Morgunblaðið - 10.06.1987, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
3
Islendingum
gefið bóka og
skjalasafn Nonna
í safninu eru 2-3 þúsund bókatitlar og handrit
í gær afhenti Haraldur
Hannesson, hagfræðingur,
íslensku þjóðinni allt hið mikla
bóka- og skjalasafn séra JÓns
Sveinssonar, Nonna, við hátið-
lega athöfn í Ráðherrabústaðn-
um. Menntamálaráðherra,
Sverrir Hermannsson, veitti
gjöfinni viðtöku, en safnið mun
i framtíðinni verða gevmt í
Þjóðarbókhlöðunni. Asamt
honum þakkaði gjöfina Matt-
hías Á. Mathiesen, utanríkis-
ráðherra, sem Haraldur sneri
sér fyrst til og sem gekkst i
að fá samþykki Jesúítareglunn-
ar til að Nonnasafn skyldi
ævinlega varðveitt hér á ís-
landi. I Nonnasafni munu nú
vera milli 2 og 3 þúsund titlar,
þar með taldar sjálfstæðar út-
gáfur Nonnabóka á mörgum
tungumálum, útgáfur í tímarit-
um, úrtök, sérprentanir, rit-
dómar og ritgerðir um
Nonnabækur víðs vegar um
heim, bréfasafn og hvers konar
heimildir aðrar, enda var Nonni
einn af víðlesnustu og kunnustu
rithöfundum, sem fslenska
þjóðin hefur alið.
Auk þeirra handrita sem Har-
aldur Hannesson hefur safnað og
varðveitt fylgir gjöfmni hans eigið
safn frá honum og flölskyldu
hans. Hér er því um menningar-
fjársjóð að ræða, sem íslensku
þjóðinni hefur nú verið afhentur
til eignar. Sagði menntamálaráð-
herra er hann þakkaði gjöfina
þetta ótrúlega góða og verðmæta
gjöf, fágæti sem væri með ólíkind-
um.
Þá afhenti við sama tækifæri
Jóhann Salberg Guðmundsson,
fyrrverandi sýslumaður, bréf sem
séra Jón Sveinsson skrifaði
Kristínu Guðmundsdóttur frá
Sviðnum, hálfsystur sinni, en hún
var amma Jóhanns. Eru það 9
bréf, 3 póstkort og 3 aðrar áletr-
aðar myndir, en þau hálfsystkynin
skrifuðust á 1928-1938 og var
mjög kært með þeim þótt þau
sæjust aldrei. Lét hann þess getið
að bréfin yrðu í vörslu Haraldar
Hannessonar fyrst um sinn, eins
og Nonnasafnið.
í Ráðherrabústaðnum höfðu verið
lögð fram til sýnis nokkur eintök
úr þessu dýrmæta safni. Má þar
nefna fyrstu útgáfu af bókinni
um Nonna í Þýskalandi; Biblíuna
sem móðir hans gaf honum er
hann fór frá íslandi, hún árituð
af henni; útgáfur á fjölmörgum
tungumálum, þar á meðal frum-
handrit á kínversku frá 1930;
Morgunblaðið/Borkur
Frá afhendingu Nonnasafns f ráðherrabústaðnum. Frá vinstri: Matthias Á. Mathiesen, utanríkisráð-
herra, Ragna Hannesdóttir og Haraldur Hannesson, hagfræðingur, Sesselja Helga Jónsdóttir og
Jóhann Salberg Guðmundsson, fyrrv. sýslumaður, og Sverrir Hermannson, menntamálaráðherra.
Vefarann mikla frá Kasmír, áletr-
uð til séra Jóns af Halldóri
Laxness 1929; kompur og minnis-
bækur séra Jóns Sveinssonar og
handrit hans, einstaklega fallega
frágengið af Haraldi Hannessyni
og margt fleira. „Eg tel að hér
séu að gerast merkir atburðir,"
sagði Matthías Á. Mathiesen er
hann rakti tildrög heimkomu
bóka- og skjalasafns séra Jóns
Sveinssonar til íslands.
Haraldur Hannesson hafði á
skóiaárum sínum kynnst séra Jóni
Sveinssyni og Jóhannesi Gunnars-
syni biskup var kunnugt um
dálæti hans á honum og fékk
hann til að hafa upp á eftirlátnum
gögnum hans og um hann og
helst að fá þau til Islands til ævin-
legrar varðveislu. Fór Haraldur á
árunum 1946-50 til útlanda og
hafði upp á þeim og komu flestar
þessara heimilda um ævi og starf
séra Jóns Sveinssonar til landsins
á árunumn 1950-1953 og hafa
sfðan verið í varðveislu Haraldar
Hannessonar. Lofaði Matthías Á.
Mathiesen framsýni Jóhannesar
biskups er hann fól einmitt Har-
aldi Hannessyni þetta verk, sem
í 30 ár hefur verið undir hand-
leiðslu hans. En fyrir 3 árum hafði
Haraldur orð á þvi við Matthías
að hann hefði af því áhyggjur
hvað yrði um safnið að sér gengn-
um. Gekk Matthías þá í það með
aðstoð utanríkisþjónustunnar að
fá leyfi Jesúítareglunnar fyrir því
að afhenda safnið íslensku þjóð-
inni til eignar.„ Og hér er séra
Jón kominn heim," eins og Matt-
hías Á. Mathiesen orðaði það.
AEG RYKSUGANÁ FULW...
VAMPYR 406 ryksugan frá AEG er 1000 W og því
sérlega kraftmikil, hún er með stillanlegum sogkrafti,
inndreginni snúru og snúningsbarka, svo fátteitt
nefnt.
er slíkt gœðatœki að við leyfum okkur að full-
yrða að þú fáir hvergi jafn fjölhœfa ryksugu á svo frá-
bœru verði. wr n nnn
Elk W* £*% migjéZ m
(STAÐGREITT)
Vestur-þýsk gœði á þessu verði. - Engin spurning!
...Á FRÁMRU
VERÐI!
AEG
ÁLVEG
í EINSTOK
í GÆDI
A E G heimilistœki
- því þú hleypir ekki hverju sem er í húsverkin!
BRÆÐURNIR
OKMSSON HF
Lágmúla 9, sími: 38820