Morgunblaðið - 14.08.1987, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
Afganskir skæruliðar
granda flutningavél
Islamabad, Pakistan, Reuter.
AFGANSKIR skæruliðar skutu í
gær niður flutningavél með Stin-
ger-skeyti af bandarískri gerð,
að því er útvarpið í Kabúl, höfuð-
borg Afganistans, greindi frá.
Sagði að tólf menn hefðu látið
lífið, þar á meðal tvö börn.
Útvarpið í Kabúl sagði að flug-
vélin, sem var sovésk af gerðinni
AN-26, hefði verið skotin niður yfir
Mangal-dal í héraðinu Paktia í aust-
urhluta landsins. Hún hefði verið á
leiðinni frá Kabúl til bæjarins Khost
með nauðsynjavörur.
Kína:
Reisa Gengh-
is Khan
grafhýsi
Hong Kong. Reuter.
*
KÍNVERSK
stjórnvöld ætla
' að reisa Geng-
his Khan,
mongólska
Sovéska fréttastofan Tass sagði
að árásin hefði verið villimannsleg-
ur glæpur framinn af öfgamönnum,
sem nytu stuðnings erlendis frá.
Stjómvöld í Moskvu hafa gagnrýnt
Bandaríkjamenn og Breta harðlega
fyrir að láta afganska skæruliða
hafa loftvamarskeyti. Hafa þau
sagt að mannfall hafi aukist mikið
vegna þess.
í fréttatímaritinu Newsweek var
nýlega greint frá því að afgönskum
skæmliðum hefði vaxið fiskur um
hrygg er þeir Stinger-skeytin.
Skytu þeir nú niður um 1,2 til 1,5
sovéskar flugvélar að meðaltali á
dag. Fyrir sex mánuðum hefðu þeir
aftur á móti grandað tæplega einni
flugvél á dag. Sagði einnig að ár-
lega féllu milli fjögur og fimm
þúsund sovéskir hermenn í Afgan-
istan og Sovétmönnum hefði lítið
orðið ágengt við að hrekja skæm-
liða úr vígjum sínum til fjalla eftir
að snjóa leysti í vor. Vom þessar
upplýsingar fengnar úr skýrslu
bandarísku leyniþjónustunnar CIA.
Sovétríkin:
Zimmc ^trafje WWIW UMU
xrs
L-^arrs sortez
nu SECTEUR AMfRICi
* ^VERLASSEH DEH AMERIrl
Múrinn 26 ára
Berlínarmúrinn varð 26 ára í gær og var afmælisins minnst með mismunandi hætti. í Austur-Þýskalandi
var sagt að múrinn væri mikilvægt framlag til friðarbaráttunnar; hrifningin er öllu minni vestantjalds. Á
myndinni sést (til vinstri) Joseph Wemer frá New York þar sem hann hefur tekið sér stöðu við banda-
risku eftirlitsstöðina Checkpoint Charlie í Vestur-Berlín í gær. Hann rétti vegfarendum svarta fána sem
hann kallaði „sorgartákn" til heiðurs þeim Þjóðveijum, sem múmum er ætlað að byrgja inni.
keisaranum
sem lagði undir
sig megnið af
Asíu og Evrópu
á 13. öld, graf-
Genghis Khan hýsi.
Hin opinbera kínverska frétta-
stofa sagði í fyrradag að grafhýsinu
yrði valinn staður í borginni Lanz-
hou í Norðvestur-Kína, þar sem
keisarinn lést árið 1227.
Genghis Khan, sem gagnrýndur
var í menningarbyltingunni í Kina
á sjöunda og áttunda áratugnum
fyrir „mongólskan þjóðrembing",
hefur verið tekinn í sátt hjá
kínverskum umbótasinnum á und-
anfömum ámm.
Fréttastofan sagði, að jarðneskar
leifar Genghis Khans, tjald hans,
vopn og klæði yrðu tekin úr hofi
þama í nágrenninu og komið fyrir
í grafhýsinu. Ekki var tekið fram,
hvenær lokið yrði við framkvæmd-
ina.
Nýskipan í landbúnaðarstefnu
Bónusgreiðslur til uppfinningamanna og dugnaðarforka
Moskvu, Reuter.
GEFIN voru út ný fyrirmæli í
gær varðandi umbætur í land-
búnaðarstefnu Sovétríkjanna. Er
ætlunin að auka afrakstur bú-
anna og gera landið síður háð
korninnflutningi frá Vesturlönd-
um en horfurnar í sovéskri
komuppskeru eru ekki góðar
sem stendur að sögn vestrænna
sérfræðinga.
Blað kommúnistaflokksins, Prav-
da, birti í gær langan lista fyrir-
mæla frá miðstjóm flokksins til
stjómenda landbúnaðarmála og er
sagt að auk fyrmefndra atriða sé
markmiðið að færa vísindarann-
sóknir nær búgörðunum sjálfum.
Notaðir verða fjárhagslegir hvat-
ar; bústjórar og vélahönnuðir, sem
skara fram úr, geta fengið allt að
25% kaupauka ef þeim tekst að
auka framleiðsluna. Bústjórar, sem
panta tæki er auka framleiðsluna,
fá að deila helmingi hagnaðarins
af aukningunni með viðkomandi
tækjahönnuðum. Stofnanir, sem
stunda rannsóknir og hönnun fyrir
landbúnaðinn, verða reknar á sjálf-
stæðum fjárhagsgrunni þegar frá
næsta ári. Á aðalfundi kommúnista-
flokksins í júní síðastliðnum hvatti
Gorbachev aðalritari til þess að
stjómendur búgarða fengju í framtí-
ðinni meira sjálfsforræði. Land-
búnaðinum er nú vandlega
miðstýrt.
Stefnt er að því að nýta í auknum
mæli líftækni til að auka fram-
leiðslu landbúnaðarafurða. Bústjór-
ar og tæknifræðingar í landbúnaði
verða sendir í allt að tveggja mán-
aða endurþjálfun samkvæmt nýja
skipulaginu.
Sovéska hagstofan skýrði frá því
á mánudag að búið væri að koma
í hús komuppskeru af aðeins 38,4
milljónum hektara borið saman við
50,9 milljónir hektara á sama tíma
í fyrra. Að sögn vestrænna sérfræð-
inga eru orsakimar fyrir seinagang-
inum þær að sáð var seinna en
venjulega sakir mikillar vetrar-
hörku en einnig votviðri í vor í
Ukrainu og Suður-Rússlandi. Þeir
telja ósennilegt að markmið stjóm-
valda, 232 milljón tonna komupp-
skera, náist á þessu ári.
í sovéska landbúnaðarblaðinu
Selskaya Zhizn sagði í gær að
margir bændur gætu ekki sýnt auk-
ið fmmkvæði t.d. með því að hafa
eigin kýr vegna þess að skortur
væri á fóðri fyrir siœpnumar. Blað-
ið áætlaði að árleg kjötframleiðsla
í stærsta Sovétlýðveldinu, Rússl-
andi, myndi aukast um 800 þúsund
tonn ef sérhver bóndi ætti eigin kú.
Vildu selja Rússum
norskan hátæknibúnað
Osló, frá fréttaritara Morgimblaðsins, J.E. Lauré.
FRÉTTARITARI norska ríkisút-
Reuter
Svartir námumenn bíða eftir að verða fluttir heim í hérað sitt.
Suður-Afríka:
Verkföll breiðast út
varpsins (NRK) er nú kominn í
vonda klípu, eftir að uppvíst varð,
að hún ásamt sovézkum eigin-
manni sínum reyndi að verða
NORÐMENN segjast gruna ná-
granna sína, Sovétmenn, um að
hafa á undanfömum ámm stolið
fimm rannsóknarduflum í Bar-
entshafi sem notaðar vora við
olíuleit.
Per Paust, talsmaður norska ut-
anríkisráðuneytisins, sagðist hafa
rökstuddan grun um að baujumar
hefðu verið teknar um borð í sovésk
skip því fylgja hefði mátt merkja-
sendingum frá þeim allt til hafnar
í Murmansk. Verðmæti hvers dufls
nemur allt að 500 þúsund norskum
krónum. Hann sagði ennfremur að
sovésk yfírvöld yrðu krafín skýr-
inga.
Bæði Norðmenn og Sovétmenn
umboðsmaður norskra fyrirtækja
í Sovétríkjunum. Bæði norska ut-
anríkisráðuneytið og NRK hafa
nú látið málið til sín taka og stöðv-
að þessa tilraun.
mikla reynslu af olíuleit á hafí úti
en leit Sovétmanna hefur einskorð-
ast við land. Astæðan fyrir stuldin-
um gæti því verið áhugi
Sovétmanna á tæknilegum búnaði
duflanna. Önnur skýring er sú að
Sovétmenn óttuðust að Norðmenn
notuðu baujumar til að fylgjast með
umferð sovéskra skipa á þessu
hemaðarlega mikilvæga svæði.
Sovéski sjávarútvegsráðherrann
sem nú er staddur í Noiegi sagði
við blaðamenn á fundi í gær að
fyndust duflin í. Sovétríkjunum
skyldi hann sjá til þess að Norð-
menn fengju þau aftur í hendur.
Fréttaritarinn, Marit Christiansen,
giftist fyrir nokkrum árum Juri
Sheriing, sem er rússneskur gyðing-
ur og kunnur balletkennari. Gifting
þessi vakti uppnám og margir urðu
til þess að krefjast þess, að Marit
yrði látin hætta starfí sínu, þar sem
hún gæti ekki verið óháð í því framar.
Að undanfomu hafa hjónin haft
samband við mörg norsk fyrirtæki,
sem m.a. selja hátæknibúnað og vilj-
að gerast söluumboðsmenn fyrir þau
í Moskvu.
Af þessum sökum var leitað til
norska sendiráðsins í Moskvu um
aðstoð. Þar var málið kannað í flýti
og komizt að þeirri niðurstöðu, að
umboðsmennska af þessu tagi myndi
fara í bága við lög.
Er Bjartmar Gjerde, útvarpsstjóri
NRK, frétti um málið, sendi hann
Marit Christiansen hvassyrt bréf og
lagði áherzlu á, að umboðsmennskan
væri ekki í samræmi við reglur NRK.
„Ég var bara túlkur er maðurinn
minn hafði samband við norsku fyrir-
tækin," er haft eftir Marit Christ-
iansen. „Það var aldrei ætlunin, að
ég gerðist aðili að því fyrirtæki, sem
sovézkur eiginmaður minn reyndi að
koma á fót.“
Talið er, að þessi atburður eigi
eftir að hafa einhver eftirmál, enda
þótt áformin um að selja norskan
hátæknibúnað til Sovétríkjanna hafi
farið út um þúfur.
Jóhannesarborg, Lusaka, Reuter.
VERKFALL hundrað þúsunda
svartra námumanna í Suður-
Afriku breiðist út og náði í gær
til verksmiðju sem framleiðir
gullstangir landsins.
Nítjan manns særðust í fyrrinótt
í átökum í gullnámum í nágrenni
Jóhannesarborgar. Samband námu-
fyrirtækja sagðist harma hörkuna
í vinnudeilunum og vonaðist til að
hægt væri að afstýra ofbeldi og
afskiptum ríkisins. Verkalýðsfélag
námumanna (NUM) krefst 30%
launahækkunar og hefur hvatt
meðlimi sína til að hverfa á heima-
slóðir ef þeim er ógnað. Cyril
Ramaphosa, aðalritari verkalýðs-
félagsins neitaði í gær þeim fullyrð-
ingum námaeigenda að fjölmargir
verkfallsmanna vildu snúa aftur til
vinnu.
Joe Clark, utanríkisráðherra
Kanada, er nú á ferðalagi um
Afríku og hyggst heimsækja Suð-
ur-Afríku. A för sinni hefur hann
átt viðræður við fulltrúa Afríska
þjóðarráðsins (ANC) sem berst
gegn stjóminni í Pretoríu. Clark
segist hafa hvatt þá til að fara
samningaleiðina í deilum þeirra við
stjómvöld og greint þeim frá vax-
andi ótta meðal vestrænna ríkja við
kommúnísk áhrif innan ráðsins.
Noregur:
Sovétmenn vændir
um baujustuld
Osló, frá fréttaritara Morgnnblaðsins Jan Erik Laure.
keppast nú við að leita að olíu og
gasi í Barentshafi. Norðmenn hafa