Morgunblaðið - 23.07.1987, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987
5
Norðurendi tjaniarinnai'
tekur stakkaskiptum
Eins og sjá má breytir norðurendi tjarnar-
innar um svip með tilkomu nýja ráðhússins,
sem fyrirhugað er að rísi í og við tjörnina.
í byggingunni næst Vonarstræti verður
aðsetur borgarstjórnar en á jarðhæð húss-
ins við Ijarnargötu verður opið torg með
sýningaraðstöðu og gönguleið á brú yfir
tjörnina í átt að Iðnó.
Kringlan:
Rúm milljón á mánuði
í öryggisgæslu og þrif
SAMIÐ hefur verið við Ólsal hf. þúsund fermetrum að meðtöldum
og Næturþjónustuna um þrif og hliðargöngum, glerhurðum, hand-
öryggisgaeslu í Kringlunni. Ólsal riðum auk rúllustiga. Ellefu tilboð
hf. fékk ræstinguna fyrir bárust í verkið.
492.142 krónur á mánuði og í tilboði Næturþjónustunnar er
Næturþjónustan öryggisgæsluna gert ráð fyrir að tveir öryggisverðir
fyrir 625.625 krónur á mánuði. sjái um gæslu allan sólarhringinn
Að sögn Magnúsar Pálssonar og þrír frá fimmtudegi til laugar-
öryggisgæslustjóra, felur tilboð Ól- dags. Ellefu aðilar gerðu tilboð í
sals hf. í sér ræstingu á um 5 öryggisgæsluna.
Blönduvirkjun:
Samningar tókust
SAMKOMULAG tókst um nýjan
kjarasamning starfsfólks við
Blönduvirkjun á niunda tímanum
í gærmorgun eftir næturlangan
fund og var verkfalli, sem hófst
á miðnætti, frestað til klukkan
sjö á laugardagsmorgunn.
Samningamir verða kynntir
starfsfólkinu í dag og á morgun og
verða ekki gefnar upplýsingar um
innihald þeirra fyrr en að því loknu.
Moutarde
Maille Dijon sinnepið er
franskt gæðasinnep sem alltaf
er gott að hafa við hendina
þegar búa á til góðan mat. Auk
þess að vera gott í alla kjöt-
og fiskrétti er það nauðsynlegt
í hvers kyns marineringu og
alveg ómissandi í sósur. Hér
f
látum við fylgja einfalda
uppskrift að ljúffengri Dijon
sinnepssósu sem gott er að
*I lauslegri
þýðingu:
Sinnep í
sérflokki.
Ljúffeng rjómasinnepssósa:
Byrjið á að steikja smátt saxaðan
lauk á pönnu í ólífuolíu. Bakið
svo sósuna upp með soðinu af
kjötinu og setjið 112 dl afrjóma og
1 msk. af mildu Maille Dijon
sinnepi saman við. Haldið sósunni
heitri.
Maille Dijon sinnepið fœst
milt, sterkt, sœtt
og bragðbætt
með hvítvíni.
VORUMIÐSnÍf)
1
Innflutningur og dreifing ó góðum matvörum