Morgunblaðið - 23.07.1987, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987
Besta sýningaraðstaðan
í bænum í Glerárkirkju“
Þrír norðlenskir myndlistarmenn með sýningn þar í fjóra daga
GLERÁRKIRKJA verður vett-
vangur myndlistarsýningar i
næstu Qóra daga því í kvöld
opna þrir ungir, norðlenskir
myndlistarmenn sýningu á 36
verkum sem þeir hafa unnið
að á þessu ári.
Myndlistarmennimir eru Guð-
mundur Oddur Magnússon, sem
lauk námi frá Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands árið 1980 og hef-
ur stundað nám í Kanada, Kristín
Guðrún Gunnlaugsdóttir og Sig-
urður Ámi Sigurðsson, sem bæði
lögðu stund á myndlistamám hér
á Akureyri en fóru svo til
Reykjavíkur í MHÍ og luku prófi
frá málaradeild í vor. Sýningin
er sú fyrsta sem þau þijú taka
þátt í síðan 22 listamenn sýndu
hér í Skemmunni árið 1985.
„Kirkjuskipið er alveg frábær
staður fyrir myndlistarsýningar.
Við vorum búin að fara um allan
bæ til að leita að hentugu hús-
næði og sáum strax að kirkjuskip-
ið hér í Glerárkirkju var staðurinn
sem við vomm að leita að,“ sögðu
þau Kristín og Sigurður þegar
blaðamaður hitti þau að máli gær
þar sem þau vom í óðaönn að
koma málverkunum fyrir. „Við
féllum alveg sérstaklega fyrir
þessum hráa sal með allt þetta
rými, stómm veggflötum og bir-
tunni sem skapar ákveðið and-
rúmsloft," sagði Sigurður og
Kristín bætti við að henni þætti
kirkja hentugur rammi utan um
sín verk.
„Það er gaman að vinna innan
um þennan arkitektúr sem hér er.
Þetta er besti sýningarsalur bæj-
arins eins og stendur og þegar
við fómm fram á að fá kirkjuskip-
ið undir sýninguna var okkur tekið
alveg sérstaklega vel af kirkjunn-
ar mönnum," sagði Kristín.
„Það má nær einu gilda hvort
sýning er haldin í fjóra daga eða
fjórar vikur, því þeir sem á annað
borð hafa áhuga á myndlist og
ætla sér að fara á einhveija sýn-
ingu, þeir skila sér alveg jafnvel,"
sögðu þau Kristín og Sigurður
þegar þau vom spurð hvort fjög-
urra daga sýning væri ekki frekar
stuttur tími. „Við vonumst til þess
að það verði fleiri hér í salnum á
hveijum tíma af því að sýningin
stendur stutt og það gæti kannski
skapað skemmtilegri stemmn-
ingu; hér verður hægt að rabba
við okkur og aðra yfír kaffíbolla
og við vonumst til að gestir láti
álit sitt óspart í ljós. Það þarf
enginn að vera feiminn þó hann
telji sig ekki hafa mikið vit á
Morgunblaðið/Kristinn Jens Sigurþórsson
Kristín og Sigurður við verk á sýningunni, verður opnað í
kvöld og stendur aðeins fram á sunnudagskvöld.
myndlist, það er alltaf gaman að
heyra ólíkar skoðanir," sögðu þau.
Allar myndimar á sýningunni
em unnar á þessu ári, en þau
Sigurður og Kristín hafa verið hér
á Ákureyri í sumar og einbeitt sér
að myndlistinni.
„Það er alveg dásamlegt að
koma hingað til þess að mála.
Fjöllin héma, sjórinn og birtan,
allt hefur þetta gripið mig heljar-
tökum og veitt mér innblástur,"
sagði Sigurður. „Ég held ég geti
sagt það sama," sagði Kristín,
„náttúran og birtan hér hefur
breytt mér og mér fínnst eins og
eitthvað vanti ef ég ekki mála á
hveijum degi.“
Sýningin í Glerárkirkju verður
opnuð í kvöld klukkan 20.00 og
verður síðan opin föstudag, laug-
ardag og sunnudag frá klukkan
16.00 til 22.00 og em allar mynd-
imar á sýningunni til sölu.
Dalvík:
Ný sólbaðsstofa
Morgunblaðið/Trausti
Tveir ungir Dalvikingar slaka á
í gufubaði hjá Víkursól eftir eril
dagsins.
Dalvík.
VÍKURSÓL, ný sól- og gufubað-
stofa, hefur verið opnuð á
Mímisvegi 16 á Dalvík.
í Víkursól er rúmgóð aðstaða
með 3 sólbekkjum ásamt sturtuböð-
um, gufubaðstofu og góðri snyrtiað-
stöðu. Gert er ráð fyrir uppsetningu
þrekþjálfunarmiðstöðvar svo að-
staða öll til líkamsræktar verður
hin ákjósanlegasta. Auk þessa hef-
ur fyrirtækið á boðstólum úrval af
hvers konar snyrtivömm fyrir kon-
ur og karla.
Þrátt fyrir gott tíðarfar á Dalvík
að undanfömu hefur aðsóknin að
hinni nýju sólstofu verið góð og
má væhta að hún aukist enn er
vetur konungur tekur við völdum
og slær kuldaklónum um Dalvík-
inga og nærsveitamenn.
Eigandi Víkursólar er Pálmi
Bragason.
Fréttaritari.
Lítil von um hrefiiuveiðar í ár:
Sjómenn haía sjaldan orðið varir
við jafii mikið af hrefiiu og nú
— segir Gunnlaugur Konráðsson á Litla-Árskógssandi
„ÉG HEF ákaflega veika von um
að leyfí til hrefiiuveiða verði
gefíð út í sumar, en það var á
áætlun hjá Hafrannsóknastofn-
uninni á sínum tíma að Iáta veiða
80 dýr á ári í vísindaskyni, en
ekkert hefur bólað á leyfi til
þeirra veiða,“ sagði Gunnlaugur
Konráðsson á Litla-Árskógssandi
í samtali við Morgunblaðið, en
hann hefúr haft með hrefiiuveið-
ina þar að gera.
Gunnlaugur sagði hins vegar að
honum fyndist að leyfa ætti þessar
veiðar; nóg væri af hrefnu í sjónum
og hefðu sjómenn þar um slóðir
sjaldan orðið varir við jafn mikið
af henni. Þá benti hann á að Norð-
menn veiddu hrefnuna ennþá
ótrauðir, enda hefðu þeir mótmælt
hvalveiðibanninu á sínum tíma.
„Við höfum góð vísindaleg gögn
um að næg hrefna sé til. í fyrra
var talið úr flugvél og í sumar hef-
ur bæði verið talið úr skipum og
flugvélum og það hefur komið í Ijós
að nóg virðist vera af hrefnu," sagði
Gunnlaugur. Ég hef heyrt töluna
15.000 nefnda um fjölda dýra.
Hrefnan er hreinlega um allan sjó,
bæði djúpt og grunnt, í kringum
allt landið, og það að veiða innan
við 100 dýr ætti ekki að koma við
stofninn. Áður fyrr veiddum við um
200 dýr á ári, en eftir 1976 fórum
við að veiða samkvæmt kvóta og
síðasta árið heimilaði hann veiðar
á 150 dýrum. Það var síðan mein-
ingin að veiða 80 dýr í vísindaskyni
GAMLI bærinn í Laufási hefur
löngum haft aðdráttarafl fyrir
ferðamenn og þeir hafa í aukn-
um mæli lagt leið sína til að skoða
bæinn í sumar.
Sr. Bolli Gústavsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að aðsókn í
sumar hefði verið mjög jöfn allan
tímann, en meiri en nokkru sinni
fyrr.
„Útlendingamir koma hingað í
stórum hópum á virkum dögum, en
bærinn er einn viðkomustaður
þeirra í skoðunarferð um Eyjafjörð-
inn. Um helgar leggur landinn hins
vegar talsvert leið sína hingað og
ég hef orðið var við að margir koma
á ári, en eins og sakir standa get
ég ekki séð að nein hrefna verði
veidd fyrr en eftir þijú ár í fyrsta
lagi,“ sagði Gunnlaugur að lokum.
hingað ár eftir ár, og vinsælt er
að taka með sér gesti,“ sagði sr.
Bolli.
Sonur hans, Bolli Pétur, hefur í
sumar verið leiðsögumaður um
bæjinn og séð um að taka á móti
ferðamönnum. eins oer undanfarin
sumur. Sagði hann að áberandi
væri hversu margir Þjóðveijar og
Englendingar kæmu, þeir væru
talsvert meira áberandi en til dæm-
is Norðurlandabúar. Sagði hann að
þeir sem kæmu til að skoða bæinn
væru mjög áhugasamir um margt
af því sem þar væri að sjá og hefðu
oft mikinn áhuga fyrir þeim tækjum
og tólum sem brúkuð hefðu verið
meðan búið var í bænum.
Gamli bærinn í Laufási:
Aðsókn meiri og
jaftiari en áður
Morgunblaðið/Trausti
Jón Halldórsson, eigandi Sportvíkur, afgreiðir viðskiptavini.
Dalvík:
Sportvík opnar
Dalvík.
MIKILL Qörkippur hefúr hlaup-
ið í atvinnulifíð á Dalvík nú
síðustu mánuði og stofiiað hvert
fyrirtækið af öðru. Ný verslun,
Sportvík, er eitt þessara fyrir-
tækja og var opnað 10. júlí sl.
Sportvík sérhæfir sig í íþrótta-
vörum, einkum hvers konar út-
búnaði til útivistar sumar og vetur.
Á sumrin hefur verslunin á boðstól-
um fjölbreytt úrval reiðhjóla og
útbúnað til gönguferða en á vetuma
sérhæfír hún sig í skíðavörum. Þá
mun verslunin einnig bjóða uppá
sundfatnað, íþróttaskó og fleiri vin-
sælar íþróttavörur. Auk þessa
býður Sportvík upp á þjónustu
þessu tengda, svo sem viðgerð reið-
hjóla og umhirðu og frágang
skíðabúnaðar.
Sportvík er í nýju húsnæði Víkur-
bakarís við Hafnarbraut. Eigandi
verslunarinnar er Jón Halldórsson
íþróttakennari.
Á síðasta hálfa ári hafa sjö ný
fyrirtæki verið stofnuð á Dalvík,
flest á sviði verslunar og þjónustu
auk þess sem eldri fyrirtæki hafa
aukið við og bætt aðstöðu sína.
Mikil atvinna er á staðnum og vant-
ar fólk til Starfa. Fréttarítari
Morgunblaðið/Kristinn Jens Sigurþórsson
Sr. Bolli Gústavsson ásamt syni sínum og leiðsögumanninum, Bolla
Pétri, og vini hans, Sveini Tómassyni, fyrir framan gamla bæinn í
Laufási.
Bygging bæjarins hófst rétt eftir
miðja síðustu öld, en hann var
byggður í áföngum í tíð séra Bjöms
Halldórssonar, sem einnig beitti sér
fyrir byggingu kirkjunnar. Sr. Bolli
sagði að bærinn hefði alltaf þótt
mjög formfagur og hefði allt annað
útlit, en sá bær sem þar hefði stað-
ið á undan, og þætti fyrir margra
hluta sakir mjög fróðlegur heim að
sækja.