Morgunblaðið - 23.07.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987
51
m Símamynd/Sverrir Vilhelmsson
Atjánda vítaspyrnan mistókst!
Jónas Róbertsson, sem skorað hafði úr 17 vítaspymum í röð fyrir Þór síðan 1984, nýtti ekki þessa spymu, er staðan var
2:1 fyrir Þór í gærkvöldi. Þorsteinn plantaði sér í rangt hom, en varði með fætinum.
MJOLKURBIKARKEPPNI KSI / ATTA LIÐA URSLIT
Þóráfram eftirvítaspyrnukeppni aðra umferðina í röð!:
ff
Mér líður
stórkostlega
-sagði Baldvin Guðmundsson, markvörður, hetja Þórsara
u
„MÉR líður stórkostlega. Ég
giskaði á horn í bœði skiptin,
það þýðir ekkert annað,“ sagði
Baldvin Guðmundsson, hetja
Þórsara í gærkvöldi er liðið
tryggði sér þátttökurétt í und-
anúrslitum bikarsins. Það
sigraði Keflvíkinga eftir víta-
spyrnukeppni — staðan 2:2
eftir venjulegan leiktíma, en
sfðan var aðeins skorað úr
þremur vítaspyrnum af tíul! Þór
úrtveimur og Keflavík úr einni.
Taugaspennan var í algleym-
ingi í lokin en Þórsarar eru
komnir í undanúrslit í annað
sinn í sögu félagsins — fyrst
1985, þá einnig undir stjórn
Jóhannesar Atlasonar.
Keflvíkingar voru mun ákveðn-
ari í fyrri hálfleiknum og fengu
einu færin. Gunnar Oddsson ógnaði
tvívegis verulega; fyrst varði Bald-
vin mjög vel frá
honum úr dauðafæri
með úthlaupi og
síðan skaut hann
hárfínt framhjá ut-
an úr teig. Baldvin varði síðan aftur
mjög vel er Ingvar komst í dauða-
færi.
Það lifnaði heldur betur yfir leikn-
um í seinni hálfleik. Halldór kom
Þór jrfir með skoti úr miðjum teig
eftir góða sókn og sendingu Hlyns.
Þórsarar fögnuðu ákaft en þögnuðu
fljótt því Oli Þór jafnaði fjórum
mín. síðar. Freyr gaf fyrir, Óli henti
sér fram og skallaði í netið við fjær-
stöngina. Mjög vel gert.
Þórsarar tóku gleði sína á ný er
Kristján skoraði. Aukaspyma var
tekin fljótt úti á velli, Guðmundur
Valur skipti yfir á hægri kantinn á
Hlyn sem sendi fallega yfir á fjær-
stöng þar sem Kristján skallaði í
stöngina og inn. Annað skallamark
hans í sumar — og nú sem í fyrra
skiptið fagnaði hann skemmtilega
ásamt Jóhannesi þjálfara, sem kom
dansandi á móti Kristjáni. Jónas
Róbertsson fékk svo gullið tækifæri
til að gera út um leikinn: Þór fékk
víti er Hlynur var felldur; Jónas,
ein öruggasta vítaskytta landsins
Skapti
Hallgrímsson
skrifarfrá
Akureyri
spymti, en Þorsteinn varði frá hon-
um. Henti sér reyndar til hægri,
Jónas skaut hinum megin við hann
en Steini varði með fætinum! Jónas
hafði skorað úr 17 vítaspymum í
röð síðan 1984.
Það var svo varamaðurinn Skúli
Rósantsson sem tryggði Suður-
nesjamönnum framlengingu með
glæsimarki fjórum mín. fyrir lok
venjulegs leiktíma. Eftir hom-
spymu barst knötturinn til hans á
vítateigslínunni og Skúli „hamraði"
hann til baka — óveijandi fyrir
Baldvin. Knötturinn „sleikti" stöng-
ina á leið sinni í netið.
Það eina markverða í fremlengingu
var er Hlynur þrumaði í þverslá
Keflavíkurmarksins, boltinn hrökk
niður á línu og þaðan í fang Þor-
steins markvarðar.
Jónas Róbertsson tók svo fyrsta
vítið og skoraði ömgglega. 1:0 fyr-
ir Þór, og síðan varði Baldvin
glæsilega frá Óla Þór. Kristján
Kristjánsson skoraði svo örugglega
— og er upp var staðið reyndist það
sigurmarkið! Sigurður Björgvinsson
skoraði þvínæst af öryggi fyrir ÍBK,
Þorsteinn varði frá Guðmundi Val,
Skúli Rósantsson skaut síðan yfir
og Valdimar Pálsson Þórsari fram-
hjá. Þá var komið að Gunnari
Oddssyni — og Baldvin varði glæsi-
lega! Þá gat Sigurbjöm Viðarsson
tryggt Þór sigur — en það gerði
hann einmitt í síðustu spymu liðsins
í 16-liða úrslitunum gegn KA — en
nú lenti þmmuskot hans í þverslá!
Þá gat Rúnar Georgsson jafnað, en
hann skaut yfir. Þar með var þessi
hrikalega spennandi viðureign á
enda. Þórsarar fögnuðu ákaft, en
Keflvíkingar sátu eftir með sárt
ennið.
Þór-IBK
4 : 3(2 : 2)
Akureyrarvöllur, 8-liða úrslit mjólkur-
bikarkeppni KSí, miðvikudaginn 22. júlí.
Mörk Þórs: Halldór Áskelsson (51.),
Kristján Kristjánsson (57.).
Mörk ÍBK: Freyr Sverrisson (55.), Skúli
Rósantsson (86.).
Gult spjald: Jóhann Júlíusson, ÍBK
(30.), Ingvar Guðmundsson, ÍBK (68.),
Ami Stefánsson, Þór (119.)
Dómari: ólafur Lárusson.
Áhorfendur: 960.
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Einar
Arason (Valdimar Pálsson vm. á 91.
mín.), Árni Stefánsson, Júlíus Tryggva-
son, Nói Bjömsson, Siguróli Kristjáns-
son, Jónas Róbertsson, Guðmundur
Valur Sigurðsson, Kristján Kristjánsson,
Hlynur Birgisson (Sigurbjöm Viðarsson
vm. á 116. mín.), Halldór Áskelsson.
Lið ÍBK: Þorsteinn Bjamason, Rúnar
Georgsson, Guðmundur Sighvatsson,
Sigurjón Sveinsson (Freyr Bragason vm.
á 82. mín.), Jóhann Júlíusson, Sigurður
Björgvinsson, Gunnar Oddsson, Jóhann
Magnússon (Skúli Rósantsson vm. á 69.
mín.), Freyr Sverrisson, Ingvar Guð-
mundsson, Óli Þór Magnússon.
Símamynd/Sverrir Vilhelmsson
Rimma
Ámi Stefánsson og Óli Þór Magnússon áttust oft við í leiknum í gærkvöldi eins
og jafnan, þegar þessi lið mætast.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR / SPJÓTKAST
Einarsigraði á stigamótinu
„Það var
Ijúft að sigra
hér í Róm“
„ÞAÐ var bæði Ijúft og nauð-
synlegt að sigra hér í Róm,“
sagði Einar Vilhjálmsson í sam-
tali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, eftir sigur sinn í
spjótkasti á stigamótinu í
Rómaborg. Hefur hann styrkt
mjög stöðu sína í Grand Prix-
keppni Alþjóðafrjálsíþrótta-
sambandsins (IAAF) og færst
úr áttunda sæti í það fimmta i
stigakeppninni.
Einar kastaði 78,94 metra og
skaut meðal annars Bretanum
Michael Hill ref fyrir rass. Hill varð
annar með 78,76 metra en hefur
nýlega kastað 85,24 metra, sem er
þriðji bezti árangur í heiminum í ár.
„Þetta var sætur sigur og virkilega
góð sárabót fyrir stúdentaleikana í
Zagreb. Það var ómögulegt fyrir
mig að fara inn í lokaundirbúning-
inn fyrir heimsmeistaramótið með
þá slæmu útkomu í kollinum. Það
var nauðsynlegt að skreppa hingað
og enda keppnislotuna á jákvæðum
nótum,“ sagði Einar frá Rómaborg.
„Það var hart lagt að mér í kvöld
að koma og keppa á mótum á Norð-
urlöndum snemma næsta mánaðar,
meðal annars í Malmö 10. ágúst,
en þar verða líklega flestir beztu
spjótkastarar heimsins með. Ég
reikna ekki með að taka því boði.
Ætla að fara skynsamlega í loka-
sprettinn fyrir heimsmeistaramót-
ið,“ sagði Einar, en það mót hefst
í Róm 29. ágúst næstkomandi og
stendur í níu daga.
Úrslitin í Rómaborg urðu annars:
78,94 Einar Vílhjálmsson
78,76 Michael Hill, Bretlandi
76,90 David Ottley, Bretlandi
76,74 Peter Borglund, Svfþjófi
75,24 Nicu Roata, Rúmeníu
72,70 Jim Connolly, Bandar.
71,10 Peter Yates, Bretlandi
Aouita hljóp
fimmkm
á 12:58,39 m
SAID Aouita frá Marokkó sló
eigið heimsmet í 5.000 metra
hlaupi á frjálsíþróttamótinu í
Rómaborg í gærkvöldi. Aouita
hljóp á 12:58,39 minútum og
varð þarmeð fyrstur manna til
að rjúfa 13 mínútna múrinn í 5
km. Gamla metið setti Aouita
í hitteðfyrra í Osló og var það
13:00,40 mínútur.
Aouita sagði fyrir hlaupið að
hann hefði engin áform um
að reyna við heimsmet, heldur ætl-
aði hann að kanna í hvaða æfingu
hann væri. Hljóp hann síðustu 800
metrana undir tveimur mínútum og
var 26 sekúndum á undan Banda-
ríkjamanninum Sydney Maree í
mark. Þetta er annað heimsmet
Aouita á einni viku því hann setti
heimsmet í 2.000 metrum í París
sl. fimmtudag.
Aouita er 27 ára hlaupari frá Ken-
itra í Marokkó. Árið 1981 settist
hann að í Frakklandi en flutti þaðan
til Flórenz á Ítalíu 1983. Hann var
ósigrandi árið 1984 og tapaði að-
eins einu sinni árið 1985, en það
var fyrir Bretanum Steve Cram.
Var það í 1500-metra hlaupi í Niz-
za í Frakklandi og hlupu báðir undir
þáverandi heimsmeti. Met Cram
lifði í rúman mánuð því Aouita sló
Slmamynd/Reuter
Sald Aoulta fagnar
það á móti í Vestur-Berlín. Aouita
varð ólympíumeistari í 5.000 metra
hlaupi í Los Angeles 1984 og þriðji
í 1.500 metrum á heimsmeistara-
mótinu í Helsinki 1983. Hann er
fyrir löngu orðinn þjóðhetja í Ma-
rokkó.