Morgunblaðið - 20.06.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LA.UGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987
15
Nýtt Líf í heimsókn hjá
konungshjónunum í Stokkhólmi
Þrátt fyrtr að konungdæmí séu á fallanda fæti víðast S heiminum eru
kóngar og drottningar enn þjóðhöfðingjar í næstu nágrannalöndum okk-
ar, Danmörku, Noregi og Svíðþjóð. Nýtt Líf hélt á fund sænsku konungs-
hjónanna í höil þeirra í Stokkhólmi og ræddi meðal annars við þau um framtíð
konungdæmis í Svjðþjóð, rikiserfðir, hlutverk þeirra í sænsku þjóðlífi, kvenna-
pólitík og fleira. Áður en Carl Gustaf gekk að eiga Silviu drottningu voru
uppi raddir í Svíþjóð sem sögðu að ef til vill væri nú tímabært að leggja af
konungdæmi í landinu. Silvia vann strax hug og hjörtu sænsku þjóðarinnar
og nú minnist enginn lengur á að setja beri konung af.
I greininni fjallar Torfi einnig um lifnaðarhætti Masaja og segir meðal ann-
ars: „Nokkru eftir að Masajar verða kynþroska eru þeir umskornir, stúlkurnar
líka. í samjöfnuði við þá aðgerð er umskurn Gyðinga barnaleikur. Stúlkurnar
mega hljóða eins og þær vilja meðan á aðgerðinni stendur, en þeim er haldið
og þær sleppa ekki fyrr en allt er afstaðið." Athyglisverð grein höfundar sem
hefur ríka samúð með náttúrubörnum Afríku.
Viðtöl:
Með náttúrunni — gegn sjúkdómum
Frá aldaöðli hefur maðurinn notað ýmislegt úr ríki náttúrunnar í iækn-
ingaskyni. Grasalækningar, nálastungur, svæðanudd og fleira voru
algengar lækningaaðferðir en þessar aðferðir hafa flestar haldið sinum sessi
þrátt fyrir mikla framþróun í læknavísindum og verið notaðar samhliða hefð-
bundnum lækningaaðferðum. Menn hafa nýtt sér reynslu liðinna kynslóða
og látið náttúruna vinna með sér gegn sjúkdómum. Nýtt Líf ræðir við Ástu
Erlingsdóttur, en hún er þekktasti grasalæknir okkar Islendinga, dóttir
Erlings heitins Filippussonar grasalæknis. Jafnframt er rætt við Ævar
Jóhannesson tækjafræðtng við Raunvísindastofnun Háskóla íslands, en hann
er meðal margra áhugamanna um þetta efni og hefur sjálfur reynslu af óhefð-
bundnum lækningaaðferðum.
„Þar eru konur metnar í kýrverðum44
Masajar eru þjóðflokkur í Kenya sem enn lifir tiltölulega frumstæðu lífi.
í stórskemmtilegri grein segir Torfi Ólafsson, þýðandi, frá heimsókn
sinni á fund þessara fijálsu barna náttúrunnar en sonur hans, Helgi Torfa-
son, jarðfræðingur, var með í förinni og tók myndir af því sem fyrir augu bar.
— Rætt við hjón, sem eru fædd og uppalin í Reykjavík, en fluttu austur fyr-
ir fjall og búa að Arnarstöðum í Flóa og stunda þar umfangsmikla
hrossarækt og reka hundagæsluheimili.
— Þorsteinn G. Gunnarsson tekur Jón Ólafsson, einn ef brautryðjendum á
Rás 2, tali.
— Kristina Haraldsdóttir er ein vinsælasta ljósmyndafyrirsæta íslands, en
rætt er við hana um fyrirsætustarfið og fleira.
— Hann er kallaður Diddi fiðla og segist frekar vera fúskari heima en frægur
á ferðalögum. Það er Ragnheiður Daviðsdóttir sem ræðir við hann.
Greinar:
— Jón Gíslason næringarfræðingur fjallar um vítamín og steinefni, en lengi
hefur verið deilt um mikilvægi þess, að taka reglulega inn vítamin og stein-
efni í töfluformi i þeim tilgangi að stuðla að betri heilsu.
— Afturhvarf til náttúrunnar virðist vera áberandi um þessar mundir. Fjali-
að um myndina Mosquitoströndin.
— Hvernig gengur ungum listamönnum að koma list sinni á framfæri? Þor-
steinn G. Gunnarsson fjallar um málið.
Handavinna, tíska, matur, Eiite '87 o.fl.
Nýtt Líf — blað í takt við timann, fjölbreytt og vandað.
Nýtt Líf — blað í takt við tímann.