Morgunblaðið - 14.08.1987, Síða 48
MÓRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
>
48
HIA stsrka B-llð ÍA sem sigraðl á Tommamótinu mun elnnig keppa
á Hl-C-mótlnu f naestu vlku.
KNATTSPYRNA / YNGRI FLOKKAR
Hi-C Skagamótid
hefst í kvöld
HANDKNATTLEIKUR / ÞYSKALAND
HSVvlllfá
íslenskan leikmann
Hið árlega Hi-C-Skagamót í
knattspymu 6. flokks drengja
fer fram á Akranesi dagana
14,—16. ágúst nk. Mótið verður
með svipuðu sniði og verið hefur.
Keppt verður bæði í A- og B-liða-
keppni innan- og utanhúss.
Að mótinu standa Foreldrafélag 6.
flokks ÍAj Knattspymufélag ÍA og
Vífílfell. 1 ár verða 20 lið frá 10
félögum. Þátttakendur verða um
250. Liðunum sem taka þátt í mót-
inu verður skipt í riðla eins og hér
segir:
A-rið’ll: FH, Fylkir, Þróttur R., ÍBK
og UBK.
B-riðill: Víkingur, Bolungarvík, Þór
Ve., ÍA og Haukar.
Auk knattspymu verður ýmislegt
sér til gamans gert svo sem knatt-
þrautakeppni, leikir, grillveisla,
kvöldvaka og skoðunarferðir.
Glæsileg verðlaun verða veitt, bæði
til liða og einstaklinga.
Dagskrá:
Föstudagur 14. ájrúst:
Kl. 13.30: Setning.
Kl. 14—18: Knattspyma utanhúss.
Kl. 19: Grillveisla, knattþrautakeppni, leikir.
Laugardagur 15. ágúst:
Kl. 10—12.40: Knattspyma utanhúss.
Kl. 14—18: Knattspyma innanhúss.
Kl. 20.30: Kvðldvaka.
Sunnudagur:
Kl. 10-14.20: Úrslitaleikir.
KI. 15: Verðlaunaafhending, mótsslit.
Aðalstjóm Hamburger Sport
Verein í Þýskalandi hefur
ákveðið að leggja fjármagn í að
styrkja handboltalið félagsins, í
þeim tilgangi í að koma því upp í
1. deild á ný. Einar Magnússon,
fyrrum landsliðsmaður, lék einmitt
með liðinu á sínum tíma er það var
í 1. deildinni, en nú er liðið í þriðju
deild. Forráðamenn félagsins töluðu
við Jóhann Inga Gunnarsson, þjálf-
ara meistara Essen og íþrótta-
fréttamann Morgunblaðsins í
Þýskalandi, og lýstu yfír áhuga
sínum á að fá íslenskan leikmann
til liðsins.
Sögðu þeir reynsluna af íslenskum
leikmönnum það góða í Þýskalandi
að þeir töldu það bestan kost að
hafa einn slíkan í liðinu — en sem
kunnugt er er eingöngu lejrfílegt
að hafa einn útlending í hveiju liði.
Það er svo spuming hvort einhver
íslenskur leikmaður er tilbúinn til
að leika í 3. deildinni þýsku.
FRJÁLSAR
Frímann í
13. sætiá
EM unglinga
FRÍMANN Hreinsson varð
13. af 14 keppendum í 10
kflómetra hlaupi á Evrópu-
meistaramóti unglinga, sem
lauk í Birmingham í Eng-
landi á sunnudag. Frfmann
hljóp á 32:40 mín. og var
nœr mínútu frá unglinga-
meti sínu.
Sigurvegari í 10 km hlaup-
inu var Austur-Þjóðveijinn
Jens Karrass, sem hljóp á
29:19,38. Tyrkinn Haydar Dog-
an varð annar á 29:23,45 og
Zoltan Kaldy Ungveijalandi
þriðji á 29:26,84.
Guðrún Amardóttir náði 13.
bezta tíma í undanrásum í 200
metra hlaupi en aðeins 12 stúlk-
ur komust í undanúrslit. Guðrún
hljóp á 25,4 sek. Guðrún hljóp
100 metra á mótinu á 12,31 sek.
Á mótinu stökk Sovétmaðurinn
Vladimir Otsjkan 8,17 í lang-
stökki og setti nýtt Evrópumet
unglinga. Ilke Wyludda Austur-
Þýzkalandi setti unglingaheims-
met í kringlu, kastaði 70,58
metra og Skotinn Jamie Hender-
son hljóp 100 metra á 10,20
sek., sem er Evrópumet ungl-
inga.
HANDKNATTLEIKUR /STULKNALANDSLIÐIÐ
Skýringar IHF á brott-
vísun Islands úr HM
EINS og Morgunblaðið hefur
skýrt frá, hefur Alþjóðahand-
knattleikssambandið (IHF)
orðið við þeirri beiðni blaðs-
ins að útskýra hvers vegna
íslenzka kvennalandsliðinu í
handknattleik 20 ára og yngri
var vísað úr keppni á HM
stúlkna. Skýrði blaðið frá
þessari ákvörðun með viðtali
við formann kvennalandsliðs-
nefndar HSÍ16. júlí. Samtímis
var leitað skýringa hjá IHF.
Svar sambandsins er endur-
sagt hér á eftir:
Agætu handboltavinir. Eins
og ykkur er kunnugt áttu
handknattleikslið Vestur-Þýzka-
lands (HVÞ) og íslands (HSÍ) að
leika saman í undankeppni Heims-
meistaramóts stúlkna. Vegna
ítrekaðs karps af hálfu HSÍ,
hundsun fyrirmæla um að svara
skeytum og afdráttarlausum yfír-
lýsingum Hilmars Björnssonar,
þjálfara íslenzka liðsins, í Strass-
borg (sjá skeyti 22. júní), var
íslenzka liðið dæmt úr keppni.
Ákvörðunina tók Mótanefnd
(COC) IHF að eigin frumkvæði.
Var hún studd af meirihluta
nefndarmanna og tekin að B.
Thiele (nefndarmanni og forseta
Handknattleikssambands Vest-
ur-Þýzkalands) fjarstöddum.
Þar sem HSÍ hefur haft uppi rang-
færslur gagnvart fjölmiðlum,
rangtúlkað fyrirliggjandi orðsend-
ingar og reynt að sniðganga lög
og reglur IHF hefur IHF tekið
saman þessa skýrslu til að upp-
lýsa þá sem málið varðar.
Eins og ykkur er kunnugt fer
heimsmeistaramótið fram með
venjulegum hætti, þ.e. 16 liða
mót. Vegna frammistöðu sinnar á
síðasta móti hafa þijú Evrópuríki
öðlast þar sjálfkrafa þátttökurétt;
Sovétmenn, Pólvetjar og Norð-
menn, og Danir hljóta fjórða sætið
sem mótshaldarar. Þá eru þar
eftir 6 sæti fyrir Evrópulönd og
skráðu 11 ríki sig til keppni um
þau, þ.á.m. Vestur-Þýzkaland og
Island. Dráttur fyrir undankeppn-
ina fór fram í Basel 10. marz og
hafði Curt Wadmark, formaður
Mótanefndar IHF, yfírumsjón
með honum. Drógust þá íslend-
ingar á móti Vestur-Þjóðveijum.
Til þess að koma í veg fyrir frek-
ari rangtúlkun á því sem átti sér
stað milli HSÍ, HVÞ og IHF og á
endanum leiddi til brottvísunar
íslenzka stúlknaliðsins látum við
fylgja upplýsingar um alla boð-
miðlun þeirra í milli.
Þar kemur greinilega í ljós að
réttilega hefur verið staðið að
ákvörðuninni um að dæma ísland
úr keppni. Hún er í fullu samræmi
við lög og reglur IFH og öðlaðist
gildi þar sem engin formleg mót-
mæli voru borin fram á tilskildum
tíma, eins og lög IHF kveða á um.
Af gefnu tilefni viljum við taka
fram að ákvörðunin var að öllu
leyti tekin að frumkvæði Móta-
nefndar IHF. Við erum sannfærð-
ir um að þessi skýrsla gefur sanna
mynd af málavöxtum og sýnir að
IHF stóð rétt að verki. Málinu er
hérmeð lokið af okkar hálfu.
f.h. Alþjóðahandknattleikssam-
bandsins.
Max Rinkenburger, ritari
Curt Wadmark, formaður Móta-
nefndar
•Jörg Bahrke, framkvæmdastjóri.
12. marz:
Opinber tilkynning frá IHF send
til viðkomandi ríkja um undan-
keppnina. Þar kom fram:
„Þess er hérmeð farið á leit við
viðkomandi ríki að þau komist að
gagnkvæmu samkomulagi um
leikdaga sín á milli og tilkynni
skrifstofu IHF í Basel um þá daga
sem þau vilja leika á. Leikir geta
farið fram nú þegar. í samræmi
við ákvarðanir teknar á mótaþing-
inu í Dakar 1986 verða leikimir
að fara fram í síðasta lagi í maí/
júní. Undankeppninni verður að
vera lokið 28. júní.“
20. marz:
Telex HSÍ til IHF og HVÞ:
HSÍ segir: „Við eigum mjög erfítt
með að sætta okkur við þá tíma-
setningu, sem þið leggið til fyrir
leikina í undankeppninni. Við
kjósum fremur að leika sem allra
fyrst og stingum upp á að leikið
verði 14/15 apríl á íslandi og
21-23 apríl í Vestur-Þýzkalandi".
Athugasemdir: Þetta er fyrsta til-
laga HSÍ um leikdaga. Fullyrðing-
in ...þá tímasetningu, sem þið
leggið til...“ er rangtúlkun [á bréfi
IHF]. Tímasetningin (þ.e. maí/
júní) var ekki ákveðin af IHF,
heldur af hinu opinberu móta-
þingi, sem fór fram sem hluti af
þingi IHF í Dakar 1986.
24. marz:
Telex HVÞ til HSÍ (afrit til
IHF):
HVÞ segist ekki geta fallist á leik-
daga, sem HSÍ leggur til vegna
þýzka meistarmótsins og um-
samdra milliríkjaleikja. HVÞ
leggur til að leikið verði á íslandi
6-8 júní og 26-28. júní í V-Þýzkal-
andi.
30. marz:
Telex HVÞ til HSÍ og IHF:
HVÞ útskýrir aftur hvers vegna
það getur ekki fallizt á leikdaga,
sem HSÍ leggur til og ítrekar sína
fyrri tillögu.
6. apríl:
Telex HSÍ til HVÞ.
Afrit ekki sent IHF. Innihald
ókunnugt.
21. apríl:
Telex HVÞ til HSÍ og IHF:
HVÞ tekur fyrir þann möguleika
að leika á íslandi á þeim tima,
sem stungið var upp á og endur-
tekur fyrri tillögu um leikdaga.
23. apríl:
Telex HSÍ til IHF:
HSÍ skýrir IHF frá því að ekki
muni nást samkomulag milli HSÍ
og HVÞ um leikdaga og biður IHF
að ákveða þá. Biður um að IHF
ieggi til að leikurinn á íslandi
fari fram á tímabilinu 16.-21. maí
og leikið verði í V-Þýzkalandi
19.-21. júní (til vara 26.-28. júní
eins og HVÞ lagði til).
Athugasemd: Með tilliti til þess
sem síðar kemur virðist tillagan
um leikdag 16.-21. maí vafasöm
- sjá 20. mafi
30. apríl:
Telex IHF til HSÍ og HVÞ:
Fyrri upplýsingar ítrekaðar um
að HSÍ og HVÞ verði að komast
að gagnkvæmu samkomulagi um
leikdaga:
„Okkur skilst á hinum ýmsu orð-
sendingum frá ykkur báðum að
þið getið ekki náð samkomulagi
um leikdaga. Það er því ákvörðun
IHF að HSÍ ákveði leikdag fyrir
heimaleik sinn gegn Vestur-Þjóð-
veijum (á tímabilinu 16-21 maí
sbr. telex HSÍ). HVÞ ákveði leik-
dag fyrir heimaleik sinn gegn
íslendingum (á tímabilinu 26.-28.
júní, sbr. telex frá HVÞ). Við
væntum samþykkis".
Athugasemd: IHF segist „vænta
samþykkis," þ.e. ætlast til þess
að HSÍ og HVÞ samþykki þá leik-
daga, sem lagðir eru til. Augljós-
lega verður að skoða setninguna
„Það er því ákvörðun IHF...“ sem
tillögu , öðruvísi hefði IHF ekki
leitað eftir samþykki.
4. maí:
Telex HSÍ til HVÞ (afrit til
IHF):
HSÍ endurtekur „sína“ dagsetn-
ingu nú sem 16. maí og biður um
að vestur-þýzka liðið komi til
landsins 15. maí og fari heim 17.
maí.
Athugasemd: Þetta verður að
skoðast sem svo að HSÍ samþykki
leikdag fyrir leikinn á íslandi en
samþykki HVÞ vantar enn.
4. maí:
Telex HVÞ til HSÍ og IHF:
HVÞ segist ekki samþykkja leik-
dag á Islandi og vísar til fyrri
útskýringa (vegna milliríkja-
leikja). Segir sambandið að
meirihluti leikmanna stúlknaliðs
þess sé á keppnisferðalagi með
þýzka kvennalandsliðinu 5.-17.
maí í Bandaríkjunum. Snúi liðið
heim 18. maí. HVÞ býðst til að
leika á íslandi helgina eftir heim-
komuna, þ.e. 23/24 maí.
Athugasemd: í marz 1987 sam-
þykkti IHF keppnisferð kvenna-
landsliðs Vestur-Þýzkalands í
Ameríku í maí. Það er ósanngjöm
krafa að ætlast til að liðið leiki í
Evrópu strax eftir heimkomuna
úr 12 daga keppnisferð.
6. mai:
Telex HSÍ til IHF:
HSÍ „segir ómögulegt“ að breyta
leikdegi heimaleiks síns. „Leik-
dagur hefur verið ákveðinn 16.
maí en þó mögulegt að hann fari
fram 18. eða í síðasta lagi 19.
maí.“
Athugasemd: Með fullyrðingunni
„Leikdagur hefur verið ákveð-
inn...“ er litið framhjá telexi IHF
30. apríl þar sem HSÍ og HVÞ
eru beðin að samþykkja tilmæli
sambandsins og reglumar gera
ráð fyrir „gagnkvæmu samkomu-
lagi“ um leikdaga.
8. maí:
Telex IHF til HSÍ og HVÞ:
IHF segir það ljóst að HSÍ gangi
hart eftir því að leika heimaleik
sinn 16/17. maí, en segist ekki
samþykkja þá dagsetningu þar
sem kvennalandslið Vestur-
Þýzkalands sé ásamt öðmm
evrópskum liðum að kynna hand-
knattleikinn í Ameríku með
þátttöku sinni í USA-Cup. IHF
leggur til að leikið verði á íslandi
tveimur dögum fyrir eða eftir leik-