Morgunblaðið - 14.08.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
3
Umferðarslys:
Fjórtán
hafa
látist á
árinu
FJÓRTÁN manns hafa látíst í
umferðinni það sem af er þessu
ári, samkvæmt upplýsingum
Umferðarráðs. Þessir fjórtán
manns létust í 13 slysum.
Níu karlmenn létust, tveir dreng-
ir, tvær konur og ein stúlka. Tvö
slysanna urðu í janúar, eitt í febrú-
ar, þijú í mars, tvö í maí, þrjú í
júlí og tvö, það sem af er ágúst.
Tveir létust í slysi, sem varð hinn
fyrsta mars. Ellefu hinna látnu voru
undir 30 ára aldri, tveir voru á
fímmtugsaldri og einn um sjötugt.
Af þessum slysum voru sex
árekstrar, fjögur útafakstursslys og
þrisvar sinnum ekið á gangandi
vegafaranda. Flest þessar slysa
urðu á Vesturlandsvegi, eða þijú
slys og tvö á Reykjanesbraut.
Á sama tíma í fyrra höfðu 17
manns látist í 15 slysum.
Banaslysið
á Vestur-
landsvegi
UNGI maðurinn, sem lést í um-
ferðarslysi á Vesturlandsvegi
síðastliðið miðvikudagskvöld, hét
Pétur Pétursson, til heimilis að
Fjólugötu lla. Hann var fæddur
1960 og hefði orðið 27 ára 25.
ágúst næstkomandi.
Sjávarútvegssýningin:
Um þúsund
manns hafa
bókað sig
Hótel í Reykjavík,
á Suðurnesjum og
fyrir austan Fjall
fullbókuð
UM eitt þúsund manns hafa bók-
að komu sína á sjávarútvegssýn-
inguna í Reykjavík, sem haldin
verður dagana 19.-23. september
og er nú svo komið, að vegna
skorts á hótelrými heldur fólk
að sér höndum um frekari bókan-
ir.
Ferðaskrifstofan Úrval sér um
bókanir vegna sýningarinnar. Þar
fengust þær upplýsingar að búið
væri að fullbóka á öll hótel í
Reykjavík, auk hótela í Keflavík,
Njarðvíkum, Hveragerði og á Sel-
fossi. Gestir á sýninguna væru
tregir til þess að gista í heimahúsum
og því héldu þeir að sér höndum
varðandi bókanir. í athugun væri
að fá færeysku feijuna Smyril til
þess að liggja í höfn í Reykjavík á
meðan á sýningunni stæði, en það
væri óljóst hvort af því gæti orðið.
Þá væri og í athugun hvort annað
skip væri fáanlegt.
Breska fyrirtækið Industrial and
Trade Fairs stendur fyrir sjávarút-
vegssýningunni í náinni samvinnu
við Útflutningsráð íslands.