Morgunblaðið - 23.07.1987, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.07.1987, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987 Morgunblaöi/BS Bassaleikari og helsti textahöf- undur Skriðjöklanna. Morgunblaðið/BS Rythmagítarleikarinn var í skugga mest allt kvöldi þó hann hafi iðulega óskað eftir sínum skerf af sviðsljósinu. Það aftraði honum þó ekki að sýna mikil til- þrif í söng þá er hann lagði frá sér gítarinn. Islenskur blús Blúsáhugamönnum víða um heim vex nú óðast fiskur um hrygg og svo virðist sem í upp- siglingu sé enn ein blúsvakn- ingin. Þessa verður vart á íslandi ekki síður en annars- staðar og í dag kemur út fyrsta islenska blúsplatan. Það er hljómsveitin Centaur sem gefu plötuna út, en hún ber heitið Blús djamm. Centaur hefur að vísu yfirleitt verið álitin þunga- rokksveit, en sveitarmenn hafa þó lengi verið að fást við blúsinn. Lögin sem á plötunni eru eru öll eftir hina og þessa blúsmenn og sér maður nöfn á við Sonny Boy Williamson, Willie Dixon, Chester „Howling Wolf“ Burnett og Jimi Hendrix, auk minni spámanna á við Stevie Winwood og John May- all. Flutningur er allur með besta móti og sýnir hljóðfæraleikur og allar útsetningar að Centaurmenn gjörþekkja það sem þeir eru að spila. Það er enginn hægðarleikur að spila blús svo mark sé á takandi, þó um sé að ræða hvítan blús, en þeir Centaur félagar komast vel frá sínu. Ekki finnst mér þeir t.d. standa að baki Blues Band Paul Jones, svo dæmi sé tekið um hvítan blús. Hljóðblöndun er einn- ig góð, og ánægjulegt að heyra að til eru hljóðstjórar sem átta sig á að ekki er hægt að setja samasemmerki á milli blús og rokks. Það er erfitt að fara að tala um að eitthvað eitt lag sé betra en annað, en ekki veit ég hvort nokkum hafi grunað hversu góð útkoman yrði, þegar upp er staðið. Ekki er úr vegi að segja frá því að platan er tekin upp á tveim- ur dögum; 16 lög á fimmtán tímum. Centaur ætlar að halda blústón- leika á Borginni í kvöld og er ekki nema sjálfsagt að benda fólki á að fara og heyra góðan rokkað- an blús. Tónleikar á fímmtudegi Lifandi tónlist á höfnðborgar- svæðinu er með miklum blóma um þessar mundir og nú í kvöld verða þrennir tónleikar á þremur veitingahúsum. Tónleikamir em allir haldnir til þess meðal annars að kynna nýút- komnar plötur/kassettur. Á Borginni ætlar Centaur að kynna plötu sína Blús jamm með tónleikum þar sem eingöngu verður á boðstólum blús. í Duus húsi kveður við annan tón, en þar koma fram þijár hljóm- sveitir úr „neðanjarðargeiranum“, Muzzolini, Daisy Hill Puppy Farm og S/H draumur. Tónleikamir em haldnir til að kynna kassettuna Snarl sem út kom fyrir skömmu. í Evrópu em síðan Greifamir að kynna nýútkomna tóftommu sína, Sviðsmynd, og spila einnig eldra efni svo og nýrra. Blús djamm Skriðjöklar í kaupstaðarferð Akureyrska hljómsveitin Skriðjöklar brá sér í ferð í spill- inguna í siðustu viku til að vekja athygli á nýjustu plötu sinni, Er Indriði mikið erlendis. Skriðjöklamir héldu tónleika Hótel Borg til kynningar á plötunni og léku síðan í beinni útsendingu rásar 2 daginn eftir. Umsjónarmað- ur rokksíðunnar náði tali af jöklun- um eftir rásartónleikana og spurði þá um hljómsveitina. Hvað eru Skriðjöklar? Skemmtilegasta hljómsveit á ís- landi og þótt víðar væri leitað. Reyndar skemmtilegasta hljómsveit í Norðurálfu. Er þetta bara sprell hjá ykkur eða er einhver alvara á bak við allt saman? Þetta byijaði allt sem sprell en það er sjálfsagt einhver alvara kom- in í spilið. Sprellið er samt alltaf í fyrirrúmi, enda vömmerki okkar. Tónlistin er samt ekkert til að skammast sín fyrir, en flestir menn í hljómsveitinni em mikið gefnir fyrir að láta taka eftir sér. Eru Skriðjöklar bara sumar- hljómsveit? Aðal vertíðin er náttúmlega yfir sumarið, en við emm í raun í gangi allt árið og spilum oft á vetmna. Það er þá aðallega þegar við emm að verða vitlausir á símhringingum að við látum undan. í vetur höfum Morgunblaði/BS Söngvari Skriöjöklanna var lipur á sviði. Skriðjöklar á sviðinu í Hótel Borg. Morgunblaðið/BS Reykjavík og er um leið ódýrasta hljóðver á landinu. Þetta er því ekki bara gott fyrir hljómsveitir á Norðurlandi, heldur allstaðar af landinu. Má þá ekki fara að búast við meiri útgáfii af ykkar hálfii? Það kemur önnur plata frá okkur fyrir jólin, en ekki er enn vitað hversu stór sú plata verður. Síðan lofum við tveimur plötum á ári hér eftir. Einhver lokaorð? Við viljum beina þeim orðum til hljómsveita, sem nú em að stíga sín fystu skref á frægðarbrautinnim að ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið. Við þetta er svosem engu að bæta öðm en að greina eitthvað frá tonleikum Skriðjöklanna á Hótel Borg. Þar gekk mikið á á sviðinu í tónlist og látbragði, og áhorfend- ur, sem vom óvenju margir á fimmtudagskvöldi, kunnu vel að meta sprellið og tónlistina. Víst er að það þarf meira en lítið úthald og hugmyndaflug til að halda slíku sprelli samfleytt heilt kvöld og er varla nema furða þó þreklausir öf- undarmenn hafi tíðum haldið því fram að orkan væri fengin af flösk- um. við spilað meira en oft áður og þá iíka til að borga hljóðver sem við vomm að koma upp á Akureyri. Er það ekki eina hljóðverið á Norðurlandi? Að minnsta kosti eina hljóðver sem stendur jafhfætis hljóðvemm í Morgunblaði/BS Dansari hljómsveitarinnar setti sinn svip á það sem fram fór. AfPlötum íslensk plötuútgáfa lætur ekki deigan síga, og enn berast fregnir af nýjum plötum. Þegar hafa fleiri plötur komið út en enn hafa verið kynntar hér á rokksíðunni, en að því kemur. Á síðunni er sagt frá plötum Skriðjökla og Centaur, en í næstu viku kemur út Qögurra laga plata með Foringjunum. Á lokastigi er tveggja laga tólftomma með Bubba Morthens og einnig er stutt í plötu Guðjóns Guðmundssonar, sem kunnugir segja koma skemmtilega á óvart. Sykurmola- platan kemur sennilega út um miðjan næsta mánuð og það spurðist út að jafnvel mætti búast við plötu frá Sogblettum. í haust koma síðan plötur með Rauðum flötum og Grafík og er nær dreg- ur jólum má búast við plötum frá S/H draumi, Bubba Morthens, Skriðjöklum, Greifunum, og jafn- vel E-X. Morgunblaðið/Bjami Marga er farið að lengja eftir Sykurmolaplötunni, sem loks virðist vera væntanleg. Hér sést Einar Örn í Óperunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.