Morgunblaðið - 14.08.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
25
Sovézki sjávarútvegs-
ráðherrann í Noregi
Osló, frá fréttaritara Morgfunblaðsins, J. E.
„BROTTVÍSUN sovézkra og
norskra sendistarfsmanna fyrir
skömmu hefur ekki haft nein
áhrif á viðræður þær, sem ég
hef átt við sovézka sjávarút-
vegsráðherrann, Nikolaj Kotlj-
ar,“ sagði Bjarne Mork Eydem,
sjávarútvegsráðherra Noregs í
Lauré.
fyrradag. Kotljar kom þá ásamt
7 manna sovézkri sendinefnd í
fimm daga opinbera heimsókn
til Noregs.
Kotljar og Eidem rædddust við
í fyrradag. Kvaðst sá síðamefndi
hafa vakið máls á því, sem gerðist
við Bjamarey í síðustu viku, en
Kína:
Hreinsanir í flokknum
Peking, Reuter.
ÞREMUR menntamönnum, sem þekktir eru fyrir fijálslyndi, hef-
ur verið vísað úr kínverska kommúnistaflokknum og er þetta liður
í herferð gegn vestrænum hugmyndum að sögn kínverskra heim-
ildamanna. Fyrr á árinu færðist herferð gegn „borgaralegu
fijálslyndi" mjög í aukana eftir mótmælaaðgerðir stúdenta sem
kröfðust aukins lýðræðis.
Talið var að síðastnefnda her-
ferðin hefði að mestu lognast út
af í maí. Mennimir þrír, sem nú
vom reknir, em Su Shaozhi, for-
stjóri rannsóknunarstofnunar
Marx-leninismans Mao Ze Dong-
hugsunarinnar, leikritahöfundur-
inn Wu Zuguang og Wang
Ruoshui, fyrmm aðstoðarritstjóri
flokksmálgagnsins, Dagblaðs al-
þýðunnar.
Að sögn heimildamanns er
hreinsunum af þessu tagi alls ekki
lokið og má búast við því að fleiri
§úki fljótlega. Vestrænir stjómar-
erindrekar vom undrandi á brott-
rekstri Su Shaozhis sem talinn
hefur verið náinn stuðningsmaður
Zhao Ziyangs, aðalritara kom-
múnistaflokksins, og ákafur
talsmaður lýðræðisumbóta og að-
skilnaðar valdþáttanna í kínversku
stjómkerfi. Embættismaður hjá
Félagsvísindaakademíunni skýrði
frá því að Su væri enn við stjóm-
völinn hjá Rannsóknastöðinni
áðumefndu. Kínverskir heimilda-
menn töldu mögulegt að Su hefði
verið rekinn til að friða íhaldsöm
öfl í flokknum.
Valdamesti maður Kína, Deng
Xiaoping, hefur lýst því yfir að
pólitískar umbætur verði megin-
viðfangsefnið á aðalfundi kom-
múnistaflokks landsins í október
næstkomandi.
þá vom þar 34 sovézkir togarar
að ólöglegum veiðum. Sovétmenn
neita að viðurkenna lögsögu Norð-
manna á svæðinu við Bjamarey,
en hafa að mestu leyti fallizt á
eftirlit þeirra þar. Eydem sagðist
ekki hafa annað um málið að segja
að svo komnu, en að hann hefði
gert grein fyrir sjónarmiðum
Norðmanna í málinu.
Annað helzta umræðuefni sjáv-
arútvegsráðherranna tveggja
verður möskvastærðin við veiðar
við Bjamarey.
í gær átti sovézka sendinefndin
að ræða við norska útflutningsráð-
ið og frammámenn í fiskvinnslu
og veiðarfæraframleiðslu.
Þá átti Kotljar ennfremur að
snæða hádegisverð með Gro Har-
lem Bmndtland, forsætisráðherra
Noregs. Síðan var áformað, að
hann héldi til Þrándheims, þar sem
hann yrði viðstaddur opnun sjávar-
útvegssýningar.
Hlutabréfaviðskipti hafa aldrei verið meiri í Wall Street en siðustu
daga. Mynd þessi var tekin í kauphöUinni í New York undir lokun
á þriðjudag. Þann dag skiptu fleiri hlutabréf um hendur en nokkru
sinni áður á einum degi í Wall Street.
Metdaorur í Wall Street
New York. Reuter ^ J
New York, Reuter
HLUTABRÉF hækkuðu mjög í
Wall Street á þriðjudag og kom-
ust þá hærra en nokkru sinni
áður.
Alls vom þá seld rúml. 278 millj.
hlutabréf og salan því ein sú mesta
á einum degi í sögunni. Hækkun á
hlutabréfum, sem Dow Jones nær
til, nam 44,64 stigum og komust
þau upp í 2.680,48 stig og því hærra
en nokkm sinni. Eftirspum eftir
öðram verðbréfum en hlutabréfum
var einnig mjög mikil, ekki hvað sízt
erlendis frá.
„Þetta kann að vera vísbending
um það, að ástandið í efnahagslífmu
sé betra en við héldum," var haft
eftir Jerome Hinkle, kunnum verð-
bréfasala í Wall Street. Benti hann
á fram komnar upplýsingar í síðustu
viku um minnkandi atvinnuleysi í
Bandaríkjunum og góða afkomu
margra stórfyrirtækja á öðmm
fjórðungi þessa árs.
VÖRN GEGN VEÐRUN
Það er misskilningur að járn þurfi að veðrast.
Alltof lengi hafa menn trúað því að galvaníserað
járn eigi að veðrast áður en það er málað. Þannig
hafa menn látið bestu ryðvörn, sem völ er á
skemmast og afleiðingin er ótímabær ryðmyndun.
Með réttum HEMPELS grunni má mála strax
og lengja þannig lífdaga bárujárns verulega.
HEMPELS þakmálning er sérhæfð á bárujárn
og hefur frábært veðrunarþol.
(slenskt veðurfar gerir meiri kröfur til utanhússefna en
veðurfar flestra annara landa. Ef steinn er óvarinn við þessar
aðstæður grotnar hann niður á skömmum tíma, aðallega
vegna frostþíðuskemmda.
Steinsílan gefur virka vörn gegn þess konar áhrifum.
Opin veggjamálning, grunnur jafnt og yfirefni á stein, múr-
stein og eldri málningu. Hefur afbragðs þekju og mikið veðr-
unarþol. Fjöldi lita sem halda skerpu sinni lengi án þess að
dofna.
SILPPFEIAGIÐ
Dugguvogi4 104 Reykjavik 91-842 55