Morgunblaðið - 14.08.1987, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
Landbúnaðarsýningin Bú ’87 opnuð í dag:
Gínur í engjakaffí
o g fuglabjarg
úr frauðplasti
FORSETI íslands Vigdís Finn-
bogadóttir opnar landbúnaðar-
sýninguna Bú '87 í Reiðhöllinni
í Víðidal I dag klukkan 16.40.
Áður flytja Jónas Jónsson bún-
aðarmálastjóri og formaður
sýningarstjórnar og Jón Helga-
son landbúnaðarráðherra
ávörp. Við athöfnina syngja
söngflokkurinn Lóuþrælar úr
Húnavatssýslu og sögnflokkur
bænda úr Kjalarnesþingi og
hornaflokkur leikur í anddyri.
Sýning verður opnuð almenn-
ingi klukkan 18.00. í kvöld kl.
20.30 hefst svo héraðsvaka
Vestur-Húnvetninga. Þar
syngja Lóuþrælar, fluttur verð-
ur stuttur leikþáttur og Aðal-
björn Benediktsson ráðunautur
flytur gamanmál.
Undirbúningur við landbúnað-
arsýninguna var í fullum gangi,
þegar Morgunblaðsmenn litu inn
í Reiðhöllina í Víðidal.
Við hittum fyrir Melkorku Ól-
afsdóttur þar sem hún var í óða
önn að mála stærðarinnar fugla-
bjarg, sem reyndar er gert úr
frauðplasti, en bjargið er hluti af
hlunnindadeild sýningarinnar.
Melkorka fræddi okkur á því að
í básnum ætti síðan að koma fyr-
ir uppstoppuðum sjófuglum og
eggjum þeirra, ásamt sel, rekavið
Morgunblaðið/Þorkell
Melkorka Ólafsdóttir við frumraun sfna við að mála fuglabjarg.
Eldfjall þeirra Landgræðslumanna i smíðum. Morgunblaðið/Þorkell
Morgunblaðið/Þorkell
Magnús Sigsteinsson, framkvæmdastjóri landbúnaðarsýningar-
innar, og Gunnar Bjarnason, aðalhönnuður, með likan af sýning-
unni á milli sín.
og öðru sem til hlunninda gæti
talist.
Melkorka er nýbúin að tyrfa
básinn við hliðina, en þar á að
bregða upp mynd af landbúnaði
á íslandi eins og hann var fyrir
150 árum, eða í þann mund sem
fyrstu búnaðarsamtökin voru
stofnuð. Þar munu gínur sitja og
standa í hlutverki vinnufólks í
heyvinnu - rejmdar hittist svo á
að þær eru í engjakaffi á meðan
á sýningunni stendur, eins og
Gunnar Bjamason, yfirhönnuður,
sýndi okkur á líkani af uppsetn-
ingu sýningarinnar. Aðrar gínur
sitja síðan inni í nákvæmri eft-
irlíkingu af gamalli baðstofu þar
við hliðina. Áhugamenn um lif-
andi fólk fá einnig eitthvað fyrir
snúð sinn á sýningunni, því að
meðlimir í Heimilisiðnaðarfélagi
íslands munu sýna vinnubrögð
sem tíðkuðust í baðstofum hér á
öldum áður.
Á útisvæðinu var verið að
leggja lokahönd á manngert eld-
fyall, sem verður hluti af sýningu
Landgræðslunnar. Eldfjallið á að
vera fulltrúi eyðingarafla náttú-
runnar, en við fjallsfótinn eru
melgresisklæddir foksandshólar
sem minna á að það er hægt að
klæða landið þrátt fyrir ógnar-
mátt eldsumbrota, sem sýningar-
gestir munu fá nasasjón af með
hjálp ljósa, gufu og segulbands-
tækis.
Bókasöfn:
Mest dregið úr útiánum
á þýddum skáldsögum
TÖLUVERT hefur dregið úr útlánum bóka hjá bókasöfnum
víða um land. Svo virðist sem mestur samdráttur eigi sér stað
í útlánum á þýddum skáldsögum.
Anna Torfadóttir deildarstjóri í að kaupa færri eintök af hveijum
aðalsafni Borgarbókasafnsins í bókatitli og leyfa aðeins svo kölluð
Reykjavík sagði í samtali við skammtímalán á nýjum bókum.
Morgunblaðið að frekar erfitt Þannig gefst fleirum kostur á að
væri að fylgjast með útlánum fá nýjar bækur lánaðar á skemmri
vegna þess að safnið hefði ekki tíma en áður“.
enn verið tölvuvætt. Anna sagði að lokum að fjár-
„Það liggja engar tölfræðilegar
upplýsingar fyrir en við gerum
okkar besta og reynum að fylgj-
ast með því sem er að gerast. Eg
hef það sterklega á tilfinningunni
að mest hafí dregið úr útlánum á
afþreyingarefni. Þá er ég aðallega
að tala um þýddar skáldsögur og
ástarsögur og fínnst mér ekki
ólíklegt að það fólk sem sótti í
þær bækur sæki nú sína afþrey-
inga til sjónvarps og myndbanda
“ sagði Anna.
Hún bætti því við að hún hefði
það jafnframt á tilfínningunni að
eftirspum eftir vönduðum bókum
hefði jafnvel aukist frekar en hitt.
Að sögn Önnu hefur dregið
verulega úr Qárveitingum til
bókasafna í Reykjavík undanfarin
ár.
„Eftir að nýr meirihluti tók við
stjóm borgarinnar minnkaði fjár-
framlag til bókasafna um helm-
ing. Reyndar hefur það skánað
núna með opnun útibúsins í
Gerðubergi. Við höfum reynt að
mæta þessum niðurskurði með því
veitingin . fyrir árið 1987 hefði
klárast núna í júní og yrði safnið
að fá bækur út á krít þangað til
næsta fjárveiting fengist.
Morgunblaðið hafði samband
við Hjalta Pálsson bókavörð á
bókasafninu á Sauðárkróki og
spurði hann hvort hann hefði orð-
ið var við að dregið hefði úr
útlánum bóka á þessu ári.
„Mér sýnast útlán aðeins hafa
dregist saman á þessu ári miðað
við 1. ágúst í fyrra. Mesti sam-
drátturinn átti sér hins vegar stað
milli áranna 1985 og 1986 en þá
drógust útlán saman um rúm
10%“.
„Ég tel að fjölmiðlafarganið
allt eigi stóran þátt í þessu. Þá
ályktun dreg ég af því að mér
sýnist mest hafa dregið úr útlán-
um á þýddum skáldsögum en svo
virðist sem það fólk sem las af-
þreyingarbókmenntir af því tagi
hafi leitað afþreyingarinnar hjá
öðrum fjölmiðlum" sagði Hjalti.
Hjalti sagði einnig að útlán
væru yfirleitt í lágmarki yfír sum-
artímann og það væri mikið til
sama fólkið sem kæmi á safnið
til þess að fá lánaðar bækur.
Á ísafirði hefur ekki dregið úr
útlánum á þessu ári en að sögn
Jóhanns Hinrikssonar_ forstöðu-
manns bókasafnsins á ísafírði dró
verulega úr útlánum fyrir u.þ.b.
þremur árum.
Hann sagði að yfírleitt gengi
vel að fá fé til bókakaupa en aðal
vandamál safnsins í dag væri
húsnæðisleysi.
„Við fáum engan styrk úr ríkis-
sjóði og bæjarstjómin tekur sínar
ákvarðanir um framkvæmdir f
samræmi við þann styrk sem fæst
frá ríkinu. Nú höfum við einungis
pláss fyrir einn þriðja hluta safns-
ins en tveir þriðju hlutar þess eru
í kössum í fokheldu húsnæði úti
í bæ“.
„Við erum að reyna að fá gamla
sjúkrahúsið til afnota en það hefur
einnig verið talað um að gera það
að elliheimili. Þetta kemst allt á
hreint með haustinu" sagði
Jóhann.
Að lokum sagðist Jóhann vera
frekar óhress með ástandið í bóka-
safnsmálum á íslandi í dag. Hann
sagðist ekki vita til þess að byggt
hefði verið nýtt bókasafn á
landinu undanfarin 10-20 ár fyrir
utan bókasafnið í Gerðubergi sem
Reykvíkingar fengu að gjöf frá
ríkinu.
Morgunblafltö/Sverrir
Sveit Seljaskóla ásamt öðrum fararstjóra sínum. Sveitina skipa:
Þröstur Árnason, sem teflir á 1. borði, Sigurður Daði Sigfússon, sem
teflir á 2. borði, Sæberg Sigurðsson, sem teflir á 3. borði, Snorri
Karlsson, sem teflir á 4. borði, Kristinn Friðriksson, varamaður.
Ólafur H. Ólafsson, fararstjóri er lengst til hægri, en hinn fararstjó-
rann, Guðmund Guðjónsson, vantar á myndina.
Norðurlandamót grunnskólasveita í skák:
Island hefur unn-
ið mótið undan-
farin fjögur ár
SVEIT Seljaskóla tekur þátt í
Norðurlandamóti skólasveita í
skák, sem haldið ert í Finnlandi
dagana 14.-16. ágúst. Sveitin
vann Norðurlandamótið, sem
haldið var hér á landi á siðasta
ári, og sigraði einnig á íslands-
móti grunnskólasveita, sem
haldið var í vor.
íslenskar skáksveitir grunnskól-
anna hafa unnið Norðurlandamótið
undanfarin fjögur ár, Seljaskóli á
síðasta ári og Hvassaleitisskóli árin
þijú þar á undan. Mótið hefur verið
haldið frá árinu 1964, en íslending-
ar hófu þátttöku í því árið 1977
og Álftamýrarskóli vann mótið
1978 og 1979, þannig að undanfar-
in tíu ár hafa íslenskar skáksveitir
unnið mótið sex sinnum.