Morgunblaðið - 10.06.1987, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.06.1987, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 Gjaldskrá Pósts og síma hækkar um 9,5%: 106 milljónir vantaði til að endar næðu saman Uppbygging gjaldskrár símaþjónustu breytist 1. júlí GJALDSKRÁ Pósts og símamá- stofnunar hækkar að meðaltali um 9,5% 1. júlí næstkomandi. Á sama tíma verða gerðar ýmsar breytingar á uppbyggingu gjald- skrárinnar sem miða að því að jafna þann mun sem er á gjöldum fyrir langlínusímtöl og innan- bæjartaxta. Guðmundur Bjömsson aðstoðar Póst og símamálastjóri sagði ástæð- una fyrir þessari hækkun vera þá að árið 1986 hefði verið mikill halli á rekstri stofnunarinnar, eða um 46 milljónir króna, og greiðsluhall- inn hefði verið 214 milljónir. Á fjárlögum fyrir 1987 hefði verið gengið út frá ákveðnum forsendum en reksturskostnaður hefði hækkað síðan, meðal annars vegna launa- þróunar. Eftir að áætlanir höfðu verið endurskoðaðar var ljóst að 106 milljónir vantaði á þessu ári svo stofnunin næði endum saman. Uppbygging gjaldskrár fyrir símaþjónustu breytist verulega frá og með næstu mánaðarmótum en þær breytingar hafa engin áhrif á meðalverð gjaldskrárinnar að sögn Guðmundar. Helstu breytingamar em þær að sekúndum í skrefi fjölg- ar úr 12 í 16 að degi til í hærri langlínutaxta og út 18 í 24 í lægri langlínutaxta. Þá verður boðið upp á sérstakan nætur og helgartaxta frá klukkan 23 til 8 virka daga og frá klukkan 23 á föstudögum til 8 á mánudögum auk þess sem kvöld- taxti byijar fyrr en áður eða klukkan 18 í stað 19. Við þessa breytingu fækkar skrefum til innheimtu um 16,5% og til að vega upp á móti því hefur verið ákveðið að fækka inniföldum skrefum í afnotagjaldi úr 600 í 400. í öðm lagi verður tekin upp skrefatalning staðarsímtala á þeim tíma sem símtöl hafa verið án tíma- marka og verður talið á 12 mínútna fres’ti frá klukkan 18 til 8 virka daga og frá 18 á föstudögum til 8 á mánudögum. í þriðja lagi hækkar verð á skrefi um 10 aura og kostar eftir 1. júlí kr. 1,56. Sem dæmi um breytingar á verði símtala má nefna að 3 mínútna innanbæjarsímtal, sem kostar að meðaltali kr. 1,98 að degi til, hækk- ar í 2,34. Jafn langt símtal á hærri langlínutaxta kostar nú kr. 21,12 en kostar eftir breytingu 19,11 krónur. Gjald fyrir samskonar símtal utan dagtaxta er nú kr. 14,52 en verður 13,26 á kvöldtaxta og 10,33 á nætur og helgartaxta. Sem dæmi um verðbreytingar á 30 mínútna símtali má nefna að staðarsímtal á dagtaxta kostaði 7,92 kr. en kostar 9,36 kr. eftir breytingu. Hærri langlínutaxti er nú 199,32 en verður 177,06 krónur. Eftir verðhækkun verður árs- fjórðungsgjald fyrir síma 641 króna í stað 585 króna. Mínútugjald fyrir farsíma verður 7,80 krónur. Þá hækkar póstburðargjald fyrir al- mennt bréf úr 12 krónum í 13 krónur eða um 8,3% en póstburðar- gjöld hækka að meðaltali um 9,5%. Guðgeir Jónsson bókbind- arilátinn VEÐURHORFUR í DAG, 10.06.87: YFIRLIT á hádegi í gær: Yfir sunnanveröri Skandinavíu er 988 millibara djúp lægð á leið norðnorðaustur. Yfir austanverðu Græn- landi er heldur vaxandi 1030 millibara hæð og hæðarhryggur suður um Grænlandshaf. SPÁ: Fremur hæg norðaustlæg átt. Léttskýjað víðast á suður- og vesturlandi og í innsveitum norðvestanlands, annars skýjað og smáskúrir við norðausturströndina. Hiti á bilinu 6 til 10 stig norðan- lands en 10 til 15 stig sunnanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FIMMTUDAGUR og FÖSTUDAGUR: Hæg norðvestanátt, skýjað og jafnvel lítilsháttar þokumóða norðan- og norövestanlands en bjartviöri í öðrum landshlutum. Hiti á bilinu 6 til 7 stig um norðan- og vestanvert landið en mun meiri í öðrum landshlutum þar sem, nýtur sólar. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað /, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / r r r r Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * •# # * * * * Snjókoma * * * -j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —[- Skafrenningur ; ^ Þrumuveður VEÐURVÍÐA UMHEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri hhi 7 veöur skýjað Reykjavfk 11 lóttskýjað Bergen 16 lóttskýjað Helslnki 16 léttskýjað JanMayen 2 skýjað Kaupmannah. 12 skúr Narssarssuaq 11 skýjað Nuuk 10 súld Osló 11 rigning Stokkhólmur 14 skýjað Þórshöfn 8 skýjað Algarve 18 lóttskýjað Amsterdam 11 rigning Aþena 28 lóttskýjað Barcelona 18 skýjað Bertin 18 hólfskýjaö Chicago 12 skýjað Feneyjar 24 skýjað Frankfurt 16 skýjað Hamborg 16 skúr Las Palmas 25 léttskýjað London 11 rígnlng Los Angeles 17 þokumóða Lúxemborg 13 skýjað Madrid 18 skýjað Malaga 25 skýjað Mallorca 20 skýjað Miami 27 skýjað Montreal 15 skýjað NewYork 22 alskýjað Parfs 12 skúr Róm 21 alskýjað Vín 16 skýjað Washington 24 mistur Winnipeg 10 heiðskírt 2% hækk- un fram færsluvísi tölu í júní VÍSITALA framfærslu- kostnaðar hækkaði um 2% í byijun þessa mánaðar frá byijun maímánaðar. Sam- svarar þetta 26,8% verð- bólgu á heilu ári. Hækkun vísitölunnar undanfama þrjá mánuði jafngildir 20,1% verðbólgu en ef litið er til síðustu 12 mánuði hefur framfærsluvísitalan hækk- að um 17,2%. Samkvæmt tilkynningu frá Hagstofu íslands stafar 0,4% af hækkun á verði matvöru (þar af um 0,3% vegna hækk- unar á verði landbúnaðaraf- urða), 0,1% af hækkun húsnæðisliðs, 0,3% af hækkun á verði bensíns, rúmlega 0,5% af hækkun á verði tóbaks og áfengis og um 0,7% af verði ýmissa vöru- og þjónustuliða. INNLENT GUÐGEIR Jónsson bókbindari og fyrrum forseti Alþýðusambands íslands, lést á Hrafnistu aðfara- nótt 7. júní, 94 ára að aldri. Guðgeir var fæddur 25. apríl 1893 að Digranesi í Seltjamameshreppi, nú Kópavogskaupstað. Foreldar hans voru Jón Magnússon bóndi þar og kona hans, Ásbjörg Þorláksdótt- ir. Guðgeir lauk námi í bókbandi frá Félagsbókbandinu í Reykjavík 1913 og vann við bókband og ýmsa verka- mannavinnu næstu ár. Guðgeir hóf störf í Ríkisprentsmiðjunni Guten- berg árið 1932 og vann þar til 1979, þar af sem verkstjóri í 32 ár. Guðgeir vann mikið að félagsmál- um. Hann var ritari Bókbands- sveinafélags Íslands 1916-18 og formaður 1918 að hluta. Hann sat í stjóm Sjúkrasamlags Reykjavíkur 1920-37, 1938-39 og 1946-50 og í stjómamefnd ríkisspítalanna 1935-71. Guðgeir var gjaldkeri Bók- bindarafélags Reylq'avíkur 1935-42 og formaður 1942-50. Þá starfaði Guðgeir í Góðtemplarareglunni marga áratugi og gengdi þar ýmsum trúnaðarstörfum, var meðal annars í framkvæmdanefnd Stórstúkunnar 1937-40 og formaður Umdæmisstú- kunnar nr. 1 1939-44 og formaður Þingstúku Reykjavíkur í nokkur ár. Guðgeir var ritari Alþýðusam- bands íslands 1940-42 og forseti þess 1942-44, síðan gjaldkeri 1946-48. Hann átti sæti á mörgum þingum ASI og Stórstúku íslands. Guðgeir átti auk þess sæti í ýmsum nefndum og stjómum, þar á meðal í stjóm Byggingarfélags alþýðu 1943-73. Hann var heiðursfélagi Umdæm- isstúkunnar nr. 1 árið 1945, Bók- bindarafélags íslands 1960 og Stórstúku Islands 1968. Hann skrif- aði greinar í Vinnuna, tímarit ASÍ og Bókbindarann. Eftirlifandi eiginkona Guðgeirs er Guðrún Sigurðardóttir. Þau eignuð- ust 7 böm. Hálfdán Bjarnason í Genova látínn Látinn er suður á Ítaíu Hálf- dán Bjarnason, fyrrum umboðs- maður Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda. Hann lést á heimili sínu i hafnarborginni Genova annan hvítasunnudag. Þar átti hann lengst af heima. Hann var 89 ára gamall, fæddur 1. febrúar 1898. Hann var frá Steinnesi í Vestur-Húnvatns- sýslu, sonur sr. Bjarna Pálssonar prests þar og konu hans, Ingi- bjargar Guðmundsdóttur. Hann var starfsmaður hjá fisk- sölufyrirtæki Booles sem starfaði um árabil hér á landi í byijun aldar- innar. Það var árið 1924 sem hann gerðist starfsmaður útgerðarfélags Thors Jensen, Kveldúlfs hf. Fór hann þá suður til Ítalíu og var þar saltfísksumboðsmaður Kveldúlfs fram til ársins 1932. Á því ári var Sölusamband íslenskra fiskfram- leiðenda stofnað og gerðist Hálfdán þá umboðsmaður þess þar syðra. Var hann það óslitið fram í árs- byijun 1965, en þá lét hann af störfum fyrir aldurs sakir. í árarað- ir var hann aðalræðismaður íslands í Genova. Eftirlifandi kona hans er Sandra Bjamason. Þeim varð ekki bama auðið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.