Morgunblaðið - 06.05.1987, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1987
55
Ragnar lagði inn beiðni
um skipti yf ir í Fram
RAGNAR Margeirsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, hefur lagt
inn beiðni hjá KSÍ um fólaga-
skipti yfir í Fram. Þetta fékkst
staðfest á skrifstofu KSÍ í gær
og jafnframt að hann verði lög-
legur með íslandsmeisturunum
30. maí.
Um tíma hefur allt verið á huldu
um framtíð Ragnars hjá belgíska
félaginu Waterschei. Ekki hefur
verið gengið frá framlengingu
samningsins og 30. apríl lagði
hann inn beiðnina um félagaskipt-
in. Hann verður því löglegur með
Fram í öðrum leik íslandsmótsins
gegn ÍA á Skaganum, en Framarar
leika gegn Þór í fyrstu umferð.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur Ragnar áhuga á að
leika áfram í Belgíu næsta keppn-
istímabil fái hann tilboð, en að öllu
óbreyttu mun hann leika með Fram
í sumar. Ekki náðist í Ragnar í gær.
„Meistaratitillinn er
mér meira virði en
markakóngstitillinn"
HÁVÆRAR raddir hafa verið uppi
um að Arnór Guðjohnsen knatt-
spyrnumaður væri á förum frá
Anderlecht. „Ég hef verið að lesa
um það í blöðunum hér að Uto
Lattek hefði áhuga á að fá mig
til Kölnar næsta keppnistímabil.
En þeir hafa ekki gert mér neitt
AÐALBJÖRN Björnsson verður
þjálfari Einherja f 2. deild f knatt-
spyrnu á komandi keppnistíma-
bili. Aðalbjörn hefur séð um
æfingarnar í vetur, en Njáll Eiðs-
Oxford slapp
OXFORD vann Luton 3:2 á úti-
velli í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar í gærkvöldi og bjargaði sór
þar með frá falli og Wimbledon
vann Chelsea 2:1. Þá tapaði Old-
ham 2:0 fyrir Shrewsbury í 2.
deild,sem gerir það verkum að
Portsmouth leikur f 1. deild
næsta ár eftir 28 ára fjarveru.
I þýsku Bundesligunni var einn
leikur. Stuttgart vann Blau-Weiss
Berlin á útivelli 2:0.
formlegt tilboð enn,“ sagði Arnór
Guðjohnsen f samtali við Morg-
unblaðið f gærkvöldi.
„Eins og málin standa í dag er
ég í viðræðum við Anderlecht.
Þeir hafa mikin áhuga á að halda
mér. Ég hef heyrt að þeir vilji fá
son, sem þjálfaði liðið f fyrra,
hefur gengið til liðs við Val f 1.
deild.
Aðalbjörn, sem er 32 ára, hefur
leikið með Einherja síðan 1974 og
þjálfað yngri flokka félagsins af og
til síðan. Þá hefur hann séð um
knattspyrnunámskeið á Vopna-
firði, en ekki þjálfað meistaraflokk
fyrr. Einherji var í toppbaráttu 2.
deildar í fyrra lengi vel, en missti
flugið undir lokin og hafnaði í 5.
sæti.
„Þetta verður vafalaust erfitt hjá
okkur. Njáll var miklivægur hlekkur
í liðinu í fyrra og auk hans eru
nokkrir fastamenn undanfarinna
ára hættir. En við höfum líka feng-
ið nýja menn og vonum það
besta,“ sagði Aðalbjörn í samtali
við Morgunblaðið í gær.
75 til 100 milljónir íslenskar krónur
fyrir mig og það eru miklir pening-
ar og ekki á færi nema fjársterkra
liða á Ítalíu eða Spáni," sagði Ar-
nór.
Hann sagðist vera ánægður hjá
Anderlecht. „Ég hef nú verið hér í
9 ár og það væri kannski gaman
að komast að hjá einhverju góðu
liði utan Belgíu. En þetta er alit í
athugun núna og skýrist á næst-
unni, en samningur minn við
Anderlecht rennur út 30 júní."
- Er ekki allt útlit fyrir aó þú
verður belgfskur meistari og jafn-
vel markakóngur deildarinnar?
„Við ættum að verða meistarar
samkvæmt öllum kokkabókum. En
það er mikil þreyta í leikmönnum
og vonandi að við höldum þetta
út síðustu fjórar umferðirnar. Hvað
varðar markakóngstitilinn, hef ég
tveggja marka forskot og það get-
ur allt skeð enn. Það er mér
mikilvægara að verða belgískur
meistari en markakóngur."
Arnór hefur gert 17 mörk og
hefur aldrei skorað eins mörg
mörk á einu keppnistímabili, enda
ekki leikið svo framalega áður. „Ég
hef fengið að leika mjög frjálst í
sókninni og nýtt mér það," sagði
Arnór.
Aðalbjörn með Einherja
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
e Jón Grétar Jónsson stekkur hærra en Ásbjörn Björnsson og Loftur Ólafsson og skorar fyrsta mark
Vals með skalla. Stefán Arnarson f markinu kemur engum vörnum við.
Einstefna hjá Val gegn KR
VALUR kafsigldi KR f undanúrslit-
um Reykjavfkurmótsins f gær-
kvöldi og vann 4:0 eftir að hafa
skorað þrjú mörk f fyrri hálfleik.
Jón Grétar Jónsson skoraði
fyrsta markið á 8. mínútu eftir
sendingu frá Ingvari Guðmunds-
syni. Magni Pétursson skoraði
næstu tvö fyrir hlé, það fyrra með
þrumuskoti utan úr teig og það
seinna með skalla á síðustu
mínútu hálfleiksins. Þá fengu Vals-
menn dæmda aukaspyrnu, tóku
hana strax og KR-ingar áttuðu sig
ekki fyrr en boltinn lá í netinu. Ing-
var Guðmundsson átti síðasta
orðið fimmtán mínútum fyrir leiks-
lok — skot af góðu færi, boltinn í
slá og inn.
Valsmenn léku við hvern sinn
fingur og var hvergi veikur hlekkur
í liðinu. Mörkin voru öll stórglæsl-
leg og hefðu þess vegna getað
orðið fleiri. KR-ingar voru mjög
daufir og einkum voru varnar-
mennirnir illa á verði.
Tæplega átta hundruð áhorf-
endur voru á leiknum.
laugarásbið
Simi
32075
LITAÐUR
LAGANEMI
Ný eldfjörug bandarísk gamanmynd
um ungan, hvítan laganema.
Það kemur babb í bátinn þegar karl
faðir hans neitar að borga skólagjöldin
og eini skólastyrkurinn sem hann get-
ur fengið er ætlaður svörtum illa
stæðum nemendum.
Aðalhlutverk:
C. Thomas Howell, Rae Dawn Chong
og Arye Gross.
Leikstjóri:
Steve Miner.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
rvi v
rorvi
Nýr ástralskur úrvalsmynda-
flokkur á tveimur spólum
kominn á myndbandaleigur.
Ástarsamband hinn-
ar myndarlegu
P'eggy MacGibbon
og hins dugmikla
Tom Quayle sundr-
aði heilu þorpi.
Þessi meiriháttar
myndaflokkurfjallar
um átök, ástirog
hatur.
í aðalhlutverkum eru
Gordon Jackson og
Keith Michell. Hér
sýna þessir fráþæru
leikararsinn besta
leik sem andstæð-
ingar í harðri baráttu
og er leikur þeirra
hér ógleymanlegur.
GORDON jACKSON KEITH MICHELL j
Wilh T<»m Jcnnings, Cathcrine McClemcnts,
Christophcr Cummins und Chris Plummcr.
ÍSLENSKUR TEXTI
AST SUNDiíACI HjSSu !S!rajR
KElMlHjtTTAH XSTHAtSKUH MYWJATU«K!:íí
k TVSUIOa SPðlUK"líHKa'
Myndaþátturinn er byggður á metsölubók
James Áldridge.
Einkaréttur og dreifing:
Arnar-video,
sími 82128.