Morgunblaðið - 14.08.1987, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B
180. tbl. 75. árg.
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Danmörk:
Þingkosningar
15. september?
Kaupmannahöfn, Reuter.
DAGBLAÐIÐ Information
skýrði frá því í gær að Poul
SchlUter, forsætisráðherra Dan-
merkur, hygðist boða til þing-
kosninga þann 15. september.
Kjörtímabili minnihlutastjórnar
Schliiters lýkur í janúar á næsta
ári en stjómmálaskýrendur hafa
spáð að þingkosningar fari fram í
nóvember.
Schluter vildi í gær ekki tjá sig
um málið. í frétt Information sagði
að forsætisráðherrann hygðist boða
þingmenn til fundar þann 25. þessa
mánaðar og tilkynna að hann hefði
ákveðið að þingkosningar skyldu
fara fram þremur vikum síðar.
Sagði blaðið að Schluter teldi heppi-
legt að boða snemma til kosninga
þar sem efnahagsspár gæfu til
kynna að atvinnuleysi myndi fara
vaxandi á síðari hluta þessa árs.
Líklegt er að jafnaðarmenn,
helstu andstæðingar samsteypu-
stjómar Schlúters, leggi áherslu á'
atvinnuleysi og óhagstæðan
greiðslujöfnuð við útlönd í kosn-
ingabaráttunni.
Bretland:
Minnsta at-
vinnuleysi í
fjögnr ár
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Fjörutíu þrísund inanns íKringlunni
Um 40 þúsund manns komu í verslana- og þjónustumiðstöðina Kringluna á opnunardegi hennar í gær en það er helmingi meira
en búist var við. Að sögn Ragnars Atla Guðmundssonar, framkvæmdastjóra, Kringlunnar, gekk allt mjög vel fyrir sig þrátt
fyrir mannfjöldann og var meginverkefni öryggisvarða hússins að aðstoða litil börn sem höfðu orðið viðskila við foreldra sína.
Sjá frásagnir á blaðsíðum 4 og 7
London, Reuter.
ATVINNULEYSI á Bretlandi fór
enn minnkandi í júli og hefur
ekki veríð minna síðan í maímán-
uði árið 1983, að því er Norman
Fowler atvinnumálaráðherra
sagði í gær.
Rúmlega 2,8 milljónir manna
vom án atvinnu í júlí eða 11,7 pró-
sent vinnufærra manna. Atvinnu-
lausum fækkaði um 47.600 manns
og hefur tala þeirra farið lækkandi
þrettán mánuði í röð. Hefur þetta
að hluta til verið rakið til aukinnar
starfsþjálfunar á vegum stjómar-
innar. Að auki fjölgaði starfsfólki
í framleiðslugreinum um 10.000 í
júlí og hefur annað eins ekki gerst
á einum mánuði frá árinu 1978.
V estur-Þýskaland:
Stjómarliða greinir á um
Pershing 1 A-flaugarnar
Rnnn A natiir-Raphn Dairfa.
Bonn, Austur-Berlín, Reuter.
MJÖG er þrýst á Helmut Kohl,
kanslara Vestur-Þýskalands, um
að breyta afstöðu sinni til 72
kjarnorkuflauga af gerðinni
Pershing 1A, sem eru í eigu vest-
ur-þýska flughersins. Stjórnar-
flokkamir virðast ekki vera
heilir i afstöðu sinni til málsins.
Fijálsir demókratar (FDP) hafa
látið að þvi liggja að þeir muni
greiða atkvæði gegn því að
flaugamar verði undanþegnar
Suður-Afríka:
Ferðafrelsi erlendra
sendimanna takmarkað?
Höfðaborg, Reuter.
P.W. BOTHA, forseti Suður-
Afríku, sagði í ræðu í gær að
vestrænir sendimenn hefðu
óeðlileg afskipti af kynþáttaað-
skilnaðarstefnu stjómvalda í
landinu og til greina kæmi að
takmarka ferðafrelsi þeirra.
Hefur forsetinn aldrei áður
gagnrýnt erlenda sendiráðs-
starfsmenn á svo óvæginn hátt.
Botha lét þessi orð falla á þingi
í gær og sakaði erlenda sendimenn
um að misnota aðstöðu sína. Sagði
hann að til greina kæmi að tak-
marka ferðafrelsi „tiltekinna
embættismanna í tilteknum sendi-
ráðum" líkt og gert er í Banda-
ríkjunum. Botha nefndi sérstaklega
að erlendar ríkisstjómir hefðu fjár-
magnað ferð hvítra Suður-Afríku-
búa, sem barist hafa gegn
kynþáttastefnu stjómvalda, til
borgarinnar Dakar í Senegal í
síðasta mánuði þar sem þeir áttu
fund með fulltrúum Afríska þjóðar-
ráðsins. Botha tilgreindi ekki hvaða
ríki hefðu átt að hlut að máli en
eiginkona Francois Mitterrand
Frakklandsforseta tók þátt í skipu-
lagningu fundahaldanna í Dakar.
Botha kvaðst líta það „mjög al-
varlegum augum" að erlendar
ríkisstjómir og sendimenn þeirra
skyldu hlutast til um málefni sem
væru utan verkssviðs þeirra: „Eng-
in ríkisstjóm getur liðið að níðst sé
á gestrisni hennar með þessum
hætti og haldið fullri reisn.“
afvopnunarsamningum risaveld-
anna verði málið boríð upp á
sambandsþinginu í Bonn.
Sovétmenn segja að Pershing
lA-flaugarnar séu nú eina fyrir-
staðan fyrir afvopnunarsamkomu-
lagi, en Bandaríkjamenn hafa lýst
yfir því að þeir muni ekki láta und-
an kröfum Sovétmanna um að
uppræta flaugamar.
Stjómarandstöðuflokkar í Vest-
ur-Þýskalandi hafa hótað að bera
málið upp til atkvæðagreiðslu. Uwe
Ronneburger, talsmaður FDP í
vamarmálum, vék í gær frá yfir-
lýstri stefnu samsteypustjómarinn-
ar er hann lýsti yfír því að
Vestur-Þjóðveijar ættu að láta
flaugamar af hendi og yrði það
framlagþeirratil afvopnunarmála.
Sovétmenn hafa einnig beitt
stjómina í Bonn þrýstingi. Eduard
Shevardnadze, utanríkisráðherra,
skrifaði í þessari viku að ekki væri
hægt að útiloka flaugar með
kjamaoddum, sem Bandaríkjamenn
réðu yfír, þegar samið væri um al-
gert bann við meðaldrægum og
skammdrægum flaugum. Tilskrif
Shevardnadzes var sent til Hans-
Dietrichs Genscher, utanríkisráð-
herra Vestur-Þýskalands. Genscher
kemur úr röðum fijálsra demókrata
og sagði hann í grein, sem birtist
fyrr í þessari viku og endurprentuð
var í málgagni austur-þýska komm-
únistaflokksins, Neues Deutschland
í gær, að ekkert ríki hefði jafn
mikinn hag af afvopnunarsam-
komulagi og Vestur-Þýskaland. Því
ættu Þjóðveijar að reyna að greiða
fyrir samkomulagi. Minntist ráð-
herrann ekki á Pershing lA-flaug-
amar í skrifum sínum.
Stjómarandstöðuflokkur jafnað-
armanna (SPD) hefur hótað að efna
til sérstakra umræðna um flaugam-
ar á þinginu. Flokkurinn skoraði í
gær á Kohl að láta samkomulag
um meðaldrægar og skammdrægar
flaugar ekki stranda á flaugunum
72. Græningjar hafa þegar farið
fram á sérstaka atkvæðagreiðslu
um flaugamar.
Flokkar kristilegra demókrata
(CDU/CSU) telja enga þörf á um-
ræðu um Pershing lA-flaugamar
nú og slíkt yrði of kostnaðarsamt.