Morgunblaðið - 20.06.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987
37
það starf, sem þar fram færi.
Alþingismennimir Valgerður
Sverrisdóttir, Ámi Gunnarsson,
Halldór Blöndal, Steingrímur Sig-
fússon og Guðmundur Bjamason,
heiðmðu viðstadda með nærvem
sinni og fyrir þeirra hönd flutti
Guðmundur Bjamason ávarp.
Kveðju frá UMFÍ flutti Pálmi
Gíslason, frá ÍSÍ Hermann Sig-
tryggsson og frá Völsungi Sigur-
geir Aðalgeirsson og kveðja barst
frá menntamálaráðherra, sem
ekki gat verið viðstaddur. Margar
gjafir hafa húsinu borist, m.a.
markklukka, sem hveiju íþrótta-
húsi er talin nauðsynleg, en
gefendur hennar vom Landsbanki
Islands og Olíufélagið — Olíudeild
KÞ.
Vígsluhátíðinni lauk með söng
Húsavíkurkórsins, undir stjóm
Ulríks Ólasonar við undirleik
Reynis Jónassonar, og ávarpi
fjallkonunnar sem Sigríður Harð-
ardóttir flutti.
Síðan var farið í leik og ung-
menni kepptu í íþróttum.
Þessi 17. júní-hátíðarhöld vom
all sérstæð og munu verða þeim
mörgu, sem vom viðstaddir, eftir-
minnilegur.
— Fréttaritari
- , . Morgunblaðið/SPB Hið nýja íþróttahús á Húsavík.
Iþrottasalunnn er 27 x 45 metrar og ahorfend-
fasvæði rúmgóð.
Iþróttahús vígt á
Hátíðarhöldin 17. júní á
Húsavík hófust með messu kl.
11.00, en dagurinn var annars
að mestu helgaður vígslu hins
nýja íþróttahúss á Húsavík.
Vígsluhátíðin hófst með ávarpi
bæjarstjóra, Bjarna Þórs Einars-
sonar, en síðan rakti formaður
byggingarnefndar, Bjami Aðal-
geirsson, byggingarsögu hússins
og sagði meðal annars: Fyrsta
byggingamefndin var skipuð
1974 og setti hún sér strax það
markmið, að byggt yrði mjög full-
komið og vandað íþróttahús, sem
nú eftir þeim hugmyndum er risið
af gmnni; steinsteypt hús með
salarstærð 27x45 metrar ásamt
tilheyrandi fylgirými.
Byggingarmálin lentu nú í
nokkurra ára biðstöðu, en þó var
málið alltaf á dagskrá og kannað-
ar ýmsar hugmyndir um gerð
slíkra húsa í samráði við íþrótta-
fulltrúa ríkisins, Þorstein Einars-
son, og teiknistofuna Ármúla 6 —
Jósep Reynis, sem síðar hannaði
bygginguna og fær lof fyrir.
Hinn 4. apríl 1981 hófust svo
framkvæmdir með því að Bjami
Aðalgeirsson, þáverandi bæjar-
stjóri, tók fyrstu rekustunguna
og síðan hefur stanslaust verið
unnið að byggingarframkvæmd-
um eftir því, sem bærinn hefur
talið sér fært að veita fjármagn í
á hvetjum tíma.
Húsið er byggt sem skóla- og
íþróttamannvirki, stærð alls húss-
ins er 2.429 fermetrar að flatar-
máli og rúmmál alls 15.135
rúmmetrar. Húsið er steinsteypt
með þriggja liða límtrésbitum í
salarþaki, þak á lágbyggingu og
tveggja hæða viðbyggingu er bo-
rið uppi af límtrésbitum. í lág-
byggingunni eru tveir þreksalir,
búningsaðstaða fyrir um 240
manns, anddyri ásamt göngum
og þjónustuherbergjum. í tveggja
hæða byggingunni er á neðri hæð
þreksalur, áhaldageymsla, her-
bergi fyrir tæknibúnað hússins og
aðstaða fyrir starfsfólk. Á efri
hæð er veitingastofa, anddyri og
snyrting fyrir gesti. Þessar þjón-
ustuálmur eru ekki að fullu
frágengnar og svo er um fleiri
vistarverur hússins, sem þó
skerða á engan hátt fullkomna
íþróttaaðstöðu hússins, því
íþróttasalurinn og annað honum
tilheyrandi er að fullu frágengið
ásamt lóð er Reynir Vilhjálmsson
landslagsarkitekt hannaði.
Heildarkostnaður hússins er nú
orðinn um 65 milljónir króna
(óframreiknað). Eins og áður
sagði teiknaði Jósef Reynis arki-
tekt húsið. Tækniþjónustan hf. á
Húsavík sá um útreikninga á
burðarþoli, hannaði loftræstingu,
raflagnir og aðra verkfræðivinnu.
Húsvískir verktakar hafa ein-
göngu unnið að byggingunni:
Trésmiðjan Norðurvík, Trésmiðj-
an Fjalar hf. og Trésmiðjan Borg
hf., Raftækjavinnustofa Gríms og
Árna, Vermir sf., Múrverk sf. og
Foss hf. Benedikt Björnsson garð-
yrkjumeistari sá um lóðarfram-
kvæmdir.
Þetta nýja hús bætir úr brýnni
þörf skólanna til íþróttakennslu,
enda er ríkið þátttakandi í bygg-
ingu þess, þó enn sé ekki frágeng-
ið að hve miklum hluta.
ar, frú Katrínu Eymundsdóttur,
að koma hér og taka við lyklum
þessa húss, sem tákn þess að
byggingamefnd íþróttahússins
afhendir Bæjarstjórn Húsavíkur
þetta hús til rekstrar."
Katrín tók því næst við lyklum
hússins og ávarpaði viðstadda.
Séra Sighvatur Karlsson flutti
bæn og blessaði hið nýja hús og
Gestir á vígsluhátíðinni á þjóðhátíðardaginn.
Bjami þakkaði öllum þeim,
nefndum og ónefndum, sem á ein-
hvern hátt hefðu stuðlað að því
að þessi bygging væri orðin að
vemleika og lauk máli sínu með
þessum orðum:
„Er við hófum framkvæmdir
við þetta íþróttahús, hinn 4. apríl
1981, var fagur dagur og vor í
lofti og vorblærinn hefur verið
með okkur allan byggingartí-
mann. Nú er ég lýsi þetta íþrótta-
hús formlega tekið til afnota, þá
bið ég þess að vorblærinn megi
fylgja þessari stofnun um alla
framtíð.
Ég vil biðja forseta bæjarstjóm-
Húsavík
Göngudag-
ur fjöl-
skyldunnar
Þjóðarátak gegn
hreyfingarleysi
BANDALAG íslenskra skáta og
Ungmennafélag íslands munu á
sunnudaginn gangast fyrir
göngudegi fjölskyldunnar.
Á Akureyri mun skátafélagið
Klakkur standa fyrir þremur léttum
gönguferðum með leiðsögn í ná-
grenni bæjarins. Á sunnudags-
morgun verður ein ömefnaferð.
Farið verður í hana kl. 10.00 frá
hitaveituskúrunum við Fálkafellsaf-
leggjara. Göngustjóri þar verður
Gunnar Helgason. Eftir hádegið
verður boðið upp á tvær ferðir sem
hefjast kl. 14.00. Onnur er um
Vaðlareit og er mæting í hana við
Leiruveg þar sem hann kemur í
Vaðlaheiði. Göngustjóri þar verður
Tryggvi Marinósson. Hin ferðin
verður um Kjamaskóg og svæðið
ofan hans og er mæting í hana við
svarta gönguhúsið í Kjarnaskógi.
Göngustjóri þar verður Ólafur
Kjartansson.
Þátttökugjald er ekkert en svala-
drykkir verða seldir á áfangastöð-
um.
APANSKAN,
SÆNSKAN EÐA
KÚPLINGAR, KVEIKJUHLUTI/BREMSUHLUTI,
STARTARA, ALTERN ATORA, SÍUR,AÐALLJÓS,
BENSÍNDÆLUR, ÞURRKUBLÖÐ ofl.
KREDITKORTA ÞJÓNUSTA
Úrvals varahlutir
AMERISKAN BIL.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍM! 687300
ÞÝSKAN,
Það er sama hverrar
þjóðar bíllinn er.
Við eigum varahlutina.
EIGUM Á LAGER: