Morgunblaðið - 14.08.1987, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
Hér, á þessari viðarstjörnu,
undir stjörnunni frá
Flórens, áttu að ákveða í
hvaða átt þú ætlar. Hvort
þú ætlar í átt að peysunum,
buxunum, skyrtunum,
jakkafötunum eða
bindunum.“ Það er ítalski
innanhússarkitektinn
Michele Bönan sem hefur
orðið. Þessi þrítugi og
skemmtilega sérkennilegi
maður hefur þegar öðlast
alþjóðlegan frama í sinni
grein, þó ekki séu nema tíu
ár liðin frá þvi hann hóf að
vinna sem
innanhússarkitekt. „Ég var
svo heppinn,“ segir hann,
„því eitt af mínum fyrstu
verkefnum var tekið fyrir í
tíu blaðsíðna umfjöllun í
Architectual Design, sem er
mjög útbreitt og virt ítalskt
timarit um hús og híbýli“.
Stjörnumar sem Michele
Bönan talar um eru í versl-
un Sævars Karls Ólasonar
í Kringlunni, nánar tiltekið
í inngangi verslunarinnar.
„Stjömumar eiga að vísa þér veg-
inn,“ útskýrir arkitektinn. „Hér em
þrír stórir útstillingargluggar og fjór-
ir minni. Þar verða sýnishom af þeim
fatnaði sem verslunin hefur uppá að
bjóða og eftir að fólk hefur skoðað
þau ætti það að geta gengið frá þess-
ari stjömu beint að því sem það vill.“
Blaðamaður virðir fýrir sér dökku
viðarstjömuna í ljósu parketgólfinu
sem blasir við er gengið er inn í
verslunina. Stjömulaga ljósakrónan
frá Flórens, sem hangir í loftinu,
lýsir upp innganginn (og viðarstjöm-
una) á skemmtilegan hátt. „Lýsingin
hefur mikið að segja og ég legg
mikla áherslu á hana,“ ségir Italinn
ákafur og heldur áfram: „Ég þoli
ekki eina allsherjar lýsingu með einni
ljósakrónu í loftinu. Ég vil lýsa upp
þá hluti sem verslunin leggur áherslu
á og nota að mestu leyti litla kast-
ara til þess.“
Michele Bönan lærði innanhúss-
arkitektúr í háskóla í Flórens og frá
tvítugsaldri hefur hann unnið um
alla Italíu og annars staðar í heimin-
um hjá virtum verslunum og ein-
staklingum. „Happaverkefnið mitt
var húsið hans Adriano Panatta,
tennisleikara og æskuvinar míns.
Hann keypti sér hús á Forte dei
Marmi, sem er ákaflega fallegur
staður á ítölsku riviemnni, og fékk
mig til að innrétta það fyrir sig.
Húsið vakti mikla athygli meðal arki-
tekta og blaðamanna. Greinar með
myndum voru birtar í mörgum blöð-
um og tímaritum og síðan hef ég
alltaf haft nóg að gera. Ég átti alls
ekki von á allri þessari athygli, en
tók henni vel og notfærði mér hana.“
náttúrunnar. Ef við ímyndum okkur
að verslunin eigi að minna á hús í
sveit, sér maður ámar, fiskinn, hús-
dýr og mikið gras fyrir sér. Þess
vegna vil ég að hér verði munir sem
minna á þetta. Það má segja að
andstæðumar í náttúrunni komi
fram í því að á gólfinu og lágvegg
er viður, marmari og íslenskur grá-
steinn. í tveimur útstillingargluggum
og á veggjum er mjög fallegt fléttað
veggfóður úr basti frá Kína. Köflótt
skoskt efni er hins vegar í öðrum
gluggum og afgreiðsluborðinu, og
eru lampaskermar í versluninni úr
sama efni.“
Hef ekki ástœðu tii
að yera hæverskur
„Ég kann ekki við búðir Valentin-
os, Versaces og fleiri hönnuða, sem
selja eingöngu eigin fatnað. Mér
finnast þær búðir einhæfar og kulda-
legar. Ég kann hins vegar vel að
meta búðir með dýran og fínan fatn-
að frá mismunandi fyrirtækjum. Ég
hugsa sjálfur mikið um klæðaburð
og geng aðeins í góðum, klassískum
fötum. Samt er ég ekki klassískur í
mér . . .“ Hann hagræðir silkivasa-
klútnum í vasanum á smáköflótta
kasmíijakkanum sínum um leið og
hann segir þetta, rennir fingrunum
í gegnum hárið og segir: „Mér finnst
ég ekki snobbaður, en ég kann að
meta fallega hluti og er mikið fyrir
þægindi. Eg neita því ekki að starf
mitt er ábatasamt. Það er dýrt að
fá hjá mér innréttingar og mér fínnst
það sjálfsagt. Ég vinn mína vinnu
vel og er þekktur fyrir það sem ég
hef gert. Núna í júní var til dæmis
umfjöllun í Architectual Design um
hús ítölsku leikkonunnar Dajilu Di
Lazzaro, sem ég innréttaði. Ég hef
engan ákveðinn stíl eins og svo marg-
ir arkitektar hafa. Það er nóg að líta
á það sem sumir hafa gert til að sjá
hver hefur verið þar að verki. Mínar
innréttingar þekkjast á því að þær
eru fallegar." Að þessu mæltu stynur
blaðamaður því út úr sér að ekki sé
hægt að segja að hæverskan sitji í
fyrirrúmi á þessum bæ. „Nei, það
er alveg satt,“ segir hann brosandi.
„Ég hef enga ástæðu til að vera
hæverskur. Eg er ánægður með það
sem ég geri. Þannig á það að vera.
Mér finnst gaman að fólk skuli kunna
að meta hugmyndir mínar og hafa
sama smekk og ég. En ef ég væri
ekki ánægður með það sem ég geri,
væri ég þá ekki bara hræsnari að
telja fólki trú um að eitthvað væri
fallegt, sem mér fínnst ekki sjálfum
fallegt?" ítalski innanhússarkitekt-
inn og heimsmaðurinn Michele
Bönan fékk í fyrstu ekkert svar við
þessari spumingu á þeirri forsendu
að það væri hann sem væri í við-
tali. Að loknu samtalinu fylgdi hann
komumanni til dyra eins og sönnum
herramanni sæmir. Á viðarstjömunni
dökku, undir stjömunni frá Flórens
í anddyrinu, komst ég ekki hjá því
að svara spumingu hans: Sennilega
hefurðu rétt fyrir þér.
Versmr
$ yt
Michele Bönan framan viö
stóran skeifulaga spegil í
verslunlnnl sem hann hefur
innróttað í Krlnglunni. „Ég
hef engan stfl, og um lelö
sérstakan stfl, sem Innan-
hússarkltekt."
í Egyptalandi f tvö ór
Eg vann að mjög skemmtilegu
verkefni í Egyptalandi fyrir skömmu.
Þar hannaði ég innréttingar fyrir
egypskan milljónamæring í tvö þús-
und fermetra húsi sem hann keypti
í Kaíró. Ég var ekki eingöngu í
Egyptalandi meðan á verkinu stóð,
heldur fór ótal ferðir þangað. Ég
verð að geta fylgst með því að hug-
myndir mínar séu útfærðar á réttan
hátt. Annars hef ég alltaf sömu
mennina í vinnu hjá mér, sem em
sérfræðingar í sínu fagi og vita
hvemig ég vil vinna. Það er ekki
hægt að ætlast til að hvaða iðnaðar-
maður sem er viti hvemig ég vil að
hlutimir séu. Ég get ekki staðið yfir
þeim og ég verð að geta treyst þeim.
Þess vegna sendi ég mína menn hing-
að til íslands til að vinna að innrétt-
ingunni í versluninni í Kringlunni."
— Hvemig stóð á því að þú tókst
að þér verkefni hér á íslandi?
„Fyrir nokkm setti ég upp vemlun-
ina Lord Bmmmell í Flórens. Ég er
mjög ánægður með þá búð, sem er
í glæsilegum enskum sveitastíl með
ballskákarborði frá 19. öld á neðstu
hæðinni og fleiri munum sem minna
á lord Brummel, en hugmyndin var
að gera búð sem minnti á sveitasetur
hans. Sævar Karl sá búðina er hann
var í Flórens og þegar hann ákvað
að opna nýja verslun í Kringlunni,
hafði hann samband við mig og bað
mig að taka verkið að mér. Mér þótti
spennandi að vinna á íslandi og
kynnast aðeins nánar þessari eyju,
sem mér þótti svo fjarlæg áður. Það
kann að hljóma undarlega, en mér
finnst gott _að vinna svona út um
allan heim. Ég held að ég skipuleggi
vinnuna betur þannig, ég þarf að
Michele Bönan ásamt elganda verslunarlnnar, Sævari
Karll Ólasynl, vlö afgrelösluborðlö.
senda iðnaðarmenn á staðinn og þeir
verða að sjá um að ljúka verkinu á
ákveðnum tíma. Þegar vinnan er
komin á skrið, kem ég á staðinn og
set punktinn yfir i-ið. Nú hef ég til
dæmis verið að prófa lýsinguna hér
og fylgjast með því að allt sé á sínum
stað. Eg verð hér aðeins í eina viku
og kem svo til með að vera viðstadd-
ur er búðin verður opnuð. Ég er
þeirrar skoðunar að verslun eigi að
vera eins og heimili. Hún á að bjóða
viðskiptavininn velkominn og honum
á að líða vel þegar hann kemur inn
í verslunina. Eini munurinn er sá að
hann fer í átt að peysunum, buxunum
eða einhveiju öðru í stað þess að
fara í eldhúsið, stofuna eða bað-
herbergið."
Einkanni landslns
veröa aö koma fram
í vorslunlnnl
„Þegar ég fékk teikningar af hús-
næðinu var ég lengi að hugsa um
hvernig ég gæti gert það sem mest
aðlaðandi. Þetta var einn stór geimur
og burðarsúla hægra megin við inn-
g.inginn. Ég var að vísu ákveðinn í
að nota mikinn við, því viðurinn er
lifandi, hlýlegur og fallegur efnivið-
ur, sem einnig er mjög gott að vinna
með. Burðarsúlan gerði mér svolítið
gramt í geði til að byija með, en
síðan ákvað ég að viðarklæða hana,
setja aðra súlu vinstra megin og
gera bogadregið hvolf yfir inngang-
inn. Þá skipti ég þessu stóra herbergi
niður í smærri einingar og er mjög
ánægður með útkomuna. Ég vona
að íslendingum komi til með að líka
eins vel við hana og mér. Ég nota
kýprusvið í innréttingamar, en það
er afar fallegur og ilmandi viður. í
gamla daga var hann notaður í skápa
og skúffur þar sem undirfatnaður
var geymdur, því ilmurinn færist
yfir á fatnaðinn og það þótti afar
fint að hafa undirfatnaðinn ilmandi
af kýprusviði. Að auki er þetta harð-
ur viður sem mölur og önnur kvikindi
vinna ekki á.
Ég hef engan stíl, og um leið sér-
stakan stíl, sem innanhússarkitekt.
Ég blanda saman klassískum glæsi-
leika og hlýlegri sveitamennsku.
Áhrif landsins verða að koma fram
í þessari verslun. Hér eru miklar
andstæður; eldur og ís, sem eru án
efa stórfenglegustu andstæður
— rættvið
ítalska
innanhúss-
arkitektinn
Michele Bönan
Frá Lord Brummall-versluninnl
I Flórens, sem Michele Bönan
innréttaöi.