Morgunblaðið - 20.06.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987
43
Stjörnu
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Molar
1 dag verða molar á dagskrá.
í molaþáttum hyggst ég birta
fróðlegar smásögur um
stjömuspeki sem verða á vegi
mínum í daglegu lífi. Sögur
sem ég tel skemmtilegar en
eru ekki nógu stórar til að
eiga erindi í heila grein. Eru
lesendur beðnir að taka þátt
í þessum leik og senda inn
eins og eina eða tvær „mola-
sögur“. Utanáskrift bréfa er:
Molar, Stjömuspekiþáttur,
Mbl., Aðalstræti 6,101 Rvík.
Ljón eða Meyja
Um daginn sagði áhugamað-
ur um stjömuspeki mér
eftirfarandi sögu. Til hans
kom ung kona og spurði:
„Hvort ætli ég sé Ljón eða
Meyja? í einu blaði stendur
að ég sé Ljón og í öðm
Meyja." Vinur minn leit á
konuna. Hún var með
skemmtilega klippt rautt hár.
í öðm eyranu vom fimm göt
og jafnmargir steinar, rauðir,
gulir og grænir. Auk þess var
hún með tvo stóra gulleyma-
lokka! Hún hafði einnig gat
og kúlu í nefinu. Klæðnaður
hennar var fijálslegur en það
sem ekki síst vakti athygli
vinar míns var opin og hressi-
leg framkoma. Og þá er það
stóra spumingin: Hvort held-
ur þú, lesandi góður, að hún
hafi verið Ljón eða Meyja?
Augljóst mál
Auðvitað var hún Ljón. Og
það sem meira var, hún var
einnig Ljón Rísandi (fas og
framkoma). Það er nánast
útilokað að hin hógværa og
hlédræga Meyja gæti tekið
upp á því að klæðast svona
undarlega. Meyjunni er það
mikilvægt að skera sig ekki
úr á nokkum hátt.
Ruglingur
Ég hef tekið eftir því, fyrst
við emm að tala um Ljón og
Meyju, að fólk vill ruglast á
ákveðinni lýsingu á þessum
merkjum. Sagt er í bókum
að Ljón vilji stfl og glæsi-
leika. Síðan þegar menn sjá
létt sjúskað Ljón og tipp topp
Meyju koma gangandi niður
Laugaveginn hugsa menn
sem svo: Hver var að tala um
glæsileika?
Snyrtimennska
Þegar þessi misskilningur
kemur upp er verið að blanda
saman snyrtimennsku og
glæsileika. Meyjan er gjaman
með öll smáatriði á hreinu,
en hún nær sjaldan _ hinni
stóm sveiflu Ljónsins. Á hinn
bóginn má kannski segja að
Ljónið þurfí að eiga peninga
eða vera listrænt til að þörfín
fyrir glæsileika njóti sín til
fúlls. Þegar við tölum um
glæsileika og Ljónið megum
við annars ekki gleyma því
að Ljónið er ekki að hugsa
um smáatriði, heldur heildar-
áhrifín. Það má heldur ekki
gleyma þvi að Ljónið er í eðli
sínu leikhúsmaður sem vill
vekja athygli. Það gengur því
kannski oft í berhögg við þá
siði sem ríkja í þjóðfélaginu,
til þess eins að láta taka eftir
sér.
Útlitseinkenni
Ég hef tekið eftir því að
margir Bogmenn em hávaxn-
ir, langir og mjóir. Þetta á
einnig við um Rfsandi Bog-
menn. Þegar við emm að tala
um útlit merkja verðum við
að sjálfsögðu að hafa í huga
að erfðaþættir hafa einnig
sitt að segja. Þetta er því
ekki algilt, en þó áberandi.
Naut t.d. má oft þekkja á
breiðu enni og þykku nefí, á
breiðu uppandliti. Rfsandi
Vogir em oft ljóshærðar og
grannvaxnar, Rfsandi Sporð-
drekar em yfirleitt dökkir
yfirlitum, en lýsast eftir því
sem nær dregur Bogmanni.
GARPUR
í GSASKALMA KA&TALA
HEFUR HVÆS.I KOHUHGI
lEMSTAB /VJ) AFTVe
STJÓBH A þRUMU
eþlunum.
NU GETUM V/Ð
SEOT/B N/ÐUþ
kASTALA&EÓNAi,
eRÞaþ bkki, r^loKS/NS
v/Nuft ? ) RF& éG yF/R
GRXskalla -
KASTA LA I ~
1 pxwi-* Æk | iTPklO
DYRAGLclNIS
FERDINAND
BUT WWO UUAKIT5 TO PAWCE UJITH A POS ? ___
& m )
Sl, -
En hver vill dansa við
hund?
Enginn!
SMÁFÓLK
Ég hata að vera einsog
tuskuhundur!
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hjónin og spilafélagamir
Matt og Pamela Granovetter,
sem komu hingað til lands á
Bridshátíð í vetur, hafa í samein-
ingu skrifað hressilega bridsbók
með eftirminnilegum spilum
heimsþekktra spilara. „Toppar
og botnar" heitir bókin, og fær
góða dóma hjá Alan Tmschott,
bridsblaðamanni New York Tim-
es. Eftirfarandi spil er einka-
framlag Matt til bókarinnar.
Norður
♦ ÁK65
¥ 832
♦ -
♦ ÁD10987
Vestur
♦ 742
VDG105
♦ 9432
♦ 53
Suður
Austur
♦ DG83
¥ 94
♦ ÁG75
♦ KG2
♦ 109
▼ ÁK76
♦ KD1086
♦ 64
Spilið kom upp í tvímennings-
keppni árið 1973, þegar Matt
var 23ja ára gamall. Það er
óþarfí að rekja sagnir, enda
heldur fáránlegar, en niðurstað-
an varð sex lauf, sem Matt
spilaði í suður. Kerfíð var byggt
á sterkri tígulopnun, svo Matt
varð að vekja á laufi í upphafí. > _
Útspil vesturs var hjarta-
drottning, og Matt veitti því
athygli að gamall vinur hans í
austursætinu átti erfítt með að
leyna gleði sinni þegar spil blinds
komu upp. Það gat aðeins þýtt
það að hann ætti báða lauf-
hákana.
Matt víxltrompaði spaða og
tígul um hríð og náði fram þess-
ari stöðu: Norður ♦ - ¥8 ♦ -
Vestur ♦ ÁD Austur
♦ - ♦ -
♦ G 111 ¥ —
♦ - ♦ -
♦ 55 Suður ♦ - ¥76 ♦ D ♦ - ♦ KG2
Hjarta var nú spilað, austur
varð að trompa og spila upp í
gaffal blinds.
Það fylgdi sögunni að nokkur
pör í salnum hefðu gert athuga-
semd við skorblaðið. Töldu víst
að spilin hefðu mglast á borð-
inu, „því KG var í austur á öllum
öðmm borðum". ^
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Evrópumeistaramóti ungl-
inga f Groningen f Hollandi um
síðustu áramót kom þessi staða
upp í viðureign þeirra Ivanchuk,
Sovétríkjunum, sem hafði hvítt
og átti leik, og Gdansky, Pól-
landi.
riddari hans á c6 stæði í upp-
námi og lék: 81. Dh4! — Dxc5,
32. Dxf6+ - Kg8, 33. Dg5+ -
Kh8,34. Hf7. Hvítur hefur vald-
að mátið á fyrstu reitaröðinni-
og hótar sjálfur óveijandi máti.
Pólveijinn gafst því upp.
Ivanchuk sigraði á mótinu,
hlaut 10 vinninga af 13 mögu-
legum. Hollendingurinn Piket
varð annar með 9 vinninga. ís-
lenski keppandinn, Þröstur
Þórhallsson, varð í 6,—10. sæti
með 7 V* vinning.