Morgunblaðið - 20.06.1987, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987
61
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Golf í
Grafarholti
Heimsókn á unglingagólfnámskeið GR
Þegar minnst er á golf dettur mörgum í hug fullorðnir karl-
menn bröltandi um mela og móa með þungan poka fullan af
járnkylfum reynandi að hitta ótrúlega litla hvíta kúlu. Aðaltak-
markið er síðan að slá þessa hvítu kúlu sem lengst þannig að
þeir þurfa að labba enn lengra til að finna hana aftur og koma
síðan kúlunni ofan í einhverja holu í jörðunni. En sannleikurinn
er nú dálítið öðruvísi. Golf er stundað af fjölda fólks á öllum
aldri og er ein skemmtilegasta íþrótt sem hægt er að stunda.
Það eru ekki einungis fullorðið
fólk sem stundar golf. íþróttin á
vaxandi vinsældum að fagna með-
al barna og unglinga og í fyrra
reið GR á vaðið og bauð upp á
golfnámskeið fyrir börn og ungl-
inga. Námskeiðið hlaut það góðar
viðtökur að ákveðið var að endur-
taka þetta í ár. Golfklúbbur
Reykjavíkur sér um námskeiðið í
samvinnu við Æskulýðsráð borgar-
innar og í allt eru haldin þrjú
narhskeið yfir sumarið. Námskeið-
in eru opin fyrir pilta og stúlkur
fædd 1973, ’74 og '75. Unglinga-
síðan leit inn á fyrsta námskeiðið
og ræddi við nokkra af þátttakend-
unum.
• Ungir golfarar: Kristinn Jóhannsson, Sigfús Sigurðsson, Haukur Þór Hannesson og Heimir Björgúlfs-
son.
• Kennararnir Karl Ómar Karlsson og Jón Hafsteinn Karlsson.
Þarf að ráða myndar-
legri golfkennara?
Rætt við bræðurna Karl og Jón Hafstein
Aðalkennarar á námskeiðinu eru tveir bræður. Þeir
heita Karl Ómarog Jón Hafsteinn Karlssynir. Þeirtjáðu
okkur að GR heðfi haldið eitt tilraunanámskeið í fyrra
og það hefði heppnast það vel að ákveðið hefði verið
að bjóða upp á fleiri námskeið í ár.
Ekki hefði verið hægt að halda fleiri í fyrra því það
hefði vantað kennara en íár hefðu þeir verið ráðnir í
þetta sem fullt starf. Viðtökurnar hefðu verið mjög
góðar í ár og síminn hefði varla stoppað hjá þeim eftir
að þetta var auglýst í bæklingi Æskulýðsráðs. Nú væri
orðið fulit í öli byrjendanámskeiðin því þeir tækju ein-
ungis 15—18 nemendur á hvert þeirra til að geta fylgst
með hverjum og einum nemenda. Enn væru hinsvegar
nokkur pláss laus í framhaldsnámskeiðin í ágústmánuði.
Fæstir frá golffjölskyldum
Sögðu þeir að fæstir þátttakendur kæmu frá svokölluðum golffjölskyld-
um og tóku sem dæmi þá átján sem væru á þessu námskeiði að
einungis fimm þeirra ættu feður eða mæður sem spiluðu golf. Ekki
höfðu þeir svör á reiðum höndum hvers vegna fleiri stelpur væru ekki
á námskeiðunum: „Viö þurfum kannski að ráða myndarlegri kennara á
næsta ári“ gall þá við í Björgólfi framkvæmdastjóra GR sem fylgdist
með en strákarnir voru fljótir að svara honum og sögðu að hann væri
bara öfundsjúkur út i þá. Allt var þetta nú sagt í lóttum dúr og greini-
legt að góður andi var ríkjandi. Nemendurnir voru nú orðnir órólegir
að komast á „grínið" eins og þeir segja víst á golfmáli og þökkuðum
við þeim Karli og Jóni fyrir spjallið
Golf er bæði fyrir
stráka og stelpur
• Góð sveifla á Korpúlfsstöðum.
Rætt við fjóra hressa
golfara
Fyrstu tvö námskeiðin eru byrj-
endanámskeið þar sem farið er
yfir helstu atriði varðandi golf-
íþróttina. Byrjað er að kenna í Graf-
arholtinu en síöan er farið á
golfvöllinn á Korpúlfsstöðum. Áður
en haldið var upp að Korpúlfsstöð-
um tókum við þá tali félaganna
Kristinn Jóhannsson, Sigfús Sig-
urðsson, Hauk Þór Hannesson og
Heimi Björgúlfsson:
Þeir hafa spilað golf í mismun-
andi langan tíma. Kristinn hefur
spilað í þrjú ár en hinir þetta á
milli 1 og 2 ár hver. Þeir sögðust
taka þátt í námskeiðinu til að ná
betri tækni og hafa allir fullan hug
á því að taka þátt í framhaldsnám-
skeiðinu sem GR bi'ður upp á f
ágústmánuði. En hvað er svona
gaman við golfið: „Útiveran og
finna hve fljótt maður tekur fram-
förum" sagði Sigfús og hinir tóku
undir þessa skoðun. Ekki kváðust
þeir geta svaraö því af hverju eng-
in stelpa væri á námskeiðinu því
golfið væri alveg eins gert fyrir
stelpur eins og stráka: „Það hefur
einhvern veginn skapast þessi
ímynd að þetta sé karlaíþrótt og
henni er erfitt að breyta" sagði
Heimir „en það eru víst stelpur á
hinu narhskeiðinu" bætti Haukur
við. Þeir voru sammála um að það
hefði nú getað verið gaman af ein-
hverjar stelpur hefðu tekið þátt í
þessu með þeim.
Gera ekki upp á milli
íþróttagreina
Allir æfa strákarnir aðrar íþróttir
og þá sérstaklega knattspyrnu.
Kristinn með ÍR, Sigfús með Val,
Haukur með Víking og Heimir með
Val. Ekki vildu þeir nú samt gera
upp á milli íþróttagreina og sögðu
að flestar íþróttagreinar væru
skemmtilegar. Golfið væri dálítið
dýr íþróttagrein í byrjun því það
þyrfti að eiga sínar eigin kylfur til
að ná árangri. Annars nægir byrj-
endum að eiga kylfur nr. 9, 7, 5
og svo auðvitað „drive" og „pútt".
Piltarnir þurftu nú að fara út á
Korpúlfsstaði til að taka þátt í loka-
mótinu þannig að við kvöddumst
með virktum.
• Þátttakendur í golfnámskeiði GR.