Morgunblaðið - 14.08.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
23
Albanía:
Sautján
flýjatil
Júgóslavíu
Belgrað, Reuter.
Sautján Albanir flúðu yfír til
Júgóslavíu á mánudagsnótt og
óskuðu hælis. Þar á meðal voru
nokkur böm, móðir með reifa-
bam og einkennisklæddur
hermaður.
Hið hálfopinbera dagblað
Politika sagði að fólkið hefði
lagt upp í háskafulla og erfíða
næturför sína jrfír Bidje-fjöll og
inn í Svartfjallaland eftir mikinn
undirbúning. Blaðið hafði eftir
fólkinu að það hefði flúið vegna
„bágra lífskjara, pyndinga og
ofsókna" af hálfu kommúnista-
stjómarinnar.
Albania er eina landið þar
sem stalínismi er enn opinber-
lega í hávegum hafður. Að
undanfömu hefur gætt alvar-
legs matvælaskorts í landinu svo
jaðrar við hungursneyð sums
staðar.
Malasía:
50 bíða dauða-
dóms vegna
ftkniefnabrota
í júní einum
Kuala Lumpur, Reuter.
Fimmtíu þeirra 489, sem
handteknir vom fyrir fíkniefna-
brot í Malasíu í júní einum, eiga
á dauða sínum von verði þeir
fundnir sekir. Samkvæmt mal-
æskum lögum skal dæma hvem
þann til dauða, sem á fínnast
meira en 15 g af heróíni eða
200 g af hassi.
Á fyrra misseri þessa árs vom
alls 5.450 manns handteknir
fyrir fíkniefnabrot, en af þeim
verða 275 kærðir fyrir brot, sem
skylda er að refsa fyrir með
dauðadómi, sé sakbomingurinn
sekur fundinn.
Kína:
Everest enn
hæst fjalla
Peking, Reuter.
Kínveijar héldu því í gær
fram að Everest-fjall væri enn
fjalla hæst, þrátt fyrir fullyrð-
ingar bandarískra fjallgöngu-
garpa fyrr á árinu um að það
væri aðeins í öðm sæti.
Fréttastofan Nýja Kína skýrði
frá því í gær að kínverskum
kortagerðarmönnum teldist svo
til að Everest-fjall væri 8.848,13
m á hæð, eða um 200 m hærra
en Gogir-fjall í Karakorum-fjall-
garðinum á landamæmm
Pakistans og Kína.
Brazilía:
Hagspá lofar
góðu fyrir 2000
Sao Paulo, Reuter.
Brazilía verður komin í hóp
þjóða fyrsta heimsins fyrir alda-
mót samkvæmt hagspá eins
stærsta banka landsins.
Þar er því spáð að með núver-
andi hagvexti og öðmm þáttum
hagþróunar muni þjóðarfram-
leiðslan vera orðin um 700
milljarða dala virði, sé miðað við
gengi 1986. í dag nemur þjóðar-
framleiðslan aðeins um 268
milljörðum dala. Samkvæmt
þessum tölum yrði þjóðarfram-
leiðsla á nef hvert um 4.000
dalir, sem er svipað og á Spáni
nú.
Sovétríkin:
Úrfelli
vegna
kjarna
sprengju-
tilraunar
Washington, Reuter.
TALSMAÐUR bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins, Charles
Redman, frá þvi að mælst hefði
geislavirkni í andrúmsloftinu
utan Sovétríkjanna eftir so-
véska kjarnorkutilraun í byrjun
ágúst. Bandaríkjamenn
sprengdu í gær kjarnasprengju
í tilraunaskyni í Nevada-eyði-
mörkinni.
Fornleifafræðingur við 1300 ára
gamla gröf.
Tölvumynd af hinum látna.
Tölvu-
draugur
Breskir fomleifafræðingar
hafa nú fengið til liðsinnis tölvu
sem magnar upp 1300 ára
gamlar líkamsleifar. Eftir svo
langa legu eru einu menjar hins
dauða litabreytingar og mis-
hæðir í jarðveginum. Tölvu-
skynjurum er komið fyrir í
beðnum og birtist þá mynd af
likinu á skjánum. Fomleifa-
fræðingamir vonast jafnvel til
að af uppvakningnum megi
greina dánarorsökina.
Talsmaður fnalsra
Sovéska tilraunin var gerð á
eyjunni Novaya Zemlya sem er í
Norður-íshafínu en þar hafa Sov-
étmenn oft sprengt tilrauna-
sprengjur sínar. Redman sagðist
ekki mega segja nákvæmlega frá
því hvemig Bandaríkjamenn hefðu
mælt geislavirka úrfellið frá
sprengingunni en vakti athygli á
því að Svíar hefðu nýlega mælt
aukna geislavirkni í Lapplandi.
Hann sagði að virknin hefði ekki
verið nægilega mikil til að geta
valdið heilsutjóni eða umhverfíssk-
aða.
í fyrradag sprengdu Sovétmenn
tilraunasprengju í Síberíu „í þágu
efnahagslegra hagsmuna“ eins og
það var orðað í frásögn sovésku
fréttastofunnar TASS. Sovéskir
embættismenn skýrðu frá því í
apríl að sprengdar hefðu verið tvær
kjamasprengjur í Úral-fjöliunum
til að auka rennsli úr olíulindum.
Reuter
William Verity yngri.
ins, sem samanstendur af nokkur
hundruð bandarískum einkafyrir-
tækjum annars vegar og viðskipta-
aðilum sovéska ríkisvaldsins hins
vegar, lét Verity berlega í ljós gagn-
rýni sína á það, „hvemig Banda-
ríkjamenn hnjóta ítrekað um eigin
skóþveng." Þar á hann við útflutn-
ingseftirlit og viðskiptahömlur
gagnvart kommúnistaríkjum, sem
hann telur að skaði fyrst og fremst
bandaríska viðskiptahagsmuni.
„Næstum allar verslunarþjóðir
líta öðru vfsi á málin en Bandaríkja-
menn," sagði Verity í viðtali við
bandarískt tímarit fyrir nokkm.
„Við höfum blandað stjómmálum
og viðskiptum saman í svo miklum
mæli, að það er farið að gera banda-
rískum fyrirtækjum erfítt fyrir um
viðskipti erlendis. Það verður að
leggja þama grundvallarreglur."
Á fréttamannaráðstefnu fyrir
þremur ámm lét Verity í ljós þá
skoðun, sem nú gerist æ algengari
meðal bandarískra kaupsýslu-
manna, að í flestum tilfellum væri
tilgangslaust að banna banda-
rískum fyrirtækjum að selja Sovét-
mönnum tæknibúnað. Þeir gætu
yfirleitt komist yfír hann annars
staðar og bandarísk fyrirtæki töp-
uðu aðeins viðskiptum.
Árið 1979 gagnrýndi hinn verð-
andi ráðherra einnig harðlega þá
ákvörðun Carter-stjómarinnar að
taka upp nánara viðskiptasamband
við Kína án þess að gera nokkra
breytingu á viðskiptaháttum sínum
við Sovétmenn. Viðskipti Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna takmark-
ast af lögum frá 1974, þar sem
innflutningur frá kommúnistaríkj-
um er takmörkunum háður nema
forsetinn staðfesti að brottflutn-
ingsleyfí fólks frá viðkomandi
löndum hafí verið gefinn ftjáls.
Heimild: New York Times
utanríkisviðskipta
Verity, verðandi viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, í svipmynd
WILLLAM Verity yngri, sem Re-
agan forseti tilnefndi í embætti
viðskiptaráðherra Banda-
ríkjanna á dögunum í stað
Malcolms Baldrige, er talinn
mjög hæfur maður og í miklu
áliti hjá forsetanum. Það mun
einkum tilkomið vegna starfa
Veritys sem formaður nefndar,
sem hafði það verkefni að afla
stuðnings einkaaðila við félags-
leg verkefni. Verity var einnig
varaformaður sovésk-banda-
ríska verslunarráðsins og hefur
getið sér gott orð fyrir störf sín
á þeim vettvangi, þar .sem hann
hefur iagt mikla áherslu á fijáls
utanríkisviðskipti.
Verity er sjötugur að aldri og
fyrrum stjómarformaður stórfyrir-
tækisins Armco. Reagan hefur
borið á hann mikið lof fyrir góðan
árangur í því að fá einkafyrirtæki,
stofnanir, trúarhópa og einstakl-
inga til þess að taka þátt í barátt-
unni við meiriháttar félagsleg
vandamál á sama tíma og opinber
útgjöld til félagsmála voru skorin
niður. „Þú hefur vakið Bandáríkin
til vitundar á ný um að það er
hægt að fínna svör við félagslegum
vandamálum hjá einkaaðilum,"
sagði Reagan í ávarpi til Veritys
árið 1982.
í starfí sínu sem varaformaður
sovésk-bandaríska viðskiptaráðs-
Bandaríkjaforseti vill beina sjónum fram á við:
Reagan fínnst nóg komið
af vopnasöluhneykslinu
Washington, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkja-
Reuter
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti flutti á miðvikudagskvöld sjón-
varpsávarp. Áður sat hann fyrir og tóku blaðaljósmyndarar myndir.
Forsetinn kvaðst oft hafa verið æfur af bræði vegna vopnasölumáls-
ins.
forseti helt í gær ræðu í fylkinu
Nebraska á leið sinni í sumar-
ieyfi í Kaliforníu og gerði þar
harða hrið að bandaríska þing-
inu. Beindi hann sjónum sínum
að framtíðinni, reifaði stefnu
sína í efnahagsmálum og minnt-
ist hvergi á vopnasöluna til írana
og greiðslur, sem runnu í vasa
skæruliða í Nicaragua.
Reagan ávarpaði bandarísku
þjóðina í sjónvarpi á miðvikudags-
kvöld og kvaðst hafa gert mistök
er hann þráaðist við að selja írönum
vopn á laun. Ávarp Reagans miðað-
ist að því að skilja vopnasölu-
hneykslið, sem legið hefur á stjóm
hans eins og mara í níu mánuði,
að baki.
Reagan tók öll tvímæli af um það
í ræðu sinni í Nebraska að í hans
huga væri vopnasölumálinu lokið,
þótt mörgum spumingum væri enn
ósvarað eftir ellefu vikna vitna-
leiðslur rannsóknamefndar Banda-
ríkjaþings.
I ræðunni kvað við annan tón en
í sjónvarpsávarpinu, þar sem forset-
inn sagði að endurvekja þyrfti
traust milli þingsins og stjómarinn-
ar. „Þingið vill eyða fyrst og borga
síðar," sagði Reagan í ræðu sinni
í gær. Hann réðst einnig að þeim,
sem aðhyllast vemdarhyggju í við-
skiptum og sagði að þeir vildu draga
úr viðskiptahalla með því að setja
á hömlur og höft. Átti forsetinn þar
við lagafrumvarp, sem hann vill að
verði breytt fyrir afgreiðslu á þingi
og hótar að beita neitunarvaldi ella.
Reagan var harðorður um þátt
Johns Poindexter, aðmiráls og fyrr-
um öryggisráðgjafa, í sjónvarps-
ávarpi sínu. Poindexter sagði í
vitnaleiðslum þingnefndarinnar um
vopnasölumálið að hann hefði hald-
ið greiðslum til skæruliða í Nic-
aragua leyndum til að hlífa
forsetanum.
Sagði Reagan að Poindexter
hefði farið út fyrir valdsvið sitt og
endanleg ábyrgð gagnvart banda-
rísku þjóðinni væri sín: „Aðmiráll-
inn bar því vitni að hann hefði viljað
hlífa mér; aftur á móti á aldrei að
hlífa forsetanum við sannleikanum.
Engin aðgerð er það leynileg að
æðsti ráðamaður þjóðarinnar eigi
ekkert að fá að vita. Mér bar skylda
til að neyta réttar míns og taka
sjálfur ákvörðun um málið," sagði
Reagan.
George Mitchell, öldungadeildar-
þingmaður demókrata, sem sat í
rannsóknamefndinni, sagði eftir
ávarpið að forsetinn ætti alla sök á
vopnasölumálinu: „Mistökin voru
ekki aðeins fólgin í því hvemig
stefnunni var framfylgt, heldur
stefnunni sjálfri og hún var forset-
ans.“ Mitchell sagði að forsetanum
hefðu meðal annars orðið á þau
mistök að leggja^ blessun sína yfír
vopnasöluna til írans: „Þetta eru
svo alvarleg mistök að Bandaríkja-
menn, sem nú leggja lff sitt að veði
[á Persflóa], eiga á hættu að ráðist
verði á þá með bandarískum vopn-
um.“