Morgunblaðið - 20.06.1987, Side 24

Morgunblaðið - 20.06.1987, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987 Erlendir ferðamenn í Reykjavík teknir tali: BLAÐAMENN Morgunblaðsins fóru á stúfana í góða veðrinu og ræddu við nokkra útlendinga sem voru á ferð í bænum. Fyrst lá leiðin á tjaldstæðið í Laugardal. Þar hittum við Árna Pétursson, tjaldstæðisvörð. „Að- sóknin byijar að öllu jöfnu um miðjan júní en núna eru helmingi fleiri gestir en á sama tíma í fyrra. Þetta er fimmtánda sumarið sem tjaldstæðið starfar 6g á þessum tíma hefur orðið gífurleg flölgun gesta“, sagði Ámi. Að hans sögn kjósa margir ferðamenn að gista í tjaldi fremur en á hóteli, ekki vegna pen- ingaleysis heldur fínnst þeim það mun skemmtilegri ferðamáti. Þjóð- veijar nýta sér tjaldstæðið mest en þar á eftir koma Norðurlandaþjóð- imar, Hollendingar, Bretar og Frakkar. Mjög margir þessara ferðalanga eru farþegar með Norr- ænu. íslendingar koma af og til en að sögn Áma eru þeir í mesta lagi 10% af heildarfjölda gesta. Stórir hópar útlendinga koma venjulega um mánaðamótin júní - júlí, þegar ferðir hefjast um hálendið. Tjaldstæðisverðirnir eru tveir og vinna á vöktum. Starfssvið þeirra er meðal annars löggæsla, upplýs- ingaþjónusta og gjaldtaka. Gjaldið er 80 krónur á mann og 80 krónur á tjald á sólarhring. „Það hefur ekkert verið kvartað, ferðamönnum finnst þetta sanngjarnt verð“, sagði Ámi. Enginn hundaskítur Næst tókum við tali þá Marcel og Jurren frá Hollandi. Þeir hafa verið hér í þijár vikur og Jurren ætlar að vera áfram í viku. Þeir sögðust ekki hafa gert neinar áætl- anir áður en þeir komu hingað. Þeir voru þó ákveðnir í að skoða fugla og reyna að hafa upp á teg- undum sem eru sjaldgæfar í Holl- andi svo sem straumönd og þórshana. Jurren var með ákaflega stóra myndavél með aðdráttarlinsu. „Þetta er einungis áhugamál hjá mér en ég gæti þó hugsað mér að skrifa bók um fugla ef ég yrði at- vinnulaus", sagði Jurren. Hann sagðist venjulega kaupa bækur um fugla á frummálinu þar sem hann væri staddur. Hér á landi fannst honum þó vanta bækur í viðunandi stærð og á viðráðanlegu verði. Jurren og Marcel eru báðir héma í fyrsta skipti. Marcel sagðist örugg- lega ætla að koma aftur vegna þess að margir vegir væru enn lokaðir. Frá vinstri: Ingólfur, Heba Alla og Abraham. Hann hafði hug á því að koma með mótorhjólíð sitt og ferðast um landið. Hann kvaðst þá ætla að undirbúa sig betur og fara á af- skekkta og óspillta staði. Þeir félagar komu hingað til lands í leit að fuglum og óspilltri náttúru en urðu fyrir nokkrum vonbrigðum vegna hins mikla ferðamanna- straums. „Þetta er þó hreinasta land sem ég hef heimsótt og ég hef ferð- ast töluvert í Evrópu. í Reykjavík er heldur enginn hundaskítur! í Amsterdam er varla hægt að ganga fyrir hundaskít". Engar myndir! í næsta tjaldi voru einnig Hol- lendingar. Annar þeirra var ekkert gefinn fyrir viðtöl eða myndir svo við snérum okkur að vini hans Jan. Hann sagði að þeir hefðu komið til Islands til að skoða sjófuglana á Hornströndum. Þar vom þeir einir í tvær vikur. Tjaldið dugði þeim þó ekki fyrir vestan því að þar snjóaði í tvo daga. Jan sagðist gjaman vilja koma aftur hingað til lands til þess að sjá fleiri landshluta. Jan, og ef grannt er skoðað má sjá vin hans inni í tjaldinu. „Okkur gengur svo illa að lesa þessi íslensku götunöfn“ Hjónin Ferracci og Risse vom að stíga upp í bílinn þegar okkur bar að en fengust þó til að rabba dálítið við okkur. Þau sögðust vera frá Frakklandi og eiga heima í þorpi rétt sunnan við París. Þau kváðust ætla að dveljast í fjórar vikur á ís- landi og næsti áfangastaður væri Vík í Mýrdal með stuttri viðkomu í Hveragerði til að skoða tómatarækt. Aðspurð um hvað Frakkar þekktu til íslands sögðu þau að flestir vissu að hér væm mörg eldfjöll en lítið meira. Þau Ferracci og Risse kváðust hafa komið til Reykjavíkur seint um kvöld og hefði það valdið þeim hin- um mestu erfiðleikum að finna tjaldstæðið í Laugardal. „Okkur gengur svo illa að lesa þessi íslensku götuheiti" sagði Ferracci og hló. Morgunblaðið/KGA Arni Pétursson, tjaldstædisvörð- ur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.