Morgunblaðið - 03.06.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1987
Reykhólahreppur:
Valið á sameig-
inlegan lista
Miðhúsum, Reykhólasveit.
Vegna hreppsnefndarkosn-
inga, sem fram eiga að fara í
hinum nýja Reykhólahreppi 20.
júní, komu fráfarandi hrepps-
nefndir í Gufudalssveit, Geira-
dal, Flateyrarhreppi og
Reykhólasveit sér saman um að
kjósa nefnd til þess að raða upp
sameiginlegum lista.
Uppástungu að þessu fyrirkomu-
lagi mun hafa átt formaður samein-
ingarnefndar hreppanna, Grímur
Amórsson á Tindum. Nefndin valdi
svo listann og verður hann lagður
fram nk. föstudag og samkvæmt
upplýsingum frá efsta manni list-
ans, Guðmundi Ólafssyni, núver-
andi oddvita Reykhólahrepps, er
hinn nýi listi ekki búinn að marka
sér neina stefnuskrá nema að velja
menn úr hreppunum svo að jafn-
vægi sé á milli þeirra.
Listi þessi er sagður ópólitískur,
en vitað er að sjálfstæðismenn
standa ekki á bak við hann því að
enginn úr þeirra hópi er í fýrstu
sjö sætunum. Hins vegar eru sumir
á listanum óflokksbundnir, en hinir
eru annaðhvort úr Alþýðubandalagi
eða Framsóknarflokki.
Sjö efstu menn listans eru að því
er best er vitað: Guðmundur Ólafs-
son oddviti, Grund, Áshildur Vil-
hjálmsdóttir oddviti, Króksfjarðar-
nesi, Einar Hafliðason bóndi í
Gufudal, Jóhannes Gíslason bóndi
í Skáleyjum, Smári Baldvinsson
bóndi á Borg, Karl Kristjánsson
bóndi, Gautsdal, Valdimar Jónsson
verkstjóri á Reykhólum og fyrsti
varamaður er Indíana Ólafsdóttir á
Reykhólum.
— Sveinn.
Morgunblaðið/KGA
Evrópusamband lögreglumanna hélt fund hér á landi fyrir skömmu,
þar sem rædd voru vandamál líðandi stundar.
Morgunblaöio/KGA
Leikendur í fullum skrúða goðsagnaveranna fyrir framan Þjóðleikhúsið. Með þeim á myndinni eru
Brynja Benediktsdóttir, Ieikstjóri, og leikmyndahönnuðurinn, Signrjón Jóhannsson.
Þjóðleikhúsið frumsýn-
ir nýtt leikrit á f saf irði
Evrópskir lögreglu-
menn funda á Islandi
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýnir á
M-hátíðinni á ísafirði gleðUeik-
inn „Hvar er hamarinn?“ eftir
Njörð P. Njarðvík. Sýningar á
hinu nýja leikriti verða í félags-
heimiUnu í Hnífsdal á fimmtu-
dag og föstudag. Leikstjóri er
Brynja Benediktsdóttir, leik-
listarhönnun er í höndum
Siguijóns Jóhannssonar og tón-
listin er eftir Hjalmar H.
Ragnarsson.
Leikritið er ætlað bæði bömum
og fullorðnum og byggir á hinni
velþekktu Þiymskviðu, en hún
fjallar um það er Þór varð fýrir
því óláni að týna hamri sínum
Mjölni, en hann komst í hendur
jötunsins Þryms, og þurfti að
beita klækjum til að ná honum
aftur.
Aðalhlutverkin eru í höndum
Erlings Gíslasonar, sem leikur
Þrym, Lilju Þórisdóttur, sem fer
með hlutverk Freyju, Randvers
Þorlákssonar, sem bregður sér í
gerfí Loka, og Amar Amasonar,
sem leikur Þór. Aðrir leikendur
em þau Ólafur Öm Thoroddsen,
Valgeir Skagfjörð, Eyþór Amalds,
Herdís Jónsdóttir og Kristrún
Helga Bjömsdóttir.
FUNDUR Evrópusambands lög-
reglumanna Var haldinn á Hótel
Sögu dagana 14.-15. maí. Fundir
þessir eru haldnir tvisvar á ári,
en þetta er í fyrsta sinn sem lög-
reglumenninir hittast hér á landi.
Einar Bjamason, formaður
Landssambands lögreglumanna, er
fulltrúi íslands í Evrópusamband-
inu, en auk hans sátu fundinn þeir
Guðmundur Gígja og Jóhannes
Jensson. Að sögn Einars er á þess-
um fundum rætt um ýmsa þætti
lögreglustarfans og þá sérstaklega
þær siðareglur, sem lögreglumönn-
um er ætlað að starfa eftir. Fjallað
er sérstaklega um vandamál líðandi
stundar, svo sem fíkniefnamál og
hryðjuverk. Einar sagði að það hefði
vakið mikla athygli erlendu ges-
tanna að enn skyldi fínnast land
þar sem lögreglumenn bera ekki
vopn og óska ekki eftir því. ísland
væri að þessu leyti einstakt meðal
Evrópuríkja.
Aukasýning-
ar á Eru tígris-
dýr í Kongó?
Alþýðuleikhúsið hefur ákveðið
að hafa tvær aukasýningar á leik-
ritinu Eru tígrisdýr í Kongó? nk.
föstudag kl. 12.00 og laugardag
kl. 13.00.
Með þessari sýningu reið Alþýðu-
leikhúsið á vaðið með þá nýbreytni
að haf a hádegisleikhús og hefur þessi
tilraun tekist vel þvi uppselt hefur
verið á nær allar sýningamar, sem
verða 40 með þessum aukasýningum.
Miðaverð er 750 kr. fyrir leiksýn-
ingu, léttan hádegisverð og kaffi.
Sjúkrahúsið í Keflavík:
Utgjöldin hafa lækkað um eina
milljón á mánuði frá áramótum
Keflavik.
VERULEGUR árangur hefur
náðst í sparnaði hjá Sjúkrahús-
inu í Keflavík frá áramótum.
Ólafur Björnsson formaður
stjórnar sjúkrahússins sagði í
samtali við Morgunblaðið að tek-
ist hefði að draga úr útgjöldum
um eina milljón á mánuði. Samt
sem áður væri fyrirsjáanlegt að
um hallarekstur yrði að ræða
og ljóst að þau fjárlög sem ríkið
legði sjúkrahúsinu til á þessu
ári hrykkju ekki til að kosta
reksturinn.
Að sögn Ólafs varð hallinn á
rekstri sjúkrahússins á síðasta ári
um 51 milljón króna. Kostnaðurinn
varð 136 milljónir og 625 þúsund
krónur, en tekjur 85 milljónir 669
þúsund krónur. Ólafur sagði að af
augljósum ástæðum hefði ekki ver-
ið hægt að halda þessum mikla
hallarekstri áfram. „Við gerðum
því átak í að iækka rekstrarkostn-
að og okkur hefur tekist að lækka
þennan þátt um 1 milljón á mán-
uði með ýmsum lagfæringum.
Laun í þessari upphæð eru um 600
til 800 þúsund krónur og hinn hlut-
inn eru ýmsar hagræðingar í
innkaupum og kostnaður við
þvott."
Ólafur sagði að nú væri ákveðið
að loka skurðstofunni um tíma
vegna sumarleyfa eins og undan-
farin ár. Auk þess væri ekki útséð
um hvort hægt yrði að halda fæð-
ingadeildinni opinni vegna þess að
sumarafleysingafólk fengist ekki
til starfa. Reynt yrði til þrautar,
en ákvörðun í þessu máli yrði að
taka á næstu dögum. Ólafur taldi
að ekki hefði dregið að neinu marki
úr þeirri þjónustu sem spítalinn
veitti og almennur skilningur væri
meðal starfsfólksins vegna þessara
aðgerða.
- BB
Afhenti trún-
aðarbréf
HÖRÐUR Helgason sendiherra
afhenti nýlega Francesco Coss-
iga, forseta Italíu, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra íslands á ít-
alíu, með aðsetur í Kaupmanna-
höfn.