Morgunblaðið - 23.07.1987, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 23.07.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987 39 ValgerðurK. Eiríks dóttir - Minning Fædd 8. nóvember 1922 Dáin 16. júlí 1987 Við andlát frænku minnar reikar hugurinn til bemskuáranna á Suð- umesjum, er við frændur, Ámi Vilberg, bróðir hennar, og ég, könn- uðum rækilega nærliggjandi hraun, flæðarmál og enn síðar bryggjur og báta. En móðir þeirra systkina, Jódís Ámadóttir, var systir Ágústu móður minnar. Og heimkynni beggja jafnan nálæg og umhyggjan fyrir okkur leikbræðmm með þeim hætti, að tæpast varð aðgreint á stundum hvor væri móðir hvors. Svo verður það til tíðinda, að Ámi fer að aka lítilli systur í kerru — dóttur Jódísar og Eiríks Tómas- sonar á Jámgerðarstöðum í Grinda- vík. Og ég fæ líka að aka þessari frænku minni, sem kölluð var Sjana, en síðar á ævinni Vallý. Hvorki var þá malbiki né gangstétt fyrir að fara í Keflavík, svo að kerr- an með litlu stúlkuna komst ýmist í kynni við fjörukletta og klappir eða hafnaði niðri í uppskipunarbáti við bryggju — ef sá gállinn var á sjómannsefninu, frænda mínum, að leysa landfestar og ýta frá. Slíku uppátæki var að vonum fálega tekið af mæðrum vorum, en fyrirgefið eftir hæfílegan skammt af umvöndun og áminningu. Svo að Ámi gat ýtt frá bryggju á nýjan leik. Og litla stúlkan brosað við sólinni úr kerrunni um borð. Ellegar kinkað lokkaprúðum kolli af ánægju einsog blóm í vorgolunni. Árum síðar flyzt Jódís með böm sín, Áma og Vallý, til Reykjavíkur, í Þverholt 18. En þar annast hún einnig bróður sinn, Sigurð mál- lausa, og elur upp sonarson sinn, Jóhann Vilberg Ámason, til mann- dómsára. Hann lézt í bflslysi 1970, en móðir hans, Jóhanna Halldórs- dóttir, hafði látist af bamsförum 1942. Vallý elst upp í íjölskyldufaðmi móður sinnar, lýkur námi í Austur- bæjarskóla og æskuárin blasa við, björt og eftirvæntingarfull. En skyndilega dregur ský fyrir sólu. Og við tekur langvarandi dvöl á Vífilsstöðum og enn síðar á Reykjalundi. Telst svo til, að síðari helmingur æviára hennar hafí verið bundinn nefndum stöðum — þó að hlé yrðu á, er heilsan leyfði henni að búa um skeið með móður sinni, síðast í Austurbrún 6 hér í borg. En eftir að Jódís varð að fara á elliheimili og andaðist þar í hárri elli 1976 — átti Vallý ávallt athvarf á Rauðalæk 32, hjá Áma og Jónínu Magnúsdóttur, síðari konu hans. Bám þau góðu hjón og böm þeirra, Svandís og Gylfí, mikla umhyggju fyrir Vallý. Og voru henni í hvívetna sannir og traustir vinir til æviloka. Allt hefur haft sinn tíma, frá því að við leikbræður könnuðum veröld- ina umhverfis ásamt lítilli stúlku í kerru. Og Ámi átt ófáa ævidaga, sem „geisluðu döpmm stöfum", en jafn- an tekið þeim með karlmannlegri hógværð. Og lítilli stúlku, er brosti sem blóm á vori, var hvergi hlíft við þjáningu og þraut á dimmum dægr- um. Álengdar hef ég því — oftar en ekki — undrast þann sálarstyrk og þá lífsgleði, sem henni var gefín. Hinztu bón minnar elskulegu frænku, að ég skrifaði eitthvað fal- legt — varð ekki neitað, þótt ljóst sé af framansögðu, hve dapurlega hefur til tekizt. En að leiðarlokum og þrátt fyrir allt og ofar öllu, þá vaka minningar í þakklátum huga um glaðar og hjartahlýjar samvemstundir frjöl- skyldna okkar. Og lifa áfram með okkur frænd- um, sem eigum ennþá ókannaðan himinblámann. Kristinn Reyr í dag fer fram frá Laugames- kirkju útför mágkonu minnar, Valgerðar Kristjönu Eiríksdóttur, Reylqalundi. Það var um bjarta júlínótt, sem hún fór sína hinstu för, þá ferð, sem enginn getur vikist undan að fara, sem fæðist í þennan heim. Nú er hún vonandi fleyg sem fuglinn og getur ferðast vítt um geim. Laus við allar þjáningar þessa jarðneska lífs, sem hún fékk svo sannarlega að reyna í ríkum mæli. En alltaf em nú skin og skúrir í lífí hvers manns. Vallý, eins og hún var ætíð köll- uð, var ákaflega félagslynd og átti gott með að umgangast fólk. Enda átti hún marga góða vini, sem hún eignaðist á lífsleiðinni, bæði á yífilsstöðum, Reykjalundi og víðar. Eg dáðist oft að því hvað hún gat miðlað öðmm sem vom einmana í sínum veikindum. Hún settist hjá þeim og spjallaði og reyndi að slá á létta strengi og hlæja. Ég kynntist Vallý fýrir 40 ámm er ég giftist bróður hennar, Ama Vilberg. Síðan höfum við verið góð- ar vinkonur og hefur aldrei fallið skuggi þar á. Hún var alltaf aufúsu- gestur á okkar heimili, svo góð við bömin okkar og bamaböm. Þessar fátæklegu línur eiga að vera til að koma á framfæri síðustu bóninni sem hún bað mig um í þessu lífi. Hún var sú að færa læknum og hjúkmnarfólki á Reylq'alundi og Vífílstöðum innilegar kveðjur og þakklæti. Einnig alveg sérstakar kveðjur til allra þeirra sem unnu með henni á símanum. Það var henni viss lífsfylling þegar hún fann að hún gat unnið á skiptiborðinu og stundimar í litla símaklefanum vom henni óborganlegar. Þá vom innilegar þakkir til allra vinanna í Hamrahlíð 17 — Blindraheimilinu. Þar átti hún oft glaða stund. Einn- ig kveðja til systranna í Espigerði 14, og vonaðist hún til þess að verða þess megnug í næsta lífí að launa það sem þær gerðu fyrir hana í þessu lífí. Veri Vallý að lokum kært kvödd af mér og minni fjölskyldu. Guð blessi hana. Nína mágkona Þormóður Guðmunds son — Minningarorð Fæddur 23. febrúar 1925 Dáinn 17. júlí 1987 Þormóður Guðmundsson fæddur 23. febrúar 1925, lést þann 17. júlí sl. 62 ára að aldri. Þormóður var fæddur á Patreksfirði og vom foreldrar hans Anna Helgadóttir og Guðmundur Þórðarson. Þormóður bjó mestan hluta ævi sinnar á Pat- reksfirði og starfaði þá helst við sjómennsku, flytur síðan til Reykjavíkur. Þann 22. nóvember 1952 gengur hann að eiga Valgerði Jónsdóttur sem reyndist honum góður fömnautur til hinsta dags. Þau eignuðust þijú böm, Bergþór, Hrönn og Frey. Fljótlega eftir að hann kemur til Reykjavíkur ásamt fyölskyldu, ræðst hann í vinnu hjá Stillingu hf., þá nýlega stofnað. Fyrstu árin var hann ekki fastráðinn vegna þess að sjórinn freistaði hans. Árið 1940 um haustið fer ég sem lærlingur til Ó. Jóhannesson & Co. á Patreksfírði í vélsmiðju þá 16 ára gamall. Mér er komið fyrir hjá Guðmundi, föður Þormóðs og fjöl- skyldu. Þau tóku mér með svo miklum innileik og hlýju að ég hef búið að því síðan. Anna, móðir Þor- móðs, var þá dáin og hélt Guðmund- ur heimili fyrir bömin, sem vom mörg, þau elstu þó uppkomin, og bætti mér við hópinn. Guðmundur átti þijár dætur og aðstoðuðu þær vel. Þegar ég kom vestur sá yngsta dóttirin, Freyja, um heimilishaldið, þá ung stúlka. Þar og þá kynntist ég Þormóði, sem var 15 ára. Það sem réði þama var að Anna, móðir Þormóðs, og móðir mín vom systur og ættarböndin sterk. Við Þormóð- ur höfum starfað saman um árabil og það er á engan hallað þegar ég segi að ég hefi ekki starfað með betri manni. Þar vantaði ekki neitt. Hann var trúr og samviskusamur og með afbrigðum geðprúður mað- ur, þó vissi ég að undir niðri leyndist skap. En hann kunni að stjórna því. Það er gott að eiga samleið með góðum sjómanni. Hann kann að beita seglum. Hann er glöggur á boða og sker og þekkir miðin. Ég þakka Þormóði fyrir sigling- una. Þar var hvorki siglt á boða né steitt á skeri. Guð blessi hann og hans fólk Bjarni Júlíusson Það er þungbær reynsla að sjá á eftir slíkum félaga sem Þormóður Guðmundsson var. Hannn var að lundarfari ekki aðsópsmikill maður; kvaddi sér ekki hljóðs með upphróp- unum eða gífuryrðum, en hafði sínar skoðanir og setti þær fram yfirvegað og af festu. Hann gekk til verks að morgni án alls atgangs en vann af dugnaði og hyggindum. Verklagið og samviskusemin voru honum í blóð borin. Það var því góður skóli fyrir unga menn að njóta leiðsagnar Þormóðs. Geðprýði hans og þolinmæði sáu til þess að ungar hendur lærðu vel til verka. Eiga nokkrir okkar er kynntumst Þormóði börn að aldri ljúfar æsku- minningar frá skiptum þeim og honum ævarandi skuld að gjalda fyrir föðurlega umhyggju hans og hlýju. Það var sárt að fylgjast með við- ureign Þormóðs við sjúkdóm þann er að lokum lagði hann að velli. Hann stóð meðan stætt var og bet- ur en það gerir enginn. Við þökkum Þormóði Guðmunds- syni samveruna og sendum fjöl- skyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Starfsmenn Stillingar hf. Lokað Stilling hf. verður lokuð í dag, 23. júlí 1987, til kl. 14.30 vegna jarðarfarar ÞORMÓÐS GUÐMUNDSSONAR. Stilling hf., __________ Skeifunni 11. t Elskuleg dóttir okkar og systir, SVAVA KRISTJANA RAGNARSDÓTTIR, andaðist í Landspítalanum 21. júlí 1987. Kristin Hauksdóttir, Ragnar Lövdal, Gunnar Björgvin Ragnarsson. Móðir mín, BERGÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR, frá Seyðisfirði, andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þann 21. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Nfna Jónsdóttir. Hjartkær faðir minn og afi, ÞORKELL L. INGVARSSON fyrrverandi stórkaupmaður, Daibraut 27, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 24. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Landssamtök hjartasjúklinga. Árni Þorkeisson, Svava Árnadóttir, Hjálmur Nordal. Elskuleg systir mín, "t" LAUFEY ÁRÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 12. þessa mánaðar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegt þakklæti til Grundar, lækna og alls starfsfólks, guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Guðmundsdóttir. Útför GUÐBJÖRNS GUÐBJÖRNSSONAR, sem andaðist á Vistheimilinu Viðinesi laugardaginn 18. júli, verð- ur gerð frá Fossvogskapellu mánudaginn 27. júlí kl. 10.30. Jón Vigfússon. t Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, GUÐMUNDUR ÓLI ÓLASON prentari, Hraunbæ 112, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn 24. júlí kl. 13.30. Sigrföur Snorradóttir, Brynja Guðmundsdóttir, Dröfn Guðmundsdóttir, Málfrfður Guðmundsdóttir og systkini. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir og afi, PÉTUR PÉTURSSON, Engjavegi 49, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju föstudaginn 24. júlí kl. 13.00. Þeir sem vilja minnast hans eru vinsamlegast beðnir að láta Krabbameinsfélag íslands njóta þess. Ingibjörg Kjartansdóttir, Guðbjörg Pétursdóttir, Bæring Ólafsson, Sævar Pétursson, Þóra Björg Þórhallsdóttir,. Árni Pétursson, Ellen Fargas og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför fósturbróöur og bróður okkar, SVEINBJÖRNS MAGNÚSSONAR frá Skuld. Megi guð og gæfan fylgja ykkur. Stefanía Elfsdóttir, Sigrfður Ketilsdóttir, Jón Magnússon. t Hugheilar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÞORSTEINS FRIÐÞJÓFSSONAR, Bölum 4, Patreksfirði. Kristfn F. Jónsdóttir, Ásdís Þorsteinsdóttir, Guðjón Jónsson, Friðþjófur Þorsteinsson, Halla Hafliðadóttir, Reynir Þorsteinsson, Þorsteinn R. Óiafsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.