Morgunblaðið - 06.05.1987, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1987
Karlmannaföt kr. 5.500.-
Terylenebuxur kr. 995.-, 1.395.- og 1.595.-
Terylene/ull/stretch kr. 1.895.-
Gallabuxur kr. 795.-, 850.- og 875.-
Flauelsbuxur kr. 745.-
Sumarbuxur kr. 750.-
Bolir frá kr. 235.-,
Peysur, skyrtur, nærföt o.fl. ódýrt.
Andrés,
Skólavörðustíg 22A, sími 18250.
ÓKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum
starfsframa og betur launaöri vinnu. Þú stundar námið heima
hjá þér á þeim hraöa sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón-
ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Líttu á listann og
sjáöu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréfaskólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír-
teini í lok námskeiöa. Sendu miöann strax í dag og þú færö
ÓKEYPIS BÆKLING sendan í flugpósti. (Setjiö kross í aöeins
einn reit). Námskei
□ Tölvuforritun
□ Rafvirkjun
□ Ritstörf
□ Bókhald
□ Vélvirkjun
Nafn:.......................................................
Heimilisfang:...............................................
ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High
Street, Sutton, Surrey SM11PR, England.
eruölláensku.
□ Almenntnám
□ Bifvélavirkjun
□ Nytjalist
□ Stjórnun
fyrirtækja
□ Garöyrkja
□ Kjólasaumur
□ Innanhús-
arkitektúr
□ Stjórnun hótela
og veitingastaöa
□ Blaöamennska
□ Kælitækni og
lottræsting
LAUSAR STÖÐUR HiÁ
REYKJAVÍKURBORG
KJARVALSSTAÐIR
. óska eftir að ráða umsjónarmann.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt
og hafa til að bera handlagni og áhuga á
myndlist almennt.
Iðnmenntun eða hliðstæð menntun æski-
leg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
ekki síðar en 25. maí 1987.
Umsóknarfrestur er til 18. maí 1987.
Laun skv. launasamningum Reykjavíkur-
borgar. Nánari upplýsingar gefur Einar
Hákonarson í síma 26180.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Blaðburöarfólk
óskast!
AUSTURBÆR
i ^
VESTURBÆR
Lindargata 1 -38 o.fl Aragata o.fl.
Hverfisgata 4-62 o.fl.
Hverfisgata 63-115 o.fl.
Laugavegur 1-33o.fl.
Síðumúli
Langholtsvegur 71-108
Hrjáir spilaþreyta
toppspilarana okkar?
eftir Ólaf
Lárusson
Guðmundur Sv. Hermannsson
birtir athyglisverða hugleiðingu í
grein um brids í sunnudagsblaðinu
3. maí sl. Fyrirsögnin hjá honum
var „Er stemmingin á íslandsmót-
inu í sveitakeppni að líða undir lok?“
(A sennilega að vera stemmningin.)
Um margt gæti ég verið sammála
Guðmundi í þessari grein, sem
spannar hálfsíðu. Ég gekk með
húfu í bridskeppnum um nokkurra
ára skeið, ég sakna „gömlu" dag-
anna í brids, ég bjó yfir sömu
tilhtökkuninni og Guðmundur þegar
ég náði að komast í úrslitakeppn-
ina, hef spilað á sýningartöflu með
hjartað í buxunum (og árangurinn
eftir því) og margt fleira má eflaust
taka undir hjá Guðmundi.
En það var annað sem ég hjó
eftir hjá Guðmundi og kom illa við
mig. Ég fullyrði að áhugi fólks er
síst minni nú á bridskeppnum, en
verið hefur. Og ég tala af reynslu,
því Guðmundur var enn í barna-
skóla þegar ég hóf „alvöru“-keppn-
isspilamennsku á mótum hérlendis.
Hvað varðar síðasta Islandsmót í
sveitakeppni, þá svarar Guðmundur
sjálfum sér. Öll umsetningin í
bridslífí okkar á liðnum vetri er
með ólíkindum. Nýlokið er Dai-
hatsu-stórmóti og þar var glæsileg
aðsókn áhorfenda. Metaðsókn var
á síðustu bridshátíð og varla er
Guðmundur búinn að gleyma heim-
sókn Belladonna til Islands fyrir
áramót?
í alvöru, Guðmundur, ef þú sakn-
ar áhorfendanna á síðasta íslands-
móti, þá má vera að verulegur fjöldi
þeirra sé orðinn jafnþreyttur á að
horfa og þú virðist vera orðinn á
spilamennskunni. Þú segir, rétti-
lega, að sjaldan (aldrei) hafi verið
haldin fleiri eða fjölmennari mót en
einmitt í vetur en samt hafi áhugi
spilamanna verið í lágmarki.
Er þetta ekki þversögn?
Ég skil ekki svona röksemda-
færslu, nema áhugi Guðmundar og
félaga hans sé orðinn takmarkaður.
Er það málið?
í sambandi við töfluleiki megum
við ekki gleyma því, að þeir eru
ætlaðir áhorfendum en ekki spilur-
um. Mönnum hættir til að gleyma
þeirri staðreynd. Og ef enginn er
áhorfandinn, til hvers þá sýningar-
tafla?
Guðmundur segir einnig að kast-
að sé til höndunum í mótahaldi, en
gætir þess að nefna engin dæmi
þar um nema blessaða sýningartöfl-
una. Ég vísa þessuiíi orðum alfarið
á bug sem staðlausum stöfum.
Undirbúningur undir flest mót á
vegum BSI er með hefðbundnum
hætti, eins og Guðmundur þekkir
mjög vel frá árum hans sem starfs-
maður Bridssambandsins. Það sem
hefur breyst frá því að Guðmundur
hætti hjá BSÍ og tók sér sæti hinum
megin við borðið er að starfsemin
Ólafur Lárusson
„Starfsemin hefur
breyst í áranna rás og
ég fullyrði í rétta átt. í
dag göngran við heilir
til leiks og vitum að sá
sem spilar best úr spil-
unum sigrar.“
hefur margfaldast. Breyst úr einum
skáp í leiguhúsnæði í eigið húsnæði
í Sigtúni 9, félag með alvöru starf-
semi á sínum vegum, geysilegan
fjölda móta, sem standa til boða,
og fjölda manna, sem leggja á sig
ómælda vinnu til að tryggja fram-
gang íþróttarinnar. Við höfum
starfandi menn sem undirbúa val á
landsliðum, menn sem undirbúa
stórkeppnir ár hvert, menn sem
fara hvert á land sem er til stjómun-
ar og leiðbeiningar, menn sem
annast tölvuvinnslu úrgagna í
bridssta'-‘í og leik, menn sem jafn-
vel hafa atvinnu af því að annast
daglega starfsemi.
Og við höfum blaðamenn.
Og þar vil ég komast að kjama
málsins. Mín skoðun hefur ætíð
verið sú, að nauðsynlegt sé að hafa
gott samband við Q'ölmiðla. Senda
reglulega fréttir af daglegri starf-
semi og auglýsa mótahald. Þykist
ég hafa sinnt þessum málaflokki
nokkuð undanfarin ár. En greini-
lega hefur mér yfirsést eitthvað,
fyrst fjöldi áhorfenda brást á
síðasta íslandsmóti. En Guðmund-
ur, þú segir ekki alla söguna.
Síðasta íslandsmót er það fyrsta
sem spilað hefur verið á þeim tíma,
sem fyrir valinu varð. Mótið hófst
á miðvikudagskvöldi. Gott og vel.
Meðalfjöldi áhorfenda. (Guðmundur
ekki á staðnum, veikur heima.)
Næst var spilað fimmtudagsmorg-
un kl. 10 (sumardagurinn fyrsti).
Og skoði nú hver sitt mál. Þá kom
föstudagurinn. Vinnudagur. Og enn
var hafist handa kl. 10 árdegis. Og
Guðmundur veit það jafnvel og ég
að sumir þurfa að vinna fyrir sér í,
þessu þjóðfélagi. Og þá erum við
komnir að laugardeginum, kosn-
ingadagurinn. Og ágæt mæting
áhorfenda, ekki satt Guðmundur?
Þrátt fyrir að ein sveitin hefði
stungið af og unnið mótið deginum
fyrr.
í alvöru, Guðmundur, eigum við
ekki að færa mótið yfir á páskana
á ný og gleyma þessu? Hætta þessu
spilaþreytumasi. Ég tek það strax
fram, að þetta greinarkorn er alfar-
ið mín skoðun á skrifum þínum og
snertir á engan hátt starf mitt hjá
Bridssambandi íslands, fyrir utan
þá staðreynd að þú fullyrðir að
framkvæmd síðasta Islandsmóts
hafi verið ábótavant. Með fullri virð-
áratuga reynslu (sem er þó nokkuð
í aðeins íjörutíu ára sögu Bridssam-
bands íslands) þá veistu ekkert
hvað þú ert að tala um. Þín eigin
bridsþreyta getur ekki leyft þér að
alhæfa um svona hluti. Og þínir
persónulegu vinir í bridshreyfing-
unni („Ég veit að mörgum blöskraði
framkvæmdin ...“) ættu að kynna
sér starfsemina eins og hún er nú,
en ekki vitna í húfutímabil eða
gallabuxur og sítt hár. Starfsemin
hefur breyst I áranna rás og ég
fullyrði í rétta átt. í dag göngum
við heilir til leiks og vitum að sá
sem spilar best úr spilunum sigrar.
Og um það snýst leikurinn. Jafnvel
Guðmundur Sv. Hermannsson get-
ur ekki talið mér trú um annað.
Ég ítreka það, að ofanskráð er
alfarið mín skoðun á þreyttu við-
horfi bridsskríbents Morgunblaðs-
ins, Guðmundar Sv. Hermannsson-
ar.
Höfundur er franikvæmdastjóri
Bridssambands íslands.
ingu fyrir þekkingu þinni og
MORCUNBLADID, 8UNNUDACUR ». MAl 1987
Er stemmingin á íslandsmótinu g
í sveitakeppni að líða undir lok? p,
ÞECAR é« Tmr mð byij« mð apila Þw knni rikti Mðu> •>««( aérMAk ---------------------_----------_ ,
............frrir árm- ** þ*f** vcfoa þaat að UaðmtnrAiriiui h«f- m«rid. Ög i
.. Miýrewkr tim Of ur brrjrM hridur get tg nefuflef* «nni* H um
«4. r»o þáttn Tið ungu — _________________
hn««n of Jakoh R. MðloT «p4Ai I lalandamMinu I ivaUkcpfmi «é «ð mð kuUð hefur rerið U1 hðndunum,
Bf mttoi ----,----, hafOafa citr- rrrf* minninfin ein. Kamwki «r tg man ekki efUr þri að hafa Uk- að
■nðir wn frammi- tg ajiifur orðinn avona uppUktnn Ið þátt I naínu mðti I vetur aam tþrð
. . ____. auwi ipuaranna I aýnmgmrieikn- af ftjrtiðinni eða hreóiefa or«nn mír fannat rikja virtileg aUmminf mein
rrTÍÍ - um. tmmmr fýrir þcw « þi er «f i. «f man ekki eftir uetnu mðti aon verið .
~r niOiniiafa ýwieéaft ^ «» nm þ«ð þvf þeM akoðun var hakhð með reglulefum atarl, aem
laUodamðtið aéntakt f hejrbmt WW i nf afalððnu ta- ema og aagt er. Þvert i rnðti heftir bndá
iþwittitðflu- l.nii—iUi inaður þafl i timnniagunnl að aum Kannai
þcfThdrt
"L.
bord i atrarUfTÍ kepp-i in þma ^ ^ ^ |
r aafiaa «11 jflr þwa
i'v—
Haf narfj örður:
Dregið í happ-
drætti hjálpar-
sveita skáta
DREGIÐ var í „þúsund miða
happdrætti" hjálparsveita skáta
í Hafnarfirði 25. apríl sl.
Aðalvinningurinn, Toyota Cor-
olla-bifreið, kom á miða nr. 422.
Tíu skyndihjálparpokar komu á eft-
irtalin númer: 544, 621, 353, 445,
125, 866, 993, 468, 992, 723.
Vinningsnúmer eru birt án
ábyrgðar.
Þeir sem enn eiga ósótta vinn-
inga geta haft samband við hjálpar-
sveitina.
Aðalvinningurinn, Toyota Corolla-bifreið, var afhentur vinningshafa
27. apríl sl.