Morgunblaðið - 10.06.1987, Side 21
+
.01
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
°21
daginn? Könnun verðlagsstjóra stað-
festir einmitt að þeir verðmyndunar-
þættir sem islenzk verzlunarstétt
ræður yfír hafa lækkað.
Svo iengi má brýna deigt járn að
bíti og í Morgunblaðinu föstudaginn
5. júní er jafnvel Ásmundur Stefáns-
son farinn að efast. Það var nefnilega
ekki fyrr en á dögum Ásmundar að
íslenzk verkalýðsstétt skildi að hagur
verzlunar og verkalýðs fer saman.
Og hvað á þá almenningur að halda
þegar jafnvel beztu menn eru famir
að leggja þessa könnun út á verri
veg? Ráðizt er á alla stétt verzlunar-
manna eins og hér sé um óbótamenn
að ræða. Undir því er sárt að sitja
fyrir okkur sem höfum trú á frjálsri
samkeppni og sjáum að hún hefur
skilað sér.
Eins og kemur fram var könnun
þessi gerð í desember, eða fyrir 6
mánuðum. Hvað tók svona langan
tíma til birtingar? Áttu menn erfítt
með að kyngja upplýsingum sem
birt-
ar eru á fylgiskjali 3 þar sem fram
kemur að álagning hefur lækkað? í
þetta fylgiskjal vitnar heldur enginn,
en reynt er þess í stað að sverta
íslenzka verzlunarstétt með órétt-
mætum samanburði við innkaup
miklu flölmennari þjóðar.
Telji yfírmenn verðlagsmála út-
komu könnunarinnar gefa tilefni til
athugasemda er hægðarleikur hjá
þeim að leita eftir skýringum við-
kom-
andi aðila, en ekki gefa allri verzlun-
arstéttinni á’ann. Það vekur furðu
að fulltrúi í verðlagsráði og formaður
ASÍ skuli hampa nöfnum framleið-
enda í grein sinni án þess að fulltrú-
um þessara fyrirtækja skuli gefinn
nokkur kostur á að veija sitt mál.
Við þessar kringumstæður fæst aldr-
ei réttlát umræða og er því miður
einungis til að sverta verzlunarmenn
f augum almennings. Slíkt hélt ég
að tilheyrði liðinni tíð.
Frjáls verðmyndun hefur fært
verzlun í og til landsins mörg skref
fram á við, bæði hvað varðar hag
neytenda og innflytjenda. Þetta
sannar m.a. fylgiskjal 3 frá verðlags-
stjóra, almenn niðurfelling umboðs-
iauna og lægri álagning. Mörg skref
eru enn ótekin, enda hefur ríkt ftjáls-
ræði í aðeins tvö ár hérlendis en 40
í Noregi.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Heildverzlunar Björgvins Schram
hf.
Félag* íslenskra rithöfunda:
Askorun um breytta
úthlutun úr launasjóði
KdúpféidgáWa
Á AÐALFUNDI Félags íslenskra
rithöfunda sem haldinn var á
Hótel Esju var m.a. samþykkt
áskorun á menntamálaráðherra
að létta einokun Rithöfundasam-
bands íslands af Launasjóði
rithöfunda.
Fundurinn var vel sóttur og mikill
áhugi félagsmanna fyrir vexti og
viðgangi féiagsins endurspeglaðist í
fjörugum umræðum um störf þess
og stefnu, svo og stöðu rithöfunda í
nútíma samfélagi, segir i frétt frá
félaginu.
Fundarstjóri var Indriði G. Þor-
steinsson og fundarritari Indriði
Indriðason.
Eftir inngöngu nýrra félaga flutti
formaður félagsins, Sveinn Sæ-
mundsson, skýrslu stjómar. Féiags-
starfíð var líflegt á árinu og unnið
að ýmsum hagsmunamálum rithöf-
unda. Samningar við útgefendur, svo
og fjölmiðla, eru á döfínni og inn-
ganga félagsins í Fjölís, félag rétt-
hafa vegna fjölföldunar ritverka I
skólum, stendur fyrir dyrum.
Þá ræddi formaður úthlutun
starfslauna rithöfúnda og sagði m.a.:
„Stjóm Félags íslenskra rithöfunda
sendi menntamálaráðuneytinu bréf
hinn 9. apríl 1986 og spurðist fyrir
um hvort verið gæti að stjóm launa-
sjóðs, sem tilnefnd var af Rithöfun-
dasambandi íslands og skipuð af
menntamálaráðherra, hefði brotið
reglugerð um úthlutanir starfslauna.
Svar barst loks tæplega ári síðar,
hinn 27. mars sl. í þessu bréfi stað-
festir ráðuneytið að stjóm launasjóðs
hafí brotið reglugerðina í sex tilfell-
um, en að ráðuneytið ætli ekkert að
aðhafast í málinu. Þegar svo er kom-
ið að rétt yfírvöld bregðast skyldu
sinni í máli sem þessu, þá er vandséð
hvert leita skal um leiðréttingu."
Armann Kr. Einarsson gjaldkeri
las og skýrði reikninga og kom fram
að hagur félagsins er góður.
Sem fyrr segir urðu fjörugar um-
ræður um málefni rithöfunda á
þessum fundi. Ennfremur um starf
Félags íslenskra rithöfunda á því
starfsári sem framundan er. Mikill
tvítugsaldur hvað sem 9. bekkjar-
prófí líður. Það hefur líka oft komið
fram á undanfömum ámm að endur-
skoða beri prófafyrirkomulag. Hefur
þá helst verið uppi haft að í stað
samræmdu prófanna í 9. bekk komi
könnunarpróf sem yrðu þá eingöngu
notuð til að kanna stöðu greina og
skóla. Virðist það fyrirkomulag í
fljótu bragði viturlegt og líklega
verður ekki langt að bíða þess að
slíkur háttur verði á hafður. Um þau
próf hlýtur þó að gilda það sama
og hin fyrri: Með þeim þarf meðal
annars að kanna málbeitingu. Slík
próf yrðu ekki endilega bundin við
9. bekk; þau mætti alveg eins leggja
fyrir einhvem annan aldurshóp
grunnskólans — og framhaldsskólar
ættu alls ekki að vera undanþegnir
slíkum könnunarprófum í íslensku.
Hveijir eiga að prófa?
Nú hafa þær raddir heyrst um
nýafstaðið íslenskupróf að ófarimar
stafí af því að grunnskólakennarar
hafí hvorki samið það né metið úr-
lausnir. Þetta er að vísu ekki rétt
en hvað sem því líður þá er engan
veginn sjálfgefíð að kennarar í
grunnskóla eigi að ráða prófinu,
gerð þess og úrvinnslu. Það verður
meira að segja að teljast fremur
vafasamt. Skiptir þá ekki máli hvort
átt er við prófíð eins og það er eða
könnunarpróf af því tagi sem nefnd
vom hér á undan. Ekki getur heldur
talist ráðlegt að framhaldsskólinn
hafi úrslitaáhrif í þessu efni enda
ætti allt eins að viðhafa könnunar-
próf á því skólastigi eins og áður
er vikið að.
Áður fyrr var það Landsprófs-
nefnd sem sá um gerð prófsins og
vom þar fulltrúar frá hverri náms-
grein. Eftir daga landsprófs var sett
á laggimar svonefnd Prófanefnd
til að hafa umsjón með prófínu. Hún
áhugi er ríkjandi fyrir vexti og við-
gangi félagsins og firam komu ýmsar
hugmyndir. Stofnuð var sérstök út-
breiðslunefnd. í hana vom kosnir
þeir Haraldur Jóhannsson, Steinar
J. Lúðvíksson og Sveinn Sæmunds-
son. Meðal ályktana á fundinum var
eftirfarandi samþykkt einróma:
Aðalfundur Félags íslenskra rit-
höfunda skorar á menntamálaráð-
herra að létta einræði Rithöfunda-
sambands íslands af Launasjóði
rithöfunda. Bendir aðalfundurínn á
að rithöfundar í Félagi íslenskra rit-
höfunda hljóti samkvæmt landslög-
um og viðteknum siðvenjum að vera
jafn réttháir öðmm íslenskum rithöf-
undum enda þótt þeir kjósi að vera
í öðmm rithöfundasamtökum. Vísast
í þessu efni til bréfs formanns félags-
ins dags. 28. mars 1987.
í stjóm Félags íslenskra rithöf-
unda em: Sveinn Sæmundsson
formaður, Snjólaug Bragadóttir rit-
ari, Indriði Indriðason gjaldkeri,
Gunnar Dal, Hrafnhildur Valgarðs-
dóttir, Indriði G. Þorsteinsson og
Páll Líndal. í varastjóm: Jón Bjöms-
son og Ævar R. Kvaran.
HANDSLÁTTUVÉL
SLÁTTUVÉL
KR. 19.935,-
f W 4 A/y)k.Éí, jk' \tl {Jlh L:'&b
DOMUS
KAUPFÉLÖGIN
Í LANDINU
var einnig skipuð fulltrúum þeirra
greina sem prófað var í. Vom það
oftast framhaldsskólakennarar eins
og í Landprófsnefndinni. Síðustu
árin hefur prófið verið á vegum
skólaþróunardeildar menntamála-
ráðuneytisins og hafa bæði gmnn-
og framhaldsskólakennarar annast
samningu þess og úrvinnslu. Kenn-
arar við Kennaraháskóla íslands
hafa haft nokkur áhrif á gerð
íslenskuprófsins undanfarin ár og
getur það ekki talist óeðlilegt.
Þó að mörgum þyki nóg af nefnd-
um og stofnunum sem tengdar em
menntamálum verður hér þó lagt til
að komið verði á fót prófanefnd eða
stofnun til að annast eftirlit með
kennslu í skólum. Ættu þar að eiga
sæti fulltrúar skólastiganna allra.
Könnunarpróf í grann- og fram-
haldsskóla yrðu meginviðfangsefni
þessarar stofnunar. Hún yrði að
hafa talsvert sjálfstæði, gæti t.d.
heyrt beint undir menntamálaráð-
herra.
Lokaorð
Þetta mál er orðið lengra en í
upphafí var ætlað. Tilefnið var sam-
ræmt próf í íslensku og þær
umræður sem um það hafa spunn-
ist. Drepið hefur verið á mörg atriði
og væri vissulega þörf á að gera
þeim flestum betri skil. Það er líka
von höfundar að umræða geti spunn-
ist af þessum þönkum. Nokkur
atriði, sem á góma hefur borið í
umfjöllun um íslenskúprófíð, hafa
ekki verið nefnd. Þar má m.a. nefna
orð sem hafa fallið um versnandi
stöðu íslenskunnar í samfélaginu.
Það er meira mál en svo að hér
verði reifað. Gefst e.t.v. tækifæri til
þess síðar.
Höfundur er dósent ííslensku við
Kennaraháskóla íslands.
Aukin
hagræðing
-mein
Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir hafa valið
tölvuvædda telexkerfið frá Pegasus. Kerfið eykur hag-
ræðingu og sparar eigendum sínum ómældar fjárhæðir.
Þeir völdu tölvuvædda telexkerfið frá Pegasus.
Sveinn Egilsson hf.
Gunnar Eggertsson hf.
Byko hf.
Hekla hf.
Vélsmiðjan Héðinn hf.
Andri hf.
Asiaco hf.
Iðnaðarbankinn.
Samvinnubankinn.
Skipadeild SÍS.
Kreditkort hf.
Utanríkisráðuneytið.
Nesskip hf.
Skipamiðlunin hf.
Bókaforlagið Iðunn hf.
íslensk Ameríska Verslunarfélagið.
Kaupskip hf.
Marbakki hf.
Sportvöruþjónustan.
Björninn hf.
Bananar hf.
JS Heildverslun hf.
Verslunardeild SÍS.
Karl K. Karlsson.
Þór hf.
Carlsberg umboðið.
Valfoss hf.
Samband Sparisjóða.
John Lindsey hf.
Bræðurnir Ormsson hf.
Farfugladeild Reykjavíkur.
Heildverslunin Goddi hf.
Verkfræðiþjónusta G. Óskarssonar.
Alþjóða Fjárfestingarfélagið hf.
Hampiðjan hf.
Póstur og Sími.
Tollvörugeymslan hf.
Skipafélagið OK hf.
Vífilfell hf.
Reykvísk Endurtrygging.
Eimskip hf.
Ferðaskrifstofan Útsýn.
Samvinnuferðir Landsýn.
Ferðaskrifstofan Úrval.
Skeljungur hf.
íslenska Álfélagið hf.
TÖLVUSTÝRÐ TELEXKERFI FRAMTÍÐARINNAR
PEGASUS
PEC”c«i»
I
Pegasus hf. Skipholt 33 105 Rvík Sími (91) 688277 Telex 2238 Jayell IS
ÓSA/SlA