Morgunblaðið - 14.08.1987, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Aukinn áhugi
Norðmanna á
knattspymu
Fyrri hálfleikur var mjög vel leik-
in af báðum liðum og sköpuðu
liðin sér ijölmörg færi eftir vel út-
færðar leikfléttur. Samvinna
leikmanna beggja
Frá liða var mjög góð -
JóniÓttarri hraðar og fjörugar
Karissyni sóknir og góð
markvarsla.
í síðari hálfleik sóttu Svíar lát-
laust. Á 67. og 68. mínútu skoruðu
Svíar, en bæði mörkin voru dæmd
af vegna rangstöðu og þótti það
vafasamur dómur að flestra áliti.
Norski markvörðurinn, Erik
Thorstvedt, varði ótrúlega vel, var
besti leikmaðurinn á vellinum og
geta Norðmenn þakkað honum fyr-
ir jafnteflið. Af öðrum norskum
leikmönnum má nefna Anders
Giske og Egil Johansen. Hjá Svíum
voru bestir Stefan Petersen, Mats
Magnusson og varamaðurinn
Andreas Limpar. Leikur liðanna var
sá 95. í rÖðinni.
Á meðal norskra knattspymu-
áhugamanna er töluverður áhugi
fyrir leik íslands og Norðmanna í
Evrópukeppninni 9. og 23. septem-
ber. Norðmenn munu gera allt til
að lenda ekki í síðasta sæti í riðlin-
um. Með sigrum í leikjunum gegn
íslandi geta Norðmenn enn bjargað
andlitinu - en vonandi tekst landan-
um að gefa þeim á baukinn.
NORÐMENN gerðu markalaust
jafntefli við Svía á Ullevaal-
leikvanginum í Óslo í blíðskap-
arveðri, 20 stiga hita og logni
í fyrra kvöld. Ahorfendur voru
22.237 (uppselt) og eru ár og
dagar síðan svo margir áhorf-
endur hafa sótt leiki norska
landsliðsins. Fleiri þúsund
manns urðu frá að hverfa og
urðu því að fylgjast með leikn-
um í sjónvarpi.
Erik Thorstvedt
49
GOLF
Hjóna- og
parakeppni
OPIN hjóna- og parakeppni í
golfi verður haldin á golfvellin-
um íVestmannaeyjum á
laugardaginn og hefst kl.
14.00.
Leiknar varða 18 holur með for-
gjöf. Keppni verður þannig "
háttað, að karlamir sjá um að koma
kúlunni inn á grín en síðan sjá kon-
umar um að koma henni niður.
Nánari upplýsingar er hægt að fá
í síma 98-2363.
Öldunga-
mót
í Leirunni
OPIÐ öldungamót í golfi verður
haldið á Hólmsvelli í Leiru á
sunnudaginn og hefst það
klukkan 10. Keppt verður í
tveimur flokkum, 50-55 ára og
55 ára og eldri, og geta kepp-
endur skráð sig í sfma
92-14100.
HANDBOLTI
Víkingur
Aðalfundur handknattleiks-
deildar Víkings fer fram í
félagsheimilinu við Hæðgargarð
fimmtudaginn 20. ágúst og hefst
kl. 20.30.
Stjómin.
inn í Þýzkalandi (27/28. júní).
„Það félli okkur vel ef samböndin
gætu komizt að gagnkvæmu sam-
komulagi."
Athugasemd: Þetta telex gengur
augljóslega lengra en telex IHF
frá 30. apríl.
Miður-maí:
HSÍ fer þess á leit við HVÞ og
IHF í símtali að báðir leikimir
verði leiknir árla í september. IHF
lýsir möguleika á að samþykkja
það, með það í huga að HVÞ fal-
list á þessa tillögu.
18. maí:
Telex HVÞ til HSÍ
HVÞ segist ekki geta leikið í sept-
ember vegna þýzku deildakeppn-
innar. ítrekar fyrra tilboð að leika
heima á tímabilinu 26.-28. júní
og tveimur dögum áður eða síðar
á íslandi.
20. maí:
Munnlegar upplýsingar berast frá
HSÍ um að meirihluti stúlknanna
í íslenzka stúlknaliðinu fari þenn-
an dag til útlanda í skólaferðalag.
27. maí:
Telex HVÞ til HSÍ
HVÞ skýrir HSÍ aftur frá því að
leikdagar í september gangi ekki.
Endurtekur fyrra tilboð um leik-
daga í lok júní.
9. júní:
Telex HVÞ til IHF:
HVÞ óskar eftir tafarlausri
ákvörðun um leikdaga til þess að
geta pantað íþróttasal og gistingu
fyrir mótheijana, dómarana o.s.
frv.
10. júní:
Telex IHF til HSÍ:
IHF fer fram á það við HSÍ að
það svari því innan sólarhrings
hvort sambandið samþykki að
leika gegn Vestur-Þýzkalandi og
á hvaða leikdögum.
12. júnf:
Telex HSÍ tU IHF:
HSÍ endurtekur að heimaleikur
íslands hefði átt að fara fram á
tímabilinu 16.-19. maí. Ennfrem-
ur segist HSÍ ekki samþykkja að
leika báða leikina 26.-28. júní,
heldur skuli þeir leiknir í septem-
ber.
Athugasemd: Eins og áður er út-
skýrt gat HVÞ ekki samþykkt að
leikið yrði á tímbilinu 16.-19. maí
(hefur það stuðning IHF, þar sem
ekki er hægt að knýja lið til leiks
strax eftir heimkomuna til Evrópu
úr annarri heimsálfy). Auk þess
er í þessu telexi HSÍ ekki hirt um
þau tilmæli að telexi IHF frá 10.
júní yrði svarað innan sólar-
hrings, og ekki er minnst á neina
leikdaga eins og beðið var um.
16. júni:
Telefax IHF til HSÍ og HVÞ:
Óskað er eftir því við bæði löndin
að þau komist að samkomulagi
um leikdaga og nú er þeim veittur
48 stunda frestur til þess (svo
eðlilegur tími gefist til að und-
irbúa leikina, útvega dómara
o.s.frv.). Tekið var fram við báða
aðila að ef gagnkvæmt samkomu-
lag lægi ekki fyrir á hádegi þann
18. júní tæki gildi ákvörðun IHF
um að liðin lékju í Vestur-Þýzkal-
andi um helgina 27/28 júní og á
íslandi 30.júní/l. júlí eða helgina
4/5. júlí.
Þessi ákvörðun var tekin í ljósi
allra málsatvika og með tilliti til
samþykktar mótaþingsins í Dakar
um leiktímabil fyrir undankeppn-
ina. Hún var einnig byggð á
ríkjandi venjum í málum af þessu
tagi og regíum, sem kveða á um
að setja beri leiki á síðasta dag
þess tímabils, sem mótaþingið
ákveður (þ.e. maí/júní). Báðir
aðilar voru beðnir að ræðast við
símleiðis.
16. júnf:
Telex HVÞ til HSÍ og IHF:
HVÞ samþykkir leikdag fyrir hei-
maleik sinn 26. júní kl. 18:30 í
Unna.
18. júnf:
Ákvörðun IHF frá 16. júní um
leikdaga tekur gildi þar sem HSÍ
og HVÞ gátu ekki komið sér sam-
an um þá. HSÍ hafði hvorki fyrir
því að svara IHF eða HVÞ símleið-
is (eins og beðið var um 16. júní)
eða með bréfi hvort það ætlaði
að mæta til leiks eður ei. Ekkert
svar (beðið var um símhringingu)
er ekki hægt að túlka sem sam-
þykki fyrir því að leika. Af
„baktjaldaviðræðum" var það hins
vegar augljóst að ákvörðun um
að mæta ekki til leiks hafði verið
tekin nokkrum dögum áður - sjá
22. júní, Strassborg.
19. júnf:
Telex HVÞ til IHF:
Skírskotað til telefax frá IHF 16.
júní um lokafrest HSÍ og HVÞ til
að semja um leikdaga ekki seinna
en 18. júní. Tilvitnun: „Af munn-
legum svörum íslenzka hand-
knattleikssambandsins er augljóst
að ísland ætlar ekki að mæta til
leiks.“
22. júní:
Telex IHF til HSÍ:
Haft var samband við HSÍ kl.
08:30 og það beðið að staðfesta
þáttöku ekki seinna en samdæg-
urs klukkan 13:00 ella yrði
íslenzka liðinu vísað úr keppni:
„í samræmi við fyrri orðsendingu
hafa leikdagar verið ákveðnir
27/28. júní Þýzkalandi og þremur
dögum síðar á íslandi. Oskað er
eftir staðfestingu yðar f dag, 22.
júní, kl. 13:00 að svissneskum
tíma. Sömu staðfestingu þurfið
þið að gefa HVÞ. Hafi staðfesting
ekki borist klukkan 13:00 verður
liði ykkar vísað úr keppni."
22. júnf f Strassborg (á ráð-
stefnu IHF):
Til viðbótar telexi, sem sent var
samdægurs, voru gerðar ítrekaðar
en árangurslausar tilraunir af
hálfu IHF til að ná símasambandi
við HSÍ eða formann þess frá
Strassborg. Af tilviljun heyrði
þjálfari íslenzka liðsins [Hilmar
Bjömsson], sem staddur var í
Strassborg, um þessar tilraunir
til að ná sambandi við HSÍ. Leiddi
það til stuttra funda fulltrúa IHF
með honum og til fundar hans
með þjálfara vestur-þýzka
stúlknaliðsins. Þjálfarinn, herra
[Hilmar] Bjömcson, tók það skýrt
fram við Bahrke, framkvæmda-
stjóra IHF, -og einnig við
Hoffmann, vestur-þýzka þjálfar-
anum, að íslenzka liðið mundi
ekki mæta til leiks um næstu
helgi og að það drægi sig út úr
keppni. Hann sagði að ekki væri
hægt að tefla fram liði vegna
sumamáms leikmanna í útlönd-
um. Að hans sögn var þetta
opinber ákvörðun HSÍ. Hann
sagðist leiður yfir því hvemig
komið væri.
22. júni kl.14:02:
Telex HSÍ til HVÞ (afrit til
IHF):
Ekkert vitnað til ákvörðunar IHF
(um leikdaga í lok júní) heldur
fallist á að leika báða leikina í
Vestur-Þýzkalandi helgina 4/5.
júlí, gegn ákveðnum fjárhagsleg-
um skilyrðum.
Athugasemd: Þetta telex er ekki
hið formlega svar sem IHF bað
um heldur enn ein tilraun til að
ná fram öðmm leikdögum.
22. júní:
Telex HVÞ til IHF
Upplýsingar um að lýstum fjárkr-
öfum HSI (fyrir því að leika báða
leikina í Vestur-Þýzkalandi) sé
ekki hægt að ganga að.
23. júní:
Telex HSÍ til HVÞ
Endurtekin fyrri tillaga um leik-
daga (sem HVÞ hefur þegar
hafnað); ekkert vitnað til ákvörð-
unar IHF um leikdaga; og HVÞ
ásakað um að nota aðild Thiele
að Mótanefnd IHF í eigin þágu.
23. júní:
Mótanefndin ákveður að B. Thiele
fjarstöddum að vísa íslenzka
stúlknaliðinu úr keppni. Bæði HSÍ
og HVÞ verði tilkynnt um niður-
stöðuna.
26. júni:
Telefax IHF til HSÍ (afrit
HVÞ):
Allar aðalástæðumar fyrir
brottvísun íslands úr keppninni
dregnar saman og ítrekaðar. Til-
vitnun:
„Það verður að segjast eina ferð-
ina enn að Handknattleikssam-
band íslands hafði að engu
ákvörðun IHF um lokafrestinn 18.
júní, sem tilkynnt var 16. júní,
og svaraði hvorki (rétt og form-
lega) telefaxi IHF 16. júní né
telexi IHF 22. júní.
Mótanefnd ákvað þess vegna, að
nefndarmanni frá Vestur-Þýzkal-
andi [B. Thiele] fjarstöddum og
með samþykki evrópskra stjómar-
manna í IHF, hinn 23. júní 1987
að breyta hvorki: ákvörðun IHF
frá 18. júní né ákvörðun um
brottvísun íslenzka liðsins úr
keppni 22. júní.“
Þessi samþykkt var einnig byggð
á þeirri staðreynd að HSIsvaraði
ekki telexi IHF frá 10. júní með
réttum hætti svo og á afdráttar-
lausum yfiriýsingum þjálfara
íslenzka liðsins, Hilmars Bjöms-
sonar.
9. júli:
Telex HSÍ tíl IHF:
íslendingar tilkynna IHF að þeir
samþykki ekki ákvörðun Móta-
nefndarinnar um að vísa þeim úr
keppni.
Athugasemd: Lög IHF (grein 52
í Handbók IHF og ákvarðanir
þingsins 1986 sem birtar em á
bls. 14 í fréttabréfi IHF númer
151) gefa aðildarlöndum mögu-
leika á að mótmæla ákvörðunum
IHF. HSÍ notfærði sér hins vegar
ekki þennan möguleika. Af þeim
sökum var þetta telex aðeins ritað
niður til minnis en málið ekki
rætt frekar.
3. ágúst:
Telex HSÍ til IHF:
Meira stagl af hálfu HSÍ og rang-
ar og samhengislausar tilvitnanir
í framangreind telex.
Tilvitnun: „Með því að svara ekki
telexi IHF frá 16. júní var Hand-
knattleikssamband íslands að
samþykkja ákvörðun IHF [um
leikdaga]. Þjálfara okkar var ætl-
að að ræða við þýzka þjálfarann
í Strassborg og reyna að komast
að hentugri niðurstöðu."
Athugasemd: Þetta er í algjörri
mótsögn við telex HSÍ 23. júní
um að fá að leika 4. og 5. júlí og
athafnir íslenzka þjálfarans í
Strassborg (kom þangað 19. júní,
tók fyrst við sér 22. júní og þá
af því að hann var fyrir tilviljun
nærstaddur þegar fulltrúar IHF
reyndu að ná símasambandi við
HSÍ) og opinberar yfírlýsingar
hans þar.