Morgunblaðið - 14.08.1987, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
47
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
USlW'Ull
Af marxískum gleraugum
Það er fróðlegt að horfa á Pétur
mikla í sjónvarpinu en það besta
er að þá getur maður borið fróðleik-
inn saman við það sem heimurinn
í dag veit um Sovét—Rússland.
Landeigendumir og kirkjan
héldu þjóðinni í heljargreipum kúg-
unar og fáfræði. Landið var alveg
lokað fyrir umheiminum og allt út-
lent var af því illa. Menning
endurreisnartímabilsins komst aldr-
ei til Rússlands og, eins og Pétur
mikli er látinn segja, þá hafði hann
aldrei lesið aðra bók en biblíuna.
Hann vissi að siglingar og það
að opna landið var það nauðsynleg-
asta. Verslun og siglingar eru
undirstaða velmegunar og menn-
ingar.
Kirkjan á hans dögum gegndi
sama hlutverki og kommúnista-
flokkurinn gerir í Rússlandi í dag.
Núna er landið lokað og ekkert
ferðafrelsi. Þaðan af síður tjáning-
arfrelsi og allt illt er fijálsu löndun-
um að kenna og fólki bannað að
umgangast útlendinga.
Pétur fékk útlendinga til að
kenna þjóðinni skipasmíðar og aðr-
ar iðngreinar.
Lélegt sjónvarp
Kæri Velvakandi
Við erum hér tveir óánægðir með
dagskrá.Ríkissjónvarpsins um helg-
ar. Sem dæmi tökum við laugar-
dagskvöldið 1. ágúst en þá náðu
leiðindin hámarki með hljómleikum
Judy Collins. Með fullri virðingu
fyrir Ríkissjónvarpinu teljum við að
þetta efni höfði engan veginn til
landsmanna og ekki heldur sunnu-
dagsdagskráin. Við viljum ekki
þurfa að kaupa myndlykla til að
hafa ánægju af sjónvarpi.
Að endingu viljum við lýsa
óánægju með hlutdrægni reykví-
skra íþróttafréttaritara í knatt-
spymulýsingum. Á þetta einkum
við um Stöð 2.
Við vonum að þeir sem hlut eiga
að máli bæti sig í þessum efnum
og að það verði sem skjótast.
1499-8837
6018-6287
Til að styrkja vald sitt fékk hann
gyðing til að skipuleggja leyniþjón-
ustu og er KGB arftaki hennar og
gegnir sama hlutverki. í dag þurfa
Rússar að stunda iðnaðar— og
vísindanjósnir því að fijáls hugsun
er bönnuð samkvæmt marxisman-
um. Á dögum Péturs mikla lásu
þeir sem það gátu aðeins biblíuna,
en í dag eru bara kennd marxísk
fræði og sannleikurinn er kenndur
eftir þeim fræðum.
Hver getur komið auga á sann-
leikann sem sér í gegnum marxísk
gleraugu? Á dögum keisaranna í
Rússlandi unnu skáldin ódauðleg
verk bæði í bókmenntum og tónlist
en núna eru skáldin annað hvort
drepin eins og Gorki eða í fangabúð-
um. Pétur mikli sagðist ætla að
Ágæti Velvakandi.
Nýverið var á baksíðu Morgun-
blaðsins frétt þar sem þannig var
sagt frá ummerkjum um kolagrafir
hjá Bláfellshálsi: „Við svonefnda
Brunnlæki skammt frá Bláfellshálsi
á Kili má sjá leifar af kolagröfum,
sem bendir til mikillar skógartekju
fyrr á öldum."
Nú er Kjölur talinn vera svæði
það milli Langjökuls og Hofsjökuls
sem afmarkast af Hvítá og Jökul-
falli að sunnan en af Blöndu og
Seyðisá að norðan.
Bláfell og Bláfellsháls eru sunnan
eða vestan Hvítár og eru því ekki
á Kili. Hinsvegar heitir Kjalvegur
fjallvegurinn milli Ámessýslu og
Norðurlands hvort heldur í Húna-
vatnssýslu, Skagaíjörð eða Eyja-
íjörð. Bláfellsháls er því við Kjalveg.
Góðskáldið okkar sagði að lands-
lag væri lítils virði ef það héti ekki
eitthvað en það verður enn minna
virði þegar farið er að rangnefna
það.
Væri það mjög miður ef nafn
þessa svæðis færi í rugling, ekki
síst vegna þeirra sagna og atburða
sem því eru tengdir allt frá land-
námi, landaleit á öræfum, útlegð
bæta lífskjörin en árangurinn varð
lítill og Khruschev sagði að eftir
fimm ár yrðu þau eins góð og í
Bandaríkjunum en árangurinn er
sá að í dag er atvinnuleysisstyrkur-
inn í Bandaríkjunum hærri en
daglaunin í Rússlandi.
Þetta vita allir en kommúnistam-
ir á Vesturlöndum beijast eins og
á dögum Stalíns fyrir útbreiðslu
hans alls staðar í heiminum. Þeir
sjá allt gegnum marxísk gleraugu
og þeirra hjörtu slá enn á Volgu-
bökkum eins og skáldið sagði. Pétur
mikli opnaði Rússland en Lenin og
þeir sem á eftir komu lokuðu því
aftur. Gorbachev Verður lítið ágengt
því að hann ætlar að halda í eins
flokks kerfi marxismans.
Húsmóðir
Fjalla-Eyvindar, örlög Reynistaða-
bræðra og sem nú er ein af perlum
sumarferðalaga almennings um
hálendið.
Benedikt Gunnarsson
Athugasemd
vegna grein-
ar um eyðni
í Morgunblaðinu hafa birst
margar góðar greinar um eyðni, og
þar á meðal um félagsleg áhrif
þess að hún kom upp. Greininni á
bls. 42 í blaðinu þriðjudaginn 11.
ágúst er augljóslega ætlað að vera
framhald af því. En þegar leitað
er fanga í erlendum blöðum er
margt að varast, eins og það þegar
skrifum.er fremur ætlað að vera
til afþreyingar en upplýsingar. Það
held ég að hafi verið tilgangur
blaðakonunnar sem skrifaði þessa
grein fyrir New York Times. Hún
byijar nefnilega greinina á því að
segja að hún ætti ekki að þurfa að
telja sig eiga á hættu að fá eyðni,
þar sem hún sé „hvít kona, ekki
lesbía. . .“
Staðreyndin er sú að þær les-
bíur, sem eiga ekki mök við
karlmenn eru allra kvenna ólíkleg-
astar að fá hvaða kynsjúkdóm sem
er, og þar á meðal eyðni.
Guðni Baldursson
HEILRÆÐI
Bláfellsháls er ekki á Kili
HAGKA
P, PENNINN
ARTAÐ / yiRKA,
DIDO, SKIFAN
TIL
HAMINGJU
^/IEÐ NÝJU VERSLANIRNAR
IKRINGLUNNI
Umdasch
Umboð á íslandi, sími 13049
Blaðburðarfólk
óskast!
Garðvinna
Garðvinnan á að vera þeim til ánægju og heilsubótar sem hana stunda.
Sláttuvélar og tijáklippur létta mönnum vinnu en gæta þarf varúðar
í meðferð þessara tækja svo að ekki hljótist slys af.
Undarlegir
hamborgarar
Steingrímur Ámason 10 ára hafði
samband við Velvakanda og vildi
koma eftirfarandi á framfæri:
„Eg fór á Tommaborgara um
daginn og bað um venjulegan
Tommaborgara. Ég bað sérstaklega
um að það yrði ekkert salat með
honum og engin sósa önnur en tóm-
atsósa.
Síðan beið ég og annar viðskipta-
vinur eftir borgurunum okkar og
sagði hann mér að síðast þegar
hann fór á Tommaborgara hefði
hann pantað tvo hamborgara með
ananas en þegar hann ætlaði að
borða þá uppgötvaði hann að hvor-
ugur þeirra var með ananas.
Ég ætlaði að fara með minn ham-
borgara heim og þegar mitt númer
var kallað upp tók ég hann og fór.
Þegar ég ætlaði síðan að borða
hann sá ég að allt sem ég hafði
beðið um að yrði ekki á hamborgar-
anum var á honum en engin
tómatsósa."
Athugið: Aðeins til afleysinga !
AUSTURBÆR ÚTHVERFI
Laugavegur neðri Síðumúli
Laugavegur Ármúli
frá 101-171 Álftamýri
Lindargata frá 1 -40 Heiðargerði
Lindargata frá 40-63 — jafnatalan
Ingólfsstraeti Oðinsgata Eskihlíð I
Kirkjuteigur
Meðalholt HEIMAR:
Samtún Álfheimar
KÓPAVOGUR Sólheimar
Gnoðarvogur
Langabrekka Kópavogsbraut frá 14-42
Holtagerði SELTJARNARNES Unnarbraut Melabraut