Morgunblaðið - 10.06.1987, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
43
Opið bréf
— til formanns félagsmála-
ráðs Reykjavíkurborgar
Laugardaginn 23. maí kl. 13.30
hringdi samstarfsmaður minn til
mín, sem starfandi skólasálfræðings
hér í borg og tjáði mér að honum
hefði verið sagt að böm sem ég hef
haft umsjón með hefðu verið ein og
forsjárlaus í hart nær sólarhring, þar
eð móðir hefði horfið af heimilinu
og ekki fundist enn. Auk þeirra bama
sem mér koma beint við, sem em
11 og 8 ára var um að ræða 2, 3 og
5 ára böm. Sama morgun og hringt
var til mín hafði faðir komið á heimil-
ið með kunningja sina og sátu þeir
að drykkju.
Málefni þessarar fjölskyldu voru
og eru einnig á könnu Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar vegna
endurtekinnar vanrækslu foreldra á
bömum sínum og dryklquskapar og
hefur stofnunin haft eftirlit með
heimilinu um nokkurt skeið. Ég
hugðist því láta Félagsmálastofnun
vita hvemig komið væri svo hægt
væri a.m.k. að bjarga bömunum úr
þessum aðstæðum (skv. lögum hafa
starfsmenn Bamavemdamefndar
einir rétt til að fjarlægja böm af
heimili).
Skemmst er frá því að segja að
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fram
að kvöldmatartíma, tókst mér ekki
að ná sambandi við nokkum sem
sinnt gæti slíku kalli.
Ég reyndi að hringja heim til
meðferðarfulltrúa þess sem sinnir
málj flölskyldunnar, deildarfulltrúa
sem er næsti yfírmaður hans, yfir-
manns fjölskyldudeildar FR, Félags-
málastjóra, formanns Bamavemdar-
nefndar, varaformann Bamavemd-
amefndar, nokkra síma FR og
lögreglu. Enginn starfsmaður FR eða
Bamav.nefndar svaraði í síma og
lögreglan hafði engin ráð nema bíða
til mánudags. Að lokum brast mig
Grétar Marinósson
þolinmæðin og ég hringdi til Borgar-
stjóra til að segja honum vandræði
mín. Ekki bjóst ég við úrlausn en
hann taldi það óheppilega tilviljun
að ekki skildi nást f nokkum mann.
Loks tók Félagsmálastjóri málið að
sér þegar hann kom til landsins um
kvöldið.
Lærdómurinn sem af þessu má
draga er augljós. Engin þjónusta er
til í Reykjavík, utan daglegs starfs-
tíma Félagsmálastofnunar, sem
hægt er að reiða sig á til að koma
í veg fyrir eða bjarga bömum frá
mögulegri misþyrmingu á eigin
heimilum. Það þarf að bíða þar til
skrifstofur opna.
Herra formaður, er það í samræmi
við stefnu Félagsmálaráðs
Reykjavíkurborgar?
Mér þætti vænt um að fá svar.
Grétar Marinósson,
sálfræðingur.
I
LANDSSMIÐJAN HF.
Sölvhólsgötu 13 — Reykjavík — Sími (91)20680 — Verslun: Ármúla 23
DRIFKEÐJUR 0G HJÓL
Mjög
hagstætt
verð
AMSTRAD PC 1512
600 AMSTRAD PC Á 100 DÖGUM!
Á þessum tímamótum höldum við hátíð og bjóðum
25 tilboðspakka „A“ og 25 tilboðspakka „B“ á GRÍNVERÐI.
Ath. Aðeins verða seldir 25 pakkar af hvoru og aðeins gegn stað-
greiðslu!
Y
Kr. 79.000 stgr.
2 diskadrif m/14“ litaskjó............................
Prentari DMP 3000 (105 p.sek.)........................
Forrit aðeigin vali..................................
FYRIR
EINSTAKLINGA
...........kr. 59.800.-
...........kr. 16.790,-
...........kr. 15.000,-
AMSTRAD PC 1512 er engin venjuleg PC-tölva, þó
hún sé alsamhæfð IBM PC. Kynntu þér verðið og
allan aukabúnaðinn sem fylgir, þá skilur þú 600
ánægða AMSTRAD PC eigendur.
Kr. 110.000 stgr.
FYRIR
FYRIRTÆKI
20 MB harður diskur, 1 diskadrif
14“ svarthvítur pergament skjár......................................kr. 67.900.-
Prentari DMP 4000 (breiður, 200 p.sek.)..............................kr. 27.890,-
RÁÐ, viðskipta-, sölu- og lagerkerfi XT..............................kr. 45.000.-
RÁÐ, fjárhagsbókhald XT..............................................kr. 29.000.-
Viðgerðarþjónusta:
Tækniverkstæði Gísla J. Johnsen.
Móttaka:
Bókabúð Braga, tölvudeild, s. 621122..
Námskeið: Tölvufræðslan, Borgartúni 56, sími 687590.
m
Bókabúð
Braea
TÖLVUDEILIV
v/Hiemm Simar 29311 og 621122