Morgunblaðið - 23.07.1987, Side 52
nsfflgssspta
ER VIÐ SKEIFUNA^
aaaa
$ SUZKJKI
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Viðræðuniim frestað
og veiðunum einnig
LEIKUR Fram og Leifturs frá
Ólafefirði í átta liða úrslitum
bikarkeppni KSÍ fór fram í
gærkvöldi nyrðra og Qöl-
menntu heimamenn á völlinn
til að styðja við sína menn eins
og sjá má á myndinni. Þrátt
fyrir dyggan stuðning sigruðu
Framarar með þremur mörkum
gegn einu.
Sjá umQöllun nm leikinn á
íþróttasíðu á bls. 49.
Fri Jóni Aageiri Sigurðssyni, fréttaritara
Bandarikjamenn munu ekki
taka ákvarðanir sem gætu leitt
til innflutnmgsbanns á íslenskar
afúrðir á meðan viðræður við ís-
lendinga um hvalveiðar standa
yfir. íslendingar munu ekki veiða
hval á meðan viðræðum ríkjanna
er ólokið. Á viðræðufúndunum í
Washington var ítarlega fiallað
um visindaáætlun íslendinga og
aðferðir til að rannsaka hvali án
þess að drepa þá.
í fréttatilkynningu sem báðir aðil-
ar gáfu út í gærkvöldi segir að
bandariski viðskiptaráðherrann heiti
að fresta ákvörðunum sem gætu leitt
til þess að Bandaríkin lýsi viðskipta-
banni gegn íslandi vegna hvalveiða.
Jafnframt lýsti íslenska viðræðu-
nefndin því yfír að hlé það á veiðum
í vísindaskyni er hófst 19. júlí síðast-
liðinn verði framlengt á meðan
viðræðunum er fram haldið.
Halldór Ásgrímsson sagði í gær
að við lok þessarar lotu viðræðna
um hvalveiðar íslendinga hafí báðir
aðilar lýst vilja til að komast að nið-
urstöðu í þessu viðkvæma máli. Því
var ákveðið að halda viðræðunum
áfram á næstunni, eftir að Halldór
hefur kynnt málið fyrir utanríkis-
nefnd Alþingis og ríkisstjóminni. Á
meðan viðræðumar standa yfír verð-
ur ekki veiddur hvalur, en lokið var
að veiða langreyðakvótann, 80 hvali,
áður en viðræðumar hófust í Was-
hington. Veiðar á sandreyði hefjast
venjulega ekki fyrr en um miðjan
ágúst.
Á þremur viðræðufundum í Was-
hington var rætt um vísindaáætlun
íslendinga og hugmyndir að öflun
upplýsinga um hvalastofnana.
Bandaríkin gerðu kröfur um að
rannsóknir byggi á því að engin epa
sem allra fæst dýr verði drepin. fs-
lenska sendinefndin lýsti sig
sammála því að nota slíkar aðferðir
í sem mestum mæli, en benti á að
þær séu tímafrekari, kostnaðarmeiri
og að ýmsar upplýsingar fáist ekki
nema með þvi að drepa hvali.
Bandaríkjamenn gerðu enn eina
ferðina grein fyrir lagaákvæðum
þeim sem veldur þessari deilu fs-
lands og Bandaríkjanna. „Pelly-
ákvæðið" í bandarískum lögum um
útvegsmál skyldar viðskiptaráðherra
til að staðfesta við forsetann hval-
veiðar og verslun sem þykja „draga
úr virkni" alþjóðasamþykkta. For-
Laugarlax:
Laxaseiði
syntu sinn sjó
TALIÐ er að um 60 þúsund iaxa-
seiði hafí sloppið þegar átti að
dæla þeim um borð í norskt flutn-
ingaskip i Hvalfirði fyrir
skömmu.
Laxaseiðin vóru í eigu Laugarlax
og var búið að sjóvenja þau í flotkví
hjá laxeldisfyrirtækinu Strönd í
Hvalfírði. Svo slysalega tókst til
þegar átti að flytja flotkvína að
skipshlið, að hún rifnaði og um 60
þúsund seiði hurfu í hafíð.
Þegar haft var samband við for-
ráðamenn fyrirtækisins, þá Eyjólf
Friðgeirsson fískifræðing og Hall-
dór Guðjónsson, vildu þeir ekki tjá
'sig um málið.
Sparískírteini ríkissjóðs:
Vaxtahækkunin verður
minni en búist var við
Gefin út skammtímabréf með 7 til 8,2% vöxtum og seld með afföllum
JÓN BALDVIN Hannibalsson
Qármálaráðherra hefúr ekki í
hyggju að fara eftir tillögum
Seðlabanka íslands um 2% hækk-
un á vöxtum af spariskírteinum
rikissjóðs, heldur hyggst hann
leggja til að gefin verði út spari-
skírteini til skemmri tima en nú
tiðkast, eða til tveggja, þriggja
eða tíu ára, með vöxtum frá 7
til 8,2%, og seld með afföUum.
Búast má við því að lán Hús-
næðisstofnunar, sem eru nú með
3,5% vöxtum, hækki í 4,5% í kjöl-
far þessara breytinga. Þetta
hefúr Morgunblaðið eftir heim-
Udum úr fiármálaráðuneytinu.
Ástæður þess að fjármálaráð-
herra vill fremur fara þessa leið eru
sagðar þær, að hann telji að tekju-
öflunaráhrif af vaxtahækkuninni
yrðu nánast engin, þar sem ríkis-
sjóður sé stærsti skuldari þjóðarinn-
ar og þar með væri vaxtahækkunin
fljót að hverfa í auknum vaxtaút-
gjöldum. Mun Ijármálaráðherra
vera þeirrar skoðunar að það sé
röng stefna að ríkissjóður keppi við
atvinnulífið um skammtímaQár-
mögnun á þeim litla markaði sem
Qármagnsmarkaður sparifjáreig-
enda hér innanlands er, þar sem
Qármagnið standi til boða með
helmingi hærri vöxtum en tíðkast
erlendis. Því vilji hann grípa til
þess ráðs að selja spariskírteini
ríkissjóðs með afföllum, án þess að
hækka vextina mikið. Þar mun
hann hafa í huga að gefa út spari-
skírteini til mjög skamms tíma, til
tveggja, þriggja og tíu ára. Mun
ÁTJÁN bændur á firamleiðslu-
svæði Mjólkursamlagsins í
Búðardal eru komnir framyfir
fúllvirðisrétt sinn til nyólkur-
framleiðslu. Nú eru fjórir þeirra
hættir að leggja inn mjólk. Gisk-
að er á að um 20 bændur í
Borgarfirði séu búnir með fúll-
virðisréttinn, en um síðustu
mánaðamót voru þeir fjórtán.
Jón Guðmundsson, verkstjóri hjá
Mjólkursamlagi Borgfirðinga, sagði
í samtali við Morgunblaiðð að fram-
leiddir væru að meðaltali 35.000
lítrar af mjólk á dag á svæðinu eða
um 9,6 milljónir lítra á ári. Þar af
var búið að framleiða 8,3 milljónir
lítra um síðustu mánaðamót. Gert
fjármálaráðherra vilja að vextir á
tveggja ára bréfunum verði 8,2%,
en á tíu ára bréfunum verði vextir
ekki nema 7%. Ekki liggur fyrir
með hversu miklum afföllum §ár-
er ráð fyrir að þar verði alls fram-
leiddir um 100.000 lítrar umfram
fullvirðisrétt. Á svæði Mjólkursam-
lagsins í Búðardal eru hins vegar
framleiddar 3,2 milljónir lítra af
mjólk á ári og þar er nú búið að
framleiða 2,9 milljónir lítra.
í Dalasýslu eru 75 mjólkurfram-
leiðendur. Þar af hafa 18 lokið við
að framleiða upp í fulivirðisrétt
sinn. Á þriðjudaginn var búið að
framleiða 90% af ársframleiðslunni,
eða 2,9 milljónir af 3,2 milljónum
lítra. Sigurður Rúnar Friðjónsson,
mjólkursamlagsstjóri í Búðardal,
bjóst við að umframframleiðsla á
mjólk yrði um 160.000 lítrar á þessu
verðlagsári, en það væri svipað og
málaráðherra hyggst selja þessi
bréf, en heimildir herma að hann
telji rétt, að ef þessi vaxtaákvörðun
dugi ekki til þess að bréfín seljist,
þá verði bréfin seld á dagsgengi.
verið hefði á sfðasta ári. Munaði
þar mest um að bændur áttu mjög
góð hey síðastliðinn vetur og einnig
hefði tíð verið einstaklega góð í
sumar. Þess bæri þó að geta að
nokkra stórir framleiðendur yrðu
líklega nálægt mörkunum.
Sigurður Rúnar sagði að þessi
spá gæti hugsanlega breyst. Hann
hefði heyrt það á bændum sem
komnir væru fram yfir mörkin að
þeir hygðust jafnvel hætta að leggja
inn.
í Borgarfirði hafa 1 eða 2 bænd-
ur hætt að leggja inn mjólk, en
baaði þar og í Dalasýslu eru menn
famir að vinna mjólkina heima eða
nýta á annan hátt, t.d. gefa hana
kálfum.
Vesturland:
Um flörutíu bændur búnir
með mjólkurkvótann
Morgunblaðsins i Bandarflqunum
setanum er heimilað að grípa til
innflutningsbanns á fiskafurðum frá
viðkomandi landi og gefnar ftjálsar
hendur. Ronald Reagan getur ákveð-
ið algjört innflutningsbann gegn
viðkomandi ríki, alls engar refsiað-
gerðir og allt þar á milli. „Ef þessi
lög væru ekki til, þá værum við ekki
í_ þessum viðræðum," sagði Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í
gær.
Haildór sagði að samþykkt Al-
þjóða hvalveiðiráðsins í MaJmö í
fyrra um innanlandsneyslu á hval-
kjöti, hefði all8 ekki komið til
umræðu á fundunum í Washington,
hún hefði verið afgreidd í fyrra.
Hann sagði ennfremur að í fyrra
hefði staðfesting bandaríska viðk-
skiptaráðherrans verið yfírvofandi,
en svo sé ekki nú. Sjávarútvegsráð-
herra kvaðst hvorki vera bjartsýnn
né svartsýnn þegar hér er komið,
en reyndar „farinn að þreytast á
þessu máli.“
Sjá bls. 2 frétt um áskorun 21
líffræðings á ríkisstjómina að hætta
hvalveiðum.
Símamynd/Ámi Sæberg