Morgunblaðið - 23.07.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987
Kona ól barn í
vatnsnuddpotti
KONA i Reykjavík Helga Nína
Heimisdóttir til heimilis að
Langholtsvegi 14 ól sveinbarn í
vatni í gær og mun sú fæðing
vera fyrsta vatnsfæðingin hér á
landi. Barnið vó 15 merkur og
var 54 cm á lengd. Barni og
móður heilsaðist vel í gær er
Morgunblaðið náði tali af Helgu,
en vegna þreytu treysti hún sér
hvorki til að fá Ijósmyndara né
blaðamann í heimsókn. Helga
átti 12 ára stúlku fyrir.
Fæðingin átti sér stað laust fyr-
ir kl. 13.00 í gær og hafði Helga
fengið að láni vatnsnuddpott hjá
kunningja sínum Rafni Benedikts-
syni. Ljósmóðir tók á móti baminu,
en læknir var ekki viðstaddur.
Guðjón Guðnason fæðingarlæknir
sagði í samtali við Morgunblaðið
að Helga Nína hefði fyrir löngu
síðan leitað upplýsinga hjá sér
varðandi slíka fæðingu og hefði
hún verið harðákveðin í því að láta
af þessu verða.
„Ég hef lesið mig dálítið til um
slíkar fæðingar og m.a. séð að-
stöðu á Gentofte-sjúkrahúsinu í
Kaupmannahöfn þar sem slíkar
fæðingar eru framkvæmdar, en
þar liggja konumar í vatninu að-
eins á fyrsta stigi fæðingar á
meðan fæðingarhríðimar ganga
yfir. Hugmyndin er mjög góð.
Konumar eru í 37 gráðu heitu
vatni og slappa vel af. Þörf á deifí-
lyfi minnkar verulega og talið er
heppilegt fyrir bamið að koma í
volgt vatnið áður en það kemst í
snertingu við andrúmsloftið. Einn-
ig er boðið upp á slíkar vatns-
fæðingar í smábæ skammt sunnan
við París og þar fara allir viðstadd-
ir í baðið með móðurinni, pabbinn,
læknirinn og ljósmóðirinn, en
vatnsfæðingar em hvað vinsælast-
ar í Sovétríkjunum og reyndar
upprunnar þar,“ sagði Guðjón.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Þrösturinn hefiir komið sér vel fyrir í gróðurskálanum og lá
hann sem fastast í hreiðri sínu innan um suðrænan gróður þrátt
fyrir mannaferðir fyrir utan.
Þröstur verpti
í gróðurskála
Keflavík.
ÞRÖSTUR Iiggur nú á hreiðri
með 5 eggjum í gróðurskála i
Keflavík og von er á ungum ein-
hverja næstu daga.
Að sögn eiganda gróðurskálans
er þrösturinn hin spakasti og liggur
sem fastast á hreiðri sínu þótt farið
sé inn í gróðurskálann til að sinna
blómunum sem þar eru.
Gróðurskálinn stendur á baklóð
í Keflavík og óskaði eigandi hans
að nánari staðsetning kæmi ekki
fram af ótta við forvitna áhorfend-
ur. Hann taldi að þrösturinn hefði
verið búinn að verpa áður, en varp-
ið þá misfarist af einhveijum
orsökum.
Tekjuskattsálagning einstaklinga:
Vantar um 350 milljónír
til að áætlun standist
ÚTREIKNINGAR Qármála-
ráðuneytisins á þvi hversu miklu
tekjuskattsálagning á einstakl-
Kaupmannahöfh:
íslendingur tekinn með
1,3 kg af amfetamíni
53 ára gamall íslendingur var
handtekinn af lögreglunni i Kaup-
mannahöfn á mánudag með 1,3
kg af amfetamíni í fórum sinum.
Sama dag handtók lögreglan i
Malmö tvo íslendinga og einn
Hollending i tengslum við málið,
að beiðni lögreglunnar í Kaup-
mannahöfn.
Maðurinn í Kaupmannahöfn var
handtekinn eftir húsleit í íbúð hans
sínum, þegar þeir voru handteknir.
Reynir Kjartansson hjá fíkniefna-
deildinni kvað ekkert benda til
tengsla þessara manna við aðila hér-
lendis.
Eitt gramm af amfetamíni selst á
hinum ólöglega markaði á 4.500 kr.
óblandað. Efnið er iðulega drýgt
áður en það er selt, þannig að verð-
mæti hins upptekna magns er á
bilinu 5—7 milljónir.
inga árið 1987 skili ríkissjóði,
miðað við áætlun fjárlaga, sýna
fram á að um 350 milljónir vant-
ar upp á til þess að áætlunin
standist, en í fjárlagaáætlun var
gert ráð fyrir að þessi liður skil-
aði ríkissjóði um 6,5 milljörðum
króna. Þetta kom fram í sam-
tali Morgunblaðsins við Jón
Baldvin Hannibalsson Qármála-
ráðherra í gær.
„Það er ljóst nú þegar álagning
liggur fyrir, að álagning einstakl-
inga er talsvert lægri, en áætlað
var. Þar munar því að innheimtar
tekjur ríkissjóðs af beinum skött-
um einstaklinga verða í ár 350
milljónum króna minni en ráð var
fyrir gert í fjárlögum," sagði fjár-
málaráðherra.
Jón Baldvin sagði að með hlið-
sjón af mun meiri launabreytingum
á þessu ári, en spáð var í ársbyij-
un, þýddi þetta að skattbyrði
einstaklinga yrði verulega miklu
minni á þessu ári, en stefnt hefði
verið að í fjárlögum. „Álagðir bein-
ir skattar til ríkisins lækka úr 4,5%
í tæplega 4% af tekjum einstakl-
inga,“ sagði fjármálaráðherra og
bætti við, að hlutföllin væru þver-
öfug að því er varðaði útsvör til
sveitarfélaga, sem í ár fengju sýni-
lega meiri tekjur í flestum tilvikum,
en áætlað hefði verið.
Jón Baldvin sagði að tekju-
skattsálagningin á félög kæmi
mjög svipað út og gert hefði verið
ráð fyrir í íjárlagaáætlun, þó að
hún væri heldur lægri. Þar á móti
kæmi að eignaskattur væri hærri,
þannig að innheimtan á beinum
sköttum félaga yrði í heild meiri
en áætlun gaf til kynna. Niðurstað-
an að öllu samanlögðu væri sú,
að tekjur ríkissjóðs af beinum
sköttum lækkuðu um 300 milljónir
króna miðað við fjárlagaáætlun.
„Þessi niðurstaða staðfestir það
sem sagði í endurskoðaðri þjóð-
hagsspá," sagði íjármálaráðherra,
„launahækkanir hafa orðið miklu
meiri en gert var ráð fyrir og það
þýðir að vöxtur þjóðarútgjalda hef-
ur verið meiri en vöxtur þjóðar-
tekna. Því er innflutningur meiri
en ráðgerður var og tilhneiging til
viðskiptahalla er meiri en ráðgerð
var og loks þýðir það að verð-
bólgan er 20% í stað 12%.“
Loks sagði fjármálaráðherra að
allt ofangreint hefði í for með sér,
að kaupmáttaraukningin hefði orð-
ið meiri en samsvarar launahækk-
unum, vegna þess að skattbyrði
væri lægri. „Ráðstöfunartekjur
heimilanna eru því mun meiri en
ráð var fyrir gert.“
í Avanger, en hann hefur verið bú-
settur lengi í Danmörku. Hann hefur
ekkert komið við sögu hérlendra lög-
regluyfirvalda, en mun vera góð-
kunningi lögreglunnar í Danmörku.
Annar íslendinganna í Malmö er
44 ára gamall, en hinn 24 ára. Fíkni-
efnadeild lögreglunnar í Reylq'avík
kannast við þá báða, en ekki höfðu
borist fregnir um að þeir hefðu haft
amfetamín eða önnur efni í fórum
Szirak:
Jóhann efstnr
JÓHANN Hjartarson vann í gær
Dulavilla frá Spáni í fimmtu um-
ferð millisvæðamótsins í skák í
Szirak í Ungverjalandi. Jóhann
vann skákina í 28 leikjum og
tefldi Grönfeld-vörn. Hann er nú
efstur á mótinu ásamt þeim Nunn
frá Bretlandi, Salov frá Sovétrikj-
unum og Ljubojevich frá Júgó-
slavíu. Þeir eru allir með þijá og
hálfan vinning.
Nunn og Salom sem voru efstir
fyrir þessa umferð töpuðu báðir
skákum sínum í gær. Nunn gegn
Anderson frá Svíþjóð og Salov gegn
Todoroshevics, sem teflir fyrir Mon-
akó.
Átján keppendur eru á mótinu og
búa sex þeirra, þar á meðal Jóhann,
30 kílómetra frá skákstaðnum, en
hinir tólf á hótelinu þar sem mótið
er haldið. Að sögn Elvars Guð-
mundssonar, aðstoðarmanns Jó-
hanns, var það Campomanes, forseti
FIDE, sem tók þessa ákvörðun og
réð gamall Qandskapur út í íslend-
inga því að Jóhann þarf að búa á
hótelinu sem fjær er. Sagði Elvar
að tvær klukkustundir færu daglega
í ferðir milli staða og bið eftir rútum.
Hvalveiðarnar brot á sam-
þykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins
Líffræðingar skora á ríkissljórnina að hætta hvalveiðum
„JÁ, VIÐ teljum að hvalveið-
arnar hér við Iand bijóti gegn
samþykkt Alþjóðahvalveiði-
ráðsins vegna þess að þær
svara ekki spumingunum um
stofiostærð og veiðiþol hvala-
stofiia. Þrátt fyrir allar veið-
arnar á undanfornum árum
ríkir óvissa bæði um stærð
stofnanna og veiðiþolið," sagði
Hrefiia Sigurjónsdóttir
líffræðingur í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hún er í
hópi tuttugu og eins líffræð-
ings sem í gær sendi frá sér
áskorun tíl ríkisstjómarinnar
um að virða tímabundið veiði-
bann Alþjóðahvalveiðiráðsins.
í áskorun líffræðinganna er
einnig beint þeim tilmælum til
ríkisstjómarinnar að hvalveiðum
verði hætt og rannsóknir á hvala-
stofnum kostaðar með öðrum
hætti en með ágóða af hvalveið-
um. Jafnframt er auknum
rannsóknum á lifandi hvölum hér
við land fagnað. Hrefna var spurð
með hvaða hætti hún teldi að
stunda ætti rannsóknimar og
hvemig ætti að fjármagna þær.
„Ein leið væri að merkja hvali
með radíó-sendum og fylgja þeim
eftir, en sú aðferð hefur ekki
verið notuð. Það em núna í gangi
sameiginlegar rannsóknir, mjög
lofsverðar, en það er að telja úr
lofti og fylgjast með ferðum hval-
anna um allt N-Atlantshaf. Hvað
flármögnun varðar þá er það
ríkisstjómarinnar að ijármagna
þær, Hafrannsóknastofnun er
opinber stofnun og það er mjög
óvenjuleg leið að láta einkafyrir-
tæki íjármagna opinberar rann-
sóknir," sagði Hrefna Siguijóns-
dóttir líffræðingur.
Hér fer á eftir áskorun líffræð-
inganna í heild:
Við undirritaðir líffræðingar
fognum auknum rannsóknum á
lifandi hvölum hér við land, en
skomm jafnframt á ríkisstjóm
íslands að virða tímabundið veið-
bann Alþjóðahvalveiðiráðsins,
hætta hvalveiðum og kosta rann-
sóknir á hvalastofnum með öðmm
hætti, en með ágóða af hvalveið-
um.
Alþjóðahvalveiðiráðið sam-
þykkti árið 1982 stöðvun veiða
ffá 1986 til 1990 meðan aflað
væri víðtækra gagna um hvala-
stofna. Þessi samþykkt var
tímabær, enda sýnt að hvalir hafa
hvergi staðið undir veiðum til
langffama.
Alþingi íslendinga ákvað í fe-
brúar 1983 að mótmæla ekki
samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins um stöðvum hvalveiða árin
1986-1990.
Samkvæmt samningi sjávarút-
vegsráðuneytisins fyrir hönd
Hafrannsóknastofnunar við Hval
hf. er markmið núverandi hvala-
rannsókna „að auka vísindalega
þekkingu á ástandi hvalastofna
hér við land og skapa nauðsynleg-
an gmndvöll til endurmats á
áhrifum veiðistöðvunar á hvala-
stofnana fyrir árið 1990“.
Rannsóknir Hafrannsókna-
stofnunar á lifandi hvölum em
líklegar til að bæta vemlega
þekkingu á flölda, útbreiðslu og
atferli hvala og gera kleift að
meta veiðiþol hvalastofna við
landið. Sama verður ekki sagt um
„vísindaveiðamar". Þrátt fyrir
söfnun gagna með hvalveiðum í
áratugi hefur ekki reynst unnt
að ákvarða stærð og veiðiþol
hvalastofna hér við land. Núver-
andi „veiðar í vísindaskyni“
breyta þar litlu um. Hvalveiðar
okkar Islendinga em því ekki
réttlætanlegar eins og á stendur
og við teljum rangt að kenna þær
við vísindi.
Agnar Ingólfsson,
Arnþór Garðarsson,
Arni Einarsson,
Ástrós Arnardóttir,
Guðmundur A. Guðmunds-
son,
Guðmundur V. Helgason,
Guðrún Narfadóttir,
Hrefna Siguijónsdóttir,
Jón Gunnar Ottósson,
Jón S. Ólafsson,
Karl Skímisson,
Kristinn H. Skarphéðinsson,
Kristján Lilliendahl,
Ólafur Andrésson,
Sigrún Helgadóttir,
Sigurður S. Snorrason,
Sigurður Á. Þráinsson,
Skúli Skúlason,
Snorri Baldursson,
Stefán Bergmann,
Þóra E. Þórhallsdóttir.