Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 55 Minning: Valgeir Runólfsson rafvirkjameistari Fæddur 31. október 1923 Dáinn l.júní 1987 Þriðjudaginn 2. júní barst okkur sú sorgarfrétt að Valgeir Runólfsson, tengdasonur og mágur okkar, væri látinn. Með þessum fáu orðum, sem eru nær því að vera of fá en of mðrg, viljum við minnast þessa ágæta manns, sem var einn fastasti punkturinn í lífi okkar. Þessi helfregn hefði að ósekju mátt bíða í mörg ár enn, því Valgeir var aðeins 64 ára gamall, sem telst ekki hár aldur í dag. Það var kannski táknrænt að Valgeir, sem unni útivist og gróðri, var nýkominn úr gróðursetningar- ferð þegar kallið kom. En enginn má sköpum renna. Ekki getum við grátið Valgeir mág okkar og vin úr helju, þó við fegin vildum. Við eigum á bak að sjá manni sem gott var að leita til með aðsteðjandi vandamál, sem hann skildi aldrei við óleyst, væri það í mannlegu valdi að leysa þau. Velvild hans og ástúð lét ekki staðar numið við okkur systkinin, því fullyrða má að böm okkar, sem eitthvað þekktu til hans höfðu hann í hávegum og fundu fljótt eins og aðrir að allar stundir í návist hans vom góðar stundir. Til marks um þetta má nefna ómetanlegan stuðn- ing þann og styrk sem hann veitti ungum hjónum, Vilborgu og Áma, í veikindum dóttur þeirra. Fyrir þetta vilja þau færa sínar bestu þakkir og kveðjur. Vilborgu og bömum þeirra vottum við okkar dýpstu samúð. Heldur má ekki gleyma bamabömunum þrettán sem hafa misst afa sinn. Það em ekki öll böm svo rík að eiga afa sem gat búið til vísur um þau, eða fyrir þau til að syngja. Einhvem veginn er vorið ekki eins bjart og það var og gefur ekki eins fögur fyrirheit og áður. Blessuð sé minning Valgeirs Run- ólfssonar. Hvers er að vænta hægt ég rís á fætur og hljóður dreg ég tjöldin fyrir gluggann. (Tómas Guðmundsson.) Sigurlina Valgeirsdóttir, böm, tengdaböra og fjölskyldur. Katrín Krisijáns- dóttir - Minning Fædd ö.júlf 1901 Dáin l.júnf 1987 í dag verður til moldar borin amma okkar, Katrín Kristjánsdóttir, Mela- braut 5-7, Seltjamamesi. Katrín fæddist á Ketilstöðum í Holtum, dótt- ir hjónanna Jónínu Kristínar Vigfús- dóttur og Kristjáns Sigvaldasonar, bónda þar, en síðan fluttu þau að Kvíarholti þar í sveit. Þau systkinin urðu alls níu en sjö þeirra náðu full- orðinsaldri og var amma síðust þeirra á lífí. Katrín eignaðist einn son, pabba okkar, Sverri Guðjónsson. Þegar amma kom til Reykjavíkur stundaði hún ýmsa vinnu, þar á meðal við saumaskap og ráðskonustörf. í gegn- um árin saumaði hún margan kjólinn og flíkumar á okkur systumar. Amma bjó lengst af á Lambastöðum á Seltjamamesi og eigum við þaðan margar góðar minningar. Fyrir sex árum flutti hún á Melabraut 5-7, Seltjamamesi, í íbúð fyrir aldraða þar sem hún var mjög ánægð og leið vel. Við systumar og bama- bamabömin þökkum Katý ömmu, en svo kölluðum við hana alltaf, fyr- ir samverustundimar og kveðjum hana með þessum fátæklegu orðum og biðjum algóðan Guð að geyma hana. Nína og Sigga #FAAASTEAGUR fánastengur eru framleiddar úr áli, hvítlakkaöar og endast vel. Uppsetning er sérstaklega auðveld. fánastengur bjóðum viö í eftirfarandi lengdum: 6 — 8 — 10 — 12 — 14 — 16 metra. SCANDINAVIA Sudurlandsbraut 6. sínii: 83 4 99 -3 0900 4. h. ráðstöfuð. 3. h. ráðstöfuð. 2.'h.325 + 325fm. 1. h. ráðstöfuð nema 200 fm. erstakt tækifæri! Til leigu er verslunar- og skrifstofuhúsnæði í nýju, vönduðu húsi í Skipholti. Er hér um að ræða húsnæði í eftirfarandi stærðum: 1. hæð 200 fm verslunarhúsnæði m/inn- 2.hæð325fm + 325fm= 650 fm skrifstofu- keyrsludyrum. Húsnæðið hentar sérlega vel húsnæði. Afhending 1. október 1987. fyrir heildverslun og verslun. Afhending 31. júlí 1987. Húsnæðið verður afhent í eftirfarandi ástandi: Tilbúið að innan til innréttinga og málningar. Með fullfrágenginni sameign og vönduðum frágangi eftir hönnun Sturlu Más Jónssonar innanhússarkitekts. Húsið verður fullfrágengið að utan með vönduðum frá- gangi á lóð eftir hönnun Guðmundar Sigurðssonar landslagsarkitekts. Hér er um sérstakt tækifæri að ræða m.a. vegna þess, hve staðurinn er góður og allur frágangur sérlega vandaður. Nánari upplýsingar í síma 82300. Muiinmunimiuiiii
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.