Morgunblaðið - 14.04.1987, Síða 95

Morgunblaðið - 14.04.1987, Síða 95
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987 95 US Masters: Strákurinn á heimavelli Frá Gunnari Valgeirssy.ii í Bandaríkjunum. „AUÐVITAÐ dreymir mann ýmis- legt og þar á meðal sigur f móti sem þessu, en að vinna það með þeim hœtti sem hór gerðist óraði engann fyrir," sagði Larry Mize óvæntur sigurvegari á US Mast- ers golfmótinu sem lauk f Bandarfkjunum á sunnudag. Mize er fæddur og uppalinn í þorpi rétt við völlinn þar sem mótið fer fram og var því á heimavelli ef svo má að orði komast. Það virðist nú orðin föst venja að eitthvað stórmerkilegt gerist síðasta dag þessa mikla móts. Annað hvort heppnast ótrúlegt pútt eða þá menn leika eins og englar undir lokinn og vinna þó svo fáir hafi búist við því. Að þessu sinni þurfti bráðabana til að fá úr því skorið hver væri bestur. Mize, Greg Normann og Seve Ballesteros komu allir inn á sama skori, 285 höggum, eða á þremur höggum undir pari. í bráðabananum datt Ballesteros Samvinnuferöir styrkja 1 SAMTÖK fyrstu deildar fólaga, KSÍ og Samvinnuferðir/Landsýn hafa gert með sér samning um að hinir síðast töldu styrki fyrstu deildar keppnina í knattspyrnu sem fram fer í sumar. Mótið mun kallast íslandsmótið 1. deild 1987 / SL-mótið. Samvinnuferðir greiða íslands- meisturunum 400.000 krónur. Liðið sem verður í öðru sæti fær 100.000 og þriðja sæti gefur 50.000. Auk þess mun ferðaskrif- . deildina stofan greiða því félagi sem skorar mest í hverri umferð 7.500 krónur en þó verður að skora fjögur mörk eða fleiri. Einnig er ætlunin að Samvinnu- ferðir hjálpi til við að kynna og auglýsa mótið í sumar og síðan verður ýmislegt óvænt sem enn hefur ekki verið gert uppiskátt. Áætlað er að heildarútgjöld Sam- vinnuferða vegna þessa samnings verði um ein og hálf milljón. Símamyndir/Reuter • Græni jakkinn kominn á herðar Larry Mize frá Bandaríkjunum. Það er enginn annar en Jack Nicklaus sem klæðir „strákinn" í. út strax á fyrstu holu og því stóð baráttan milli Mize og Normann. Þeir áttu báðir ágætis teigskot en annað höggið hjá hinum unga heimamanni var ömurlegt. Boltinn lennti á vondum stað um 40 metra frá holunni. Kúla Normann lá vel á flötinni um 10 metra frá holu. Mize sló næstur. Hann hikaði ekkert, ætlaði að tryggja sig, ef Normann skyldi þurfa að tvfpútta, og sló inn á flötina. Kúlan skopp- aði tvívegis, lennti í stönginni og datt niður í holuna! Frábært högg og það þarf varla að taka fram að púttið hjá Normann mistókst. „Mér hefur aldrei fundist eins sárt að tapa,“ sagði Greg Nor- mann eftir keppnina en óskaði Mize til hamingju með sigurinn enda íþróttamaður góður. Hann hefur oft þurft að láta sér lynda að tapa stórmótum naumlega eins og nú um helgina og ætti því að vera orðin vanur þessu. í fjórða sæti varð Ben Crens- haw, Roger Maltbie varð fimmti og Jodie Mudd sjötti en þeir léku allir á 286 höggum. Mize lék á 70-72-72-71, Nor- mann á 73-74-66-72 og Balleste- ros á 73-71-70-71. Webster í Hauka? ÍVAR Webster ihugar nú að ganga til liðs við Hauka á nýjan leik í körfunni. Hann þjálfaði og lék með Þór frá Akureyri í vetur en hefur nú hug á að snúa til sinna gömlu félaga í Haukum. Aukastig til KR KR-ingar fengu þrjú stig fyrir sigur sinn á Þrótti í Reykjavíkurmótinu á sunnudaginn. Þeir unnu 3:1. Næsti leikur í mótinu er í kvöld og þá leika ÍR og Ármann. Handknattleikur: Verður HM haldin á íslandl 1994? SVO gæti farið að heimsmeist- arakeppnin í handknattleik verði haldin hér á landi árið 1994, á 50 ára afmæli lýðveldis- ins. HSÍ hefur sótt um það til alþjóðasambandsins að fá að halda mótið og verður gengið endanlega frá þessu á fundi í Seoul sem haldinn verður í tenglsum við Ólympiuleikana. Sett hefur verið á laggirnar sérstök nefnd til að vinna að þessu máli og eru valinkunnir menn í henni. Matthías Á. Mathi- esen er formaður en aðrir í nefndinni eru: Alfreð Þorsteins- son forstjóri, Birgir Þorgilsson framkvæmdastjóri Ferðamála- ráðs, Gils Guðmundsson rithöf- undur, Gylfi Þ. Gíslason prófessor, Júlíus Hafstein for- maður íþróttaráðs Reykjavíkur, Kristján Oddssón bankastjóri, Ólafur B. Thors forstjóri, Sigurð- ur Helgason stjórnarformaður Flugleiða, Þráinn Þorvaldsson framkvæmdastjóri Útflutnings- ráðs og Sveinn Björnsson forseti isi. Pressuieikur: Lands- liðið valið EFTIR pressuleik sem fram fer í Njarðvíkum í kvöld klukkan 20 verður íslenska landsliðið í körfu- bolta valið. Landsliðið tekur þátt í Norðuriandamótinu eftir rúma viku. Einar Bollason og Gunnar Þor- varðarson landsliðsþjálfarar hafa valið ellefu manna hóp sem leika á í kvöld og er hann þannig skipaður: Pálmar Sigurðsson, Jón Kr. Gislason, Jó- hannes Kristbjörnsson, ívar Webster, Guðmundur Bragason, Gylfi Þorkelsson, Kristinn Einarsson, Valur Ingimundarson, Guðni Guðnason, Hreinn Þorkelsson og Bragi Reynisson, Pressu-liðið er þannig skipað: Frábær árangur hjá íslenska sundfólkinu Ragnheiður kjörin besta sundkonan SUNDLANDSLIÐ okkar tók um helgina þátt í alþjóðlegu sund- móti sem fram fór í Aberdeen og náðu þar einstökum árangri. Þeg- ar mótinu lauk hafði íslenska sundfólkið sett 29 íslandsmetl Ekki lítið afrek það. Auk þess var Ragnheiður Runólfsdóttir kjörin besta sundkonan á mótinu og kórónaði það stórkostelga frammistöðu sundlandsliðsins. „Þetta er einstakur hópur. Það er frábært að vinna með þeim, þau eru svo samstæð og skemmtileg," sagði Ólafur Gunnlaugsson þjálfari hópsins í samtali við Morgunblaðið í gær en þá var hópurinn ný kom- inn til Edinborgar þar sem þau taka þátt í sundmóti sem hefst á fimmtudaginn. „Við bjuggumst við að krakkarn- ir yrðu hress, en þetta er þó öllu betra en við þorðum að vona. Þau eru mörg að keppast við lágmörk- in fyrir EM í Frakklandi og það spennir þau upp en engu að síður mátti búast við smá spennufalli eftir meistaramótið sem var í byrj- un apríl. Slíkt gerðist þo ekki.“ Það voru ekki eingöngu okkar bestu sundmenn sem stóðu sig vel á þessu móti. Allir með tölu bættu sig verulega og því greini- legt að sundíþróttin er á réttri leið hér á landi. En ætli árangurinn hafi ekki komið mótshöldurunum á óvart? „Jú svo sannarlega. Það var ekki mikið tekið eftir okkur fyrst en eftir að við fórum að vinna greinar tóku menn meira eftir okk- ur. Irar ræddu mikið við okkur og fylgdust með æfingum og hegðun krakkana, sem er til fyrirmyndar í hvívetna, og þeir ætla sér ábyggi- lega að læra eitthvað af þessu. Samstaðan í hópnum er einstök og eftir því tók fólk hér," sagði Ólafur í gær. Eftir mótið hafa fjórir sundmenn náð lágmörkum fyrir EM. Eðvarð Þór Eðvarðsson, Ragnheiður Run- ólfsdóttir, Magnús Már Ólafsson og Bryndís Olafsdóttir. Hugrún Ólafsdóttir og Ragnar Guðmunds- son eru rétt við lágmörkin og ef svo heldur fram sem horfir þá ætti ekki að vera löng bið þar til þau ná lágmörkunum. Árangur krakkanna er ef til vill betri en margan grunar og sem dæmi má nefna að þau slógu sex mótsmet að þessu sinni og 15 sinnum komu íslenskir keppendur fyrstir að bakkanum, 14 sinnum í örðu sæti og sjö sinnum í því þriðja. Frábær árangur! Það Islandsmet sem varð verst úti í þessu metaregni var metið í 200 metra skriðsundi kvenna. Helga Sigurðardóttir bætti það fyrst um tæpa sekúndu, synti á 2:07.80 en gamla metið var 2:08.61. Síðan stakk Hugrún Ól- afsdóttir sér til sunds og bætti enn metið, synti á 2:06.06. Sagan er ekki öll því systir Hugrúnar, Bryndís Ólafsdóttir, átti eftir að synda. Hún gerði sér lítið fyrir og bætti enn um betur, synti á 2:04.70 og þar með var búið að bæta gamla metið um tæpar fjórar sekúndur á stuttum tíma. Henning Henningsson, Guöjón Skúlason, ísak Tómasson, Jón Ö. Guðmundsson, Þorvaldur Geirsson, Helgi Rafnsson, Símon Ólafsson, Ólafur Gottskálksson, Teitur Örlygsson, ivar Ásgrímsson og Sig- urður Ingimundarson. Það vekur athygli að enginn Valsari er í landsliðinu. Ástæðan mun vera sú að enginn þeirra sem valinn var til æfinga, nema Tómas Holton, hafa mætt á æfingar og ekkert látið frá sér heyra þannig að fimm nýir menn voru teknir í hópinn i staðinn. Tómas Holton treysti sér ekki til að vera með á NM og er því ekki í hópnum. Sama er að segja um Helga Rafnsson úr Njarðvík. Lands- leikirvið Færeyinga í KVÖLD verða tveir landsleikir ( blaki við Færeyinga. Fyrri leikur- inn hefst klukkan 19 f Hagaskól- anum og leika þá karlalið þjóðanna en konurnar leika síðan klukkan 20.30. Á morgun hefjast leikirnir á sama tíma en konurnar byrja að þessu sinni og á fimmtudaginn leika þjóðirnar síðustu leikina að sinni. Karlarnir leika klukkan 14 en stúlkurnar klukkan 15.30. NY , AF LOFTRÆSTI- VIFTUNI Ven» Mí0 Gef&,n SEmM ■ ,................ R£Vn5^ PJ0NUSW Pekking BE FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.