Morgunblaðið - 06.05.1987, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MAI 1987
Alþýðubandalagið hefur
verið sundraður flokkur
- segir Ásmundur Stefánsson, for-
seti ASÍ, og gagnrýnir viðleitni til
að kenna ákveðnum einstaklingum
um ófarir flokksins í kosningum
„Úrslit þingkosninganna eru
ósigur fyrir Alþýðubandalagið.
Það er ekki hægt að víkja sér
undan því. En þar er ekki við
neinn einn að sakast og sú við-
leitni, sem vart hefur orðið, til
að finna blóraböggul í Svavari
Gestssyni eða verkalýðshreyfing-
unni er ekki annað en tilraun til
að komast undan því að taka á
málinu,“ segir Asmundur Stefáns-
son, forseti Alþýðusambandsins,
þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins spyr hann álits á þeim skýring-
um á úrslitum kosninganna sem
haldið hefur verið á lofti i Þjóð-
viljanum að undanförnu. Þar eru
ófarir Alþýðubandalagsins m.a.
raktar til þess að fólk hafi ruglað
saman kjaramálastefnu Alþýðu-
sambandsins, sem Asmundur
Stefánsson hafi verið I forystu
fyrir, og Alþýðubandalagsins, en
Asmundur skipaði 3. sætið á lista
flokksins í Reykjavík og náði ekki
kjöri.
„Það er ekkert launungarmál að
Alþýðubandalagið hefur verið sundr-
aður flokkur. Þar hafa verið uppi
gagnstæð sjónarmið. Ef leita á skýr-
inga á óförunum í kosningunum er
nærtækast að líta á þessa sundr-
ungu, skortinn á skýrri og öflugri
stefnumótun. Það má vera að þau
sjónarmið sem ég hef haldið á lofti
hafi fælt einhveija kjósendur frá
flokknum en ég held að gagnstæð
sjónarmið hafi alveg eins verkað á
sama hátt. Ég firri mig ekki ábyrgð
á úrslitunum, en ég bendi á að ég
var aðeins í framboði í einu kjör-
dæmi. Það er ekki svo auðvelt að
skýra fylgistap um land allt með
þessa forsendu að leiðarljósi. Og ef
við tökum dæmi af framboðinu í
Reykjaneskjördæmi, þá var þar því
haldið opinskátt fram að Alþýðu-
sambandið væri með ranga sefnu í
kjaramálum, en niðurstaðan varð
samt sú að flokkurinn tapaði þar
fylgi frá því í kosningunum 1983,
en þá tapaði flokkurinn miklu í því
kjördæmi. Þetta sýnir að það er
óhjákvæmilegt að leita frekari skýr-
inga á ósigrinum en í framboði
mínu,“ segir Asmundur.
Ásmundur heldur því fram að
ýmsir hafi lagt sig í framkróka um
það síðustu misserin að gera forystu
verkalýðshreyfingarinnar tortryggi-
lega. „Það hefur verið reynt að draga
upp þá mynd að kjarabaráttan sé
ekki á milli verkalýðshreyfingar og
vinnuveitenda og ríkisvalds, heldur
standi átökin milli verkalýðsforys-
tunnar annars vegar og fólksins hins
vegar. Það er reynt að ala á þeirri
trú að málamiðlun samninga hveiju
sinni sé stefna verkalýðsforystunn-
ar. Verkalýðsforystan sé til dæmis
sátt við 27.000 kr. sem lágmarks-
laun. Það er augljóst að verkalýðs-
hreyfingin hefur aldrei litið á
niðurstöður samninga sem endan-
legt réttlæti, helur áfanga á leiðinni.
Og þessi rangfærsla á raunvenileik-
anum hentar að sjálfsögðu illa til
fylgisaukningar fyrir Alþýðubanda-
lagið, sem orðið hefur að sætta sig
við málamiðlun á mörgum vígstöðv-
um.“
Gæti leitttil hjónaskilnað-
ar...
Um eftirmál kosningaósigursins
innan Alþýðubandalagsins vill Ás-
mundur ekki hafa mörg orð. „En
þessa umræðu innan flokksins verð-
ur að taka alvarlega. Þetta er eins
og þegar fjölskyldur lenda í mót-
læti, þá kennir ósjaldan hver öðrum
um. Gagnkvæmar ásakanir geta leitt
til hjónaskilnaðar og tvístrunar fjöl-
skyldu. En Alþýðubandalagið þarf
ekkí á slíku að halda. Erfiðleikar
flokksins verða ekki leystir með því
að finna blóaböggul. Það sem við
þurfum að gera er að draga fram
hina félagslegu lífsýn flokksins, sem
er okkur sameiginleg. Við þurfum
að vera á verði gegn þeirri fijáls-
hyggju sem vaðið hefur uppi að
undanförnu. Þar er réttur hins
sterka fótum troðinn á kostnað hins
veika. Við þurfum að byggja upp
sterkt Alþýðubandalag til að koma
þessu á framfæri. Það verður ekki
gert með sundurlausri yfirboðspó-
litík. Við verðum allaf yfirboðin af
öðrum á þeim vettvangi, s.s. af
Kvennalistanum, sem aldrei hefur
axlað pólitíska ábyrgð. Ef vilji er
fyrir hendi er þetta hægt, það er
eina skynsamlega svarið. Tvístrun
Alþýðubandalagsins væri aðeins
íhaldinu til gagns og ánægju.“
Ásmundur telur að á þessu stigi
sé tal um sameiningu Alþýðubanda-
lags og Alþýðuflokks óraunhæft.
Hann minnir hins vegar á að á þingi
alþýðuflokksmanna í fyrra hafi hann
boðað samvinnu flokkanna, enda
ættu þeir báðir rætur í verkalýðs-
hreyfingunni. Aukin samvinna
flokkanna sé af hinu góða og Ás-
mundur segist kjósa að þeir sitji
báðir sama megin borðsins þegar til
stjórnarmyndunar kemur.
Þetta leiðir talið að væntanlegri
ríkisstjórn. Ásmundur telur líklegast
að Sjálfstæðisflokkur, Borgara-
flokkur og Framsóknarflokkur muni
taka höndum saman. Persónulegur
fjandskapur milli einstaklinga í
Borgaraflokknum og Sjálfstæðis-
flokknum muni verða látinn yíkja
þegar á hólminn er komið. En hvað
þá með Alþýðubandalagið. „Alþýðu-
bandalagið er í veikri stöðu til að
fara í ríkisstjórn," segir hann. „Ég
tel að það komi ekki til greina nema
við náum fram mjög skýrum og
marktækum árangri. Það þýðir ekki
að sigla inn í samstarf með vonina
eina að leiðarljósi." Ásmundur segist
eiga erfitt með að sjá fyrir sér mynd-
un Nýsköpunarstjómar. Eins telur
hann litlar líkur á myndun fjögurra
flokka vinstri stjórnar án Sjálfstæð-
isflokksins og Borgaraflokksins.
Formannskjör í Alþýðubandalag-
inu ber á góma. Ásmundur segist
Austurstræti
FASTEIGNASALA
Austurstræti 9 simí 26555
Langholtsvegur
Ca 200 fm einbýli ásamt 30 fm bílskúr. 4 svefn-
herb., 2 saml. stofur, þvottahús innaf eldhúsi. Ath.
mögul. á séríbúð í kjallara. Húsið er í góðu ástandi.
Fallegur garður. Verð 5,7 millj.
ÓlafurÖm heimasími 667177, Pétur Rafnsson heimasími 15891.
Lögmaður Sigurberg Guðjónsson.
Elliðavatnshverfi
Höfum í einkasölu einbýlishús við Vatnsendablett.
Húsið er um 200 fm og fylgir því stór ræktuð lóð.
Verð 5,5 millj.
Lögmannsstofan sf.,
Guðný Björnsdóttir hdl.,
Hafsteinn Hafsteinsson hrl.,
Grensásvegi 10, Reykjavík,
sími 688444.
Til sölu
er 200 fm verslunar- og skrifstofuhúsnæði við Eiðis-
torg, Seltjarnarnesi.
Selst tilb. undir tréverk, afhending strax.
Leiga kemur einnig til greina.
Brekkutún — einbýli
Höfum fengið í sölu 280 fm glæsilegt einbýlishús
með miklu útsýni. Ljósar innréttingar. Fullfrág. að
innan, á tveimur hæðum auk kjallara. Bílskúr fok-
heldur.
Laust 1. júlí. Einkasala.
EFasteignasalan 641500
EIGNABORG sf.
Hamraborg 12 - 200 Kópavogur
Sölum.: Jóhann Hálfdánars. Vilhjálmur Einarss. Jón Eiríksson hdl. Rúnar Mogensen hdl.
Gódandaginn!
ÓSKAR & BRAGISF
BYGGINGAFÉLAG
68-77-68
FASTEIGIMAMIÐL.UN
SVERRIR KRISTJANSSOINI
HÚS VERSLUNARINNAR 6.HÆÐ
LÖGM. HAFSTEINN BALDVINSSON HRL
.0
FASTEIGN ER FRAMTÍÐ
Hlíðar — sérhæð
135 fm á 1. hæð. Forstofa, forstofuherb., sjónvarps-
hol, eldhús m. nýlegum innréttingum, (ovhús innaf
eldhúsi, stofa og bprðstofa, samliggjandi tvö stór svefn-
herbergi og bað. Ákv. sala.
Prófessor
í tilrauna-
eðlisfræði
við Háskóla
*
Islands
Doktor Hafliði
Pétur Gíslason
hefur tekið við
embætti pró-
fessors í til-
raunaeðlisfræði
við Raunvísinda-
deild Háskóla
íslands.
Hafliði fæddist
í Reykjavík 2.
desember 1952.
Hann varð stúd-
ent frá Mennta-
skólanum í Dr. HaHiði Pétur
Reykjavík 1972, Gísiason
lauk fyrrihlutaprófi í eðlisverk-
fræði frá Háskóla íslands 1974,
eðlisfræðiverkfræðiprófi frá há-
skólanum í Lundi í Svíþjóð 1977
og doktorsprófi frá sama háskóla
1982. í doktorsverkefni sínu kann-
aði Hafliði einkum ljóseiginleika
veilna í hálfleiðurum.
Að loknu doktorsprófi stundaði
Hafliði rannsóknarstörf í Svíþjóð,
fyrst við háskólann í Lundi en
lengst af í Linköping. Auk þess
dvaldist hann um skemmri tíma
við rannsóknarstörf í Englandi og
Frakklandi og starfaði rúm tvö ár
við Lehigh-háskóla i Bandaríkjun-
um 1984-1986.
Rannsóknir Hafliða eru fyrst
og fremst grunnrannsóknir á eðlis-
fræði veilna í hálfleiðurum og
hefur hann birt greinar um það
efni í erlendum tímaritium og ráð-
stefnuritum. Einnig hefur Hafliði
flutt fyrirlestra erlendis, einkum á
alþjóðlegum ráðstefnum af ýmsu
tagi.