Morgunblaðið - 23.07.1987, Blaðsíða 4
4________________________
Jón Baldvin Hannibalsson:
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987
Ekki þörf á leið-
réttíngu misvægis
JÓN BALDVIN Hannibalsson
Qármálaráðherra segir að full-
yrðingar talsmanna atvinnurek-
Skrúðgarðurinn í
Laugardal:
Bætt aðstaða
fyrir fatlaða
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að bæta úr aðstöðu fyrir fatlaða
í skrúðgarðinum í Laugardal.
Samþykkt var að koma upp sal-
emisaðstöðu fyrir fatlaða og að
bæta aðkomu að garðinum þannig
að fólk í hjólastól komist leiðar
sinnar.
enda og launþega þess efiiis, að
um verulegt misvægi sé að ræða
milli kauphækkana sem orðið
hafi á fyrri hluta árs hjá opin-
berum starfsmönnum og á
almenna markaðinum fái tæpast
staðist. „Það er ástæða til þess
að ætla að þessi uppstilling á
málum sé í höfuðatriðum röng,“
sagði Qármálaráðherra i samtali
við Morgunblaðið.
Jón Baldvin sagði: „Allt bendir
til, að það sem gerst hafi í kjölfar
desembersamninganna hafí gengið
í þveröfuga átt við markmið þeirra
samninga, bæði á almenna vinnu-
markaðnum og hjá opinberum
starfsmönnum. Desembersamning-
amir áttu að lyfta lægstu laununum
og draga úr því að hækkanimar
færðust upp allan launastigann, en
fyrstu sex mánuði þessa árs hækk-
uðu laun opinberra starfsmanna að
meðaltali um 18,69%, en á almenna
launamarkaðinum á sama tíma á
bilinu 13 til 17%.“
Jón Baldvin sagði að þessar tölur
sýndu að launasprenging hefði átt
sér stað bæði á almenna markaðin-
um og í opinbera geiranum samtím-
is. „Spumingin er hins vegar sú
hvort það er einhver sérstakur hóp-
ur, sem hefur setið eftir, og þar á
ég fyrst og fremst við fískvinnslu-
fólkið," sagði ^ármálaráðherra.
Fjármálaráðherra kvaðst því
telja, að tölur um einhverra tuga
prósenta leiðréttingarþörf á milli
opinbera geirans og almenna mark-
aðarins væru úr lausu lofti gripnar
og hann hefði engar staðreyndir
séð, sem styddu slíkar fullyrðingar.
VEÐUR
l DAG k/. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
I/EÐURHORFUR I DAG, 23.07.87
YFIRLIT á hádegi í gær: Um 400 km vestur af Reykjanesi er 1008
millibara djúp lægð sem þokast aust-noröaustur. Vest-suðvestur
af Irlandi er víðáttumikil 1030 millibara hæð.
SPÁ: Vestan og norðvestan gola um mest allt land. Smáskúrir á
annesjum norðan- og vestanlands, annars þurrt og bjart veður.
Hiti á bilinu 10 til 18 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Fremur hæg breytileg átt.
Lítilsháttar súld á annesjum vestanlands en víðast þurrt og bjart
veöur annars staðar. Hiti á bilinu 10 til 18 stig.
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j o Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[~T Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UMHEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyrl Reykjavík hiti 17 13 veAur skýjað rigning
Bergen 18 léttskýjað
Helsinkl 27 léttskýjað
Jan Mayen 5 alskýjað
Kaupmannah. 17 skúr
Narssarssuaq 9 skýjað
Nuuk 4 alskýjað
Osló 27 léttslcýjað
Stokkhólmur 25 léttskýjað
Pórshöfn 13 súld
Algarve 21 þokumóða
Amsterdam 20 mistur
Aþena 35 heiðskfrt
Barcelona 22 lágþokublettir
Berlín 24 hélfskýjað
Chicago 23 mistur
Feneyjar vantar
Frankfurt 22 skýjað
Glaskow 20 mistur
Hamborg 22 skýjað
Las Palmas vantar
London 18 alskýjað
Los Angeles 16 léttskýjað
Lúxemborg 16 skýjað
Madríd 20 léttskýjað
Malaga 28 hálfskýjað
Mallorca 29 skýjað
Miami vantar
Montreal 21 léttskýjað
NewYork 23 léttskýjað
París 17 skýjað
Róm vantar
Vín 25 léttskýjað
Washington 29 léttskýjað
Winnlpeg 15 þrumuveður
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Hafbeitarlax háfaður upp úr lóninu hjá Vogalaxi hf.
írjLj. ~ssr^. uír
§§pl;;
2800 laxar komnir
á land hjá Vogalaxi
Grindavik.
Nú er mesti annatími laxeldis-
stöðvanna sem stunda hafbeit en
heimtur eru misjafnar eins og geng-
ur. Hjá Vogalax hf. á Vatnsleysu-
strönd stefnir í metsumar að sögn
Sveinbjöms Oddssonar stöðvar-
stjóra.
„Við höfum fengið 2800 laxa það
sem af er sumri sem er um 8%
heimtur, en við slepptum í fyrra
36 þúsund seiðum. Besta sumarið
hingað til var 12,4% svo ég er mjög
bjartsýnn á að nú verði metsumar
því laxinn er að ganga inn í stöðina
út ágúst,“ sagði Sveinbjöm.
Sveinbjöm var spurður hvort lax-
inn gengi á milli þeirra og Pólarlax
og kvað hann svo vera, en í óvem-
legum mæli, svo slíkt skipti ekki
sköpum fyrir stöðvarnar.
„Eg hef hins vegar áhyggjur af
því þegar stöðvamar Lindarlax og
Silfurlax, sem eiga land á milli okk-
ar, verða komnar í gang. Vatns-
rennslið undan hrauninu er svo
keimlíkt á öllu svæðinu að það á
eftir að rugla laxinn þannig að erf-
iðleikar eiga eftir að skapast milli
stöðvanna. Það vantar í löggjöfina
að kveðið sé á um hámarksfjarlægð
á milli stöðva," sagði Sveinbjöm
að lokum.
— Kr.Ben.
Leystur úr haldi
MAÐURINN, sem settur var í
gæsluvarðhald í byrjun mánaðar-
ins vegna gruns um kynferðis-
lega misnotkun á börnum, var
leystur úr gæsluvarðhaldi í gær.
Að sögn talsmanns rannsóknar-
lögreglunnar var ekki talin ástæða
til þess að hafa hinn grunaða leng-
ur í haldi vegna rannsóknarinnar.
Rannsókn málsins er á lokastigi.
Sveinn HelgiÞórðar-
son skattstjóri látinn
SVEINN Helgi Þórðarson fyrr-
um skattstjóri Reykjanesum-
dæmis lést að Landakotsspítala
í gærmorgun.
Sveinn var fæddur 21. febrúar
1916 á Hvammstanga í Vestur-
Húnavatnssýslu. Foreldrar hans
voru Þórður Sæmundsson símstöðv-
arstjóri á Hvammstanga og kona
hans Guðrún Karólfna Sveinsdóttir.
Sveinn varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1939 og
útskrifaðist sem viðskiptafræðingur
frá Háskóla íslands 1943.
Sveinn var verðlagsstjóri á Vest-
fjörðum frá mars 1943 til 1. apríl
1944. Frá 1. apríl 1944 til 1. jan-
úar 1966 starfaði hann sem fulltrúi
tollstjórans í Reykjavík. Hann var
aðalendurskoðandi Pósts og síma
frá 1961 til 1. júlí 1967, er hann
var skipaður skattstjóri Reykjanes-
umdæmis. Því embætti gegndi hann
til 1. júlí 1986, er hann lét af störf-
um fyrir aldurs sakir.
Sveinn Helgi Þórðarson
Eftirlifandi eiginkona Sveins er
Þórunn Kristfn Helgadóttir deildar-
stjóri.