Morgunblaðið - 14.08.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
Ortega hittir Castro
Daniel Ortega, forseti Nicaragua, hélt í fyrrakvöld
í óvænta för til Kúbu til viðræðna við Fidel Castro
Kúbuleiðtoga. Þeir munu ræða tillögur um friðar-
gerð í Mið-Ameríku. Á myndinni sést Ortega ræða
við fréttamenn áður en hann steig um borð í flug-
vél sina. Honum á hægri hönd er utanríkisráðherrann
Miguel D’Escoto, sem fylgdi honum til Kubu, en
maðurinn í röndóttu skyrtunni er varaforseti Nic-
aragua, Sergio Ramirez.
Ortega sagði að um „vinnuheimsókn" væri að
ræða og að forsetar Guatemala og Costa Rica vissu
af heimsókninni og styddu hana.
Sóðamyndbönd
allsráðandi í Kína
Peking, Reuter.
TUGÞÚSUNDIR Kínverja í
Jiangxi-héraði hafa látið glepj-
ast af klámfengnum, erlendum
myndböndum vegna þess
hversu ieiðinleg hin innlendu
þykja. Kom þetta fram í
Kínverska dagblaðinu í gær.
Blaðið sagði að myndbönd þess-
arar gerðar, sem eru hluti af öldu
ódýrra erlendra klám- og ofbeldis-
mynda, hefðu m.a. verið sýnd í
11 kvikmyndamiðstöðvum í héraði
nokkru. í Kína ku vera um 25.000
myndbandasýningarhús, 50.000
myndbandstæki í einkaeign og
þúsundir kapalkerfa, en öll skortir
þau efni til útsendingar. í Al-
þýðulýðveldinu sjálfu voru hins
vegar aðeins framleidd 93.200
myndbönd á síðasta ári, sem nær
engan veginn að fullnægja eftir-
spuminni.
Þessvegna gripu margir til þess
bragðs að kaupa ódýrar og óvand-
aðar (en mjög gróðavænlegar)
myndir að utan. í þessum myndum
velta framleiðendur sér upp úr
manndrápum, hefnd, hjátrú og
ástarvellu, en allt þetta gengur vel
í kínverska áhorfendur. Blaðið
sagði ennfremur að mörg þeirra
kínversku myndbanda, sem í fram-
boði eru, væru gömul eða með
fræðsluefni; traust hvað varðar
hugmyndafræðina, en slappari
þegar litið væri af sjónarhóli lista
og skemmtunar.
Ródos:
Eldarnir slökktir
Aþenu, Reuter.
SLÖKKVILIÐSMÖNNUM
hefur nú tekist að ráða niður-
lögum skógareldanna á hinni
fornfrægu grísku eyju Ródos
í Eyjahafi. Bálið eyddi 81.000
hektara akurlendis og drap
nokkur þúsund skepnur. Slys
urðu engin á mönnum.
Filippseyjar:
Enrile telur lokun banda-
rískra herstöðva líklega
Komi stj órnarskrárbreyting1 ekki til
Manilu, Reuter.
JUAN Ponce Enrile, fyrrver-
andi varnamálaráðherra
Filippseyja, sagði í gær,
skömmu eftir að hann var opin-
berlega lýstur öldungadeildar-
þingmaður, að ólíklegt væri að
herstöðvasamningurinn við
Bandaríkin yrði endurnýjaður
þar sem bann við kjarnorku-
Atlantshafsbandalagið:
Flotaæf-
ingar á
Noregshafi
Osló, Reuter.
UM ÞAÐ BIL 150 skip frá
tíu aðildarríkjum Atlants-
hafsbandalagsins munu taka
þátt í viðmiklum flotaæfing-
um á Noregshafi, sem hefjast
þann 31. ágúst. Æfingar
þessar kallast „Ocean Safari
87“ og er tilgangurinn með
þeim að kanna hæfni sveita
NATO til að halda opnum
flutningaleiðum á sjó á
óvissu- og átakatimum.
Herskip og flugvélar frá
Belgíu, Bretlandi, Kanada,
Hollandi, Noregi, Portúgal,
Bandaríkjunum og Vestur-
Þýskalandi munu taka þátt í
æfingunum. Auk þeirra munu
Spánveijar og Frakkar senda
sveitir á vettvang. Verður þetta
í fyrsta skipti sem Spánveijar,
sem gengu í NATO árið 1982,
eru með í meiriháttar æfíngum
á vegum bandalagsins. Frakkar
og Spánveijar taka ekki fullan
þátt í vamarsamvinnu aðild-
arríkjanna en ríkjunum tveimur
er hins vegar oft boðin þátttaka
í æfíngum á vegum NATO.
vopnum væri stjórnarskrár-
bundið og auk þess væri
vafasamt að öldungadeildin
féllist á hann.
Enrile sagði fréttamönnum að
óþarfi væri að endurskoða samn-
inginn, sem rennur út 1991, þar
sem hann þyrfti að staðfesta af
2/a hlutum hinnar 24 manna öld-
ungadeildar. „Slík endurskoðun
væri fánýti eitt, þar sem vafasamt
má telja að 16 öldungadeildar-
menn samþykki endumýjun. Að
minnsta kosti tíu þeirra em á
móti herstöðvunum," sagði Enrile.
Clark-herflugvöllurinn og flota-
stöðin í Subic-flóa eru stærstu
herstöðvar Bandaríkjahers utan
Bandaríkjanna.
Enrile, sem loks var lýstur öld-
ungadeildarþingmaður eftir
þriggja mánaða langa baráttu, var
rekinn úr ríkisstjór Aquino í nóv-
ember á síðásta ári eftir að nokkrir
stuðningsmenn hans vom gmnað-
ir um aðild að meintri valdaránstil-
raun.
Á fundinum í gær sagði Enrile
þó að ekki væri loku fyrir það
skotið að gerð yrði stjómarskrár-
breyting á ákvæðinu um kjama-
vopn og þá ættu Bandaríkjamenn
að geta framlengt samning sinn.
„Kjamorkuvopnabann myndi gera
herstöðvar Bandaríkjamanna
gagnslausar," sagði Enrile. „Eina
lausnin liggur hjá alþýðunni og
hún kreftst stjómarskrárbreyting-
ar.“
Nokkur ólga er nú á Filippseyj-
um og sakaði Ramon Mitra, forseti
fulltrúadeildar þingsins, her og
lögreglu um vanhæfni, þar sem
enn hefur ekki tekist að leysa
morðið á fylkisstjómarmanninum
Jaime Ferrer. Hann var myrtur
2. ágúst. „Lögregluþjónar og lög-
reglustjórar eru drepnir og ef
þessir menn geta ekki varið sjálfa
sig, hvemig geta þeir þá varið
þegna landsins?" spurði Mitra.
Reuter
Enrile sigri hrósandi eftir að lýst hafði verið yfir kjöi hans til öld-
ungadeildarinnar.
Til þess að stemma stigu við
notkun ólöglegra skotvopna til-
kynnti Fidel Ramos, yfírmaður
hersins, að frá og með gærdegin-
um yrðu öll byssuleyfí almennra
borgara endurköiluð.
Þá barst í gær tilkynning frá
forsetahöllinni um að Juanito Ferr-
er, yngri bróðir Jaimes heitins,
hefði verið skipaður í hans stað.
Skipunin á þó eftir að hljóta stað-
festingu öldungadeildarinnar.
Yannis Robatis, talsmaður
grísku stjórnarinnar, sagði frétta-
mönnum í gær að fjárhagslegt tjón
af eldunum hefði enn ekki verið
metið, en grísk dagblöð töldu tjó-
nið nema hundruðum milljóna
króna.
Upptök eldanna, sem em þeir
mestu í sögu Ródos, eru nú í rann-
sókn. Vamarmálaráðherra
Grikkja, Haralambopoulos, sagði
óvíst hvort um íkveikju eða slys
af vangá væri að ræða.
Erlendir ferðamenn urðu ekki
fyrir miklu ónæði af völdum skóg-
areldanna. Fáeinir vom þó fluttir
á brott frá tveimur þorpum, en
meirihluti sólarlandafaranna var á
norðurhluta eyjunnar, þangað sem
eldamir náðu ekki.
Papandreou, forsætisráðherra
Grikkja, hefur sent Goria, forsæt-
isráðherra Italíu, persónulegar
þakkir fyrir hjálp Itala við slökkvi-
starfið, en þeir sendu slökkviflug-
vélar, sem dældu vatni á eldana
úr lofti.
Austurríki
Fyrrverandi hermenn lýsa
stuðningi við Waldheim
Croi Routor
Graz, Reuter.
Æ FLEIRI Austurríkismenn
sem börðust með þýska hernum
í seinni heimsstyijöldinni vi(ja
til stuðnings Waldheim, kansl-
ara Austurríkis, líka komast á
lista bandariskra yfirvalda yfir
óæskilega útlendinga.
Á þennan hátt vilja þeir bregð-
ast við því sem talsmaður hreyf-
ingarinnar kallar „móðgun við alla
seinnistríðskynslóðina". Líkt og
Waldheim segjast þeir einungis
hafa verið að gegna skyldu sinni
með því að beijast fyrir Hitler.
Auk þess hafí þeir ekki vitað hvað
gerðist í vinnubúðum nasista fyrr
en stríðinu lauk. Sökin sé því ekki
þeirra.
Hreyfingin er umdeild í Aust-
urríki og telja sumir að hún muni
einungis skaða enn frekar álit
landsins útávið.
Dómsmálayfirvöld í Banda-
ríkjunum munu taka málið fyrir
en líklegt þykir að beiðni um það
bil þúsund Austurríkismanna verði
hafnað.