Morgunblaðið - 23.07.1987, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987
7
(Ladyhawke). Á daginn varhún
ránfugl, á nóttunni varhann
úlfur. Aðeins meðan birti af
degi og eldaði að kvöidi, gátu
þau hist. Sígilda sagan um
ástvini, sem hljóta þau örlög
að vera alltaf saman en eilif-
lega aðskilin, erhéri nýjum
búningi.
I Föstudagur
120:501 HASARLEIKUR
(Moonlighting). Bandariskur
framhaldsþáttur með Cybill
Shepherd og Bruce Willis. Ung
stúlka reynirað sannfæra David
um að hún sé álfur og biður
hann um aðstoð við að finna fjár-
sjóð sinn.
■ ■■■■■■■ 11*11 ■ '1
Laugardagur
CHURCHILL
(The Wilderness Years). Nýr
breskur framhaldsþáttur um líf
og störfSir Winston Churchills.
I fyrsta þætti eru sérstaklega
tekin fyrirárin 1929-39, sem
voru erfið i Hfi Churchills.
Auglýsingasími
Stöðvar 2 er 67 30 30
Lyklllnn færð
þúhjá
Heimllistsakjum
<8>
Heimilistæki hf
S:62 12 15
Landhelgisgæslan:
Útköll TF-Sifþeg-
ar fleiri en í fyrra
ÁHÖFN þyrlu Landhelgisgœsl-
unnar TF-SIF hefur þegar sinnt
fleiri útköllum á þessu ári en
allt árið í fyrra. Þá urðu neyðar-
flug aUs 50, en eru orðin 60 á
þessu ári að sögn Páls HaUdórs-
sonar flugstjóra. „Við erum
nokkuð sammála um að notkun
þyrlunnar hefur engan vegin
náð hámarki þannig að það má
búast við ennþá meiri aukningu
á næstu árum,“ sagði hann.
Sérþjálfaðir læknar hafa nú
staðið vaktina með þyrluáhöfninni
í eitt og hálft ár. Páll sagði að
gjörbreyting hefði orðið á hlutverki
þyrlunnar með tilkomu læknavakt-
arinnar og hefði hún þegar á fyrstu
mánuðunum sannað gildi sitt.
Sem ástæður aukningarinnar
nefndi Páll að þyrlan væri vel
kynnt meðai þjóðarinnar. Þeim
sem önnuðust bráðaþjónustu og
björgunarstörf kæmi þyrlan fyrst
í hug þegar þörf væri á skjótum
flutningi slasaðra við erfiðar að-
stæður.
„Við höfum orðið þess varir að
fleiri og fleiri þeirra sem leita að-
stoðar Landhelgisgæslunar biðja
sérstaklega um aðstoð þyrlunnar.
Að sjálfsögðu er hver beiðni skoðuð
gaumgæfilega og þyrlan ekki köll-
uð út sé annar jafn góður kostur
fyrir hendi. En þegar þyrlunnar
er augsýnilega þörf er hún að sjálf-
sögðu send af stað. Áhöfnin hefur
orðið við hverju einasta útkalli."
Páll benti einnig á að aukin út-
gerð smábáta hefði valdið önnum
hjá þyrluáhöfninni, svo og tíðari
ferðir lítilla flugvéla yfir Norður-
Atlantshafið og ferðalög íslend-
inga og útlendinga um óbyggðir.
„Við gerum í raun þegar meira
en við getum. Það er varla hægt
að bæta verkefnum á þyrluáhöfn-
ina. Nú er einn maður í þjálfun
og vonandi getum við í framtíðinni
átt á fleiri mönnum að skipa,"
sagði Páll.