltaf jafn skemmtilegt.
Yf irburðir framan af
en spennandi í lokin
íþróttabandalag Keflavíkur
Handknattleiksráð
FRAM varð á sunnudaginn bikar-
meistari f handknattleik kvenna
er þær unnu FH 14:13 í leik þar
sem Fram virtist nokkuð öruggt
með sigur þegar flautað var til
leikhlás. Þá höfðu þær 7:2 yfir
en með góðum leik í sfðari hálf-
leik tókst FH að jafna en Arna
Steinsen skoraði sigurmark Fram
rétt fyrir leikslok.
FH skoraði fyrstu tvö mörkin en
Framarar jöfnuðu 2:2 eftir 14
mínútur.
Kolbrún Jóhannsdóttir í marki
Fram tók sig þá til og lokaði mark-
inu algjörlega það sem eftir var
fyrri hálfleiks, varði meðal annars
sex vítaköst og réði það mestu um
stöðuna í leikhléi.
FH-ingar söxuðu á forskotið og
er tíu mínútur voru eftir var munur-
inn aðeins tvö mörk. Sigurborg
Eyjólfsdóttir jafnaði metin er rúm
Fram - FH
14:13
Laugardalshöll 12. aprfl. Bikarúrslita-
leikur kvanna í handbolta.
0:2, 7:2, 8:2, 8:4, 10:4, 10:5, 11:5,
11:8,12:8,12:10,13:10,13:13,14:10.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir
4/2, Oddný Sigsteinsdóttir 3, Margrét
Blöndal 3, Jóhanna Halldórsdóttir 2,
Ama Steinsen 1, Ósk Víðisdóttir 1.
Mörk FH: Heiða Einarsdóttir 3, Rut
Baldursdóttir 3/2, Inga Einarsdóttir 2,
Sigurborg Eyjólfsdóttir 2, Kristin Pét-
ursdóttir 2, María Sigurðardóttir 1.
mínúta var til leiksloka en Arna
skoraði sigurmarkið úr horninu
þegar 10 sekúndur voru eftir. Rut
Baldursdóttir náði þó einu skoti
fyrir FH áður en leikurnn var flaut-
aður af en boltinn fór í þverslánna
og Framstúlkur urðu þar með bik-
armeistarar
Framstúlkur hafa borið höfuð
og herðar yfir önnur lið í vetur og
má segja að Guðríður Guðjóns-
dóttir byrji feril sinn sem þjálfari
vel.
Kolbrún markvörður átti stórleik
og auk hennar voru Oddný Sigur-
steinsdóttir og Margrét Blöndal
afkastamiklar, enda reyndi mikið á
þær í sókninni þar sem Guðríður
var tekinn úr umferð. Jóhanna
Halldórsdóttir og Ingunn Bernót-
usdóttir voru einnig sterkar í
vörninni.
Hjá FH var Halla Geirsdóttir góð
í markinu í síðari hálfleik en liðið
átti annars jafnan leik.
Stefán Arnaldsson og Ólafur
Haraldsson dæmdu leikinn af
stakri prýði.
KF/ÁS
Handknattleiksráð Keflavíkur óskar eftir
að ráða þjálfara fyrir eftirtalda flokka
næsta leiktímabil:
Meistara- og 2. flokk karla og meistara-
og 2. flokk kvenna.
Umsóknir sendist í pósthólf 122 fyrir
1. júní 1987 merkt:
Handknattleiksráð Keflavíkur, póst-
hólf 142, 230 Keflavík.
Nánari uppl. gefur: Marel Sigurðsson í
síma 92-2373 eftir kl. 18.30.
Starf Páls að skila sér
„ÞETTA var stórkostlegur leikur.
Ekki vel leikinn en æsispennandi.
Það sannaðist hér að leikur er
aldrei búinn fyrr en flautað hefur
verið til leiksloka," sagði Hannes
Leifsson fyrirliði Stjörnunnar eftir
að hann hafði tekið við bikarnum
og lyklunum að verðlaunabílnum.
„Ég held að starf Páls Björgvins-
sonar sé að skila sér hjá okkur
núna. Við ofmetnuðumst hreinlega
í upphafi vegna þess hveru góðu
gengi okkur var spáð en erum að
ná okkur núna.
Þetta er minn fyrsti titill og hann
var vel þess virði að býða svona
lengi eftir honum. Hætta? Ég, nei
blessaður vertu, ég er rétt að
byrja.
Éftir venjulegan leiktíma ákváð-
um við að það kæmi ekkert annað
til greina en bikarinn færi í
Garðabæinn og komum tvíefldir til
leiks þá. Þetta var eins og gegn
Víkjngum í undanúrslitunum.
Ég virði mótspyrnu Framara og
það var reglulega gaman að leika
við þá, þeir voru verðugir and-
stæðingar. Ég veit að það er sárt
að tapa og hefði ekki kært mig um
að tapa þriðja bikarúrslitaleikn-
um,“ sagði Hannes.
Lokahóf KKÍ:
Pálmar
er bestur
„MÉR er sýnt ákveðið traust og
nú er bara að reyna að standa
undir því,“sagði Pálmar Sig-
urðsson eftir að hann hafði
tekið við flestum verðlaunum
sem veitt voru i karlaflokki.
Pálmar var kosinn besti leik-
maður úrvalsdeildarinnar, hann
fékk verðlaun fyrir af vera stiga-
hæstur, fyrir að skora flestar
þriggja stiga körfur og fyrir
bestu vitahittni.
„Það sem mér er efst í huga
að afloknu keppnistímabili er
gengi okkar Hauka. Liðið gekk í
gegn um miklar breytingar og
náði ekki því markmiði að kom-
ast í úrslitakeppnina. Ef við
ætlum að ná betri árangri á
næsta ári, þurfum við að bæta
vörnina mikið.
Linda Jónsdóttir var stigahæst
og best í kvennaflokki, Anna M.
Sveinsdóttir hafði bestu víta-
hittnina. Falur Harðarson er
efnilegastur í karlaf lokki og
Guðni Guðnason prúðastur.
Kristbjörn Albertsson er besti
dómarinn og Ómar Scheving
hefur tekið mestum framförum
sem dómari.