Morgunblaðið - 06.05.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1987
27
Reuter
RUSLAPRAMMIA VILLIGOTUM
Eftirlitsmenn frá bandaríska umhverfismálaráðu-
neytinu, vel búnir hlífðarklæðnaði, könnuðu í gær
pramma með 3000 tonnum af úrgangi frá New
York og gengu úr skugga um, að engin eiturefni
væru um borð. Pramminn og dráttarbáturinn liggja
nú við festar undan Key West í Florida og vill eng-
inn við þessum ófögnuði taka. Upphaflega átti að
fara með ruslið til Morehead-borgar í Norður-
Karólínu en þegar yfirvöld í New York vildu ekki
ábyrgjast, að enginn eiturúrgangur væri með í far-
angrinum var honum vísað frá. Hefur þessari
forsendingu einnig verið hafnað í Alabama, Miss-
issippi, Louisiana, Texas, Mexikó og Mið-Amerík-
uríkinu Belize.
Húsleit hjá
Khashoggi
Manilla, Reuter.
FRANSKA lögreglan gerði í fyrri viku árangurslausa húsrannsókn
á glæsiheimili arabiska vopnasalans og auðjöfurins Adam Khas-
hoggi. Leitað var listaverka og ýmissa dýrgripa, sem voru í eigu
Marcosar, fyrverandi forseta Filippseyja. Leitin var gerð að beiðni
stjórnarinnar í Manilla.
Mary Conception Bautista, sem
á sæti í opinberri nefnd sem reyn-
ir að endurheimta listmuni og gripi
sem Marcos sölsaði undir sig og
hefur ekki skilað, sagði að leitin
hefði verið gerð á heimili Khas-
hoggis þann 30.apríl sl. Ekki hefðu
fundizt nein þeirra listaverka sem
leitað var. Lögreglan hefði fundið
stóran peningaskáp sem yrði opn-
aður síðar. Bautista tilgreindi ekki
nákvæmlega hvaða listaverka eða
muna væri leitað, en vitað er að
Marcoshjónin komu sér upp nán-
ast ómetanlegu málverkasafni,
auk alls annars auðs sem til þeirra
safnaðist. Stjómin í Manilla segir
að Marcos hafí notað fé úr opin-
berum sjóðum til að greiða þessi
listaverk og því séu þau þjóðar-
eign.
Marcos hefur þvemeitað, að
hann hafí komið auðæfum úr
landi, en þeir sem telja sig gerst
þekkja til mála, segja ekki ofætlað
að Marcoshjón hafí átt listaverk
og alls konar dýrgripi fyrir um 10
milljarða dollara. Mörg þessara
verka voru aldrei flutt til Filipps-
eyja, heldur komið fyrir hjá vildar-
vinum þeirra hjóna, hér og hvar
um heiminn.
Bretland:
Ihaldsflokkurinn
hefur gott forskot
Sveitarstjórnakosninga beðið með eftirvæntingn
St. Aodrews. Frá Guðmundi Heiðari FrímannBayni, fréttaritara Morgunblaðsms.
MARGARET Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands, mun
boða til þingkosninga 11. júní ef
flokkur hennar heldur fylgi sínu
í sveitarstjórnakosningum sem
hefjast á morgun, fimmtudag,
að því er embættismenn innan
íhaldsflokksins sögðu í gær.
íhaldsflokkurinn hefur 13% for-
skot á Verkamannaflokkinn í
nýrri skoðanakönnun í The
Afganistan:
Hermenn
réðust
á sjón-
varpsfólk
Baden-Baden, Vestur Þýzkalandi,
Reuter.
SOVÉZKIR hermenn réðust
á vestur þýzkt sjónvarpsfólk
í Afganistan i síðasta mán-
uði. Hermennirnir drápu
þijá afganska fylgdarmenn
sjónvarpshópsins. Frá þessu
skýrði talsmaður SUdwest-
stöðvarinnar í gær, þriðju-
dag.
I fréttinni kom fram að tólf
sovézkir skriðdrekar hefðu haf-
ið skothríð á sjónvarpsmennina
sem voru fjórir. Þeir voru að
taka myndir 45 km frá Kabul,
og með þeim voru nokkrir
Afganir, nokkrir yfirlýstir
skæruliðar.
Þessi atburður gerðist þann
ll.apríl, að sögn talsmanns
stöðvarinnar. Sagt var að
sovézku hermennimir hefðu
handsamað tvo skæmliða til
viðbótar. Þjóðveijamir komust
í skjól undan skothríðinni og
bmtust síðan í áttina til Pakist-
an og komu þangað átján
klukkustundum síðar. Mynd
sjónvarpsmannanna verður
sýnd á fyrstu rás þýzka sjón-
varpsins í kvöld.
Sunday Times. Staða Neil
Kinnocks, leiðtoga Verkamanna-
flokksins, hefur aldrei verið
lakari.
Úrslita sveitarstjómakosning-
anna er því beðið með mikilli eftir-
væntingu. Að sögn heimildarmanna
innan Ihaldsflokksins getur aðeins
vemlegt fylgistap flokksins í sveit-
arstjómakosningunum koma í veg
fyrir að Thatcher boði til þing-
kosninga í næsta mánuði. Forsætis-
ráðherrann gæti tilkynnt ákvörðun
sína um nýjar kosningar um næstu
helgi eða í byijun næstu viku.
Skoðanakönnun í The Sunday
Times segir 44% kjósenda mundu
nú kjósa íhaldsflokkinn, 31%
Verkamannaflokkinn og 23%
bandalag Fijálslynda flokksins og
jafnaðarmanna. Þessi úrslit hefðu
í för með sér, að íhaldsflokkurinn
fengi 162 sæta meirihluta í neðri
málstofu breska þingsins, en nú er
sá meirihluti 186 sæti. 47% kjós-
enda segjast vera ánægðir með
frammistöðu forsætisráðherrans og
er það besta hlutfall, sem Margaret
Thatcher hefur hlotið síðan 1984.
Einungis 27% segjast vera ánægðir
með Kinnock. Þetta er svipuð staða
og var í skoðanakönnunum 1983,
um mánuði fyrir sveitarstjóma-
kosningar, en mánuði eftir kosning-
amar ákvað forsætisráðherrann að
efna til þingkosninga.
A morgun verður kosið til sveit-
arstjóma í Englandi og Wales, en
ekki í Skotlandi og London. Kosið
verður um 12.000 sæti, og búast
flestir við, að stjómarflokkurinn
tapi nokkm, Bandalagið vinni nokk-
uð á og Verkamannaflokkurinn
nokkra minna.
Forsætisráðherrann mun halda
til Chequers-sveitasetursins um
næstu helgi með öllum nánustu
ráðgjöfum sínum til að skoða niður-
stöður þessara kosninga nákvæm-
lega og ákveða, hvort boða skuli
til þingkosninga þegar í júní eða
síðar. Hins vegar er þátttaka í sveit-
arstjómakosningum að öllu jöfnu
aðeins um 30 prósent en gera má
ráð fyrir tvöfalt meiri þátttöku í
þingkosningum.
Flestir búast við kosningum í
júní, þar eð Thatcher hefur ekki
reynt að koma í veg fyrir almennar
getgátur þar að lútandi. í upphafí
næstu viku má eiga von á yfírlýs-
ingu um val kjördagsins.
GinS4NtfG115
AUKIN SNERPA, BETRIAFKÖST
Ef þú sefur illa og ert úrillur ó morgnana, lœtur
umferðina fara í taugarnar ó þér, ótf erfitt með
að einbeita þér að verkefnum dagsins, skaltu
líta við í Heilsuhúsinu. Við leiðum þig í
allan sannleikann um GinsdiMGns
eilsuhúsiö
Skólavöröustíg 1 Sími: 22966 101 Reykjavík.